Morgunblaðið - 04.06.1995, Side 38

Morgunblaðið - 04.06.1995, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ 38 r SUNNUDAGUR 4, JÚNÍ 1995_ HANDÍÐANÁM ÍDAG Fjölbrautaskólinn Breiðholti Handíöabraut 1 ár (Fatahönnun, fatasaumur, módelteikning, sniöteikning, vefjarefnafræði, hekl og prjón) FB þegar þú velur verknám J Sumartíminn er sá tími sem mikið mæðir á hári og líkama. Hárið á okkur upplitast, þomar og verður slitið af sól og vindi. Við getum hjálpað til með því að nota góðar hárvömr sem passa fyrir sérstakar hárgerðir og næra vel á eftir hveijum þvotti. Ferskju sjampó og næring er fyrir allt eðlilegt, þurrt hár. Ferskjur innihalda mikið af náttúmlegum olíum sem næra vel. Inniheldur líka birki sem lagar hár- los. Marshmallow sjampó og næring er illa farið, litað og permannett hár. Marsh- mallow nærir og bætir hárpípuna og gerir hárið einnig viðráðanlegra. Banana sjampó og næring er fyrir lint, líflaust hár. Banani er frábær hámær- ingargjafi sem gefur mýkt, fyllingu og hárið virkar þykkara. Mango djúpnæring. Mango inniheldur mikið af vítamínum A, B, B,, C og E. Lagar opna hárenda, djúpnærir og mýkir hárpípuna. Þarf að bíða í hárinu í I5 mín. eða eitir þörfum. Það hafa fáar konur áhyggjur af hmkkum á Itkarna sínum, því þær sjást ekki eins vel og á andlitinu. Því miður koma hmkkur líka þar og þá sérstaklega á hálsi, brjósti og handleggjum. Notum því Kukui Body lotion. Kukui olían smýgur fljótt ofan í húðina með sérstaka næringu sem nærir, bætir og gerir húð mjúka og kemur þannig í veg fyrir hmkkur Við flögnum síður eftir sólböð og viðhöldum betur brúna húðlitnum. Tilboðið fæst hjá flestum apótekum og lyfsölum. Eyjakaup, Fjarðarkaup, snyrtivörudeild Hagkaups, Mangó, Keflavík, Venus, Sandgerði, Vöruhús KÁ, Selfossi. Sjampó, hárnœring og body lotion (natural collection) Tilboð allt á kr. 875 í Verzlunarskóla Þriðjudaeinn 6. júní kl. 16-19 KYNNIÐ YKKUR NÁMSEFNI, AÐSTÖÐU OG FÉLAGSLÍF ALLIR VELKOMNIR Nýútskrifaðir grunnskólanemar og forráðamenn þeirra eru sérstaklega boðnir velkomnir. VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS Ofanleiti 1 • Sími 568 8400 ORÐABÓKIN Unghæna - Lesandi og velvildar- maður þessara pistla hefur á stundum bent mér á orð og orðafar, sem hann hefur hnotið um í fjölmiðlum, bæði við léstur og hlustun. Nýlega minntist hann á það, að svo virtist vera sem menn væru farnir að rugla saman no. unghæna og ungahæna í auglýsingum. Veru- legur munur er að mín- um dómi á merkingu þessara tveggja orða. Ungahæna er sú hæna, sem er með unga, sbr. ungamóðir, sem er kvenfugl með unga, eins og segir í OM. Þar er hins vegar ekki no. ungahæna, þótt undar- legt megi telja. Ung- hæna er þar aftur á móti og sagt haft um unga hænu. Vel má vera, að no. ungbarn og ungabam, sem OM og aðrar orðabækur ■ ungahæna segja merkja hið sama, hafi hér einhver áhrif á. Sjálfum finnst mér vera nokkur blæmunur á þessum orðum. Þess má og geta, að ob. Bl., setur Af., þ.e. Austfirð- ir, við orðmyndina ungabam. Gerður er svo munur á kjúklingi, sem er hænuungi, og svo aftur unghænu, sem er nokkru eldri. Þetta held ég allir skilji. En séu menn farnir að tala um ungahænu í sömu merkingu og ung- hænu, virðist áreiðan- lega mörgum skjóta skökku við. Ekki efa ég, að heimildarmaður minn hefur heyrt þetta rétt. Svo er aftur spurn- ingin, hvort Austfirð- ingar tali hér um unga- hænu sem unghænu, eins og þeir virðast hafa talað um ungabam sem ungbarn. - J.A.J. ÉG HEF HEVBT At> sá 1 HiJÖS AULALE6UM HBeícKjAVÖKU-eONlNöi- " VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Góðir vinir OFT HEFUR heyrst tal- að um að hundar af irish setter-kyni eigi erfitt með að lynda við önnur dýr. Ég vil leyfa mér að draga það í efa því að ég á irish setter-tík sem er alveg einstaklega blíð og góð. Hún heitir Ýrar- Þoka og á myndinni má sjá hana með tveimur bestu vinum sínum, kett- inum Símoni og lambinu Trínu. Þoka er traustur, hlýðinn og góður hundur. Ég á t.d. átta páfagauka og snertir hún þá ekki og myndi aldrei gera þeim neitt mein. Ég fór með hana á hundasýningu í Digra- nesi þann 30. apríl sl. og var hún valin besti hvolp- ur sýningarinnar í sínum flokki og besta tík. Á hveijum degi fer hún í fjárhúsin og hest- húsin, hjálpar til og lab- bar innan um kindumar, en þær eru ekkert hræddar við hana. Þoka fær að vera úti allan daginn meðal hinna hundanna og kattanna og ber ekki á neinum samskiptaörðugleikum. Unnur V. Haraldsdóttir, Varmadal III, Kjalamesi. Þakkir til starfsfólks Lækjarbrekku SONUR okkar útskrifað- ist sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík við hátíðlega athöfn þann 1. júní. Af þessu tilefni fór fjölskyldan, eins og kall- að er, „út að borða“. Fyrir valinu varð veit- ingahúsið Lækjar- brekka. Þar fengum við mjög hlýlegt viðmót og alveg frábæra þjónustu ásamt mjög góðum og fallega fram bomum mat. Sem dæmi kom starfs- fólkið í lok máltíðar, óbeðið, með sérskreyttan ís á diski og voru á disk- inn sérritaðar hamingju- óskir. Færum við starfsfólki veitingahússins Lækjar- brekku okkar bestu þakkir fyrir mjög vel heppnað kvöld. Anægðir foreldrar. Víkveiji skrifar... SUMARIÐ hefur sezt að í um- hverfinu. Sá einn, sem lifað hefur íslenzkan vetur, skilur til fulls hvers vegna sumardagurinn fyrsti skipar svo háan sess í hugum ís- lendinga. Dagurinn sá flytur fagn- aðarboðskapinn um betri tíð með blóm í haga. Veturinn, kuldinn og myrkrið eru loksins að baki. Lífríki umhverfisins er að vakna af vetrar- svefni. Sumarið og sólskinið létta lund landans: Anganin, birtan og litimir! Borgarskáldið Tómas Guðmunds- son hitti svo sannarlega sumamagl- ann á höfuðið þegar hann sagði: „Jafnvel gamlir símastaurar syngja í sólskininu og verða grænir aftur!" Og góðskáldið Stefán frá Hvítadal hafði og satt og rétt að mæla: „Það er engin þörf að kvarta, þegar bless- uð sólin skín.“ Og: „Eg þakka af hjarta, Guð minn góður, gjafir þín- ar, sól og vor“! Skáldið frá Hvítadal söng sól- skininu þessa lofgjörð: „í vetur gat ég sagt með sanni: svart er yfir þessum ranni, sérhvert gleðibros í banni, blasir næturauðnin við; Drottinn, þá er döpmm manni, dýrsta gjöfin sólskinið!" xxx ISLAND, sækjum það heim! Þessi hvatning er tímabær nú, þegar sumarleyfamánupir fara í hönd. Hvers vegna Island? í fyrsta lagi skartar land okkar fegurð og náttúruperlum, sem auðga og gleðja ríkulega. I annann stað sköpum við hag- vöxt og störf með því að beina við- skiptum til landa okkar. Er ísland þá ekki of dýrt fyrir íslendinga - að ferðast um? Dýrt nokkuð, satt er það, og ferðaiðnaðurinn verður að kapp- kosta að verðleggja ekki íslendinga til útlanda! í þessum efnum horfir þó sitthvað til betri vegar. Og stétt- arfélögin hafa náð skikkanlegum samningum um ferða- og dvalar- kostnað sem vert er að kynna sér. ísland, sækjum það heim! xxx KRAFAN um jöfnuð, hversu réttlát sem hún virðist, getur aldrei náð til veðurfarsins, jafnvel þótt góðir jafnaðarmenn kunni að stjórna Veðurstofunni! Veturinn hefur leikið Norðlendinga og fleiri landsbyggðarmenn umtalsvert verr en höfuðborgarbúa. Reykvíkingar, sem bjuggu að dágóðri vetrarveðr- áttu, borið saman við Vestfirði og Norðurland, sitja aftarlega á mer- inni í samanburði við suðræn sólar- lönd! Þegar íslenzki veturinn er hafður í huga er auðvelt að skilja, hvers vegna mörlandinn kýs að stytta skammdegið með suðurgöngu, eins og það hét í kaþólskri kristni hér á landi, þegar heimdraganum var hleypt og haldið suður um höfin að suðrænni strönd. Þá seiddi að vísu trúarsólinn ferðamanninn fremur en sú sunna, sem nú teymir landann til Grikklands, Portúgals og Spán- ar. Sólin seiðir alla — og seiðir meira að segja þar sem hún lætur mest að sér kveða, ef varúðar er ekki gætt. xxx IKAÞÓLSKRI kristni fóru íslend- ingar ósjaldan pílagrímsferðir til helgra staða, einkum til Jerúsal- em í Landinu helga og Rómar, þar sem postulamir Páli og Pétur voru líflátnir, og páfinn hafði og hefur aðsetur. Rómferlar voru þeir kallað- ir, sem sóttu Rómaborg heim á þjóð- veldisöld og fram undir siðaskipti, þótt fáir kannist við það orð nú. Utþráin hefur verið íslendingum í blóð borin frá því land var numið fýrir meira en ellefu hundmð árum. Gott dæmi um þá þjóðarfylgju er Guðríður Þorbjamardóttir, sem fór úr Skagafirði til Rómar á 11. öld, að því er segir í Grænlendingasögu, en hafði áður dvalizt bæði í Græn- landi og á Vínlandi, þar sem hún var á ferð með með manni sínum, Þorfínni karlsefni Þórðarsyni frá Höfðaströnd. Hún var enginn heim- alningur konan sú! Og erfðavísar (gen) hennar lifa í okkur og börnum okkar enn í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.