Morgunblaðið - 04.06.1995, Side 9

Morgunblaðið - 04.06.1995, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1995 9 FRÉTTIR Gamalt og nýtt fær heildarsvip á skólareit MR Sterk og hlýleg heild „MARKMIÐ okkar var að tengja saman gamalt og nýtt en halda umfram allt svipmóti skólareitsins,“ sagði Lena Helgadóttir arkitekt um verðlaunatillögu sína og Helga Hjálmarssonar föður síns um skipu- lag á reit Menntaskólans í Reykja- vík. Reiturinn afmarkast af Amt- mannsstíg, Þingholtsstræti, Bók- hlöðustíg og Lækjargötu. í umsögn dómnefndar sagði að heildaryfir- bragð væri gott og nýbyggingar féllu vel að eldri húsum. I heild væri tillagan sannfærandi og félli vel að staðháttum. Byggingar tengdar með glerskálum „Við ákváðum að styrkja svipmót reitsins með nýbyggingum en létum gömlu byggingarnar jafnframt halda sjálfstæði sínu. Byggingar eru allar tengdar saman með létt- byggðum glerskálum en áhersla var lögð á að hægt væri að ganga inn- andyra um allt kennslusvæðið. Á þennan hátt töldum við að skapa mætti sterka og hlýlega heild,“ sagði Lena. Arkitektarnir lögðu sig fram við að tengja öll húsin saman án þess að raska friðunargildi þeirra. Á milli gamla skólahússins og Fjóssins og gamla íþróttahússins verður byggður glerskáli. Milli Fjóss og nýbyggingar, sem kemur í stað Casa Christi, verður annar gler- skáli, en þar er gert ráð fyrir fé- lags- og mötuneytisaðstöðu nem- enda. Útbygging Casa Nova verður fjarlægð en tengibygging mun loks tengja hana við nýtt skólahús á Þingholtsstræti 18. Nýbyggingin á reit Casa Christi í miðju þorpinu tengist síðan húsinu á Amtmannsstíg 2. Nýtt íþrótta- og samkomuhús mun rísa að baki nýbyggingarinnar á lóð Casa Christi og við hlið Casa Nova. Salar- Norræna mannréttindaráðstefnan Kínverjar standi við skuldbindingar RÁÐSTEFNA 20 Norðurlandabúa og Bandaríkjamanna um jafnrétti og mannréttindi kvenna ályktaði að stjórnvöld á Norðurlöndum og ann- ars staðar gætu ekki sætt sig við að Kínverjar stæðu ekki við skuld- bindingar um framkvæmd Peking- ráðstefnunnar. Ráðstefnan var haldin í Norræna skólasetrinu á Hvalfjarðarströnd 1. til 3. júní og var liður í undirbúningi Norðurlandanna fyrir Heimsþing Sameinuðu þjóðanna um málefni kvenna í Peking 4.-15. september. Kínversk stjórnvöld hafa íhugað að færa hluta ráðstefnunnar út fyrir Peking og segir Ágúst Þór Árnason, framkvæmdastjóri Mannréttinda- skrifstofu íslands, að þeim hafi ver- ið ljóst hvaða skilyrði þyrfti að upp- fylla til að fá að halda ráðstefnuna. Ágúst segir að reiknað hafi verið með 20-35.000 ráðstefnugestum en ekki 5-10.000 manns eins og kin- versk stjórnvöld hafi nefnt. „Við vildum ekki senda frá okkur harðorðari yfirlýsingu á meðan enn- þá er verið að reyna að semja en neðst í ályktuninni segir að verði ekki ráðin bót á megi velta fyrir sér hvort ástæða sé til að taka þátt í Peking-ráðstefnunni," segir hann. Á ráðstefnunni fóru einnig fram umræður um fólksfjölda- og fjöl- skylduáætlanir/reglugerðir opin- berra aðila og hvaða áhrif þær hafa á sjálfsákvörðunarrétt kvenna og önnur grundvallaratriði, s.s. stjórn- málaleg og borgaraleg réttindi og fleira. Aðstandendur ráðstefnunnar vona að framlag mannréttindastofn- ana á Norðurlöndunum til Peking- ráðstefnunnar vegi jafnþungt og á fyrri Heimsþingum Sameinuðu þjóð- anna. Þing Landssambands sjálfstæðiskvenna Jafnræðis krafist í forystusveit flokksins í STJÓRNMÁLAÁLYKTUN 20. landsþings Landssambands sjálfstæð- iskvenna sem haldið var 26.-27. maí segir m.a. að brýnt sé að framfýlgt sé lögum um sömu laun fyrir sömu vinnu og að störf kvenna séu metin til jafns við störf karla. I ályktuninni segir að sjálfstæðis- konur séu sannfærðar um að aukin áhrif kvenna séu til heilla fyrir þjóð- félagið í heild. „Bestur árangur næst með sam- starfi karla og kvenna enda hefur ekkert þjóðfélag efni á að vannýta menntun og reynslu kvenna. Sjálf- stæðisflokkurinn á að beita sér fyrir því að fleiri konur séu kallaðar til ábyrgðarstarfa á öllum sviðum þjóð- lífsins. Löngu er orðið timabært að konur séu þar í framvarðasveit til jafns við karla, eigi flokkurinn að höfða til kjósenda á komandi árum. Landsþingið gerir þá kröfu, að jafn- ræðisreglu verði gætt í hvívetna í starfi Sjálfstæðisflokksins. Landssambandið hefur fram að þessu hafnað kvótakerfí kynjanna, þegar frá er talin tillaga til miðstjórn- ar fýrir nokkrum árum. Reynsla síð- ustu ára sýnir, að hógvær afstaða sambandsins hefur ekki skilað ár- angri sem skyldi fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Umræða um þessi mál getur aldrei skaðað. Hún er nauðsynleg. Núverandi ástand er óviðunandi og niðurlægjandi fyrir flokkinn. Landsþingið felur nýkjörinni stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna að fylgja eftir kröfu þingsins um að jafnræði ríki í forystusveit, þing- flokki og sveitarstjórnum á vegum Sjálfstæðisflokksins og þannig sé í raun fylgt eftir landsfundarsam- þykktum hans til margra ára. í stærsta stjómmálaflokki lands- ins ríkir augljóst misrétti milli kynja. „Sú staðreynd er óþolandi og henni þarf að breyta,“ segir í stjórnmálaá- lyktun Landssambands sjálfstæðis- kvenna. Teikning/Lena Helgadóttir og Helgi Hjálmarsson MENNTASKÓLAÞORPIÐ séð úr lofti frá Bókhlöðustíg. A teikn- ingunni eru gamla skólahúsið og íþaka í forgrunni, glerskáli tengir þau við Fjósið og gamla iþróttahúsið. Annar glerskáli liggur á milli Fjóss og nýbyggingar á reit Casa Christi en tengi- byggingar eru við önnur skólahús í bakgrunni, s.s. Casa Nova, Amtmannsstíg og nýtt skólahús á Þingholtsstræti 18. gólfi íþróttahússins verður sökkt niður á kjallaragólf í því skyni að lækka bygginguna í umhverfinu. í umsögn dómnefndar er það talið til kosta tillögunnar hve húsið er lágt. Léttbyggðir laufskálar Glerskálarnir eru léttbyggðir og gegnsæir og áhersla er lögð á laufg- að umhverfi sem flæði út í skóla- garðana. Dómnefnd telur að lauf- skálarnir séu mjög skemmtilegir, þeir gefi möguleika á hlýlegu og vistlegu umhverfi en endurskoða þurfi glerþök þeirra. í tillögunni er gert ráð fyrir að bókasafn skólans flytjist yfir í gamla íþróttahúsið en húsið verði tengt íþöku þar sem bókasafnið var. Þá verður Fjósið notað undir tölvuver og til greina komi að nýta nýtt skólahús á Þingholtsstræti 18 sem raunvísindahús. mánaða ábyrgð á notuðum Citroen, Daihatsu, Ford og Volvo bílum I eigu Brimborgar! 1 O O % ÁBYRGÐ Á B f L N U M f ALLT SUMAR OG RÚMLEQA t»AÐ! Opið laugardaga kl. 12:00 - 16:00 Þaö gctur vcrið töluvcrð áhætta að kaupa notaöan bíl. Þú getur auðveldlega sannreynt aö útlit bflsins sé í lagi en fæstir hafa getu né aöstöðu til að sannreyna hvað leynist undir yfirborðinu. Þess vegna býður Brimborg hf. SEX mánaða ábyrgð á notuðum Citroén, Daihatsu, Ford og Volvo bílum í eigu Brimborgar. Allir notaðir bílar af þessum tegundum eru yfirfarnir af þjónustumiðstöð Brimborgar og þar er allt lagfært sem er í ólagi áöur en bílarnir eru seldir. Þannig er öryggi þitt tryggt. BRIMBORG Ábyrgöin gildir til sex mánaöa eöa aö 7500 km. og allt er í ábyrgö nema yflrbygging bilsins. faxafeni 8 • slMl 515 7000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.