Morgunblaðið - 08.06.1995, Síða 35
MQRGUNBLAÐIÐ
'? FIMMTUDÁgÚR 8. JÚNÚ1995 J35
AÐSENDAR GREINAR
Atvinnumál unglinga
FULLTRÚI R-listans í stjóm
Vinnuskólans skrifar grein í Morg-
unblaðið 30. maí sl., undir yfir-
skriftinni „Vinnuskóli á breyttum
tímum“. Þar er reynt að klóra yfir
mikið klúður R-listans í atvinnú-
málum unglinga í Reykjavík. Hann
er einnig að hreykja sér af því að
hafa samþykkt að skerða laun
unglinganna um 35%. Rökin eru
þau að unglingamir í nágranna-
sveitarfélögunum fái ekki meira
kaup. Eru þetta rök? Að minnsta
kosti er þetta rangt. Samkvæmt
upplýsingum sem lagðar vom fram
í stjóm Vinnuskólans 30. mars sl.
em sumartekjur 14 ára unglinga í
Reykjavík með þeim lægstu í þeim
sveitarfélögum sem upplýsingar
lágu fyrir um. 15 ára unglingar í
Reykjavík em með meðaltekjur,
þ.e. fjögur sveitarfélög greiða
hærri laun en Reykjavíkurborg en
fjögur sama eða lægra.
Þá em gerð að umræðuefni at-
vinnumál fólks á aldrinum 16-25
ára og sjálfstæðismönnum kennt
um það mikla atvinnuleysi sem er
í borginni í dag. Hvemig má það
vera? Er ekki R-listinn við völd í
Reykjavíkurborg í dag? Var það
ekki á forgangslista R-listans í
kosningabaráttunni fýrir einu ári,
að uppræta atvinnuleysi í borginni.
Hvað hefur R-listinn gert í atvinnu-
málum? Ekkert. Það em ekki færri
atvinnulausir í dag en voru á sama
tíma í fyrra. Hefur R-listinn ekki
bara breytt um áherslur, er ekki
ástæðan að lagðir hafa verið meiri
peningar í annan málaflokk hjá
■ BEVERLY J. Cannon, lektor í
táknmálsfræðum (Deaf Studies) við
California State University í Nort-
hridge flytur opinberan fyrirlestur
í boði heimspekideildar Háskóla ís-
lands fimmtudaginn 8. júní kl.
17.15 í stofu 101 í Odda. Fýrirlest-
urinn nefnist „Sign Language
Acquisition in the Critical Period"
og íjallar um máltöku heyrnar-
skertra barna. Beverly J. Cannon
hefur M.A.-próf í kennslufræði
heyrnarskertra og ensku sem öðru
tungumáli og er nú að ljúka dokt-
orsritgerð sinni í hagnýtum málvís-
indum frá University of California
í Los Angeles. Heiti ritgerðarinnar
er „The linguistic and pragmatic
functioning of an adult born with
a left temporal lobe tumor". Be-
verly hefur skrifað fjölda ritgerða
og greina á sviði táknmálsfræða,
sálfræðilegra málvísinda og mál-
töku. Hún hefur áhuga á að dvelja
á íslandi við kennslu og rannsóknir
á sviði táknmálsfræða veturinn
1996-1997 og er þvi komin til að
kynna sér aðstæður hér á landi.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og verður túlkaður á íslenskt
táknmál. Hann er öllum oj)inn.
1 þú hjálpa
;ötubarni á Indlandi
að eignast heimili?
Við erum 5 bræður sem vorum
svangir og skítugir á götunni eftir að
foreldrar okkar dóu.
Nú höfum við eignast heimili fyrir
hjálp stuðningsforeldra á íslandi.
HJALPARSTARF
Siflúní 3 • 103 Rvk • Sími 561 6117
Reykjavíkurborg, en í
atvinnumálin. R-list-
anum er talið til tekna
að hafa stofnað At-
vinnu- og ferðamála-
stofu Reykjavíkur og
vilji með því taka á
atvinnumálunum af
fullri ábyrgð. Vonandi
að satt sé og að við
förum að sjá einhvem
árangur. Það er að
minnsta kosti tími til
kominn fýrir þá 3.200
Reykvíkinga sem eru
án atvinnu og sem ör-
ugglega bíða eftir ein-
hverjum árangri. Þá
er það talið mikilvæg-
ara að styðja við bakið á
atvinnulausu fólki heldur
14 og 15 ára unglingum
Hilmar
Guðlaugsson
vikur af sumrinu. Þá
spyr ég: Var ekki R-
listinn með því að
skerða vinnutíma ungl-
inganna í Vinnuskól-
anum, að fækka um 40
störf hjá þessu sama
unga fólki, sem R-list-
inn ber svo mikinn hag
fýrir brjósti. Þar munar
um minna en 40 störf.
Það er getið um í
þessari grein, þar sem
menn eru með stórar
fullyrðingar, að sjálf-
stæðismenn hafi verið
stóryrtir í garð R-list-
ans, vegna breytinga á
vinnutíma og skerð-
16-25 ára ingu launa í Vinnuskólanum. Hvað
en útvega var það sem sagt var af hálfu sjálf-
vinnu í 8 stæðismanna í ræðu og riti um
Þetta eru ekki góð mál
eða ábyrg pólitík, segir
Hilmar Guðlaugsson,
sem hér skrifar um
Vinnuskólann í
Reykjavík.
Vinnuskólann, sem ekki var sann-
leikanum samkvæmt? Ég veit ekki
betur en aðeins hafi verið skýrt frá
staðreyndum. Þá er gert mikið úr
auknu fræðslustarfí. Sjálfstæðis-
menn í stjórn Vinnuskólans sam-
þykktu allt sem viðkom fræðslu
unglinganna og töldu það af því
góða að fræða unglingana um borg
sína og umhverfí.
Þegar upp er staðið eru stað-
reyndir þessar:
1. Vinnutími unglinganna hvern
dag er skertur.
2. Vinnuvikunum er fækkað úr 8
í 6 vikur.
3. Laun unglinganna eru skert um
35%, þrátt fyrir að tímakaup
hafí hækkað á milli ára um 8,6%.
4. Vegna skerts vinnutíma varð að
fækka leiðbeinendum um 40,
allt ungt fólk rúmlega tvítugt.
5. Það er verið að ráðast á garðinn
þar sem hann er lægstur.
6. Þetta hefur áhrif á hinn félags-
lega og fjárhagslega þátt reyk-
vískra fjölskyldna, þeirra 2.500
unglinga sem munu stunda
vinnu í Vinnuskóla Reykjavíkur.
7. Það er alvarlegur hlutur afci
skerða laun 15 ára unglings úr
61 þúsund kr. í 38 þúsund kr.
Þetta eru ekki góð mál, eða ábyrg
pólitík, eins og látið er að liggja í
áðumefndri grein.
Höfundur er borgarfulltrúi og í
stjóm Vinnuskólans.
HIVEA sólarvörur
standa svo sannarlega
fyrir sínu!
Franska neytendablaðið Que Choisir birti í júlí 1994 niðurstöður
úr prófun blaðsins á virkni og gæðum sólarvara frá ýmsum
framleiðendum. Allar tegundirnar voru bornar á ferninga á baki
10 þátttakendum og þeir síðan látnir liggja undir sólarlampa þar
til þeir brunnu. Sólarvörurnar reyndust misjafnlega. Nokkrar
gáfu í raun ekki þá vörn sem gefin var upp á umbúðunum og
aðrar gáfu mun meiri vörn en merkingin sagði til um. Sumar
tegundirnar reyndust misvel eftir húðgerð þátttakandans.
Niðurstaða greinarhöfunda var að miðað við verð væru
bestu kaupin í Nivea sólarvörum. Sólarvörurnar frá
Nivea voru meðal þeirra sem gáfu meiri vörn en gefin var
upp og þær gáfu öllum þátttakendunum svipaða vörn án
tillits til húðgerðar.
Samanburðar tafla úr grein franska neytendablaðsins
Que Choisir nr. 307, júli- ágúst 1994.
MERKI 0G NAFN Innihald f ml. Verð pr. litra í FF Umbúðir Lýsing Slutegundir Innihald á þekktum ofnæmis- völdum Uppgefinn stuðull Mældur stuðull Stöðugleiki ' varnar Heildar- einkunn
NIVEA Sun sensitive lait enfant peaux sensibles Flaska 200 240 ★ ★ A og B efna- og steinefnasíur Nei 10 13,5 ★★★ ★ ★★
NIVEA Sun lait solaire actif hydratant Flaska 200 210 ★ ★ ★ A og B efna- og steinefnasfur Nei 8 12 ★★★ ★ ★★
VICHY Capital soleil lait hydratant haute protection Flaska 150 533,33 ★ ★ ★ Aog B efnaslur Ekki inni- haldslýsing 10 17,5 ★★★ ★ ★★
CLARINS créme solaire bronzage sécurité Túba 125 560 ★ ★★ ■ Aog B Ekki inni- haldslýsing 12 15 ★★★ ★ ★★
YVES R0CHER Hydra puiss solaire lait bronzant hydratation intense Flaska 150 393,33 ■ ★ Aog B efnasfur Nei 8 15 ★★★ ★ ★★
BI0THERM lait bronzant protection sécurité Túba 125 608 ★★★ ■ [ B efna- og steinefnasíur Ekki inni- haldslýsing 12 11 ★★ ★ ★
LUTSINE lait solaire aux céramides Túba- 125 416 ★ ★ Aog B efnasíur Ekki inni- haldslýsing 8 9 ★ ★ ★
R0C lait solaire resistant d l'eau Flaska 150 373,33 ★ ■ B efnasfur Nei 7-9 13 ★★★ ★ ★
BI0THERM gelée bronzante hydratante Túba 125 600 ★ ■ A og B efnasfur Ekki inni- haldslýsing 8 9 ★ ★★
GARNIER Ambre solaire lait bronzant hydratant Flaska 200 207,50 ★ ★★ ★ A og B efna- og steinefnasíur Já oxybenzone 12 10 ■■ ■
CLUB MED lait bronzant hydratant Flaska 150 453,33 ★ ★★ ■ Aog B efna- og steinefnasíur Já oxybenzone 12 10 ■■ ■
BERGAS0L écran solaire bronzant Túba 75 920 ★ ★ efna- og steinefnasíur Ekki inni- haldslýsing Með psoral 10 10 ■■ ■
PIZ BUIN Sun sport iotion solaire non grasse Flaska 125 664 ■ ■ Aog B efnasíur Ekki inni- haldslýsing 8 6,5 ■■ ■■
YVES R0CHER Cap soleil lait enfant résistant á l'eau Úðabrúsi 100 590 ★★★ ★ ★ A og B Nei 12 9,5 ■■ ■■
KL0RANE Les polysianes lait solaire haute protection Flaska 150/143 593,33 ★ ★★ A og B efna- og steinefnasfur Nei 10-15 7 ■■ ■■
★★★ MJÖG G0TT ★★ G0TT ★ Þ0KKALEGT ■ LÉLEGT ■■ SLÆMT Nánari upplýsingar um prófunina fást hjá JS Helgason hf. sími: 587- 5152