Morgunblaðið - 08.06.1995, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995 13
Slökkvi-
bifreið á
Hvamms-
tanga
Hvammstanga - Slökkviliðið á
Hvammstanga fékk 3. júní sl. afhenta
slökkviðbifreið. Bifreiðin, sem er ekki
ný, er af tegundinni IVECO Makiro
Deutz, árgerð 1978, innflutt notuð
frá Þýskalandi.
Bifreiðin er ekin 15 þúsund km og
með 190 ha vél. Kaupverðið er um
þriðjungur af verði slíkrar bifreiðar
nýrrar eða um ljórar og hálf milljón
kr. Bifreiðin er öll yfirfarin og að
auki með aukabúnaði svo sem 5 kw
rafstöð og 11 metra löngum stiga.
Hin nýja bifreið leysir af hólmi
gamla Bedford-slökkviðbifreið sem er
af árgerðinni 1962. Sagt hefur verið
til gamans að hún hefði þurft að
leggja af stað á brunastað, nokkru
áður en útkall bærist. Nýja bifreiðin
er öll önnur, bæði hvað afl og tækni-
búnað áhærir. Slökkviliðið hefur einn-
ig til umráða tækjabireið sem m.a.
er kölluð til þegar umferðaróhöpp
verða. í tækjabifreiðinni er almennur
neyðarbúnaður og klippur til að tjúfa
bílflök.
Héraðsnefnd Vestur-Húnavatns-
sýslu stendur að baki brunavömum
sýslunnar og nær þjónustusvæði
slökkviliðsins yfír héraðið. I Slökkvil-
iði Hvammstanga eru tuttugu menn
og er Skúli Guðbjartsson slökkviliðs-
stjóri.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
ÓLAFUR B. Óskarsson, for-
maður Héraðsnefndar, af-
hendir slökkvibifreiðina til
slökkviliðsstjóra, Skúla Guð-
bjartssonar.
Á SKÓLAPLANINU var hægt að ganga á jafnvægisslá og vakti það ánægju yngstu nemendanna.
Velheppnuð
vorhátíð
Grindavík - Vorhátíð Grunnskól-
ans í Grindavík var haldin skóla-
slitadaginn, síðasta dag maímán-
aðar. Nemendur, foreldrar og
kennarar lögðust á eitt um að
gera síðasta dag skólaársins eft-
irminnilegan og þótti tákast vel
til.
Míargt var til gamans gert á
vorhátíðinni. Sýning var á mun-
um nemenda úr smiðum, saum-
um og myndmennt. Sýning
þeirra bræðra, Hafþórs og Hlyns
Helgasona, á bátslíkönum vakti
mikla hrifningu en þeir hafa
smiðað mörg líkön af bátum sem
hafa verið í eigu aðila í Grinda-
vík. Þar mátti meðal annars sjá
Odd V. Gíslason, eldra björgun-
arskip björgunarsveitarinnar
Þorbjarnar, Skúm GK, Hákon
ÞH og fleiri skip. Þeir bræður
eiga ekki langt að sækja áhugann
á sjóferðum því afi þeirra er
Hilmar Rósmundsson, hin fræga
aflakló frá Vestmannaeyjum,
sem varð aflahæstur ár eftir ár
á vetrarvertíðum áður en núver-
andi kvótakerfi tók við. Þá voru
afhjúpuð verk eftir nemendur
smiðju þar sem sýndur er nýi og
gamli tíminn í vinnubrögðum við
Morgunblaðið/Frimann Ólafsson
MYNDVERK nemenda sem skrýðir gafl smíðastofunnar og á
að sýna gamalt og nýtt vinnulag við höfnina.
höfnina og annað sem er tákn-
rænt fyrir skólastarfið. Sýningin
er í lystigarði Grindvíkinga við
Víkurbraut en það eru 10 steinar
á jafnmörgum stöllum ogtáknar
hver fyrir sig árin í grunnskólan-
um.
Léttri tónlist útvarpað
Útvarp skólans í umsjón Jóns
Gröndals útvarpaði léttri dag-
skrá og kynnti dagskrána, söng-
ur og hljóðfærasláttur var í
Heilsuhælinu. Á skólaplaninu sá
Foreldra- og kennarafélag skól-
ans um að selja grillaðar pylsur
og kennarar brugðu sér í betri
fötin og þjónuðu gestum til borðs
í alþjóðlegu kaffihúsi sem var
starfrækt meðan á vorhátíðinni
stóð.
Allt þetta lagðist á eitt að gera
síðasta skóladaginn eftirminni-
legan fyrir nemendur og annað
starfsfólk skólans og var kær-
komin tilbreyting eftir miklar
annir við próf og prófayfirferð
undanfarinna daga.
Kven-
félags-
konur í
Noregsför
Húsavík - 54 konur í Kvenfélagi
Húsavíkur lögðu 31. maí sl. upp
í skemmtiferð til Noregs og
hyggjast dvelja þar í eina viku.
Morgunblaðið/Silli
KONURNAR í Kvenfélagi Húsavíkur rétt áður en þær lögðu í ferð.
Tízkusýning á Hafnarbarnum
Þórshöfn - SUMARIÐ virðist loks-
ins í sjónmáli hér á norðaustur-
horninu og er þá tímabært að
leggja til hliðar þungu vetrarflík-
urnar og huga að léttari og sumar-
legri fatnaði. Þórshafnarbúar hafa
úr nægu að velja, eins og sjá mátti
á tízkusýningu sem haldin var á
Hafnarbarnum fyrir hvítasunnu-
helgina.
Það var líflegt um að litast á
Hafnarbarnum þetta kvöld og úr-
valið af sumartízkunni flögraði um
gólfið. Sýnd voru föt frá tveimur
verzlunum í plássinu; verzlun Sign-
ars & Helga og tízkuverzluninni
Hjá Jónu og skilaði sýningarfólkið
sínu hlutverki með sóma, einkum
gerðu herrrarnir lukku hjá áhorf-
endum.
Herramenn leika fyrir dansi
Allir ættu að geta mætt í nýjum
sumarflíkum á sjómannadagsballið
um næstu helgi en hijómsveitin
Herramenn frá Akureyri leikur
fyrir dansi og verður byrjað á ungl-
ingadansleik fyrrihluta laugar-
dagskvölds. Björgunarsveitin Haf-
liði, í samvinnu við sjómenn og
kvennadeild slysavarnafélagsins,
sér um hátíðahöld í tilefni sjó-
mannadagsins og er vonast til þess
að veðurguðirnir sjái aumur á
þessu landshorni á hátíðisdegi sjó-
manna.
Skemmtiferð
í afmælisgjöf
í tilefni 100 ára afmælis félags-
ins færði Húsavíkurbær félaginu
nokkra fjárgjöf með því fororði
að þær ættu að njóta þess sjálfar,
sem þakklætisvott bæjarins fyrir
hið mikla og fórnfúsa starf, sem
félagið hefði á liðnum árum sýnt
bæjarbúum og byggð og var það
hvatinn að þessari skemmtiferð.
Óku frá Húsavík
Konurnar fóru frá Húsavík að
kvöldi undir fararstjórn formanns
félagsins, Svölu Hermannsdóttur,
og óku um nóttina til Keflavíkur-
flugvallar. Um morguninn var
lagt af stað til Noregs.
Sumarlest-
urbarna
Selfossi - SUMARLESTUR fer
nú fram í þriðja sinn á vegum
Bæjar- og héraðsbókasafnsins á
Selfossi. Um er að ræða lestrar-
hvetjandi námskeið með það að
markmiði að viðhaida þeirri lestr-
arkunnáttu sem börnin hafa til-
einkað sér í skólanum. Námskeið-
ið miðast' við 9-11 ára böm en
bæði yngri og eldri bömum er
velkomið að vera með. Sumarlest-
urinn stendur yfir fram til 28.
júní. Hver þátttakandi fær sér-
stakt bókasafnsskírteini og bók
til að færa inn lesnar bækur svo
og dagatal þar sem merktar verða
inn uppákomur í tengslum við
sumarlesturinn.
Þema þessa árs er: Mjólkin
okkar. Safnið er skreytt í sam-
ræmi við þemað. Meðan á sumar-
lestrinum stendur verður teiknuð
stór kýr í safninu og fyrir hveija
lesna bók verður límt jógúrtlok á
kúna og markmiðið er að þekja
hana. Á hveijum miðvikudegi
verður eitthvað skemmtilegt í boði
fyrir þátttakendur, dregið verður
í happdrætti þar sem vinningar
verða veittir og farið verður í leiki
og heimsóknir.
Heilsuefling
á Klaustri
Kirkjubæjarklaustri - EINS og
fram hefur komið í fjölmiðlum og
víðar eru í gangi verkefni um land
allt sem hefur það að markmiði
að auka þátt heilsueflingar í starfí
heilsugæslustöðva. Af því tilefni
var opið hús á heilsugæslustöðinni
á Kirkjubæjarklaustri sl. laugar-
dag þar sem starfsfólk bauð upp
á fræðslu og umræður um heil-
brigða lífshætti. M.a. voru sýnd
myndbönd og þá höfðað til ýmissa
aldurshópa. Einnig var fólki boðið
upp á einfalt þolpróf til að kanna
stöðu sína og nýttu nokkrir sér
það.
Kirkjulistahátíð
1995
í Hallgrímskirkju
8. júní kl. 20.00
Engleskyts
Sópransöngkonan Anne-Lise
Berntsen og Nils Henrik
Asheim organisti frá Noregi
flytja gamla alþýðusálma í
nýrri útsetningu
9. júní kl. 20.00
Edgar Krapp
Orgeltónleikar Edgars Krapp
frá Þýskalandi.
Leikin eru verk eftir J.S. Bach
og rómantísk orgelverk frá
Þýskalandi.
Miðasala í Hallgrímskirkju.
Miðapantanir í síma 551 9918.