Morgunblaðið - 04.06.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.06.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1995 19 inn sem uppi hefur verið. Vegna hins langa valdatíma Ramsesar II er tiltölulega mikið vitað um hann og þá siði sem við- hafðir voru á þeim tíma. Hin ný- fundna gröf 5 veitir hins vegar miklar viðbótarupplýsingar, m.a. um greftrunarsiði. Flest önnur graf- hýsi sem fundist hafa eru löng og mjó en grafhýsið nýja teygir anga sína víða, líkt og kolkrabbi. Skrióió wm súlnasal Frá innganginum liggur súlna- salur, hliðar hans eru að minnsta kosti 15 metrar á lengd og 16 súlur á gólfínu. Salurinn, sem án efa hefur verið afar tilkomumikil, er nú fullur af sandi og mold, sem borist hefur inn vegna flóða. Nú hefur verið grafinn þröngur gangur í gegn um hann sem menn verða að skríða eftir til að komast að dyrum sem liggja að aðalganginum. Hann er hins vegar rúmgóður og tiltölulega hreinn. Ljóst er að grafarræningjar hafa nær ekkert skilið eftir. Vitað er að eitt grafarránið var framið um það bil 1150 f.Kr. en í 3.000 ára gömlu papýrushandriti er getið réttarhalda yfír þjófí sem náðist í Konungadaln- um. Hann játaði eftir pyntingar að hafa brotist inn í gröf Ramsesar II og hafa svo snúið aftur næstu nótt til að ræna gröf barna hans. Af ummerkjum við gröfína að dæma hefur hún staðið óáreitt í um 2.000 ár. Loftið á göngunum hallar niður á við fyrir enda hvors gangs og telur Weeks það benda til þess að undir grafhýsinu sé önnur hæð, þar sem konungasynimir kunni að vera grafnir. Ástæðan er sú að dyraopin að klefunum, sem eru 3x3 metrar, eru of n\jó, um 75 sm., til að hægt hafi verið að koma steinkistum prinsa inn um þau. Telur Weeks að klefamir hafí verið nokkurs kon- ar kapellur þar sem færðar vom fómir. Þá benda spmngur í gólfinu til þess að holrými sé undir göngum og klefum. Synirnir kynntír guóununt Veggir grafhýsisins eru víða illa farnir, sökum flóða, lekrar vatns- leiðslu sem lögð var yfír grafhýsið og vegna hristingsins sem verður er langferðabifreiðar fara hjá. Em sumar áletranir og myndir í molum en aðrar heilar og litir í skreytingum eins skýrir og væru þær nýjar. Myndletrið segir frá því að fjórir synir Ramsesar II em grafnir á staðnum. Kynnir faðir þeirra þá fyrir Re-Harakhty, sólarguðinum, Hkfrusi, guði' himinsins sem bar fálkahöfuð, og Hathor, gyðju móð- ureðlisins, sem var í líki kúar. Þetta endurspeglar þá trú Forn-Egypta að faraóar töldust hálfguðir í lif- anda lífi og að lífið var aðeins við- komustöð á leiðinni til þess að öðl- ast guðseðli. Hvaó meó dœturnar? Hingað til hefur nær ekkert ver- ið vitað um örlög barna faraóanna og því er grafhýsið stórmerk heim- ild. Það er annaðhvort merki um það að Ramses II lét grafa börn sín á allt annan hátt en aðrir, eða þá að fomleifafræðingum hefur yfirsést Qöldi konunglegra graf- hýsa. Fjölda annarra spuminga er einnig ósvarað, t.d. hvenær graf- hýsið var byggt, hversu lengi það var notað og hvað varð um dæturn- ar? Vom þær ef til vill grafnar í Drottningadalnum, suðvestur af Konungadalnum? Weeks og hópur hans mun hefj- ast handa að nýju í júlí og býst hann við að uppgröfturinn muni taka um fímm ár. Yfirvöld í Egypta- landi segja ekkert liggja á að gera gröfína aðgengilega almenningi, nú þegar séu 10 til 12 grafír opnar. Fjölmargar grafir faraóanna em ófundnar og mikið verk bíður forn- leifafræðinga í Konungadalnum og næsta nágrenni. Ekki er að efa að faraóarnir hefðu glaðst yfír því hversu vel geymd leyndarmál þeirra em. Þeir hafa hins vegar vart séð fyrir að þörfín fyrir bflastæði yrði til að afhjúpa þau. Osiris Stytta afguöi undir- heimanna, án andlits Nöln íjögurra sona Ramsesar II hala lundist i grafhýsinu, rituö meö egypsku myndletri tiS^t mt. 1. sonur: Amun-her-khepeshel 9. sonur: Sethy Bandarískir fornleifafræðingar hafa svipt hulunni af stærsta grafhýsi sem fundist hefur í Konungadalnum en þeir telja aö þar séu nokkrir af 52 sonum faraós- ins Ramsesar II grafnir Nú þegar hafa fundist 67 klefar í grafhýsinu sem 4 er 3.000 ára ,r>- v gamalt. *— alhöandi gangur 2. sonur: Ramses t6. sonur: Mery-Atum Klefar undir súlnasal Inngangur Gröf sem fannsl fyrst áriö 1820 en varekki grafin upp Brot úr múmíum, styttum, skartgripum, húsgögnum og matar- fómum fundust í klefunum. Nöfn sonanna fundust greypt I vegg nærri innganginum Stigar og afliöandi gangur sem kunna aö liggja aö enn fleiri klefum. REUTER Heimild: Dr. Kent Weeks viö Bandariska háskólann I Kairó RAMSESAR II EGYPSKT GRAFHYSI VARPAR LJOSI A AFKOMENDUR CS - PRO tæknin í Ijósritunar- vélum er framtíðarlausn fyrir þá sem vilja bætt afköst í betra umhverfi. CS - PRO Ijósritunarvélin frá MINOLTA er umhverfisvænni en hingað til hefur þekkst, hún er hljóðlátari, varahlutir eru endurnýtanlegir og minna fertil spillis af pappír. CS-PR0 er augljós kostur fyrir nútímafyrirtæki: Framúrskarandi myndgæði Aukið öryggi í rekstri Einföld í notkun Minna viðhald MINOLTA CS-PRO Ijósritunarvélar Skreti á untian inu í framtídina Mikil framleiðni KJARAN SKRIFSTOFUBÚNAÐUR SÍÐUMÚL114,108 REYKJAVÍK, SÍMI 5813022 MÆUÆMÆMÆM Heimildir: Time, Newsweek, Reuter og US News & World Report.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.