Morgunblaðið - 14.06.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.06.1995, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ1995 25 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraidur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ÞESSA DEILU EIGA ÞEIR AÐ LEYSA SJÁLFIR NIÐURSTAÐAN í atkvæðagreiðslu sjómanna um miðlun- artillögu sáttasemjara kom áreiðanlega flestum á óvart, en jafnframt er hún vísbending um, að óánægja sjó- manna með samskipti þeirra og útgerðarmanna sé afar djúp- stæð. Kjaradeila sjómanna og útvegsmanna er orðin lang- vinn. Hún hefur staðið með beinum eða óbeinum hætti í hálft annað ár. Þetta er í raun og veru sama kjaradeilan og háð var með verkfalli í ársbyrjun 1994 og þáverandi ríkisstjórn leysti með bráðabirgðalögum. Af niðurstöðu atkvæðagreiðslu sjómanna í fyrrakvöld má marka, að sjómenn telja enga lausn fólgna í því að setja á laggirnar eina nefndina enn, sem úrskurða eigi um fisk- verð. Segjast reyndar hafa fengið nóg af „nefndafargan- inu“. Það er ljóst, að bráðabirgðalögin, sem fyrri ríkisstjórn setti og þær aðgerðir, sem þau gerðu ráð fyrir, leystu ekki þann vanda, sem sjómenn stóðu frammi fyrir; að þeir væru nánast neyddir til að taka þátt í kvútakaupum útgerðar- manna. Með þeim samningum sem náðst höfðu á milli samn- inganefndar sjómanna og útgerðarmanna um þennan þátt málsins, áður en til miðlunartillögu sáttasemjara kom, var réttur sjómanna hins vegar tryggður mun betur en gert hafði verið með bráðabirgðalögunum. Það voru ekki nema 38% af sjómönnum á kjörskrá, sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni, eða 2.218 sjómenn af 5.833. 58,4% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu nei, eða 1.296 sjómenn, sem jafngildir því að einungis 22% atkvæðisbærra sjómanna hafi fellt miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Ahugaleysi sjómanna um þátttöku í atkvæðagreiðslunni er veikleikamerki og kann að vera vísbending um að samstaða í þeirra röðum sé takmörkuð. En þó má spyrja, hvers vegna svo margir sjómenn tóku ekki þátt í atkvæðagreiðslunni, ef þeim var kappsmál að ljúka verkfallinu. Verkfall sjómanna hefur staðið á nítjánda dag og hefur nú þegar leitt til þess, að þjóðarbúið hefur orðið fyrir um- talsverðu fjárhagslegu áfalli. Hagvöxtur á þessu ári, sem gert hefur verið ráð fyrir, er augljóslega í hættu. íslenskir sjómenn og sjávarútvegsfyrirtæki eru að missa af tækifæri til þess að veiða síld í íslenskri landhelgi, sem hefði getað skapað þeim og þjóðarbúinu talsverðar tekjur. Karfaveiðar íslenskra frystitogara á Reykjaneshrygg liggja niðri og þannig verður þjóðarbúið af tekjum. Aðrar úthafsveiðar liggja sömuleiðis að langmestu leyti niðri og ísland verður af tekjum af þeim sökum. Neyðarástand er að skapast víða um land í atvinnumál- um, þar sem fiskvinnslufyrirtækin hafa ekki hráefni til vinnslu og fiskvinnslufólk er af þeim sökum verkefnalítið eða verkefnalaust. Kreppa undanfarinna ára hefur gengið nærri fólki, sem má alls ekki við því að missa atvinnu og tekjur vegna langvarandi verkfalls sjómanna. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hefur tekið rétta afstöðu með því að blanda sér ekki í deilu sjómanna og útvegs- manna með beinum afskiptum eða lagasetningu á verkfall sjómanna. Ætli ríkisstjórnin sér að grípa í taumana með lögum hlýtur hún að gera það á meðan Alþingi situr. Það væri ekki við hæfi að senda þingið heim og leysa sjómanna- deiluna nokkrum dögum síðar með bráðabirgðalögum. Endurtekin verkföll sjómanna ár eftir ár vegna deilu um verðmyndun á sjávarfangi undirstrika nauðsyn þess að leysa þetta vandamál til einhverrar frambúðar. Sjómenn hafa krafizt frjálsrar verðmyndunar á fiski. Útgerðarmenn hafa bent á, að færi allur fiskur á markað mundi markaðsverðið lækka. Talsmenn sjómanna hafa viðurkennt það. Morgun- blaðið hefur spurt, hvers vegna ekki megi taka sjómenn á orðinu og efna til þess frelsis í verðmyndun á fiski, sem þeir sjálfir krefjast. Úr því sem komið er verða menn að bíta á jaxlinn og gera þá kröfu til sjómanna og útgerðarmanna, að þeir leysi þessa deilu sín í milli án afskipta stjórnvalda. Það hefur verið afstaða ríkisstjórnarinnar til þessa, og sú afstaða er rétt. Að þessu sinni á ekki að leysa kjaradeiluna fyrir deilu- aðila, heldur ætlast til að þeir geri það sjálfir. Það er áhyggjuefni hvað verkföll eru að verða tíð. Fyrr á árinu voru kennarar í löngu verkfalli. Sjómannaverkfallið er að nálgast þrjár vikur. Yfirvofandi er verkfall í álverinu, sem getur m.a. leitt til þess að horfið verði frá áformum um að stækka álverið. Höfum við ekkert lært á undanförn- um kreppuárum? UMGENGNIN UM AUÐLINDIR HAFSINS Mælingar segja eitt en reynslu- sögurnar annað Einatt hefur hvað rekist á annars hom í til- raunum til að áætla hve miklu af fiski sé * varpað fyrir borð á flotanum. I umfjöllun Péturs Gunnarssonar kemur fram að vís- bendingar hafí fengist varðandi smærri neta- báta og meðferð undirmálsfísks á togurum en ekkert sem staðfesti hrollvekjandi heildar- mynd skoðanakönnunar frá 1989-1990. RISAHOL þar sem trollið kemur loðið af fiski upp í skutrennuna hefur löngum þótt fögur sjón hér á landi en ef marka má frásagnir sjómanna í Morgunblaðinu er það ekki síst við þær aðstæður sem mikið af aflanum ónýtist og er varpað fyrir borð. (Myndin er úr myndasafni Morgunblaðsins og ótengd efnis- öflun vegna greinarflokksins um umgengni um auðlindir hafsins.) Strangari löggjöf í undir- búningi Sj ávarútvegsráðherra hefur kynnt frumvarp með ýmsum ráðstöfunum til að tryggja bætta umgengni um fískimiðin. í grein Péturs Gunnarssonar kemur fram að það boði hert- ar refsingar og víðtækara eftirlit en nú er. YISAR tilraunir hafa verið gerðar hér á landi undan- farin ár til að kanna og meta hve stóru hlutfalli sjávarafla sé kastað fyrir borð á fiski- skipum og berist aldrei að landi. Lítið hefur tekist að sanna með óyggjandi hætti í þeim efnum. Skipulágðar mælingar hafa gefið til kynna sterkar líkur á því að netabátar undir 30 tonn- um komi ekki með allan afla að landi og með tölfræðilegum útreikningum hefur sérfræðingur Hafrannsókna- stofnunar leitt að því líkur að árið 1987 hafi togaraflotinn varpað allt að 13 þúsund tonnum af undirmáls- fiski fyrir borð. Skoðanakönnun sem Skáís gerði meðal 900 sjómanna fyr- ir Kristin Pétursson á Bakkafirði um áramótin 1989-1990 gaf hins vegar til kynna að allt að 53 þúsund tonnum af botnfiski væri kastað fyrir borð á flotanum öllum. Þær staðhæfingar sem þar komu fram og byggðust á áætlunum sjómannanna hefur ekki reynst unnt að sannreyna með eftir- liti og mælingum en niðurstöður slíkra aðferða hafa hingað til fremur geng- ið gegn reynslusögum á borð við þær sem tugir sjómanna hafa rakið fyrir blaðamönnum Morgunblaðsins og birtust í blaðinu á sunnudag og í gær. Síðasta tilraunin sem gerð var til að áætla það magn sem varpað væri fyrir borð í íslenskum fiskiskipum mistókst. Nefnd sem sjávarútegsráð- herra skipaði ætlaði að gera könnun á umfangi vandans og sendi 1.000 sjómönnum lista með spumingum þar sem nafnleynd og trúnaði var heitið. Einungis 270 þátttakendur svöruðu hins vegar spurningunum og vegna hinnar litlu svörunar hefur ekki verið talið fært að vinna úr niðurstöðunum með marktækum hætti. Könnunin sem ekki tókst að ljúka var gerð á vegum nefndar sem Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra skipaði á síðasta ári til að fjalla um bætta umgengni um auðlindir sjávar. í nefndinni sátu fulltrúar helstu stofn- ana og hagsmunaaðila í sjávarútvegi og laut hún forystu Kristjáns Þórar- inssonar stofnvistfræðings LÍÚ. Nefndinni var ætlað að meta í hve miklum mæli sjávarafla væri varpað fyrir borð á íslenska fiskiskipaflotan- um og leggja mat á að hvaða leyti núverandi aðferðir við veiði leiði til óæskilegs auakaafla, auk þess að gera tillögur um betri kjörhæfni veið- arfæra og kanna með hvaða hætti mætti bæta nýtingu aukaafla og hvernig unnt væri að auka virkni veiðieftirlits. Nefndin er enn að störfum en skil- aði í desember sl. áfangaskýrslu með tillögum um hvernig koma megi í veg fyrir að afla sé varpað fyrir borð og auka veiðieftirlit. Þar er jafnframt að finna þá umfjöllun um þessi mál sem er nýjust og lýsir vand- anum miðað við núgildandi aðstæður og ástand fiskistofna. Nefnd þessi telur helsta vandann sem við er að eiga og mikilvægastu ástæðu þess að fiski geti verið hent í sjóinn eða landað fram hjá vikt vera þann hvata til að henda fiski sem myndast þegar kvóti er mjög tak- markaður í samanburði við veiðigetu skips. Viðleitni til að gera sem mest verð- mæti úr heimiluðum afla kunni þá að hafa þau áhrif að besti fiskurinn sé nýttur og lakari fiski hent þegar öruggt teljist að viðkomandi skip nái öllum sínum kvóta í viðkomandi teg- und. í skýrslunni kveður þama við svipaðan tón og lesa mátti hjá nokkr- um þeirra sjómanna sem rætt var við um þessi mál í Morgunblaðinu á sunnudag. Af þessu dregur nefnd Kristjáns Þórarinssonar þá ályktun að brottkast sé líklegast hjá kvótaminni skipum og þá einkum á síðari hluta hvers fiskveiðiárs (en áramót fiskveiðiársins eru sem kunnugt er 1. september). Brottkast geti þó hafist í einhveijum mæli strax í upphafi fískveiðiárs hjá kvótaminnstu skipunum. Vandamálið geti versnað við bland- aðar veiðar, séu heimildir skertar til veiða á einni eða fáum tegundum meðan nægur kvóti er til veiða á öðmm tegundum. í því sambandi er sérstaklega vísað til almennra botnfiskveiða þar sem aflaheimildir í þorski séu skertar meðan nægur kvóti sé á ýsu og ufsa. Einnig geti fiskur skemmst í veið- arfærum, ánetjast í botnvörpu og liggi net Iengur en einn dag í sjó geti svo til allur aflinn orðið lélegur og verðiít- ill. Hætta á því sé einkum til staðar þegar litlir netabátar leggi net í rysj- óttri tíð fyrir opnu hafi. Þótt umfjöllun nefndarinnar hafi að mestu leyti beinst að þeim þátt- um, sem valdið geti því að markaðs- hæfum fiski sé varpað fyrir borð og þýðingu ákvarðana sem teknar eru við stjórnun fiskveiða á þá þætti, var jafnframt drepið á ýmis önnur atriði sem valdið geti því að afli komi ekki að landi. Við sérveiðar með smáriðnum veið- arfærum, t.d. rækju- og humarveiðar, sé viðbúið að öðrum kvótabundnum fiski sé hent, ýmist vegna þess að skipin eru ekki búin til nýtingar, fisk- urinn sé smár og verðlítill eða skip hafi ekki heimildir til veiða á viðkom- andi tegund. Fiski af óhefðbundnum tegundum sé gjarnan hent enda kaupendur vandfundnir en úr því hafi verið bætt með til- komu fiskmarkaða, Afla- kaupabanka og með markaðsleit almennt. Þá sé fiski hent þegar sjómenn telji hann ekki hæfan til vinnslu, t.d. ef hann er sýktur eða haldinn sníkjudýrum, en það vanda- mál heijar einkum á þá sem stunda karfaveiðar. Einnig sé hent fiski sem er ónýtan- legur sakir smæðar. Þetta eigi einkum við um þorsk, karfa og ýsu sem veið- ist á handfæri, línu, botnvörpu eða dragnót. Vandinn stafar af ástandi þorskstofnsins í áfangaskýrslunni er staðhæft að vandamál vegna útkasts og löndunar framhjá vikt sé nær einskorðað við þorsk og rekja megi vandann til bágs ástands þorskstofnsins. Stærsti vandinn sé fólginn í því ójafnvægi í aflaheimildum milli teg- unda sem fyrr var drepið á. Erfitt sé að veiða heimilað magn af ýsu og ufsa án þess að meðafli af þorski sé meiri en sem nemur því aflamagni sem heimilað er. „Um leið og verulega hefur dregið úr heimildum til veiða á þorski hafa heimildir til veiða sumra annarra teg- unda botnfísks aukist. Á þetta einkum við um ýsu og ufsa. Vegna þess hversu samtvinnaðar veiðar á þessum tegundum eru hefur aukin sókn í ýsu og ufsa leitt til aukins meðafla þorsks og e.t.v. til aukins þorskafla umfram takmarkaðar aflaheimildir," segir í skýrslunni. Eina lausnin sé því efling þorsk- stofnsins og frumforsenda árangurs sé að hvergi verði gefið eftir við fisk- veiðistjómun og aðgerðir til eflingar stofnsins. „Ef eftir væri gefíð nú í þeim efnum og aukinn þorskafli heimilaður, t.d. sem aukaafli við veiðar á öðrum teg- undum, þá væri þess að vænta að sókn í aðrar tegundir ykist og vanda- mál vegna umframafla þorsks gætu enn versnað. Aukin sókn í aðrar teg- undir til að bæta upp tekjutap vegna minnkaðs þorskafla gæti síðan leitt til minnkandi stofna þessara tegunda einnig og þannig gæti vandamálið náð til fleiri tegunda, tA ýsu, e.t.v. ufsa og svo koll af kolli. Á endanum gæti sókn í verðminni tegundimar orðið mest, enda heimildir til veiða á þeim þá tiltölulega rúmar og stómm hluta þess, sem af verðmeiri tegundum veiddist, hent í hafið aftur eða landað framhjá vigt vegna skorts á aflaheim- ildum. Þegar svo væri komið yrði ekki við neitt ráðið og afraksturinn af auð- lindinni yrði enginn,“ segir i skýrslu nefndar Kristjáns Þórarinssonar. Erfitt mat I áfangaskýrslunni kemur fram að erfitt sé að meta hversu miklu af fiski sé hent og ekki sé augljóst hvernig best væri að standa að slíku mati. Nær útilokað megi telja að hægt sé að meta af nákvæmni með tiltækum gögnum hve miklu sé hent af fiski og hve miklu landað fram hjá vikt enda fari slíkt athæfi eðli málsins samkvæmt dult og hafi ekki sætt sérstöku eftirliti. Flestir sem til þekki muni þó sam- mála um að umgengni um auðlindina og meðferð og nýting á fiski hafi batnað til muna á undanförnum ára- tug eða svo. Tilraunir nefndarinnar til að meta umfang vandans með óbeinum hætti báru ekki árangur eins og fyrr var lýst vegna þátttökuleysis þeirra sjó- manna sem lentu í 1.000 manna úr- taki þeirrar könnunar sem ætlunin var að gera til að vinna. Nefndin hefur þó enn ekki lokið störfum og á m.a. eftir að gera grein fyrir nokkrum þeirra þátta sem henni var falið að kanna, þ.á m. því sem lýtur að veiðarfærum. í könnun sem Skáís gerði á út- kasti afla fyrir Kristin Pétursson, fískverkanda á Bakkafirði, fyrrver- andi alþingismann og kunnan áhuga- mann um stjóm fiskveiða, voru heimt- ur mun betri en í könnun nefndarinn- ar. Könnun Skáís var framkvæmd með þeim hætti að bréf voru send 900 sjómönnum sem valdir voru sam- kvæmt úrtaki. 591 svör bárust, sem jafngildir 65,7% þátttöku. Þátttakendur voru greindir í sjó- menn á skuttogurum, sjómenn á vél- bátum og sjómenn á smábátum. 300 voru í hverjum hópi og var niðurstöð- um haldið aðgreindum fyrir hveija tegund skipa og báta. Sjómennirnir voru beðnir að áætla aflamagn í einni veiðiferð og síðan að tilgreina áætlaða þyngd þess afja sem væri fleygt í sömu veiðiferð. Út frá svörunum var reiknuð upp áætlun fyrir það hve miklum afla hefði verið fleygt við landið árið 1989. 53 þúsund tonn? Niðurstöður könnunarinnar voru þær að 53 þúsund tonnum af bolfíski hefði þá verið fleygt fyrir borð ís- lenskra fískiskipa. 9,5% þorskafla skuttogara væri fleygt, eða sem svarar til um 16.600 tonna árið 1989. Miðað við 900 gr. meðalþyngd var áætlað að um 18,5 milljónir einstaklinga hafi verið að ræða. Þá var áætlað að skuttogarar hentu 8,4% ýsuafla, eða 2.408 tonnum, 9,9% karfans, eða um 8.800 lestum, 6,8% ufsaaflans, eða 3.590 tonnum, 6,4% þeirrar grálúðu sem veiddist eða um 3.500 tonnum,. 5,4% rækjunnar, eða 96 tonn færu fyrir borð og 14%, eða 1.460 tonn, af öðrum tegundum, þ.e. steinbít, skarkola, löngu, blálöngu og hlýra. Alls færu þannig um það bil 36.500 tonn fyrir borð á skuttogaraflotanum. Hvað varðar vélbátaflotann gáfu niðurstöðurnar til kynna að þar væri 5,6% þorskaflans fleygt fyrir borð, eða rúmlega 8.300 tonnum, en 4,7% ýsuaflans, 1.200 tonnum, 9,3% karfa- afla, eða 443 tonnum, 8,2%, eða 2.084 tonn af ufsaaflanum færu útbyrðis, svo og 9% af öðrum botnfiski, alls 2.550 tonn. Samtals væri kastað fyrir borð á vélbátum 14.650 tonnum. Svör sjómanna á smábátum þóttu hins vegar benda til þess að þar væri hent fyrir borð 3,7% þorskaflans, eða rúmlega 1.400 tonnum árið 1989. Mestu hafi hlutfallslega verið fleygt af ufsa, eða 17,6% aflans eða um 300 tonnum. 3,3% ýsuafla smábáta, eða 125 tonn, hafi farið fyrir borð en aðeins 2,9%, eða 105 tonn, af öðrum botnfiski. í samtantekt Skáíss kemur fram að könnunin gefi til kynna að sjómenn á smábátum varpi alls 2.038 tonnum fyrir borð. Nefnd sú sem hér hefur verið kennt við Kristján Þórarinsson er önnur nefndin sem Þorsteinn Pálsson sjávar- útvegsráðherra skipar til að fjalla um umgengni um fiskistofnana. Sú fyrri var skipuð í október 1991, svonefndur samráðshópur um bætta umgengni við auðlindir sjávar. Sam- ráðshópurinn var skipaður fulltrúum helstu stofnana og hagsmunasamtaka í sjávarútvegi og laut forystu Björns Dagbjartssonar. Samráðshópnum var ætlað að meta í hve ríkum mæli sjávarafla væri varp- að fyrir borð og hvort eða að hvaða leyti núverandi aðferðir við veiði og stjórnun þeirra leiði til smáfiskadráps eða annarrar verðmætasóunar. Hóp- urinn skilaði áfangaskýrslu í janúar 1992 og endanlegri skýrslu ári síðar en hér verður aðeins tæpt á þeim köflum skýrslnanna þar sem útkast afia er til umræðu. Mælingar sýndu ómarktækan mun Samráðshópurinn fékk Veiðieftir- litið til að gera sérstaka athugun á sögusögnum um að miklu væri fleygt af dauðblóðguðum fiski frá netabát- um. Eftirlitsmenn fóru í róðra með netabátum frá öllum helstu útgerð- arstöðum á vertíðarsvæðinu við Suð- vesturland, könnuðu hlutfall lifandi og dauðs fisks, skráðu fjölda neta í sjó, fjölda dreginna neta, hve margra nátta netin voru o.fl. Sömu atriði voru skráð fyrir aðra báta sem reru eftirlitsmannalausir frá sömu verstöð sömu daga. Niðurstöðurnar urðu þær að með- alafli í net hjá þeim 73 bátum sem reru með eftirlitsmann var 45,53 kíló í net en 45,11 kíló hjá þeim 1298 bátum sem reru án eftirlitsmanna. Munur- inn var sem sagt 420 grömm á hvert net og taldist ekki marktækur tölfræðilega. Samráðshópurinn lét hins vegar reikna út hvað það þýddi ef munur- inn væri raunverulegur og skýrðist af því að bátar án eftirlitsmanns hentu fiski. Niðurstaðan varð þá sú að 461 tonn af þeim 50.000 tonnum sem veiðast árlega í net hér við land væri hent í sjóinn. Fleiri mælingar sem gerðar voru á grundvelli þessarar athugunar leiddu í ljós að ekki væri marktækur munur á afla í net og aflasamsetningu báta með eftirlitsmann um borð, þar sem engum afla var hent, og hinum sem réru á sömu mið sömu daga þegar öll gögnin voru greind í einu. Netabátar undir 30 tonnum skáru sig úr Hins vegar varð marktækur munur á afla og aflasamsetningu báta sem voru undir 30 tonnum að stærð þegar sú stærð báta var greind sérstaklega frá heildinni. Væri eftirlitsmaður um borð var meðalafli í net hjá smærri bátunum 52,22 kíló en 38,08 kiló ef eftirlitsmaður var ekki til staðar og gaf tölfræðipróf til kynna að 90% lík- ur væru á að afli þessara báta væri ekki sá sami með og án eftirlits- manns. Einnig kom fram að algengara væri að smærri bátarnir væru að draga tveggja nátta eða eldri net. í 27,5% tilvika drógu þeir tveggja nátta net eða eldri og í 7,6% tilvika þriggja nátta eða eldri net. Sú niðurstaða er túlkuð sem vísbending um að algeng- ara sé að litlu bátamir komist ekki til að vitja um eða þá að stóru bátarn- ir taki fremur netin í land þegar von er á brælu. Við mat á umgengni togskipa um auðlindina var gripið á það ráð að að fá trúnaðarmenn um borð í til- teknum skipum til að skrá hjá sér afla í veiðiferð og áætla magn það sem varpað væri fyrir borð. Sex skip þar sem tnínaðarmenn vom um borð öfluðu alls 5.357 tonna og samkvæmt áætlunum trúnaðar- manna var 220 tonnum hent eða 4,11% heildarafla skipanna sex. Þar af voru um 130 tonn kvótafiskur, eða 2,44% heildaraflans, og þar af aðeins 9,5 tonn af þorski, en 22 tonn af ýsu og 88 tonn af karfa. 13.000 tonn 1987 samkvæmt ýtrustu forsendum Meðal fylgiskjala með skýrslu Sam- ráðshópsins em greinar og útreikn- ingar Olafs Karvels Pálssonar, fiski- fræðings hjá Hafrannsóknastofnun, þar sem gerð er grein fyrir niðurstöð- um tilrauna Hafrannsóknastofnunar- innar til að meta úrkast undirmálsþorsks frá tog- urum, annars vegar árið 1982 og hins vegar 1987 með útreikningum á gmndvelli mælinga veiði- eftirlitsmanna og mælinga á lönduð- um afla. Ólafur Karvel lagði það mat á nið- urstöðurnar að þær gæfu til kynna að árið 1982 hefði úrkast undirmáls- fisks frá togurum numið 3 þúsund tonnum, eða 3 milljónum einstakl- inga. Fyrir árið 1987 komst hann hins vegar komist að þeim niðurstöðum á grundvelli ýtrustu forsendna að um það bil 10 þúsund tonnum og allt að 13 þúsund tonnum - 13 milljón ein- staklingum - af undirmálsþorski hefði verið varpað fyrir borð á togara- flotanum. ASÍÐASTA Alþingi lagði Þorsteinn Pálsson, sjáv- arútvegsráðherra, fram framvarp til laga um um- gengni um auðlindir sjávar þar sem gert er ráð fyrir að settar verði hert- ar og skýrar reglur um flest það sem lýtur að umgengni um fiskistofnana og einnig er kveðið skýrar á um viður- lög við brotum á borð við að kasta fiski útbyrðis. í frumvarpinu, sem að miklu leyti er byggt á tillögum nefndar Kristjáns Þórarinssonar, er gert ráð fyrir að í fyrsta skipti verði fært í lög að skylt sé að hirða og koma með að landi allan afla. í greinargerð með frumvarpinu segir að lög um stjórn fiskveiða gangi út frá að þessi meginregla gildi og að hún sé beinlínis orðuð í reglugerð um fiskveiðar í atvinnuskyni. Mál vegna brota á reglugerðar- ákvæðinu hafa ekki enn komið til kasta dómstóla. Að því kann þó að koma fljótlega, því RLR er, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, langt á veg komin með rannsókn á meintum brotum sjómanna á sex netabátum úr Þorlákshöfn á reglu- gerðinni. Ýmsir lögfræðingar sem Morgunblaðið hefur rætt við hafa þó látið í ljósi efasemdir um að dómstól- ar muni dæma mennina seka þar sem hæpið sé að reglugerðarákvæðið telj- ist fullnægjandi refsiheimild. Takmarkaðar netaveiðar Af öðrum nýmælum í frumvarpi Þorsteins Pálssonar má nefna að þar er lagt bann við netaveiðum báta undir 30 brúttótonnum frá 1. nóvem- ber til febrúarloka hvert ár. Eins og fram kemur í greininni hér til hliðar hefur ýmislegt þótt benda til að netabátar af þessari stærð hentu fiski fyrir borð og nýti afla illa vegna þess hve veður hamlar því oft að hægt sé að vitja um net. Því sé afli þessara báta oft rýrari að gæðum en afli annarra netabáta og meiri hætta á að hann sé ekki færð- ur að landi. Að auki er bann þetta réttlætt með öryggisástæðum í grein- argerð frumvarpsins. Annað sem fyrst og fremst kann að snerta smærri netabáta er að Fiskistofu verður heimilt, á kostnað eiganda, að láta taka upp veiðarfæri sem ekki hefur verið vitjað með eðli- legum hætti. Skilyrði um kvóta fyrir meðafla Þá er gert ráð fyrir að óheimilt verði að heíja veiðiferð nema skip hafi aflamark sem dugi fyrir afla í ferðinni, jafnt af þeirri tegund sem veiða á og líklegum meðafla af öðrum tegundum. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu undanfarna daga telja sjómenn eina helstu ástæðu þess að þorski sé hent vera þá að vegna aflasamdráttarins eigi bátar ekki kvóta til að mæta þeim þorski sem óhjákvæmilega veiðist með þegar far- ið er á ýsu- og ufsaveiðar. Bílstjórar, vigtarmenn og kaupendur beri ábyrgð Verði frumvarp til laga um um- gengni um auðlindir sjávar óbreytt að lögum fær Fiskistofa einnig heim- ild til að áætla viðbótarafla á skip, víki aflasamsetning þess verulega frá aflasamsetningu annarra skipa sem stunda hliðstæðar veiðar. Þá er stefnt að því að skjóta styrk- ari stoðum undir eftirlit með um- gengni um fiskimiðin, löndun framhjá vigt og brottkasti afla, með því að leggja vigtarmönnum hafnarvoga, skipstjórum, ökumönnum flutninga- bíla og kaupendum fisks á herðar þá skyldu að kynna sér samsetningu farms og afla sem um hendur þeirra fer og að hann sé veginn í samræmi við lög og reglur. Loks er í þessu framvarpi ítarlegur kafli um framkvæmd laganna og við- urlög við brotum gegn þeim. Þar er m.a. gert ráð fyrir að unnt verði að gera útgerðarfyrirtækjum að greiða sektir vegna brota á lögun- um þótt ekki sannist sök þeirra sjó- manna sem starfa á vegum fyrirtæk- isins. «. Jafnframt eru refsingar allar stór- hertar og gætu ítrekuð eða stórfelld brot á borð við brottkast afla þá varð- að varðhaldi eða fangelsi í allt að sex ár og sektum að lágmarki 400 þús- und kr. en að hámarki 8 milljónir kr. Þeir skipstjórar sem ítrekað gerast brotlegir geta átt á hættu að missa atvinnuréttindi sín. Frumvarpið gerir ráð fyrir að brot þeirra sem gerast sekir um lögbrot í umgengni við auðlindir sjávar verði lögð að jöfnu við skattsvik og stór- kostleg auðgunarbrot og auk refsing- anna er gert ráð fyrir mun víðtækari heimildum en nú er til að dreifa til að svipta eigendur brotlegra skipa veiðileyfum. Auk þess verður heimilt að skylda skip, sem ítrekað gerist brotlegt, til að hafa eftirlitsmann um borð í allt að 2 mánuði. Ennfremur eiga fiskmarkaðir á hættu að missa starfsleyfi, gerast starfsmenn sekir um brot gegn laga- ákvæðum um vigtun þess afla sem um markaðinn fer. Vernd fyrir kærendur Gert er ráð fyrir að birtar verði opinberlega upplýsingar um sviptingu veiðiheimilda. vegna brota á lögunum og einnig um aflahlutdeild og veiðar einstakra skipa. Frumvarpið gerir ráð fyrir að sett verði í lög sérstakt ákvæði til að vernda sjómenn og aðra þá starfs- menn í útgerð eða fiskvinnslu sem skýra yfirvöldum frá lögbrotum yfir- manna sinna. í slíkum tilvikum kveð- ur frumvarpið á um að vinnuveitandi megi ekki beita starfsmann neins konar viðurlögum, svo sem uppsögn eða launaskerðingu, nema því aðeins að í ljós verði leitt að upplýsingamar hafi i meginatriðum verið rangar. í greinargerð frumvarpsins segir að því hafi verið haldið fram að erf- itt væri að upplýsa það hvort físki væri hent útbyrðis eða landað fram hjá vigt vegna þess að skipveijar og aðrir starfsmenn við útgerð og fisk- vinnslu þyrðu ekki að skýra frá slíku af ótta við refsingar vinnuveitenda. Logunum sé ætlað að vemda starfsmenn og tryggja þeim t.d. rétt til skaðabóta, verði gripið til aðgerða gegn þeim fyrir að tilkynna yfirvöld- um um slík brot. Brottkast lík- legast hjá þeim kvótaminni Stærsti vand- inn ójafnvægi aflaheimilda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.