Morgunblaðið - 04.06.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1995 19
inn sem uppi hefur verið.
Vegna hins langa valdatíma
Ramsesar II er tiltölulega mikið
vitað um hann og þá siði sem við-
hafðir voru á þeim tíma. Hin ný-
fundna gröf 5 veitir hins vegar
miklar viðbótarupplýsingar, m.a.
um greftrunarsiði. Flest önnur graf-
hýsi sem fundist hafa eru löng og
mjó en grafhýsið nýja teygir anga
sína víða, líkt og kolkrabbi.
Skrióió wm súlnasal
Frá innganginum liggur súlna-
salur, hliðar hans eru að minnsta
kosti 15 metrar á lengd og 16 súlur
á gólfínu. Salurinn, sem án efa
hefur verið afar tilkomumikil, er
nú fullur af sandi og mold, sem
borist hefur inn vegna flóða. Nú
hefur verið grafinn þröngur gangur
í gegn um hann sem menn verða
að skríða eftir til að komast að
dyrum sem liggja að aðalganginum.
Hann er hins vegar rúmgóður og
tiltölulega hreinn.
Ljóst er að grafarræningjar hafa
nær ekkert skilið eftir. Vitað er að
eitt grafarránið var framið um það
bil 1150 f.Kr. en í 3.000 ára gömlu
papýrushandriti er getið réttarhalda
yfír þjófí sem náðist í Konungadaln-
um. Hann játaði eftir pyntingar að
hafa brotist inn í gröf Ramsesar II
og hafa svo snúið aftur næstu nótt
til að ræna gröf barna hans.
Af ummerkjum við gröfína að
dæma hefur hún staðið óáreitt í um
2.000 ár.
Loftið á göngunum hallar niður
á við fyrir enda hvors gangs og
telur Weeks það benda til þess að
undir grafhýsinu sé önnur hæð, þar
sem konungasynimir kunni að vera
grafnir. Ástæðan er sú að dyraopin
að klefunum, sem eru 3x3 metrar,
eru of n\jó, um 75 sm., til að hægt
hafi verið að koma steinkistum
prinsa inn um þau. Telur Weeks
að klefamir hafí verið nokkurs kon-
ar kapellur þar sem færðar vom
fómir. Þá benda spmngur í gólfinu
til þess að holrými sé undir göngum
og klefum.
Synirnir kynntír guóununt
Veggir grafhýsisins eru víða illa
farnir, sökum flóða, lekrar vatns-
leiðslu sem lögð var yfír grafhýsið
og vegna hristingsins sem verður
er langferðabifreiðar fara hjá. Em
sumar áletranir og myndir í molum
en aðrar heilar og litir í skreytingum
eins skýrir og væru þær nýjar.
Myndletrið segir frá því að fjórir
synir Ramsesar II em grafnir á
staðnum. Kynnir faðir þeirra þá
fyrir Re-Harakhty, sólarguðinum,
Hkfrusi, guði' himinsins sem bar
fálkahöfuð, og Hathor, gyðju móð-
ureðlisins, sem var í líki kúar. Þetta
endurspeglar þá trú Forn-Egypta
að faraóar töldust hálfguðir í lif-
anda lífi og að lífið var aðeins við-
komustöð á leiðinni til þess að öðl-
ast guðseðli.
Hvaó meó dœturnar?
Hingað til hefur nær ekkert ver-
ið vitað um örlög barna faraóanna
og því er grafhýsið stórmerk heim-
ild. Það er annaðhvort merki um
það að Ramses II lét grafa börn
sín á allt annan hátt en aðrir, eða
þá að fomleifafræðingum hefur
yfirsést Qöldi konunglegra graf-
hýsa. Fjölda annarra spuminga er
einnig ósvarað, t.d. hvenær graf-
hýsið var byggt, hversu lengi það
var notað og hvað varð um dæturn-
ar? Vom þær ef til vill grafnar í
Drottningadalnum, suðvestur af
Konungadalnum?
Weeks og hópur hans mun hefj-
ast handa að nýju í júlí og býst
hann við að uppgröfturinn muni
taka um fímm ár. Yfirvöld í Egypta-
landi segja ekkert liggja á að gera
gröfína aðgengilega almenningi, nú
þegar séu 10 til 12 grafír opnar.
Fjölmargar grafir faraóanna em
ófundnar og mikið verk bíður forn-
leifafræðinga í Konungadalnum og
næsta nágrenni. Ekki er að efa að
faraóarnir hefðu glaðst yfír því
hversu vel geymd leyndarmál þeirra
em. Þeir hafa hins vegar vart séð
fyrir að þörfín fyrir bflastæði yrði
til að afhjúpa þau.
Osiris
Stytta afguöi undir-
heimanna, án andlits
Nöln íjögurra sona Ramsesar II hala lundist
i grafhýsinu, rituö meö egypsku myndletri
tiS^t mt.
1. sonur: Amun-her-khepeshel 9. sonur: Sethy
Bandarískir fornleifafræðingar hafa svipt hulunni
af stærsta grafhýsi sem fundist hefur í
Konungadalnum en þeir telja aö þar
séu nokkrir af 52 sonum faraós-
ins Ramsesar II grafnir
Nú þegar hafa fundist 67 klefar
í grafhýsinu sem 4
er 3.000 ára ,r>- v
gamalt. *—
alhöandi
gangur
2. sonur: Ramses
t6. sonur: Mery-Atum
Klefar undir
súlnasal
Inngangur
Gröf sem fannsl fyrst áriö
1820 en varekki grafin upp
Brot úr múmíum,
styttum, skartgripum,
húsgögnum og matar-
fómum fundust í klefunum.
Nöfn sonanna
fundust greypt I
vegg nærri innganginum
Stigar og afliöandi gangur sem
kunna aö liggja aö enn fleiri klefum.
REUTER
Heimild: Dr. Kent Weeks viö Bandariska háskólann I Kairó
RAMSESAR II
EGYPSKT GRAFHYSI VARPAR LJOSI A AFKOMENDUR
CS - PRO tæknin í Ijósritunar-
vélum er framtíðarlausn fyrir þá
sem vilja bætt afköst í betra
umhverfi.
CS - PRO Ijósritunarvélin frá MINOLTA er
umhverfisvænni en hingað til hefur þekkst, hún
er hljóðlátari, varahlutir eru endurnýtanlegir og
minna fertil spillis af pappír.
CS-PR0 er augljós kostur fyrir nútímafyrirtæki:
Framúrskarandi myndgæði
Aukið öryggi í rekstri
Einföld í notkun
Minna viðhald
MINOLTA
CS-PRO Ijósritunarvélar
Skreti á untian inu í framtídina
Mikil framleiðni
KJARAN
SKRIFSTOFUBÚNAÐUR
SÍÐUMÚL114,108 REYKJAVÍK, SÍMI 5813022
MÆUÆMÆMÆM
Heimildir: Time, Newsweek, Reuter
og US News & World Report.