Morgunblaðið - 08.06.1995, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Þröng í Grundarfjarðarhöfn
TVEIR erlendir togarar komu til Grundarfjarðar verkfalls sjómanna voru fjórir togarar við
í vikunni með á fjórða hundrað tonn af fiski. byrggjuna fyrir og hefur það aldrei gerzt áður
mest karfa. Togarinn Bremen kom með tæp 200 að 6 togarar liggi við bryggju á Grundarfirði í
tonn og Ocean Hunter með svipaðan afla. Vegna einu.
„Saunleiksgildi slíkra yf-
irlýsinga verði kannað“
Yfirlýsing frá
Greenpeace
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá Greenpe-
ace til britingar. Hún er til komin
vegna ummfjöllunar íslenzkra fjöl-
miðla um heimsókn fulltrúa banda-
ríksu samtakanna Alliance for
America hingað til lands í maímán-
uði síðstliðnum:
„íslenskir fjölmiðlar hafa flutt
fréttir af heimsókn fulltrúa banda-
rísku samtakanna „Alliance for
America“ til íslands. Þar sem ekki
kom skýrt fram hvers konar samtök
um er að ræða vilja Greenpeace
taka fram eftirfarandi:
„Alliance for America" voru
stofnuð 1991. Um er að ræða regn-
hlífarsamtök um 500 samtaka sem
teljast vera yst á hægri væng
bandarískra stjómmála eða þeirra
sem betjast gegn strangari löggjöf
um umhverfisvernd. Sum aðildarfé-
laganna eru studd fjárhagslega af
skógarhöggsfyrirtækjum, námufyr-
irtækjum og hagsmunafélögum
nautgriparæktenda, sem telja um-
hverfísverndarsamtök ógna hags-
munum sínum.1
Hægri öfgasamtök
Hægri-öfgasamtökin „American
Freedom Coalition“ eiga einnig að-
ild. Talsmaður þeirra, Ron Arnold,
lýsti því yfir í viðtali við norska
blaðið Verdens Gang þann 11. maí
sl. ár, að hans samtök hafi kostað
fyrirlestrarferðir Magnúsar Guð-
mundssonar til Bandaríkjanna.
Árlega standa „Alliance for Am-
erica“ fyrir fundarhöldum í Wash-
ington sem nefnast „Fly in for Free-
dom“. „Fly in for Freedom“ var
síðast haldið í september sl. ár.
Magnúsi Guðmundssyni var boðið
þangað sem fyrirlesara og var hann
þar í félagi við Kristján Loftsson,
forstjóra Hvals hf.
Sannleiksgildið
verði kannað
í fréttaflutningi af íslandsheim-
sókn talsmanna „Alliance for Amer-
ica“ kom fram að afstaða Banda-
ríkjamanna til hvalveiða væri nú
að breytast. Meiri stuðningur væri
nú fyrir hendi í bandaríska þinginu
o.s.frv. Greenpeace skora á íslenska
fjölmiðla að kanna sannleiksgildi
slíkra yfírlýsinga rækilega.
Greenpeace skora einnig á ís-
lenska fjölmiðla að kanna hvaða öfl
búa að baki þeim bandamönnum
sem Magnús Guðmundsson,2 kvik-
myndagerðarmaður, hefur aflað ís-
Ienskum hvalveiðisinnum í félagi
við Krisján Loftsson. Er ekki full
ástæða til að efast um að slík sam-
tök styðji stefnu íslands í umhverf-
isverndarmálum almennt? Lýsir það
ekki málefnalegu gjaldþroti ís-
lenskra hvalveiðisinna að þeir leiti
nú í búðir „Alliance for Ámerica“
eftir pólitískum stuðningi? Sam-
rýmist það hagsmunum eða mark-
miði Fiskifélags íslands eða Lífs
og lands að beijast gegn umhverfis-
verndarsamtökum?
Stuðningsmenn Alliance for
America
1. Meðal þeirra sem styðja Alliance
for America með fjárframlögum
eru: American Freedom Coalition,
American Mining Congress, Amer-
ican Petroleum Institute, American
Pulpwood Association, Chemical
Manufacturing Association, Nati-
onal Rifle Association, Rocky Mo-
untain Oil og Gas Association.
2. Sbr. frétt Ríkissjónvarpsins
þann 19. maí, kl. 20.00.
Fiskifélag Islands, Líf og land og Sjávarnytjar:
Ekki svaraverður mál-
flutningur Greenpeace
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi tilkynning frá Fiskifé-
lagi íslands, Lífi og landi og Sjávar-
nytjum til birtingar:
„AÐ GEFNU tilefni (yfirlýsingu
frá Greenpeace, dags. 22. maí
1995) vilja ofangreind félög koma
eftirfarandi á framfæri:
Fiskifélag íslands, umhverfis-
samtökin Líf og land og Sjávarnytj-
ar eru einhuga í stefnu sinni um
nauðsyn sjálfbærrar nýtingar lif-
andi sjávarauðlinda, hvort sem um
er að ræða fiskistofna eða sjávar-
spendýr. Stefnuskrá bandarísku
samtakanna „Alliance for America"
er í fullu samræmi við okkar stefnu
í þessum málum og er vert að þakka
veittan stuðning tugmilljóna með-
lima þeirra við sjónarmið íslendinga
um nýtingu náttúruauðlinda á vís-
indalegum forsendum. Ofangreindir
aðilar geta á engan hátt verið sam-
mála því þrönga sjónarhorni Gre-
enpeace varðándi nýtingu náttúru-
auðlinda og þá algeru dýrafriðunar-
stefnu sem þau samtök hafa rekið,
og því síður verið sammála þeim
aðferðum sem Greenpeace-samtök-
in hafa kosið að beita, þ.e. lagabrot-
um og sjálfteknu valdboði og beit-
ingu ofbeldis við að vekja athygli á
málum sínum. Einnig virðast sam-
tökin stunda þá iðju að kasta fram
fullyrðingum um „staðreyndir" sem
við nánari skoðun reynast tóm rök-
leysa og með öllu ósannar, sbr.
„yfirlýsingu frá Greenpeace um
„Alliance for America““, dags. 22.
maí 1995. Slíkur málflutningur er
ekki svaraverður og dæmir sig sjálf-
ur.
Þau samtök sem að þessari til-
kynningu standa eru tilbúin til
málefnalegrar umræðu um náttúru-
vernd og eðlilega nýtingu auðlinda
jarðar, bæði hafs og lands, við
hvaða samtök sem er og hvenær
sem er, en þau frábiðja sér mál-
flutning eins og Greenpeace virðist
stunda, sbr. fyrrnefnda yfirlýs-
ingu.“
Fiskifélag íslands
Bjarni Kr. Grímsson
fiskimálastjóri
Líf og land
Páll Björgvinsson
formaður
Sjávarnytjar
Þórður Hjartarson
stjórnarmaður
FRÉTTIR: EVRÓPA
Fiskveiðisamningar við Marokkó
Bonino segir
stuðning við
Spán þverrandi
Madríd. Reuter.
EMMA Bonino, sem fer
með sjávarútvegsmál í
framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins,
sagði í viðtali við
spænska ríkisútvarpið
í gær að stuðningur
almennings í ESB við
málstað spænskra sjó-
manna færi þverrandi.
Sjómenn hafa gripið til
margvíslegra mót-
mælaaðgerða vegna
þess að enn hefur ekki
tekizt samkomulag um
endurnýjun fiskveiði-
samnings ESB við Ma-
rokkó og meðal annars hindrað fisk-
innflutning frá Marokkó.
„Enginn vafi leikur á að ofbeldis-
verk snúa almenningsálitinu í Evr-
ópu gegn Spánverjum," sagði Boni-
ono. „Við verðum að hafa í huga —
Andalúsíumenn öðrum fremur —
að við höfum ekki sjálfvirkan rétt
til að veiða í lögsögu annarra
landa.“
Ólöglegar aðgerðir
Sjómenn í Andalúsíu segjast munu
halda áfram að stöðva allan inn-
flutning sjávarafurða frá Marokkó
þar til samkomulag hefur náðst um
nýjan fiskveiðisamning. Talsmenn
sjómanna segjast aldrei munu sætta
sig við jafnmikinn niðurskurð veiði-
heimilda og Marokkómenn fara
fram á.
„Þetta eru ólöglegar aðgerðir,
sem að mínu mati er alls ekki hægt
að una við,“ sagði Bon-
ino. „Það er spenna í
loftinu og það gerir
framkvæmdastjórn-
inni ekki auðveldara
fyrir.“
Bonino mun eiga
fundi með Felipe
Gonzales forsætisráð-
herra Spánar og Luis
Atienza sjávarútvegs-
ráðherra í Madríd á
morgun. Þar er búizt
við að hún reyni að fá
Spánveija til að gefa
eftir og samþykkja
umboð til fram-
kvæmdastjórnarinnar að koma
lengra til móts við kröfur Marok-
kómanna, en þeir vilja skera kvóta
ESB-skipa niður um 30-65%. ESB
hefur hingað til aðeins léð máls á
10-30% niðurskurði kvóta.
Nútímavæðing
sjávarútvegs
Bonino hvatti spænskar útgerðir
til að sækja á önnur mið, þar sem
ESB á veiðiheimildir, þar til deilan
leystist. Hún sagði jafnframt að
hagsmunaaðilar í sjávarútvegi yrðu
að horfast í augu við nýja tíma.
„Sjávarútvegurinn þarf á nú-
tímavæðingu að halda, og athyglin
þarf að beinast að viðskiptum með
sjávarafurðir ekki síður en aflanum.
Menn verða að horfast í augu við
heimsmarkaðinn,“ sagði Bonino.
„Sjómenn verða að átta sig á að
heimurinn er breyttur.“
Emma Bonino
Evrópuþingið
áminnir Tyrki
Brussel. Reuter.
RENZO Imbeni, varaforseti Evr- Erdal Inonu, utanríkisráðherra
ópuþingsins, segir öruggt að þingið Tyrklands, sagðist á þriðjudag vera
samþykki ekki samning Evrópu- fullviss um að þingið samþykkti
sambandsins við Tyrki um tolla- tollasamninginn í haust. Samninga-
bandalag ef Tyrkir bæti ekki viðræður stóðu yfir í tvo áratugi
frammistöðu sína í mannréttinda- og það var ekki fyrr en í mars að
málum. utanríkisráðherrar ESB og Tyrk-
„Ég vil minna tyrknesku stjórn- lands gátu undirritað samning.
ina á að hótanir þingsins eru ekki Inonu sagði að ríkisstjóm Tyrk-
innantómar. Við munum hafna lands myndi á næstu dögum leggja
samningnum ef Tyrkir uppfylla umfangsmiklar umbótatillögur fyrir
ekki þau skilyrði sem við höfum þingið og stefna að því að fá þær
sett,“ sagði Imbeni á blaðamanna- samþykktar fyrir lok mánaðarins.
fundi. Ekki yrði gengið frá samn- Imbeni sagði skref Tyrkja í lýð-
ingnum fyrr en kúrdískum sam- ræðisátt aftur á móti ekki nægilega'
viskuföngum hefði verið sleppt úr sannfærandi og mjög ólíklegt að
haldi og veigamiklar breytingar Evrópuþingmenn myndu falla frá
gerðar á stjórnarskrá landsins. frekari kröfum.
ESB fær ekki aðild
að bifreiðaviðræðum
Genf. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN hefur
hafnað beiðni Evrópusambandsins
um þátttöku í samningaviðræðum
Bandaríkjanna og Japan um bíla
og varahluti. Greindi háttsettur evr-
ópskur embættismaður frá þessu í
gær.
Japanir fóru fram á það við Al-
þjóðaviðskiptastofnunina (WTO) að
skipulagðar yrðu viðræður til að
finna lausn á deilunni, og hefjast
þær í Genf á mánudaginn. Er talið
að í viðræðunum muni þeir fara
fram á að Bandaríkjastjórn falli frá
fyrirhuguðum refsitollum á jap-
anska eðalvagna. Bandaríkin vilja
hins vegar setja málið í víðara sam-
hengi og reyna að opna Japans-
markað frekar.
Embættismaðurinn sagði að
Bandaríkjastjórn hefði sagt ESB
að þeir gætu sótt um eigin viðræð-
ur ef þeir hefðu áhuga á að ræða
málið.
Ekki var ljóst í gær hvort að
sambærilegri beiðni frá Ástralíu
hefði einnig verið hafnað.
Evrópusambandið hefur mikinn
áhuga á því að eiga aðild að hugsan-
legu samkomulagi um aðgang að
Japansmarkaði.
:
i
i
!
f
i
t
i
i
: