Morgunblaðið - 04.06.1995, Síða 4

Morgunblaðið - 04.06.1995, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ JÍ Éðyw VIKAN 28/5 - 3/6. ►FRUMVARP til breytinga á lögum um stjóm fiskveiða var lagt fyrir Alþingi í vik- unni. Þorskveiðar krókabáta verða áfram takmarkaðar við 21.500 lestir. Allir króka- bátar munu þurfa að sæta banndögum sem eru jafn- margir og banndagar á yfir- standandi ári. ►LAXVEIÐI á stöng hófst í Norðurá í Borgarfirði og í Laxá á Ásum 1. júní. Lítil veiði var í ánum fyrstu dag- ana. Daginn eftir var Þverá opnuð og verða ámar opn- aðar hver af annarri á næst- unni. Blanda, 5. júní, ogþví næst Haffjarðará, Laxá i Kjós og Laxá í Aðaldal 10. júni. Síðan koma húnvetnsku ámar, Vatnsdalsá, Víðidalsá og Miðfjarðará, einnig Langá á Mýmm og EUiða- ámar fram undir 15. júní. ►UMFANGSMIKLAR breytingar vom gerðar á simanúmerakerfi lands- manna í gær. Svæðisnúmer vom lögð niður og öll al- menn símanúmer gerð sjö stafa. Mörg ríkis- og einka- fyrirtæki slógu tvær fiugur í einu höggi og breyttu aðal- númeri sinu og númeraröð- um vegna beins innvals. Meðal þeirra era Póstur og sími, Háskóli íslands, Ríkis- útvarpið, Búnaðarbankinn, Eimskip og Flugleiðir. ►EF vaxtabætur, barna- bætur, persónuafsláttur og sjómannaafsláttur væm felldir niður yrði mögulegt að lækka tekjuskattshlutfall með útsvari niður í rúm 15% og fátæktargildrur þær sem háir jaðarskattar búa til yrðu úr sögunni. Þór Sigfús- son hagfræðingur segir að íslenska skattkerfið sé orðið svo flókið að sérfræðingar einir geti reiknað út ráðstöf- unartekjur og jaðarskatta fólks. Verkfall sjómanna óleyst TILRAUN útvegsmanna og sjómanna til að ná samkomulagi um verðmyndun á afla mistókst á föstudag, en deiluaðil- ar sátu lengi á óformlegum fundi hjá sáttasemjara. LÍÚ lagði fram tillögu til sátta, en sjómenn höfnuðu henni. Sævar Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambandsins, segir að í tiliög: unni hafi ekki falist nein tilslökun. í gærmorgun bauð Skipstjóra- og stýri- mannafélag Norðlendinga Útvegs- mannafélagi Norðurlands til viðræðna um gerð sérsamnings, en því var hafnað. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, sagði að tillaga LÍÚ fæli í sér viður- kenningu LÍU á að semja þyrfti við sjómenn um verð á afla þegar útgerð og fiskvinnsla væri á hendi sömu aðila. Slík viðurkenning hefði ekki legið fyrir af háifu LÍÚ áður. Forystumenn sjómannasamtakanna gengu á fund forsætisráðherra, sjávar- útvegsráðherra og utanríkisráðherra á föstudag til að gera þeim grein fyrir stöðu mála í viðræðpm við útvegsmenn. Málin voru rædd áfram við ráðherra í gærmorgun. Engin lausn virðist í sjón- máli í deilunni og margt bendir til að hún leysist ekki fyrir sjómannadag. Verkfall boðað í álveri VERKALÝÐSFÉLÖG starfsmanna í álverinu í Straumsvík boðuðu á föstu- dag verkfall í álverinu sem hefjast mun frá og með laugardeginum 10. júní hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Ef verkfall skellur á eru ákvæði um tveggja vikna aðlögunartíma að framleiðslustöðvun í álverinu, en ef framleiðsla stöðvast tekur marga mán- uði að gangsetja verið aftur. Næsti samningafundur í deilunni hjá ríkis- sáttasemjara hefur verið boðaður á þriðjudagsmorgun. Beinn kostnaður við gangsetningu álversins í Straumsvík ef til framleiðslu- stöðvunar kemur er vel á sjötta hundrað milljóna króna og er þá ótalinn kostnað- ur vegna framleiðslutaps og álitshnekk- is meðal viðskiptavina fyrirtækisins. Erlent herlið í Bosníu eflt VESTRÆN ríki vinna að því að efla friðargæslustarf Sameinuðu þjóð- anna (SÞ) í Bosníu og ætla ekki að setjast að samningaborði með Bos- níu-Serbum um örlóg gíslanna sem Serbar hafa tekið höndum. Um er að ræða friðargæsluliða og eftirlits- menn SÞ, nær 400 manns og neita Serbar að sleppa þeim fyrr en fyrir- heit verður gefið um að loftárásum á stöðvar þeirra verði hætt. Hart er barist víða í Bosníu og skutu Serbar niður bandaríska herþotu niður úr 20.000 feta hæð á föstudag. 6.000 manna þungvopnaðar sveitir Breta og Frakka verða sendar til Bosníu en ekki er ljóst hvort þær verða skil- greindar sem friðargæslusveitir. Þá íhugar Bill Clinton Bandaríkjaforseti að leggja fram landher. Boutros Bo- utros-Ghali, framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, lagði á miðvikudag til við öryggisráð SÞ að það takmark- aði hlutverk friðargæslusveitanna í Bosníu éða samþykkti að vel vopnum búinn fjölþjóðaher tæki við hlutverki þeirra. 2.000 taldir af í Nef- tegorsk ►RÚSSAR undirrituðu á fimmtudag tímamótasamn- inga um aðild lands síns að Friðarsamstarfi Atl- antshaf sbandalagsins (NATO) og um aukið samr- áð í öryggismálum á fundi í Hollandi. Andrej Koz- yrev, utanríkisráðherra Rússlands, lýsti sem fyrr andstöðu við hugmyndir um stækkun NATO til aust- urs. ►WARJREN Christopher, utanríkisráðherra Banda- rikjanna, hét því á föstudag að Bandaríkjamenn myndu gaumgæfa tillögur um frí- verslunarbandalag þjóða beggja vegna Atlantsála (TAFTA), sem leið til þess að samhæfa hagkerfi Norð- ur-Ameriku og Evrópu. ► ALÞÝÐUFYLKINGIN, flokkur Jose Maria Aznars, sigraði í sveitarstjórnar- kosningum á Spáni um síð- ustu helgi, hlaut 35% at- kvæða. Tap sósíalista varð þó ekki eins mikið og spáð hafði verið, en þeir hlutu 30% atkvæða. LITLAR vonir eru taldar til þess að fleiri fmnist á lífi í borginni Nefte- gorsk á Sakhalín-eyju í Rússlandi eftir að öflugur jarðskjálfti reið yflr um helgina síðustu. Um 2.000 manns eru talin af en um 400 hafa fundist á lífí í rústum 19 fjölbýlishúsa sem langflestir borgarbúa bjuggu í. Ein aðalástæða þess að svo skelfilega fór er talin sú hversu illa húsin voru byggð en þeim var hrófað upp án nokkurs tillits til jarðskjálftahættu. ►SAUTJÁN Kínverjar, sem setið hafa í fangelsi frá því að lýðræðiskröfur voru brotnar á bak aftur á Torgi hins himneska friðar í júní 1989, hafa farið þess á leit við þing landsins að þeim verði veitt frelsi eða að aðbúnaður fanganna verði að minnsta kosti bættur. FRETTIR ísienskukennsia við Cambridge-háskóla Áhugi íslendinga á fjárstuðningi kannaður MIKILL áhugi er á því í Cam- bridge-háskóla -á Englandi að stofna til sérstakrar kennarastöðu í íslensku. íslenska hefur verið kennd við skólann allt frá árinu 1895 en á síðasta ári féll kennslan niður sök- um ijárskorts. Þess yegna er nú verið að kanna vilja íslendinga tii að koma til móts við skólann um að halda við hinni löngu hefð sem er fyrir íslenskukennslu í skólan- um og um leið að efla tengsl hans við ísland. Jakob Frímann Magnússon, menningarfulltrúi í London, sem heimsótt hefur skólann segir það mjög brýnt að styðja þetta málefni með einhveijum hætti því hætta sé á að íslenskukennsla leggist þar af en áhugi sé hins vegar mjög mikill, bæði meðal nemenda og kennara. Jakob segir að starf það sem Eiríkur Magnússon þýðandi vann við Cambridge fyrir um öld síðan sé mjög í hávegum haft þar, en auk þess hafi verið komið á fót sérstökum sjóð til styrktar nem- endum sem vilja sækja íslensku- nám til íslands. „Sennilega þyrfti að koma til sérstök fjárveiting til þessa máls frá íslandi," segir Jakob, „þó ber að gæta þess að þetta átak bitni ekki á íslenskukennslu í öðrum erlendum skólum sem íslendingar hafa veitt stuðning til. Sem stendur hefur íslenska rík- ið boðið 40.000 krónur á ári til stuðnings kennslunni í Cambridge en ljóst má vera að þá upphæð þarf að hækka. Fjárhæðin sem um er að ræða er um átta hundruð þúsund á ári en vel mætti hugsa sér að helmingur hennar kæmi frá einkaaðilum, annaðhvort einstakl- ingi eða fyrirtæki sem stóllinn yrði þá kenndur við. Að fengnum slíkum styrk frá íslandi er það auðunnið að fá annan eins styrk í Bretlandi og þannig væri hægt að endurreisa íslenskukennslu við skólann. Það hlýtur að teljast mjög mikil- ^ vægt að halda úti kennslu í ís- lenskum fræðum þar sem áhugi á þeim er jafn mikill og raun ber vitni í Cambridge. Auk þess hlýtur íslenskukennsla í erlendum há- skólum að vera hluti af þeirri við- leitni að þjóð eins og við Islending- ar einangrumst ekki.“ Hlutfall langtímaatvinnulausra á skrá, 1992-1995 ( Atvinnulausir í 6 mánuði eða lengur) Skýrsla Vinnumiðlunar Reykjavíkurborgar um atvinnuleysi í lok maí 65% atvínnulausra 40 ára eða yngri í SKÝRSLU um atvinnuleysi í Reykjavík, sem unnin er hjá Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar, kemur fram að atvinnulausir á skrá voru 5,7% af vinnuafli í borg- inni í lok maí sl. Á sama tíma yoru 65% af öllum atvinnulausum 40 ára eða yngri. Skráðir atvinnulausir í lok maí voru 3.118 eða 1.515 karlar og 1.603 konur en á sama tíma í fyrra voru samtals 2.779 á skrá. Þá hefur hlutfall þeirra hækkað um 3% síðustu 12 mánuði, sem lengst hafa verið á skrá eða í 52 vikur og lengur. Á sama tíma í fyrra voru það 168 einstaklingar eða 6% af öllum atvinnulausum en eru nú 9% eða 281 einstaklingur. Enginn þeirra er yngri en 20 ára. Þegar litið er á aldursskiptingu einstaklinga á skrá kemur í ljós að fjölmennasti hópurinn er fædd- ur á árunum 1955 til 1969 eða þeir sem eru á aldrinum frá þrí- tugu til fertugs. Af þeim sem hafa verið lengst á skrá eða samtals 52 vikur eru flestir fæddir á árun- um 1925 til 1934. Að sögn Oddrúnar Kristjáns- dóttur, framkvæmdastjóra Vinnu- miðlunar Reykjavíkurborgar, er ljóst að viðvarandi atvinnuleysi er sífellt að færast í aukana. „Þeir sem hafa verið lengi á atvinnuleys- isskrá hafa ekki misst úr eina viku,“ sagði hún. „í Kanada er þessu öðruvísi háttað. Þar er mun meira atvinnu- leysi meðal yngra fólks og þeirra elstu en fáir á aldrinum þijátíu til Qörutíu ára sem er fólk á besta vinnualdri." Að meðlatali hafa fjórir af hveijum fimm sem eru atvinnu- lausir á aldrinum 16 til 25 ára lokið grunnskólaprófi eða 83% karla og 78% kvenna. í skýrslunni kemur fram að hlutfallið hafi farið hækkandi síðustu sex mánuði. Loks kemur fram að 15% ungra atvinnulausra kvenna hefur lokið stúdentsprófí en aðeins um 8% ungra karla. Oddrún sagði að reynt væri að gera atvinnulausum lífíð bærilegra og undirbúa þá undir að koma inn á vinnumarkaðinn á ný þegar færi að losna um. „Við hjá Vinnu- miðluninni viljum koma unga fólk- inu í skóla og reyna að endur- mennta þá sem eru eldri,“ sagði hún. „Það eru margir sömu skoð- unnar en það vantar einhvern til að taká af skarið að manni finnst.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.