Morgunblaðið - 08.06.1995, Side 26

Morgunblaðið - 08.06.1995, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Kriátinn SAGA Agnesar gerist á fyrri hluta 19. aldar og hefur verið reist glæsileg sviðsmynd með húsum frá þeim tíma. Hatur, svik, afbrýðisemi og morð eru meðal umfjöllunar- efna kvikmyndarinnar Agnesar. Það væri e.t.v. ekki í frásögur færandi nema vegna þess að saga myndarinn- ar er byggð á atburðum sem áttu sér stað í raun og veru. Þröstur Helgason kynnti sér málavöxtu. ÞANN 13. mars árið 1828 var Natan Ketils- son, bóndi og læknir, myrtur með hrottafengn- um hætti á Illugastöðum norður í Húnavatns- sýslu. Ódæðið vann ungur piltur, Friðrik Sig- urðsson frá Katadal, með tilstyrk ráðskonu Natans og vinnukonu. Telja margir að fé- græðgi hafi verið undirrót þessa voðaverks en aðrir segja að afbrýðisemi vinnukonu Natans, Agnesar Magnúsdóttur, hafi verið kveikjan. Fól María Ellingsen og Baltasar Kormákur, sem leika Agnesi og Natan í hinni nýju kvik- mynd, segja að þar sé stuðst við síðari skýr- inguna, afbrýði Agnesar. Myndin, sem gerð er eftir handriti Snorra Þórissonar og Jóns Ásgeirs Hreinssonar, segir í senn átakanlega og spennandi sögu um átök góðs og ills. Aðspurð hvort það sé ekki eilítið rómantískt þema segja þau að það kunni að vera en að sagan sé samt sem áður mjög krassandi. Natan er þjófur og níðingur sem eirir engum. „Hann er fól,“ segir Baltasar Kormákur og ygglir sig. „Hann fer illa með Agnesi - eins og reyndar allar konur - og fær hún því Friðrik með sér í lið til að drepa hann. Þeim ferst það þó ekki betur úr hendi en svo að það kemst upp um þau og eru þau bæði hálshöggvin.“ Byrjað á aftöku María segir hlutverk Agnesar mjög spenn- andi. „Það er mjög einkennilegt að leika konu sem var til í raun og veru. Mér fannst það sérstaklega skrítið að ganga upp á högg- stokkinn til aftökunnar en það vildi svo und- arlega til að við byijuðum á því að taka þá senu. Ég hef það reyndar á tilfinningunni Hlé að það séu einhverjir andar á sveimi í kring- um okkur, mér finnst ég stundum vera að gera hluti sem ég hélt að ég gæti ekki gert. Eg hugsa að Agnes fylgist með mér.“ Á miðilsfundi Sagan segir reyndar að Agnes og Friðrik hafi látið vita af sér hjá miðli á miðjum fjórða áratugnum er þau höfðu legið í óvígðri jörð í rúma öld. Líkamar þeirra voru grafnir strax eftir afhöfðunina rétt við aftökustaðinn á Vatnsdalshólum en höfuðin voru sett á stangir þar hjá. Skömmu síðar hurfu höfuðin af stöngunum og var sagt að presturinn á Þingeyrum hefði sent vinnumann sinn eftir þeim til að grafa í vígðri mold í kirkjugarð- inum á Þingeyrum. Á miðilsfundinum öld síðar kom hins vegar hið sanna í ljós er þau Agnes og Friðrik sögðu að höfuð þeirra væru grafin á Vatnsdalshólum með búkunum. Var hópur manna sendur á aftökustaðinn í kjölfar fundarins til að athuga hvort sagan væri sönn og svo reyndist vera. Að fengnu leyfi biskups voru líkin færð í vígða jörð i BALTASAR Kormákur sem fólið Natan og Gottskálk Dagur Sigurðarson sem ógæfumaðurinn Friðrik. EGILL Eðvarðsson leikstjóri ræðir við Maríu Ellingsen í hlutverki Agnesar. kirkjugarðinum að Tjöm. Orð leikur á að leikstjóri Agnesar, Egill Eðvarðsson, hafi svo farið á miðilsfund áður en tökur hófust á myndinni til að reyna að ná sambandi við Agnesi og Friðrik. Hvað fram fór á þeim fundi hefur hins vegar ekki verið gert opin- bert. Allir sem vinna að tökum myndarinnar eru sammála um að þær hafi gengið vel. María og Baltasar Kormákur segja reyndar tökulið- ið það skapbesta sem þau hafi kynnst. „Þetta er einkar samhentur hópur,“ segir María, „og einkennandi að við leikaramir höfum fengið að vera með í ráðum sem er ekki mjög al- gengt.“ Áætlað er að frumsýna myndina um næstu jól.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.