Morgunblaðið - 11.06.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.06.1995, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSIIMS Spítali í kverkataki Frá Bergþóru Karlsdóttur og Mar- gréti Guðmundsdóttur: ÞAÐ ER engin nýlunda, að á undan- förnum árum hefur æ meiri kreppa og fjárskortur gert vart við sig í heilbrigðisþjónustu í landinu. Við viljum þó vekja sérstaka athygli á vanda St. Jósefsspítala í Hafnar- firði, sem er fimmta stærsta sjúkra- hús landsins m.t.t. starfsemi. Miðað við þá starfsemi, sem fer fram við spítalann, hefur verið þrengt illa að honum. Á meðan stöðugildum hefur fækkað við spít- alann og fjárveiting skorin niður hafa innlagnir á lyflækningadeild St. Jósefsspítala aukist um 69% frá árinu 1991 til ársins 1994, þrátt fyrir styttri legutíma og veikari ein- staklinga. Til gamans fylgir hér með sam- anburður á skiptingu launaliða fjár- laga ársins 1995 per stöðugildi á nokkrum sjúkrahúsum; er þá miðað við brúttólaun. fj . stöðugilda kostnaður per stöðugildi Akranes 161 1.976 millj. Húsavík 98 1.835 millj. Neskaupstaður 60 2.172 millj. St. Jósefsspítali 105 1.714 millj. Lyflækningadeild sinnir bráða- vaktaþjónustu allan sólarhringinn alla daga ársins fyrir Hafnarfjörð, Garðabæ og Bessastaðahrepp, auk valgreinaþjónustu með áherslu á meltingarfærasjúkdóma, þar sem þjónustan er bæði svæðisbundin og á landsvísu. Bráðainnlagnaþáttur- inn er vaxandi og nálgast nú allt að 80%. Fækkun stöðugilda, aukin bráðaþjónusta ásamt fjölgun inn- lagna hefur aukið verulega álag á starfsfólk. Eftir sem áður er megin markmið starfsmanna spítalans að veita sjúklingum bestu þjónustu sem völ er á á hveijum tíma. Það sem af er árinu hafa 400 sjúklingar verið lagðir inn á lyf- lækningadeild St. Jósefsspítala. Góð samvinna hefur ríkt á milli spítalans og heilsugæslustöðva á þjónustusvæðinu. Á röntgendeild spítalans eru gerðar allar almennar röntgenrann- sóknir ásamt ómskoðunum bæði fyrir inniliggjandi og utanspítala sjúklinga og hefur aukning þessara rannsókna orðið um 22% á fyrr- greindu tímabili. Sérstaklega ber að vekja athygli á sérhæfðri óm- skoðun á leghálsi en það er ein öruggasta rannsóknin varðandi byijunarstig krabbameina í leg- hálsi. Um valgreinaþjónustu hand- lækningadeildar og öfluga þjónustu göngudeildar og rannsóknastofu verður ekki fjallað um hér, en von- andi bætt úr því síðar. Vilja íbúar Hafnarfjarðar og nágrennis geta átt þess kost að leita til St. Jósefs- spítala eða vilja þeir sækja alla þjón- ustu til stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík (sem þegar anna vart því álagi sem þeir eru undir)? Við skorum á nýjan heilbrigðis- ráðherra að gefa okkur svigrúm til áframhaldandi starfsemi og þróun- ar. BERGÞÓRA KARLSDÓTTIR, hj úkrunardeildarstj óri lyflækningadeildar, MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, yfirröntgentæknir röntgendeildar St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Knattspyrnuleik- skilningur Frá Hlöðveri Erni Rafnssyni: í FRAMHALDI af atviki sem átti sér stað í leik KR-Fram langar undirrit- aðan að benda á nokkrar staðreyndir. Hinn slasaði leikmaður KR-inga var búin að liggja dágóða stund á leikvellinum þegar Gauti Laxdal spyrnir boltanum í innkast. Gauti var ekki undir neinni pressu þegar spyrn- an átti sér stað. Um leið og Gauti spyrnir boltanum fær hann gott klapp frá fjölmörgum áhorfendum leiksins. Fyrirliði KR-inga hljóp 15-20 metra til að sækja boltann. Fyrirliði KR-inga fylgist ekki vel með því sem gerist í leikjum, ef hann tekur ekki eftir því, að samheiji liggi meiddur og þegar Gauti fær klapp frá áhorfendum. Ég veit ekki um nokkurt dæmi þess að leikmaður hafi fengið klapp frá áhorfendum fyrir það að sparka í innkast, úti á miðjum velli. Einnig hafði fyrirliðinn 2-3 mín- útur til að hugsa um, hvað gerst hafði, á meðan hinn slasaði samheiji fékk umönnun frá sjúkraþjálf- ara/liðsstjóra. Um leið og fyrirliðinn tók hið umdeilda innkast, og sendi á samheija sinn, gall við mikið baul frá áhorfendum. Enn virtist fyrirlið- inn ekki átta sig á því hvað var að gerast, þegar hann fékk boltann aft- ur frá samheija sínum og sendi fyrir- gjöfina. Ég sem gamall þjálfari hefði aldrei valið leikmann sem fyrirliða, sem ekki virðist hafa betri skilning á leiknum en raun ber vitni. Ég á erfitt með að hlusta á viðtöl við þjálfara KR-inga og fyrirliðann, þar sem þeir telja KR-inga koma heiðarlega fram í þessu máli. Dæmi siðan hver sem vill. HLÖÐVER ÖRN RAFNSSON, Selfossi. Áskorun til KR-inga Frá Ragnheiði Ríkharðsdóttur: ÁSKORUN þessari er beint til 1. deildar leikmanna KR og þjálfara þeirra, Guðjóns Þórðarsonar. I Ieik KR og Fram mánudaginn 5. júní sl. brutuð þið drengskapar- reglu sem gilt hefur í knattspyrnu lengur en margir ykkar hafið stund- að þessa íþrótt. Þið hafið gefið ýmsar skýringar sem ég, sem knattspynuáhugamður og Framari, get ekki tekið gildar. Sumir ykkar teljið ekkert athugavert, aðrir vissu ekki hvað var að gerast og kemur það kannski knattpsyrnuáhuga- manni eins og mér mest á óvart, að leikmenn eru ekki betur með á nótunum en svo að þeir verða ekki varir við þegar samheiji liggur í valnum, leikurinn er stöðvaður um hríð og aðstoðarmenn koma inn á leikvanginn til þess að sinna leik- manninum. Enn aðrir tala um heið- arleika en það breytir engu í þessu tilviki því drengskaparreglan var brotin. Þess vegna skora ég á ykk- ur að gera annað tveggja, lýsa því yfir að þið ætlið ekki að virða þessa reglu eða að viðurkenna mistökin og verða menn að meiru. Með knattspyrnukveðju. RAGNHEIÐUR RÍKHARÐSDÓTTIR, Mosfellsbæ. SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1995 3 7 í fUOTTVM 3ARNAF0T VONPUÐ - NIPSTERK - FALLEG OGÓDYR! 49 WNDGALLAR TILBOÐ kr 2 44, GAllAPcruÚ^^’00^' LAIsemallirkwkkar.els TIL BOÐl Kr. 1990 SUMARJAK.LAR TILBOÐ kr. L990j- 2-11 ára. 100% Nylon Fóður: 100%.Bomull Litir: Grænt, rautt, blatt, T.v. AMICO BOLUR kr.1.290.- 2-10 ára.100% Bómull GALLABUXUR TILB09 kr. 1.290.- 4-14 ára.100% Bómull T.h. PÓLÓBOLUR kr .1490.- 2-10 ára.100% Bómull PEYSA kr. 2.490.- 2-10 ára.100% Bómull SUMARJAKKI TILBOÐ kr. 1.990,- GALLABUXUR TILBOP kr. 1.290.- 4-14 ára. 100% Bómull MnwfðlM | m R}RNIN WM Lwmo&m LAUGAVEGI 20 • SÍMI 552-5040 * FÁKAFENI 52 • SÍMI 568-391 KIRKJUVEGI 10 • VESTM.EYJUM »81^1481-3373

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.