Morgunblaðið - 08.06.1995, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995 11
Morgunblaðið/Halldór
LANGÞRÁÐU takmarki náð.
Fj ölbrautaskólinn í Breiðholti
Á þriðja hundrað útskrifast
VEL á þriðja hundrað nemendur
brautskráðust frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti á föstudag. Þar
af voru 136 nýstúdentar. Bestum
árangri nýstúdenta náðu Laufey
Ásgrímsdóttir af tungumálabraut og
Ingimar Guðni Haraldsson af eðlis-
fræðibraut, bæði með ágætisein-
kunnina 9,2.
Handíðabraut var starfrækt við
skólann í fyrsta skipti í vetur en þar
er lögð áhersla á nám í fatasaum
og fatahönnun. Níu nemendur luku
prófi frá deildinni. Sjö nemendur
luku snyrtifræðinámi og 16 luku
sjúkraliðanámi og var þijúhundrað-
asti sjúkraliðinn þar á meðal. Alls
luku 107 nemendur námi frá eins
og tveggja ára brautum við skólann
og 34 nemendur brautskráðust af
tæknisviði eftir þriggja ára nám.
Lykill að norrænu samstarfi
Danski sendiherrann, Klaus Otto
Kappels, flutti ávarp og gerði danska
tungu og samstarf dönsku og ís-
lensku þjóðanna að umtalsefni sínu.
Minnti hann á orð frú Vigdísar Finn-
bogadóttur að svokölluð skandinav-
íska væri lykillinn að norrænu sam-
starfi sem og því að norrænar þjóð-
ir geti notið sameiginlegrar menn-
ingar.
Skólameistari, Kristín Arnalds,
minntist „listaskáldsins góða“, Jón-
asar Hallgrímssonar, í skólaslita-
ræðu sinni en um þessar mundir eru
150 ár liðin frá dauða hans. Gunnar
Eyjólfsson, leikari og kennari við
Fjölbrautaskólann, flutti kvæði Jón-
asar, Gunnarshólma.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
HURRA - og húfurnar fara á sinn stað.
Fjölbraut við Ármúla
108 brautskráðir
FJÖLBRAUTASKÓLANUM við
Ármúla var slitið við hátíðlega at-
höfn í Langholtskirkju laugardag-
inn 3. júní. Brautskráðir voru 108
nemendur en aldrei hafa jafnmarg-
ir lokið námi frá skólanum á einni
.önn. Dux scholae var Lísa Björk
Ingólfsdóttir, stúdent af félags- og
sálfræðibraut.
Að þessu sinni brautskráðust 17
sjúkraliðar, 16 nuddarar, 8 aðstoð-
armenn tannlækna, 4 lyfjatæknar
ásamt tveimur læknariturum. Auk
þess luku 16 sjúkraliðar framhalds-
námi.
Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir
ávarpaði samkomuna fyrir hönd
nýstúdenta en fyrir hönd 15 ára
stúdenta talaði Halldór Lárusson
auglýsingateiknari og Heimir Már
Pétursson fyrir hönd 10 ára stúd-
enta.
STÚDENTAR ásamt skólameistara, Kristjáni Bersa Ólafssyni.
Flensborg’arskólinn
20 ár frá breytingu
FLENSBORGARSKÓLANUM var
slitið í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
laugardaginn 3. júní. Að þessu sinni
voru 44 stúdentar brautskráðir frá
skólanum auk þess sem einn lauk
verslunarprófi. Bestum árangri náði
Guðríður H. Baldursdóttir, stúdent
af málabraut.
Af félagsfræðibraut brautskráð-
ust 18 stúdentar, 10 stúdentar af
hagfræðibraut, 8 af náttúrufræði-
braut, 4 af nýmálabraut, 3 af
íþróttabraut og 1 af eðlisfræðibraut.
Kvenstúdentar eru tæplega helmingi
fleiri en karlstúdentar eða 28.
Þess var minnst að 20 ár eru nú
liðin síðan skólanum var breytt úr
gagnfræðaskóla í fjölbrautaskóla og
frá því fyrstu stúdentarnir kvöddu
skólann. Alls hafa rúmlega fimmtán
hundruð stúdentar verið brautskráð-
ir frá skólanum.
Margir nemendur hlutu bókar-
verðlaun fyrir góðan námsárangur
auk þess sem Hannes Helgason var
heiðraður en hann hefur verið valinn
til að taka þátt í Ólympíuleikunum
í stærðfræði nú í sumar, fyrstur
nemenda við skólann.
FRETTIR
Morgunblaðið/Halldór
NÝSTÚDENTAR frá Fjölbrautaskólan-
um í Garðabæ samankomnir við hina
nývígðu Vídalínskirkju í Garðabæ þar
sem útskrift fór fram.
59 stúdentar
útskrifaðir
frá FG
59 NEMENDUR voru braut-
skráðir frá Fjölbrautaskólanum
í Garðabæ á föstudag. Athöfnin
fór fram í Vídalinskirkju í
Garðabæ. Þorsteinn Þorsteins-
son skólameistari flutti ávarp og
afhenti nemendum prófskirteini.
Skólameistari ræddi fram-
tíðarhlutverk skólans og í því
sambandi sérstakar hugmyndir
um eflingu verk- og list-
menntunar.
Þá nefndi skólameistari að
undirbúningur undir byggingu
nýs húsnæðis fyrir skólann væri
í fullum gangi. Fyrsta skóflu-
stunga var tekin á 10 ára af-
mæli skólans í byijun skólaárs.
Skólinn verður við Bæjarbraut
í austanverðu Arnarneslandi.
Útboð stendur yfir og verður
fyrsti áfangi tilbúinn haustið
1997.
Laufey Jóhannsdóttir, forseti
bæjarsljórnar, flutti kveðjur frá
Garðabæ, Ragnheiður Thor-
steinsson flutti ávarp fyrir hönd
10 ára stúdenta og Össur Brynj-
ólfsson flutti kveðjur frá nýstúd-
entum.
Gísli Ragnarsson, aðstoðar-
skólameistari, Kristín Bjarna-
dóttir, áfangastjóri, og deildar-
stjórar í einstökum
greinum aflientu
verðlaun fyrir góðan
námsárangur. Omar
Gústafsson var dúx
skólans með ágætis-
einkunn i 44 námsá-
föngum á eðlisfræði-
braut — tölvulínu og
náttúrufræðibraut.
Rotaryklúbburinn
Görðum veitti honum
viðurkenningu fyrir
bestan námsárangur.
Kvenfélag Garða-
bæjar veitti Sigur-
borgu A. Ólafsdóttur
viðurkenningu fyrir
góðan árangur í hand-
mennt. Skólinn veitti
síðan viðurkenningu
fyrir ágætan námsár-
angur í mörgum
gi-einum. Sérstaka
viðurkenningu fékk
Þorgils Völundarson
fyrir að hafa lokið 200
námseininguin en lág-
mark til stúdentsprófs
er 140 einingar.
Kór skólans söng við athöfnia
undir stjórn Laufeyjar Ólafs-
dóttur, Marta G. Halldórsdóttir,
óperusöngvari, söng einsöng og
Örn Magnússon lék með á píanó.
Falleg veggklukka Dínó trúðadúkka
Fallegur barnarammi
margar gerðir
Sólblóm
Leirhús
margar gerðir
Leðurfótbolti
Myndarammi
Stór og flottur
leikfangatraktor
Trébíll 15cm
Trúðasparibaukur
Opnunartími til hausts
Mánud.-Fimmtud. 9-18
Föstudagar 9-19
Húsgíignahölllnni
Bíldshöfða 20-112 Reykjavík - Sími 587 1199