Morgunblaðið - 08.06.1995, Síða 56

Morgunblaðið - 08.06.1995, Síða 56
SYSTEMAX Kapalkerfi fyrir öll kerfi hússins. Q3> NÝHERJI SKIPHOLTI 37 - SlMI 88 80 70 Alltaf skrefi á undart MORGUNBLADID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Olíklegl er að mörg skip fari á sjó fyrir helgi þrátt fyrir samkomulag um verðmyndun afla V Lausn er í sjónmáli í kjaradeilu sjómanna Morgunblaðið/Sigurgeir HORFUR eru á að skipin í Vestmannaeyjum komist fljótlega á sjó nú þegar samkomulag er um verðmyndun afla. GÓÐAR líkur eru á að kjaradeila sjómanna og útvegsmanna leysist í dag. Um miðnætti benti allt til þess að samningafundi yrði haldið áfram þangað til að samningar hefðu tekist. Forystumenn sjó- manna telja þó ólíklegt að mörg skip fari á sjó fyrir helgi vegna þess að stefnt verði að því ljúka atkvæðagreiðslu um samningana áður en verkfalli verði aflýst. Ríkis- stjórnin ræddi kjaradeiluna á fundi T gær. Samninganefndir sjómanna og útvegsmanna komu saman til fund- ar kl. 14 í gær. Fyrir nefndunum lá að taka afstöðu til tillögu sem forystumenn deiluaðila komu sér saman um i fyrrakvöld. Nefndimar samþykktu tillöguna. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var mest andstaða við hana í samninga- nefnd LÍÚ. I allan gærdag var samt tekist á um orðalag tillögunnar og hvernig bæri að framkvæma einstaka þætti hennar. Undir kvöld sneru samn- ingamenn sér síðan að því að ræða önnur deiluatriði, en mörg smærri mál voru ófrágengin t.d. varðandi hafnarfrí, olíuverðstengingu og sér- veiðar. Samningamenn sögðust reikna með að talsverðan tíma tæki að hnýta alla enda deilunnar. Tillagan um verðmyndun afla gerir ráð fyrir að sjómenn geti kraf- ist þess að gerður verði samningur um fiskverð sé afli ekki seldur á fiskmörkuðum. Jafnframt er gert ráð fyrir að sett verði lágmarksverð á afla og að það verði 60 krónur fyrir hvert þorskkíló. Náist ekki samkomulag um fiskverð er gert ráð fyrir að sérstök úrskurðarnefnd, skipuð fulltrúum sjómanna, útgerð- armanna og sjávarútvegsráðherra, fái ágreininginn til umfjöllunar. Nefndinni ber að láta í ljós álit á því hvort fiskverð víki með ósann- gjörnum hætti frá því fiskverði sem algengast er. í því sambandi ber nefndinni að líta til fiskverðs á mörkuðum, stærðar og gæða fisks- ins, fiskverðs í nærliggjandi byggð- arlögum og afurðaverðs. Náist ekki samkomulag milli áhafnar og út- gerðar geta aðilar krafist bindandi úrskurðar nefndarinnar og skal hann liggja fyrir innan sjö daga og gilda í allt að þrjá mánuði. Ríkisstjórnin tilbúin Ríkisstjómin ræddi deiluna í gær og er tilbúin til að setja lög sem greiða fyrir lausn hennar. „Við fylgjumst með því sem er að gerast og við höfum umboð til þess að ræða við samningsaðila ef nauðsyn krefur. Ef gera á breytingu á lögum þurfa aðilar að snúa sér til ríkis- stjórnarinnar. Það hafa þeir ekki gert ennþá,“ sagði Þorsteinn Páls- son sjávarútvegsráðherra. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins, sagði að líklega yrði verkfalli ekki aflýst fyrr en greidd hefðu verið atkvæði um samningana í félögunum. At- kvæðagreiðslan tæki a.m.k. einn sólarhring. Bangla- deshbúar á víkinga- hátíð? GRUNUR leikur á að tveir menn frá Bangladesh sem hafa óskað eftir því að fá að sækja víkinga- hátíðina í Hafnarfirði í júlí, hafi ef til vill meiri áhuga á að setj- ast að hér á landi en að kynna sé menningu víkinga. Maður frá fyrirtækinu Inde- pendence News International í Dakha í Bangladesh hafði ný- lega samband við framkvæmda- nefnd hátíðarinnar og óskaði eftir upplýsingum um hátíðina. Hefur fulltrúi fyrirtækisins, Ataul Kabir Maqsood, hringt ítrekað til að afla sér upplýsinga um hótel og annað hérlendis til að geta síðar útvegað sér vega- bréfsáritun hingað til lands. Þegar beiðnin um upplýsingar barst hafði starfsmaður hátíðar- innar samband við Útlendinga- eftirlitið, en mönnum þar á bæ þótti beiðni Bangladesh-búanna fremur sérkennileg þegar haft er í huga að hátíðin er einkum ætluð Norðurlandabúum. Að sögn Ásgeirs Karlssonar, starfsmanns Utlendingaeftirlit- ins, er það þekkt vandamál í nágrannalöndum íslands að íbú- ar þróunarríkja reyni að verða sér úti um vegabréfsáritanir á hátíðir af ýmsu tagi, en neiti svo að fara þegar á áfangastað er komið. Skipt um stjórn í Ósvör hf. í Bolungarvík Framkvæmdastj óra sagt upp Bolungarvík. Morgunblaðið. NY stjóm var kjörin í útgerðarfélaginu Ósvör í gær á fyrsta hluthafafundinum sem haldinn var eftir að Bakki hf. í Hnífsdal keypti hlut Bolungarvíkurkaup- staðar í félaginu. í kjölfarið var haldinn stjórnarfundur þar sem Björg- vini Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Ósvarar, var sagt upp störfum og honum gert að hætta nú þegar. Aðalbjöm Jóakimsson, framkvæmdastjóri Bakka og nýr aðaleigandi Ósvarar var í gær ráðinn framkvæmda- stjóri Ósvarar. Þá munu hinir nýju stjórnendur félags- ins ræða við útgerðarstjóra og skrifstofustjóra Ósvarar um framtíð þeirra hjá félaginu. Hin nýja stjóm er skipuð þeim Markúsi Guðmunds- syni, Bolungarvík, sem átti sæti í fyrri stjórn, en nýir koma inn þeir Þorvarður Gunnarsson, endurskoðandi úr Reykjavík, Þorvaldur Þorsteinsson og Agnar Ebe- neserson starfsmenn Bakka hf. og Aðalbjörn Jóakims- son. Fram kom á fundinum að hinni nýju stjórn er fyrst og fremst ætlað að undirbúa nýjan hluthafafund sem haldinn yrði fljótlega til að ganga frá hlutafjáraukn- ingu upp á um 320 milljónir. Eins mun ný stjórn félags- ins marka framtíðaráform þess. Útgerðarfélagið Ósvör var stofnað 10. mars 1993 í kjölfar gjaldþrots Einars Guðfinnssonar hf. það sama ár. Björgvin Bjarnason hefur verið framkvæmdastjóri félagsins frá því í júní 1993 en hann var jafnframt fyrsti stjórnarformaður þess. Morgunblaðið/Júlíus Unnið að hagkvæmniathugun á byggingu magnesíumverksmiðju á Reykjanesi Gæti skapað 250- 300 störf HITAVEITA Suðurnesja vinnur nú - ásamt Byggðastofnun og Atvinnu- þróunarfélagi Suðurnesja að hag- kvæmniathugun á byggingu magn- esíumverksmiðju á Reykjanesi. Mið- að er við að verksmiðjan framleiði 25 þúsund tonn á ári. Tvö til þijú ár tekur að reisa verksmiðju af þessu tagi og kostar hún 16-17 milljarða króna. Verksmiðjan mun veita 250-300 manns atvinnu ef hún rís. Stefnt er að því að niðurstöður forkönnunar á hagkvæmni fáist fyrir haustið. „Að því loknu verður ^•mkveðið með framhaldið og athugað með að fá öfluga aðila til sam- starfs. Það er ekki okkar meining að fara að standa í þessum rekstri," sagði Júlíus Jónsson, forstjóri Hita- veitu Suðumesja. Ákvörðun fyrir áramót í fagritinu Metal Bulletin kom nýlega fram að reiknað væri með ákvörðun um byggingu verksmiðj- unnar fyrir næstu áramót. Júlíus sagði vonir bundnar við að það stæðist, án þess þó að nokkuð væri hægt að fullyrða þar um. Júlíus fór í maí til Bandaríkjanna á ráðstefnu magnesíumframleið- enda til að ræða við aðila í þessum iðnaði. Einnig hefur verið rætt við evrópska aðila. Að sögn Júlíusar kom fram í viðræðum við magnes- íumframleiðendur að það væri kost- ur að vera með magnesíumvinnslu þar sem hægt væri að nýta jarðhita við framleiðsluna. Hugmyndin er að nota jarðhita og raforku til að vinna magnesíum úr sjó og skeljasandi. Fyrir 20 árum var gerð ítarleg skýrsla um magn- esíumframleiðslu á Suðurnesjum, en ekki var grundvöllur fyrir frek- ari aðgerðum þá. Þessar hugmynd- ir voru síðan endurskoðaðar 1981-82 en þóttu ekki framkvæm- anlegar. Ekki var nóg af ódýrri orku, markaðsmöguleikar voru tak- markaðir og hentug tækni til fram- leiðslunnar var ekki fyrir hendi. Að sögn Júlíusar hefur síðan verið boruð hola á Reykjanesi sem sýnir að nægur jarðhiti er fyrir hendi og ekki skortir raforku. Orka mun vera stærsti liður rekstrar- kostnaðar verksmiðja af þessu tagi og lágt orkuverð því grundvallarat- riði. I hagkvæmniathugun er reikn- að með að raforkuverð til verk- smiðjunnar verði 20 mills fyrir kíló- vattstundina. Góðar markaðshorfur Markaðshorfur magnesíums þykja góðar, að sögn Júlíusar, engar birgðir eru fyrirliggjandi og verðið í sögulegu hámarki. Verið er að reisa magnesíumverksmiðjur en þrátt fyr- ir það eru horfur á áframhaldandi magnesíumskorti. Að sögn Júlíusar hafa menn náð tökum á því að vinna magnesíum úr sjó og hafa leyst þá tæknilegu annmarka sem voru á vinnslu af þessu tagi. „Það eru aðal- lega tveir aðilar sem hafa þróað þessa vinnslutækni," sagði Júlíus. Hann sagði ekkert liggja fyrir um hvort þeir hafa áhuga á að gerast aðilar að verksmiðjunni. Bíll fór út af og brann í Hvalfirði BÍLL fór út af veginum í Hvíta- nesbrekkum í Hvalfirði, skammt frá Hvammsvík, um fjögurleytið í gær. Þrír voru í bílnum og voru þeir fluttir á slysadeild, tíu ára gamalt barn, unglingur og ungur maður. Fólkið reyndist ekki alvarlega slasað en einn var lagður inn til eftirlits og nánari rannsókna. Samkvæmt upplýsingum lög- reglu missti ökumaður stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann lenti utan vegar og kviknaði í honum. Slökkviliðið í Reykjavík kom á staðinn og slökkti eldinn en bíllinn er ónýt- ur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.