Morgunblaðið - 08.06.1995, Síða 8

Morgunblaðið - 08.06.1995, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þeir vilja afnema allt þrælahald hjá okkur í LÍU . . . Bætt aðstaða og opnun skjalasýningar í Safnahúsi Aukið lestrarrými á Þjóð- skjalasafni STARFSEMI Þjóðskjalasafnsins hefur nú nýjan lestrarsal til um- ráða en salurinn þjónaði áður notendum Landsbókasafns. Við breytinguna hefur aðstaðan nær tvöfaldast og hægt verður að færa þjónustu safnsins til nú- tímahátta. Eftir að Safnahúsið við Hverf- isgötu í Reykjavík tók til starfa árið 1909 áttu þar inni fjögur þjóðsöfn. Þjóðminjasafnið fór í eigið húsnæði árið 1950, Nátt- úrugripasafnið árið 1959 og árið 1994 flutti Landsbókasafn í Þjóð- arbókhlöðu. Það var því oft þröngt um þá aðila sem vildu nýta sér þá þjónustu sem Þjóð- skjalasafnið hefur haft upp á að bjóða, að sögn Ólafs Ásgeirsson- ar Þjóðskjalavarðar. Forráðamenn safnsins bíða nú eftir nýju húsnæði á Laugavegi 162 en vænta má að það verði tekið í notkun eftir fjögur til fimm ár. Endanleg ákvörðun um framtíð Safnahússins hefur hins vegar ekki verið tekin. Fjölmargir Islendingar hafa lagt leið sína á Þjóðskjalasafnið í gegnum tíðina en mest hefur borið á nemendum á síðari stig- um háskólanáms, fræðimönnum og grúskurum af ýmsu tagi. Starfsmenn safnsins hafa einnig orðið áþreifanlega varir við auk- inn ættfræðiáhuga meðal íslend- inga. Með eigin hendi í tilefni þess að 30 ár eru frá opnun Forvörsludeildar Þjóð- skjalasafns Islands hefur verið opnuð sýning sem ber yfirskrift- ina Með eigin hendi. Yfirskriftin vísar til þeirrar Morgunblaðið/Sverrir STJÓRNARNEFND Þjóðskjalasafns íslands. Frá vinstri eru Sverrir Kristinsson útgefandi, Kristjana Kristinsdóttir, forstöðu- maður forvörsludeildar, Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður, Sveinbjörn Rafnsson prófessor og Björk Ingimundardóttir, for- stöðumaður þjónustudeildar Þjóðskjalasafns. MEÐ EIGIN HENDI er yfirskrift sýningar sem opnuð var í gær í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Á myndinni eru Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður og forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir. staðreyndar að forvörsludeildin fæst að mestu við handskrifuð skjöl, sem rituð voru á handunn- inn pappír. Á deildinni er m.a. handgert við gömul skjöl sem þarfnast endurbóta, oft vegna rakra húsa og slæmrar umhirðu. Að sögn Áslaugar Jónsdóttur, forstöðumanns forvörsludeildar, er sýningunni ætlað að gefa inn- sýn í þau störf sem heyra undir forvörslu í handritasöfnum. Mikil áhersla er lögð á varð- veislu sögulegra heimilda enda eitt höfuðverkefnið í Þjóðskjala- safni íslands. Rekstur Islenskrar málstöðvar í járnum „Fjárveitingar þurfa að hækka“ IÁRSSKÝRSLU ís- lenskrar málstöðvar fyrir seinasta ár kemur fram að húsnæði hennar er nú fullnýtt og raunar orðið of lítið. Meðal annars vantar bókastofu, funda- herbergi og geymslurými, auk þess sem skrifstofu málstöðvarinnar er þröngur stakkur sniðinn. Tölvu- búnaður stöðvarinnar hefur verið að ganga úr sér og sum tækin orðin ónýt, og án veglegrar gjafar Mjólk- ursamsölunnar í Reykjavík væri tækjakostur stöðvar- innar í algjörum ólestri. „Rekstur íslenskrar mál- stöðvar er herfilega bág- borinn, því hún nærist ein- göngu á fjárveitingum frá Alþingi og þær hafa ekkert hækkað að undanförnu," segir Baldur Jónsson. „Það sem af er þessu ári höfum við fengið rétt rúmar 500 þúsund krónur í rekstrarfé fyrir utan laun starfs- manna, eða 15 þúsund krónur i janúar, ekkert í febrúar, 500 þús- und krónur í mars, ekkert í apríl og ekkert í maí og árið er að verða hálfnað. Þetta er skelfilegt ástand og ef Mjólkursamsalan í Reykjavík hefði ekki gefið stöð- inni tölvukerfi að andvirði 1,7 milljónir króna í fyrra væri tölvu- kerfið jafnframt ónýtt með öllu og við sennilega verklausir þess vegna.“ - Hvaða leiðir sérðu helstar til úrbóta? „Við þurfum að fá meira frá Alþingi í ijárlögum, því að þær tekjur sem við getum haft utan þeirra eru afar stopular. Við gef- um að vísu út bækur og seljum en þarna eru engar gróðabækur BaldurJónsson ► ÍSLENSK málstöð tók til starfa 1. janúar 1985 og er rekin í sameiningu af Háskóla Islands og Islenskri málnefnd. Stöðin hefur mörg járn í eldin- um og er ekki hægt að gera öllum verkefnum hennar tæm- andi skil í stuttu máli. Þó má nefna að hún er skrifstofa málnefndarinnar og miðstöð þeirrar starfsemi sem nefndin annast, samstarfsvettvangur nefndarinnar og HI og starfar jafnframt að hagnýtum rann- sóknarverkefnum á vegum forstöðumanns. Stöðin svarar fyrirspurnum um íslenskt mál, veitir ráð og leiðbeiningar um málfarsleg efni og les yfir rit- smíðar af ýmsum toga. Baldur Jónsson er forstöðumaður ís- lenskrar málstöðvar og pró- fessor í íslenskri málfræði í heimspekideild HI. á ferð, auk þess sem við tökum að okkur eftir því sem unnt er að lesa yfir handrit, aðallega fyr- ir opinberar stofnanir. Tekjur af þessari vinnu geta hlaupið á nokkrum tugum þúsunda, en það hefur stundum farið svo að ég hef þurft að taka þá vinnu með mér heim um helgar til að kom- ast yfir slík verkefni og fæ ekki greitt fyrir sjálfur. Alverst er þó að hafa ekki að minnsta kosti einn starfsmann til viðbótar, en fast- ráðnir starfsmenn eru þrír. Við höfum í mörg ár óskað eftir tveim- ur nýjum stöðum og ástandið skánaði til muna þótt við fengjum ekki nema aðra, þ.e. málfræðing til starfa, sem er alger nauðsyn til að hægt sé að styðja orðanefnd- irnar eins og stöðinni er ætlað að gera. Nefndirnar eru um þtjátíu talsins á skrá hjá okkur, en við getum ekki aðstoðað nema fáein- ar þeirra og þá jafnvel þær sem eru duglegastar að bjarga sér sjálfar: Eins þyrftum við að geta gefið meira út af ritum og haldið úti útgáfu Málfregna, auk þess að sinna íðorðastarfseminni. Við eigum að reka íðorðabanka en höfum aldrei getað komið honum á laggirnar sem skyldi. Ekki vantar að heil- mikið efni er til en meðan við fáum ekki fjármuni til að ráða fleiri starfsmenn, eru hendur okkar bundnar. Við höfum farið fram á um 13,8 milljónir króna í ársframlag en fáum í ár rúmar 8 milljónir króna, sem er lækkun frá fyrra ári um rúmar 2 milljónir króna og allt of lítil íjár- veiting." - Ertu bjartsýnn á aukinn skilning ráðamanna á rekstri stöðvarinnar? „Því er vandsvarað. íslensk málstöð á sér enga andstæðinga mér vitanlega, en hins vegar get- ur verið að stjórnvöld átti sig ekki á hvers er þörf til að árang- ur náist. Útgáfa íðorðasafna er t.d. gífurlega erfitt og vandasamt starf, svo mjög að þeir sem hafa ekki fengist við slíka útgáfu geta sjaldnast ímyndað sér það. Fólk getur ekki lagt fram margra mán- aða eða jafnvel ára vinnu án þess að fá greitt fyrir, og úr því að svo er kallar öll starfsemin á peninga. Ég veit ekki til að hækkuð fram- lög séu í vændum á þessu ári, þannig að við gerum vel ef rekst- urinn helst á floti svo lengi.“ - Hvað rís hæst í starfsemi stöðvarinnar á seinasta ári, þrátt fyrir þröngan kost? „Ætli við höfum nokkuð afrek- að á seinasta ári fyrir utan að halda okkur á floti, því að við gáfum ekkert nýtt út. Mér fannst sérstaklega leitt að stöðin gat ekki haldið áfram í fyrra að gefa út tímaritið Málfregnir, frekar en árið þar á undan. Alltaf er þó mikið leitað til stöðvarinnar og eftirspurn eftir málfarslegri ráð- gjöf virðist vaxa jafnt og þétt. Talsverður tími fór einnig í að reka áróður fyrir Málræktarsjóð, enda var okkur um- hugað um að koma honum á fót. Einnig má nefna baráttu þá sem við tók- um þátt í til að beijast fyrir rétti íslenskra bókstafa á alþjóðavett- vangi. Þar var um sókn að ræða, því umheimurinn veit lítt af þess- um bókstöfum og þeir eiga sér ekki vísa vist í vitund fólks ann- ars staðar en hérvá landi. Við háðum því mikla baráttu fyrir að koma Þ-inu á blað sem bókstaf á alþjóðavettvangi sem hluta af lat- nesku stafrófi og það tókst." Nauðsyn aðfá fleiri til starfa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.