Morgunblaðið - 11.06.1995, Side 25

Morgunblaðið - 11.06.1995, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1995 25 LISTIR Tvíæríngurinn í Feneyjum settur í dag Island öðru- vísi skorið Margra grasa kennir á Tvíæringnum í Feneyjum sem verður opnaður í dag. Stórhátíð er í kringum opnun- ina, þar sem þessi listahátíð heldur nú upp á eitt hundrað ára afmæli sitt. Sigrún Davíðsdóttir er stödd í Feneyjum og fylgist með því sem fyrir augu og eyru ber fyrstu daga hátíðarinnar. SÝNING Birgis Andréssonar ber heitið „Nálægð“. Hún er byggð upp á ýmsum þáttum sem tengjast íslenskri menn- ingararfleifð, en eins og Birg- ir bendir sjálfur á er það gert í öðru samhengi en venjulega þegar arfleifðinni skýtur upp í listrænu samhengi. Hún er sett saman á textabrotum, lýsingu á landinu eftir Þorvald Thoroddsen landfræðing, teikningum af uppgreftri eftir Birgi og nokkrum fánum sem eru í íslenska mynstrinu, en pijónaðir úr lopa í sauðalitun- um. Bera Norðdal segir íslenska framlagið falla vel inn í umræðu um þjóðerni og umhverfi sem-svo mjög sé áberandi um þessar mundir. Og Erró, sem að venju kom á tvíæringinn og leit við í íslenska skálanum á fimmtudagsmorguninn, hafði á orði að sýningin væri sterkt framlag, heildarsvipur- inn sterkur. Þetta var honum efst í huga eftir að hafa litið í kringum sig annarsstað- ar, auk þess sem hann sagði að margir hefðu nefnt þetta við sig. Sýning Birgis nú er liður í löngu ferli sem hófst meðvitað 1988 en á sér lengri rætur í starfi hans. í gamni kastar hann því fram að félagið kalli þetta „ísland öðru- vísi skorið". Viðfangsefnið sé Island og ís- lensk menningararfleifð. Þetta sé tekið öðr- um tökum en venjulega þegar íslendingar fást við menningararfleifðir sínar. Sýning hans er samsett úr þremur þáttum, hand- bragðinu, náttúrunni og þeirri náttúru sem maðurinn hefur sjálfur skapað, handgerðri náttúru mætti segja. Birgir segir að hægt sé að lesa sýning- una eins og teiknimyndasögu, þannig að smátt og smátt fáist mynd af því sem hún sé um. Birgir bendir á að þó hægt sé áð njóta myndlistar með því að láta sér nægja að njóta þess sem fyrir augu ber, fáist meira útúr því að reyna að lesa í verkið. Munur á þessu tvennu sé eins og annarsveg- ar að horfa á himininn og hinsvegar að skoða hann með stjömufræði í huga. Vitn- eskjan leiði ýmsa þætti í ljós sem ekki sjá- ist með því að njóta eingöngu. Tvíæringurinn: vonandi ekki auglýsing fyrir fortíðina Listrænn framkvæmdastjóri Tvíærings- ins er Jean Clair, forstöðumaður Picasso- safnsins í París, og er þetta frumraun hans í Feneyjum. Auk sýningalandanna eflir Tvíæringurinn til ýmissa sýninga og er ald- arafmælisins einkum minnst nú. Þannig er haldin sýning um hvernig líkaminn hefur verið tjáður og um smekk síðustu öldina. Undanfarin 15 ár hefur eitt helsta aðdrátt- arafl Tvíæringsins verið, „Aterto“-sýningin, þar sem sýnd hafa verið verk yngstu kyn- slóðar listamanna. í ár ákvað Clair að sleppa henni og fyr- ir það hefur hann verið ákaft gagnrýndur m.a. af því að þá fái Tvíæringurinn yfir- bragð auglýsingar fyrir fortíðina. Þetta varð til þess að 28 listastofnanir í Evrópu tóku sig saman og hafa undanfarið verið að opna sýningar undir þessu heiti með ungum listamönnum. Auk þess hafa nokkur lönd m.a. Bretar opnað slíkar sýningar í Feneyjum þar sem yngstu listamennirnir fá að sýna. Bera Norðdal segir mikinn missi af Aterto, og segir að ekki hefði veitt af þessari sýningu einmitt nú til þess að sýna að Tvíæringurinn væri enn ferskur þrátt fyrir aldarafmælið. Clair er auk þess ákaft gagnrýndur fyrir að vera fram úr hófi íhaldssamur í yfirlits- sýningunum. Það skjóti skökku við að á þessari öld sem einkennist af fæðingu óhlut- bundinnar listar, skuli henni jafnlítið vera sinnt og raun ber vitni. Clair hefur hins vegar kosið að minnast þess að manns- ímyndin hafi breyst. Auk þess sem einmitt sé öld frá því að Freud fór að setja fram sálfræðikenningar sínar og röntgen- og símatæknin kom fram. Sýningin verður opnuð með viðhöfn í dag, en þijá undanfarna daga hefur hún verið opin fyrir listamenn, blaðamenn og fólk sem vinnur við söfn og aðrar listastofn- anir. Það setur óneitanlega sérstakan brag á hana að allir, sem eru þama þessa daga, eru atvinnufólk í listum. Sýningarskálar einstakra landa eru oft opnaðir með við- höfn og móttökur þar sem listamaðurinn er viðstaddur. Ýmsir skrítnir fuglar ganga um svæðið, m.a. nauðrakað par, bæði í þröngum gylltum kjólum, háhæluðum skóm og með stóra englavængi. Mesta athygli dró bandaríski skálinn að sér, þar sem vídeólistamaðurinn Bill Viola sýnir. Þar var troðningur á blaðamanna- fundinum og biðröð fyrstu dagana sem skálinn var opinn. Það er annars fremur óvenjulegt að sjá myndlistarmann umsetinn eins og poppstjömu en það segir kannski sína sögu um bandarískan listaheim að þetta skuli geta gengið þannig fyrir sig þar. Nýjar bækur • EPLASNEPLAR eftir Þór- eyju Friðbjörnsdóttur hlaut Is- lensku barnabókaverðlaunin 1995. Þetta var í tíunda sinn sem verðlaunin voru veitt. í kynn- ingu útgef- anda segir að verð- launabókin Eplasnepl- ar sé „smellfyndin fyrir stráka og stelpur á öllum aldri". Þar er jafnframt vitnað í aðalpersónu sögunnar, Breka Bollason: „Af hveiju má maður ekki vaka fram eftir á kvöldin og kveikja á flug- eldum inní herbergi? Og hvað á maður að gera þegar draumadís- in tekur ekki einu sinni eftir manni þótt maður sé kominn með gel í hárið og klæddur í gamla leðuijakkann hans Ragga frænda? Verður maður pipar- sveinn að eilífu?“ Þórey Friðbjörnsdóttir hefur áður skrifað unglingabækurnar Aldrei aftur (1993) og Þegar sálin sér (1994). Útgefandi er Vaka-Helgafell. Eplasneplarer 136 bls. Kristín Ragna Gunnarsdóttir gerði kápumynd bókarinnar og G. Ben.-Edda prentstofa hf. sá um prentvinnslu hennar. Bókin kost- ar 1.490 kr. Þórey Frið- björnsdóttir auk Símonarson frumflut í haust HAFNAR eru æfingar á nýju íslensku leikriti, Þreki og tárum eftir Ólaf Hauk Símonarson. Á STÓRA sviði Þjóðleikhússins eru hafnar æfingar á nýju íslensku leikriti, Þreki og tárum eftir Ólaf Hauk Símonarson. Þrek og tár verður fyrsta frumsýning Þjóð- leikhússins á næsta leikári. Sögu- svið verksins er Vesturbær Reykjavíkur í kringum 1962, upp- rifjun ungs manns á æskuárum sínum þar. Þetta er saga fjölskyldu og þroskasaga ungs manns, ferðalag um land minninganna þar sem Þrek og tár brugðið er upp kunnuglegum hlið- um lífsins í tónum, máli og mynd- um. Leikendur í Þreki og tárum eru Hilmir Snær Guðnason, Edda Heiðrún Backman, Jóhann Sigurð- arson, Edda Arnljótsdóttir, Gunn- ar Eyjólfsson, Anna Kristín Arn- grímsdóttir, Bessi Bjarnason, Þóra Friðriksdóttir, Örn Árnason, Vigdís Gunnarsdóttir, Egill Ólafs- son, Elva Ósk Ólafsdóttir, Stefán Jónsson, Magnús Ragnarsson og Sigríður Þorvaldsdóttir. Flutning tónlistar annast Tamlabandið, ásamt leikurum. Leikmynd hann- ar Axel H. Jóhannesson, búninga María Ólafsdóttir og tónlistar- stjórn er í höndum Egils Ólafsson- ar. Leikstjóri er Þórhallur Sigurð- arson. Fyrirlestur Juhani Pallasmaa Sex temu fyrir næsta árþúsund í TENGSLUM við íslenska arki- tektaskólann, ISARK, er nú stadd- ur hér á landi finnski arkitektinn Juhani Pallasmaa, forstöðumaður og prófessor við arkitektadeild Tækniháskólans í Helsinki. Hann er jafnframt starfandi arkitekt. Þekktastur er hann fyrir skrif sín, en hann hefur skrifað fjölda greina serfí birtar hafa verið í alþjóðlegum tímaritum um allan heim, þar sem hugðarefnið er umhverfið, bygging- arlist og aðrar listgreinar í víðtæku samhengi. Pallasmaa hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín og hefur verið fenginn sem gestakennari og fyrirlesari við arki- tektaskóla í Bandaríkjunum og Evrópu. Þriðjudaginn 13. júní nk. heldur Juhani Pallasmaa fyrirlestur í Nor- ræna húsinu sem hefst kl. 20. Fyrir- lesturinn, sem er öllum opinn, verð- ur fluttur á ensku og ber yfirskrift- ina „Sex temu fyrir næsta árþús- und“. Aðgangseyrir er kr. 1.500. Forsaþa aðgöngumiða er á skrif- stofu ÍSARK, Freyjugötu 4, frá kl. 8.30-13.00. Einnig verða seldir miðar við innganginn. Kirkjulistahátíð TONLIST Ilallgrímskirkja ÖRVAR ENGLANNA Norskir alþýðusálmar. Sungnir af Anne-Lise Berntsen við orgelundir- leik Nils Hendrik Asheim. Hall- grímskirkju fimmtudaginn 8. júní. EITT af einkennum alþýðutón- listar frá fornu fari er skreytt tónun sem er andstæð sléttsöng kristinnar kirkju. Hjá Indveijum hétu þessi tónfrávik „Srutis“, eitthvað sem menn heyra en ekki er hægt að rita. Þessar „skrúðnótur", þ.e. margvísleg smá tónfrávik, voru mjög miklvægar hjá kvæðamönnum og eru það reyndar í allri alþýðu- tónlist enn þann dag í dag, t.d. popptónlist. I uppfærslu Anne-Lise Berntsen má merkja þessi tónfrávik og væri fróðlegt að bera saman tónfrávik í norskum alþýðulögum og íslenskum kvæðasöng. Undirritaður hefur haldið því fram, að þessi tónfrávik er tilheyra aðferðinni að kveða, hafi borist til íslands með land- námsmönnum, þvi fráleitt hefðu landsmenn tekið upp slíkan söng- máta ef söngur hefði þá fyrst bor- ist til íslands er kristni var lögtek- in. Þarna er ef til eitthvað sem landnámsmenn höfðu með sér að heiman og hvarf þeim og afkomend- um þeirra aldrei. Lýsing Magnúsar Stephensen á kirkjusöng á 19. öld bendir til þess að söngvarar hafi í raun verið farnir að kveða sálma- lögin, á sama hátt og Anne-Lise Berntsen flutti norsku alþýðu- sálmalögin. Það sem truflaði undirritaðan á þessum tónleikum, sem báru yfír- skriftina Örvar englanna (Eins kon- ar skot-félag engla), var í raun óþarfur undirleikur Nils Hendrik Asheim, enda annarar ættar en ein- föld og hugljúf sálmalög. Að semja nútímatónlist er eitt en annað að nútímagera gamla tónlist. Hveiju væri Bach gamli bættari ef aukið væri við verk hans nútímalegri mis- hljóman, líklega engu. Það er engu líkara en að óþol og fagurfræðileg fyrring, er á sér samsvörun í tilbún- um fjölmötuðum veruleika, hafí gjört eyðingu þess náttúrulega að markmiði, undir ýmsum merkjum, eins og að horfa til framtíðar. Það má vera að undan því verði ekki komist, að brenna fortíðina til kola og heiminn þar með. Sköpum nýtt en skemmum ei það gamla og sálmamir Hos Gud er idel glede og Eg veit i himmerik ei borg, eru slíkar perlur, að allt utanpijál breytir þar engu. Þar rík- ir sú fegurð sem er hafinn yfír allan tíma og hin ágæta söngkona, Anne- Lise Bertnsen, söng þessi lög mjög fallega. Nils Hendrik Asheim er góður orgelleikari en tónmál hans er því miður orðið nokkuð gamalt og tilheyrir þeim tíma tóntilrauna sem menn hafa fyrir „löngu" talið sig hafa fullreynt, að engu gagni komi. Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.