Morgunblaðið - 11.06.1995, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ1995 29
meðan hún var og hét, en vann í
þágu Samtaka um kvennalista hin
síðari ár, eftir að hugsjónaeldar hinn-
ar fyrrum róttæku stjómmálahreyf-
ingar voru kulnaðir að mestu. Hún
fylgdist af áhuga með framvindu
mála í fyrrum Ráðstjórnarríkjum og
þeim ríkjum öðrum sem tóku upp
nýja þjóðfélagshætti eftir stríð. Var
félagi í MÍR um áratuga skeið og
virk í félagsstarfinu þar fram til hins
síðasta. Hún María fór aldrei dult
með skoðanir sínar og hikaði ekki
við að taka afstöðu í viðkvæmum
deilumálum í samræmi við sannfær-
ingu sína og lífsskoðun.
Fyrstu kynni mín af Maríu Þor-
steinsdóttur voru bundin störfum í
blaðamennsku fyrir langa löngu. í
fyrstu fannst mér hún ekki manna
skemmtilegust, ýtin oft og smá-
munasöm, en þó varð maður að við-
urkenna áhuga hennar á því sem hún
var að fást við í það og það skiptið.
En eftir því sem tíminn leið og ég
kynntist betur innra manni hennar,
hreinskilni og réttlætiskennd, þá sá
ég að ýtnin var bara eðlilegur partur
af þessum ódrepandi áhuga hennar
og á góðri stund gat María verið
hrókur alls fagnaðar og hin skemmti-
legasta í viðræðu.
Á útfarardegi Maríu Þorsteins-
dóttur minnast félagar hennar og
vinir þess, hversu heil hún var og
sönn í starfi og hreinskiptin í við-
kynningu.
ívar H. Jónsson.
Mæt kona er fallin frá.
Kynni okkar Maríu hófust fyrir
um 30 árum ér þau hjónin María
Þorsteinsdóttir og Friðjón Stefánsson
fluttu í næsta hús við fjölskyldu mína
í Barmahlíð. Þau hjón voru þá að
ala upp sonardóttur sína Freyju Þor-
steinsdóttur, sem var á líkum aldri
og dætur mínar. Dætur okkar urðu
heimagangar hver hjá annarri og
bæði heimilin stóðu þeim opin. María
var þá orðin miðaldra kona og hefði
getað verið móðir mín, en það breytti
því ekki að á milli okkar myndaðist
einlæg vinátta sem aldrei bar skugga
á. Það var glaðst saman á gleðistund-
um og reynt að aðstoða og hjálpa
þegar erfíðleikar og sorgir börðu að
dyrum.
María var að mörgu leyti stór-
merkileg kona, hún var skarpgreind,
en segja má að hún hafí verið sjálf-
menntuð, hún talaði ijölda tungu-
mála, var vel lesin með afbrigðum,
afar ritfær og hafði brennandi áhuga
á stjómmálum. Hún lifði erilsömu
og viðburðaríku lífi og oft furðaði
ég mig á hvemig hún gat brosað og
tekist á við daglegt amstur eftir
margt sem hún þurfti að þola. María
þurfti að takast á við margt sem
öðrum hefði fundist óbærilegt, en
alltaf reis María upp aftur og brosti
sínu bjarta fallega brosi. Hún var
afskaplega hlý kona og virtist alltaf
eiga eitthvað til að gefa af sjálfri sér
ef á þurfti að halda og naut fjöl-
skylda mín þess ómælt.
Samskipti okkar Maríu minnkuðu
er fjölskylda mín flutti úr Barmahlíð-
inni, en alltaf var nánu sambandi
haldið og til fjölda ára eyddum við
alltaf saman áramótum og alltaf var
María viðstödd ef einhveijir merkis-
atburðir áttu sér stað í fjölskyldu
minni. Ég sá Maríu síðast í apríl sl.
er hún var viðstödd fermingu elsta
barnabams míns. Þá var hún hress
og glöð og brosti sínu bjarta fallega
brosi.
María lifði viðburðaríka og að
mörgu leyti erfiða ævi, en hún tók
öllum áföllum með reisn og ég veit
að vel verður tekið á móti henni nú
er hún leggur upp í ferðina löngu,
en margir hennar kærustu bíða henn-
ar þar. Farðu í friði, kæra vinkona.
Guð blessi minningu Maríu Þor-
steinsdóttur.
Regína Birkis.
Öllum að óvörum er merkiskonan
María Þorsteinsdóttir látin. Hún var
svo lánsöm að kveðja þennan heim
snögglega og án undanfarandi
sjúkralegu. Hef ég ástæðu til að
ætla, að einmitt þannig hafí María
viljað kveðja, enn fullfrísk til líkama
og sálar, enn lífsglöð og félagslega
virk.
Kvennalistinn var ekki gamall í
hettunni, þegar María tók að birtast
á fundum, leiftrandi af áhuga og
eftirvæntingu. Það verður að játast,
að sumar tóku henni með nokkrum
fyrirvara á sama hátt og þeim konum
öðmm, sem voru þekktar af starfi í
einhveijum gömlu flokkanna. Þær
áttu það til að hrista höfuðið yfír
láréttu skipulagi, fijálslegum fundar-
sköpum og nýstárlegri hugmynda-
fræði. En ekki hún María. Hún bók-
staflega drakk þetta allt saman í sig
og hlustaði þolinmóð á endalausar
umræður um vinnubrögð og kvenna-
pólitísk fræði. Hún skildi svo vel,
eins og reyndar margar hinna eldri
kvenna, mikilvægi þess, að Kvenna-
listinn væri byggður upp hið ytra sem
innra á okkar eigin hugmyndum, en
ekki gömlum, viðteknum venjum.
Þess vegna þurftum við að ræða hin
smæstu atriði fram og aftur og
stundum aftur og aftur. María sýndi
þessu öllu stakasta umburðariyndi.
Ekki svo að skilja, að María hafí
þagað á fundum. Ég minnist þess
varla, að hún hafí ekki lagt orð í
belg um flest mál, sem bar á góma.
Og fyrst í stað lá tortryggnin í loft-
inu. Allar voru með það á hreinu,
að María hafði trúað á sæluríkið í
austri og hafði m.a.s. enn atvinnu
af því að segja fréttir frá Moskvu.
En þessi tortryggni eyddist fljótt og
hvarf, og eftir stóð ljúf og lífsreynd
kona, sem trúði á mátt kvenna til
að vinna að friði í þessum ófriðlega
heimi. Og Kvennalistinn hélt varla
svo fund, að María léti sig vanta.
Hún sótti laugardagskaffi, félags-
fundi og málefnafundi, vorþing og
landsfundi. Síðasti stórfundurinn var
í vor, þar sem við ræddum stöðu
Kvennalistans að loknum kosning-
um. Hún var þá nýkomin heim frá
Svíþjóð, þar sem hún var viðstödd
afhendingu fyrstu styrkveitingar úr
minningarsjóði Katrínar dóttur
sinnar. Hún var þreytt, ferðin hafði
tekið á hana og ýft upp sorgina vegna
dótturmissisins. Samt átti hún kraft
til að örva og hvetja, óbilandi í trú
sinni á getu kvenna til að breyta
heiminum.
Kvennalistakonur eiga margar
minningar um Maríu frá öllum okkar
fundum og samkomum, og væri
hægt að rifja upp mörg atvik frá
þeim stundum. Eitt slíkt atvik frá
síðustu kosninganótt er lýpndi fyrir
lífshlaup Maríu. Áttræð kónan lét sig
ekki vanta á kosningavöku Kvenna-
listans á Sólon íslandus og lét ekki
lítt uppörvandi kosningatölur draga
úr kjarkinum og baráttuandanum,
heldur nýtti tækifærið til að selja
eins marga happdrættismiða til
styrktar Kvennalistanum og hún
mögulega gat. Um miðja nótt vatt
hún sér að ungum manni, sem sat
þar einn við borð og horfði í gaupn-
ir sér. Hann virtist meinlaus, en þeg-
ar María ávarpaði hann og bauð
honum happdrættismiða Kvennalist-
ans til kaups, reis hann upp í allri
sinni stærð og veldi, jós yfír hana
fúkyrðum og endaði með því að urra
framan í hana: „Ég ætti að beija
þig, kerlingarálft." En hún María
hrökk ekki undan frekar en vana-
lega, heldur setti hendur á mjaðmir
og sagði storkandi: „Berðu mig bara,
ef þú þorir.“ Sem hann ekki gerði
sem betur fer, en svo var aumingja
manninum þungt í skapi, að þegar
við yfirgáfum staðinn skömmu síðar
höfðu nokkrir fílefldir séð sitt
óvænna að taka hann úr umferð og
sátu ofan á honum á tröppum Sólons.
Þannig var hún María baráttukona
til hinstu stundar, óbuguð þrátt fyrir
margvíslegt mótlæti um dagana. Um
það allt má lesa í ævisögu hennar,
sem Nanna Rögnvaldsdóttir skráði
og út kom 1991. „Skilmálamir henn-
ar Maríu" er saga mikilla örlaga og
þungbærrar reynslu, en líka saga
ótrauðrar baráttukonu fyrir hugsjón-
um frelsis og friðar, jöfnuðar og rétt-
lætis.
Og nú er þessi friðelskandi bar-
áttukona öll. Kvennalistakonur
kunnu vel að meta tryggð hennar
og uppörvun á hveiju sem gekk. Við
munum margar minnast hennar eins
og hún var á vorþingi Kvennalistans
á Selfossi fyrir rúmu ári, en þar var
María heiðursgestur í tilefni af nýl-
iðnu áttræðisafmæli. Það var stolt
og glöð kona, sem stóð þar við glugga
með birtu íslenska vorsins að baki
sér og hlýddi á Maístjömuna, sem
við sungum henni til heiðurs.
Kristín Halldórsdóttir.
MIIMNINGAR
GUÐFINNA S.
BJÖRNSDÓTTIR
-j- Guðfinna S.
* Björnsdóttir,
sem alltaf var kölluð
Dúa, var fædd í
Kirkjubæ í Vest-
mannaeyjum 3.
febrúar 1912. Hún
andaðist í Borgar-
spítalanum 30. maí
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Björn Guðjónsson
og Sigríður Jónas-
dóttir. Þau eignuð-
ust tvær dætur auk
Dúu, Ólöfu, sem lést
fyrir ári, og Þyri,
sem lést ung. Hálf-
systkini Dúu voru Logi Eldon
Sveinsson og Lovísa Sveinsdóttir
Merlung, sem giftist til Dan-
merkur og bjó þar. Þau eru
bæði látin. Dúa giftist Oddi Sig-
urðssyni og bjuggu þau í Reykja-
vík. Þau eignuðust tvo syni: Sig-
urður, f. 13.9. 1942, verkfræð-
ingur, kvæntur Erlu Aðalstein-
dóttur, þau eiga þijú börn, og
Björn, f. 1.11.1951, doktor í jarð-
verkfræði, kvæntur Gaby Ric-
hter og eiga þau tvö börn.
Útför Guðfinnu S. Björnsdótt-
ur fór fram í kyrrþey.
ELSKU Dúa mín, þú þurftir ekki að
bíða lengi eftir því að komast til
Odds. Aðeins tæpar fímm vikur.
Sennilega er það samt það lengsta
sem þið hafið verið aðskilin síðustu
55 árin. Það er sárt að missa ykkur
bæði á svona stuttum tíma, en ég
veit að þið eruð saman eins og ég
man ykkur alla tíð.
Þegar ég lít yfír síðustu 30 árin
og riíja upp margar hugljúfar minn-
ingar um tengdamóður mína minnist
ég þess, þegar bömin mín komu á
Flókagötuna og amma var búin að
ljúka við jólaskreytinguna. Hvað þú
naust þess að sjá hvað þau voru
spennt, þegar þú sýndir þeim jóla-
sveininn í bílskúrsglugganum og öll
fallegu jólaljósin í garðinum. Heimil-
ið þitt var alltaf fallegt og hver hlut-
ur átti sinn stað. Útsaumurinn þinn
var listaverk, sem fáir leika eftir, og
hvað þú hlakkaðir til að setjast niður
síðla dags með útsaum þegar heimil-
isstörfum var lokið. Allt átti sinn
tíma, líka útsaumurinn.
Það muna margir eftir fallega
garðinum þínum. Hann var perlan í
hverfinu. Allt sem þú snertir og hlúð-
ir að óx og blómstraði. Rósirnar
undir stofuglugganum voru stundum
á stærð við undirskálar, blómstrandi
langt fram á haust. Svo var það
hann Trítill, litli þrösturinn sem bjó
í garðinum og kroppaði jólaköku úr
lófa þínum. Hann baðaði sig úr skel-
inni þinni, sem þú kallaðir fuglabað-
ið.
Seinustu árin voru oft erfíð vegna
heilsuleysis ykkar Odds. Nú er hvíld-
in komin og þið saman hjá Guði. Ég
er þakklát fyrir að hafa átt ykkur
bæði. Minningin lifir.
Erla Aðalsteinsdóttir.
Blómastofa
FriÖfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til ki. 22,- einnig um helgar.
Gjafavörur.
Stattu upp, vina mín,
fríða mín, æ, kom þú!
M sjá, veturinn er liðinn,
ripingamar um garð
genpar, - á enda.
Blómin era farin að sjást á
jörðunni,
tíminn til að sniðla vínviðinn
er kominn
og kurr turtildúfunnar heyrist
Handi vora.
Ávextir fíkjutrésins era þegar
famir að
þroskast,
og ilminn legpr af blómstr-
andi
vínviðnum.
Stattu upp, vina mín,
fríða mín, æ, kom þú!
Dúfan mín í klettaskoranum,
i fylgsni flallhnúksins,
lát mig sjá auglit þitt,
lát mig heyra rödd þína!
M' rödd þín er sæt
og auglit þitt yndislegt.
(Ljóðaljóðin 2,10-14)
Nú er hún Dúa amma dáin, það
má segja að það sé stutt stórra
högga á milli, rétt rúmur mánuður
síðan Oddur afi hvarf yfír móðuna
miklu. Þetta minnir okkur systkinin
á hversu samrýnd og samtaka hjón
þau voru alla tíð. Og enn á ný setj-
umst við niður saman og rifjum upp
stundirnar ljúfu með Dúu ömmu
og Oddi afa. Dúa amma var ein af
þessum litlu stóru konum, þrát^,
fyrir að hún hafí verið lítil vexti og
grönn, bar alltaf á henni því hún
var glæsileg og ákveðin. Hún hafði
mikið yndi af blómum og garðrækt
og ræktaði yndislegan margverð-
launaðan garð við Flókagötu 69. Á
sínum yngri árum þegar þau afi
voru á ferð um heiminn, notaði hún
oft tækifærið og varð sér úti um
fræ plantna sem ekki þekktust hér
á landi og tókst með sinni alkunnu
þrautseigju og natni að rækta þess-
ar jurtir. Þannig var amma, henni
tókust alltaf ætlunarverk sín. Það
var alltaf svo gott að koma til henn-**-'
ar, hún var svo góð amma og átti
alltaf eitthvað gott {gogginn handa
barnabörnunum. Ömmu þótti ákaf-
lega gaman að spila við okkur og
kenndi okkur svarta pétur eða „Pét-
urinn“ eins og hún kallaði hann.
Alltaf voru tekin nokkur spil þegar
við komum í heimsókn og var hún
ósjaldan sigurvegarinn. Annað sem
við vorum vön að gera á Flókagöt-
unni var að hlusta á Baldur og
Konna. Við viljum kveðja ömmu
okkar með orðunum sem hún ávallt
sagði þegar hún slökkti á kerti
„Guð gefí mér eilíft ljós sem aldrei
slokknar." Amma og afi dvelja nú
á góðum stað í húsi Drottins og^,,
einn góðan dag hittum við þau þar.
Oddur, Aðalsteinn og
Anna Margrét.
+
Þann 7. júní andaðist í Landspítalanum,
HARALDUR HELGASON,
Hátúni 10,
Reykjavík.
Útför hans fer fram frá Áskirkju, föstu-
daginn 16. júní kl. 13.30.
Aðstandendur.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VALGARÐUR MAGNÚSSON,
Hrafnistu,
áður Karfavogi 19,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 13. júní kl.
15.00 .
Guðmundur Valgarðsson,
Hafsteinn Valgarðsson,
Guðrún Valgarðsdóttir,
Arnar Valgarðsson,
Georg Sævar Valgarðsson,
Ásdis Valgarðsdóttir,
Ester Valgarðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Áslaug Sæmundsdóttir,
Sigrún Sigurðardóttir,
Hjalti Örnólfsson,
+
Astkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐFINNAS. BJÖRNSDÓTTIR,
lést 30. maí sl. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sigurður Oddsson, Erla Aðalsteinsdóttir,
Björn Oddsson, Gaby Oddsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir alla þá einlægu
samúð, hlýju og vináttu sem okkur hef-
ur veriö sýnd við andlát og útför
ástkærs sonar okkar,
ÞRASTAR BERGMANN INGASONAR,
Álftamýri 8,
Reykjavík.
Rósa R. Frímannsdóttir, Ingi Bergmann.