Morgunblaðið - 13.06.1995, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1995 41
FRÉTTIR
Ár liðið frá stofnun Mannréttinda-
skrifstofu íslands
Oflug starfsemi
fyrsta árið
UM ÞAÐ BIL eitt ár er liðið frá
stofnun Mannréttindaskrifstofu
íslands. Skrifstofan hefur svar-
að fjölda fyrirspurna sem henni
hafa borist, en einnig staðið fyr-
ir námskeiðum, fundum og ráð-
stefnum af ýmsu tagi.
Mannréttindaskrifstofan er
þátttakandi í samstarfi mann-
réttindastofna á Norðurlöndum
en athygli vakti sameiginleg
skýrsla stofnananna vegna
stríðsins í Tsjetsjníu. Mannrétt-
indaskrifstofan er einnig tengi-
liður við Evrópuráðið og sér um
að senda mannréttindaskrifstofu
ráðsins ýmis konar upplýsingar
sem tengjast mannréttindasátt-
mála Evrópu.
Að mannréttindaskrifstofunni
standa íslandsdeild Amnesty
Intemational, Bamaheill, Bisk-
upsstofa, Hjálparstofnun kirkj-
unnar, Jafnréttisráð, Kvenrétt-
indafélag íslands, Rauði kross
íslands og UNIFEM.
Námskeið
í móttöku
þyrlu
NÁMSKEIÐ um það hvemig á að
taka á móti þyrlu á slysstað verð-
ur haldið fimmtudaginn 15. júni.
Þegar slys eiga sér stað eða
maður veikist alvarlega getur það
haft úrslitaþýðingu fyrir hann að
komast í hendur læknis sem fyrst.
Þetta gildir sérstaklega þegar
slys verður utan þeirra svæða sem
njóta þjónustu sjúkrabíla. Þá get-
ur sjúkraflutningur með þyrlu
verið nauðsynlegur. Þetta nám-
skeið er hentugt fyrir fararstjóra,
leiðsögumenn, rútubilstjóra og
aðra sem fara mikið um óbyggðir
landsins.
Þeir sem áhuga hafa á að kom-
ast á ofangreint námskeið geta
skráð sig þjá Reykjavíkurdeild
RKÍ.
Kveikt í skúr
við Laxá í Kjós
Námskeið í
leiklist, söng
og tjáningu
SEX vikna námskeið í leiklist, söng
og tjáningu verður haldið í Austur-
bæjarskóla dagana 19. júní til 31.
júlí fyrir 11-13 ára og 14-16 ára.
Leiðbeinendur eru Kristbjörg Karí
Sólmundsdóttir og Margrét Sig-
urðardóttir. Gestir á námskeiðinu
verða meðal annars Baltasar
Kormákur, Diddú og Páll Óskar
Hjálmtýsson. Þá mun Magnús Geir
Þórðarson leikstýra söngleik í lok
námskeiðsins, sem settur verður
upp í Tónabæ. Innritun verður
þriðjudaginn 13. júní og miðviku-
daginn 14. júní frá 11-14 og fást
allar nánari upplýsingar hjá
Iþrótta- og tómstundaráði Reykja-
víkur.
-----♦ ♦ ♦
Kvöldganga
í Viðey
KVÖLDGANGA um Viðey á þriðju-
dagskvöldum er fastur liður á Við-
eyjardagskránni í sumar. í dag
verður hún farin í annað sinn.
Gengið verður austur á Sund-
bakka, hann skoðaður og ekki síst
skólahúsið þar sem nú er búið að
gera vel upp þannig að það sýnir
vel hvernig nýr skóli leit út árið
1928. Þar er nú ljósmyndasýning
frá lífi og starfi fólksins á Sund-
bakka fyrr á árum. Af Sundbakkan-
um verður gengið með suðurströnd-
inni heim að Viðeyjarstofu. Farið
verður úr Sundahöfn kl. 20.30. Sjálf
gönguferðin tekur rúmlega einn og
hálfan tíma.
LÖGREGLUNNI í Mosfellsbæ var
tilkynnt um að logaði í skúr við
brúna yfir Laxá í Kjós á fimmtu-
dagskvöld. Slökkvilið Kjalarnes-
hrepps var kvatt á staðinn og sömu-
leiðis tveir bílar frá slökkviliðinu í
Reykjavík.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Mosfellsbæ var um að
ræða ónýtan bárujárnsskúr sunnan
Laxár, sem eitt sinn þjónaði sem
veiðihús. Eigendur skúrsins höfðu
ætlað að losa sig við hann og
ákváðu að kveikja í honum en láð-
ist að fá til þess leyfi.
Skúrinn var mikið brunninn þeg-
ar að var komið en stóð þó enn.
Ákveðið var að slökkva í honum
og ganga frá í kringum hann frek-
ar en að láta hann brenna niður,
enda var hætta á að neisti hlypi í
STYRKUR var nýlega veittur úr
Minningarsjóði dr. phil. Jóns Jó-
hannessonar, prófessors. Ármann
Jakobsson BA hlaut styrkinn að
þessu sinni.
Ármann hefur stundað nám við
Háskóla íslands í íslenskri málfræði
og íslenskum bókmenntum og hann
hefur þegar samið ýmsar greinar
um fræðileg efni. Hann er nú að
viðkvæman gróður í kring. Slökkvi-
liðið á Kjalarnesi sá um það og bíl-
arnir úr Reykjavík sneru við.
Ber alltaf að sækja um leyfi
Að sögn Hrólfs Jónssonar,
slökkviliðsstjóra í Reykjavík, ber
mönnum að sækja um leyfi til við-
komandi slökkviliðs ef þeir ætla að
brenna niður hús. Hann segir að
slökkviliðið í Reykjavík fái oft að
nota hús, sem ætlunin er að rífa,
til að æfa sig í slökkvistarfi. Það
sé yfirleitt gert að nóttu til, til að
valda sem minnstu ónæði.
Hann segir að slökkviliðsmenn
vilji alltaf vera á staðnum, undir
öllum kringumstæðum, til að geta
brugðist við ef eitthvað fer úrskeið-
is, þótt ætlunin sé að láta húsin
brenna til grunna.
semja MA-ritgerð um konungs-
ímynd nokkurra miðaldarita.
Minningarsjóður dr. phil. Jóns
Jóhannessonar, prófessors, er eign
Háskóla íslands. Tekjum sjóðsins
er varið til þess að veita stúdentum
eða kandídötum í íslensku og sagn-
fræði styrki til einstakra rann-
sóknaverkefna er tengjast námi
þeirra.
Hlaut styrk úr
Minningarsjóði
Jóns Jóhannessonar
Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík
Yfir 100 öku-
menn stöðvaðir
9. til 12.júní
í DAGBÓK helgarinnar eru skráð
485 tilvik. Af þeim eru hlutfalls-
lega flest vegna ölvunartengdra
mála. í 78 tilvikum voru höfð af-
skipti af ölvuðu fólki er ekki kunni
sér hófs, 26 sinnum þurfti að ræða
við fólk vegna hávaða og ónæðis,
bæði utan dyra og innan, tvisvar
kom upp ágreiningur, 11 ökumenn
sem lögreglumenn stöðvuðu í
akstri eru grunaðir um að hafa
verið undir áhrifum áfengis en
ekki er vitað til að ölvaðir öku-
menn hafi lent í umferðaróhöppum
en tilkynnt var um 31 slíkt til lög-
reglunnar. í 4 tilvikum urðu meiðsl
á fólki.
12 sviptir á staðnum
Tilkynnt var um 15 innbrot og
16 þjófnaði, 5 líkamsmeiðingar og
17 rúðubrot og skemmdarverk.
Tuttugu og fjórir ökumenn voru
kærðir fyrir að aka vel yfir leyfileg
hámarkshraðamörk og u.þ.b. 40
aðrir voru áminntir. Af þessum 24
ökumönnum, sem kærðir voru, var
helmingur þeirra sviptur ökurétt-
indum „á staðnum". Þrír ökumenn
reyndust við athugun réttindalausir
í umferðinni, 10 voru kærðir fyrir
að virða ekki rauða ljósið á umferð-
arvitanum og 29 voru kærðir fyrir
önnur umferðarlagabrot.
Talið er að um þijú þúsund
manns hafi verið í miðborginni þeg-
ar mest var aðfaranótt laugardags.
Mikið bar á ungu fólki og var ölvun
þó nokkur. Lögreglumenn töldu
ástandið þokkalegt. Aðfaranótt
sunnudags var svipaður fjöldi í
miðborginni. Töluverð ölvun var á
meðal fólks. Undir morgun vartals-
vert af fólki enn við skemmtan á
strætum miðborgarinnar, enda var
veður með ágætum.
Hátíðahöld sjómannadagsins
fóru vel fram og ekki er vitað til
að óhöpp hafi orðið í tengslum við
þau.
Áfengi selt út frá veitingastað
Tveir ökumenn voru fluttir á
slysadeild eftir árekstur þriggja
bifreiða á gatnamótum Listabraut-
ar og Kringlumýrarbrautar á föstu-
dagsmorgun. Minniháttar meiðsl
hlutust af eftir árekstur tveggja
bifreiða á gatnamótum Bústaða-
vegar og Litluhlíðar síðdegis á
föstudag. Síðdegis á laugardag
varð reiðhjólamaður fyrir bifreið í
Vesturbergi. Hann meiddist lítils-
háttar. Um miðjan dag á sunnudag
þurfti að aka þrennu á slysadeild
VINNIN LAUGA 3STÖLUR RDAGINN 10. 06.1995
(10)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 af 5 1 4.383.600
n 4 af 5 a ^•Plús K w*— 102.730
3. 4 af 5 123 5.760
4. 3af5 3.940 410
Heildarvinningsupphæð: 7.118.400
M { BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
eftir árekstur á Vesturlandsvegi
við Kiðafell í Kjós.
Á föstudagskvöld gerðu lög-
reglumenn athugasemd við að
áfengi var selt út frá veitingastað
í miðborginni. Eigandinn sá til þess
að því yrði hætt. í dag hafa þrír
veitingastaðir fengið leyfi til að
selja áfengi til gesta utan dyra,
tveir út á stétt og einn upp á þak
staðarins. Sex aðrir staðir hafa
fengið leyfi til sölu veitinga utan
dyra, annarra en áfengis. Sækja
verður í öllum tilvikum um slíka
sölu sérstaklega.
Með alsælutöflur og hvítt duft
Á föstudagskvöld höfðu lög-
reglumenn afskipti af tveimur ung-
um mönnum á veitingahúsinu
Tunglinu. Annar þeirra hafði fram-
vísað röngum skilríkjum. Við leit á
þeim fundust alsælutöflur og svolít-
ið af hvítu dufti. Mennimir voru
báðir vistaðir í fangageymslunum
það sem eftir lifði nætur.
Aðfaranótt laugardags höfðu
lögreglumenn afskipti af þremur
13 ára gömlum stúlkum í tjaldi
fyrir ofan borgina. Þær reyndust
ofurölvi og var því komið í hendur
foreldra þeirra.
Aðfaranótt sunnudags var bund-
inn endi á för ölvaðs manns, sem
berað hafði á sér óæðri endann á
Sæbraut. Fólk hafði kvartað yfir
sýniþörf mannsins, enda endinn á
honum ekki endilega það sem fólk-
ið hafði viljað sjá við þennan fal-
lega útsýnisstað yfir sundin.
Sérstaklega hugað að
eftirvögnum
Unglingum var vísað úr sam-
kvæmi í húsi í austurborginni að-
faranótt sunnudags. Kvartað hafði
verið undan hávaða frá húsinu og
við nánari athugun kom í ljós að
þar voru unglingar einir heima með
gleðskap.
Lögreglan á Suðvesturlandi hef-
ur ákveðið í samvinnu við Bifreiða-
skoðun íslands að beina athyglinni
sérstaklega að eftirvögnum í næstu
viku. Athugað verður með búnað,
skráningu og annað er viðkemur
vögnunum sem og dráttartækjun-
um.
23. leikvika, 10.-1 l.júní 1995
Nr. Leikur:_______________Röðin:
1. Sviþjóð - Japan - X -
2. Engiand - Brasilía - - 2
3. Bragc - Forward - X -
4. Luleá - Brommapojk. 1 - -
5. Umeá - Assyriska 1 - -
6. Vasalund - Lira 1 - -
7. Visby - GIF Sundsvall 1 - -
8. Gunniise - GAIS - X -
9. Hássleholm - Faikenberg - - 2
10. Ljungskile - Kaimar FF 1 - -
11. Myresjö - Hácken 1 - -
12. Oddcvold - Landskrona 1 - -
13. Skövde - Stenungsund - X -
Heildarvinningsupphæðin:
63 milljón krónur
13 réttir: 1.860.570 kr.
12 rcttir: T 19.380 | kr.
H réttir: 1.630 kr.
10 réttir: 470 kr.