Morgunblaðið - 14.06.1995, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1995 33
MINNINGAR
JÓHANNES
HERMANNSSON
og hetja og gerði margt sem hann
hefði e.t.v. annars látið ógert.
Elsku Jói, minningin um góðan
dreng sem aldrei lét bugast mun lifa
í hjarta mínu. Ég kveð þig með sökn-
uði og bið Guð að varðveita þig.
+ Jóhannes Her-
mannsson fædd-
ist 26. nóvember
1965 á Patreksfirði.
Hann lést í Reykja-
vík 7. júní sl. For-
eldrar hans voru
Valdimar Hermann
Jóhannesson, f. 20.
júní 1936, bóndi á
Ifjallatúni, og María
Gestsdóttir, f. 12.
sept. 1943, dáin 9.
ágúst 1980. Systir
Jóhannesar er Pál-
ína Kristín, f. 3. nóv.
1964. Jóhannes ólst
upp á Hjallatúni í
Tálknafirði. Hann var ókvæntur
og barnlaus. Síðustu árin átti
hann heimili í húsi Sjálfsbjargar,
Hátúni 12, en þar lést hann.
Utför Jóhannesar verður gerð
frá Fossvogskapellu í dag, og
hefst athöfnin kl. 10.30.
+ Sigurður Magnús Sólmund-
arson, húsgagnasmiður,
handavinnukennari og mynd-
listarmaður, fæddist 1. október
1930 í Borgarnesi. Hann lést
af slysförum 3. júní síðastliðinn.
og var útför hans gerð frá
Hveragerðiskirkju 10. júní.
ÉG SAGÐI honum Sigurði Sól-
mundarsyni það aldrei, og mig
grunar að hann hafi hreint ekki
vitað það, hvílíkur velgjörðarmaður
hann reyndist mér, óvandabundn-
um unglingi, eitt sumar fyrir 19
árum.
Leiðir okkar lágu saman í sumar-
búðum Þjóðkirkjunnar sem þá voru
starfræktar í Skálholti. Hann var
ráðsmaður á staðnum en ég mat-
vinnungur á gelgjuskeiði með rugl-
ingslega sjálfsmynd og lífsgleðina
brothætta í sálinni. í dag man ég
ekkei eitt einasta orð sem hann
Siggi Sól sagði við mig, en návist
hans er ljóslifandi í hugskotinu. Ég,
sem var að reyna að verða fullorð-
inn, kynntist í honum, manni sem
þorði að vera barn. Og hann tók
mig við hönd sér og leiddi mig til
baka, aftur inn í leikinn, ímyndun-
ina, sköpunargleðina.
Lágur klettaveggur liggur vestur
af skálanum þar sem við vorum. í
gilskorningi einum seitlaði þar læk-
arbuna. Tveir saman unnum við
þar, svo dögum skipti; lögðum
gangstíg, grófum út lautir og bala,
hlóðum skjólvegg og bjuggum til
myndarlegan foss. Fossinn bar nöfn
okkar beggja og hét Sigbjarnar-
foss. Þetta mannvirki var ekki endi-
lega svo hagnýtt, það hafði fegurð-
ina og gleðina eina að takmarki.
Og mér þótti heiður að nafngift-
inni, heiður að samstarfinu við
þennan mann sem virtist líta á mig
sem fullkominn jafningja og félaga.
Á þessum fáu framkvæmdadögum
staðfestist í vitund unglingsins sú
trú að lífið er makalaust ævintýri.
Og lífsgleðin, sem þokað hafði fyrir
áhyggjum og persónulegum efa-
semdum, fann heiðarlegan sam-
hetja í Sigga Sól.
Marga stundina átti ég eftir að
njóta félagsskapar þeirra Sigga og
Auðar og fleiri góðra vina, sem
þessa sumardaga störfuðu í Skál-
holtsbúðum, og verður það ekki
rakið hér. En alla lífstíð mun ég
blessa minningu Sigurðar Sólmund-
arsonar og þakka þá einstöku gæfu
- kjarni málsins!
ÉG VARÐ sorgmædd
þegar móðir mín til-
kynnti mér andlát Jó-
hannesar Hermanns-
sonar, enda þótt flestir
hefðu mátt eiga von á
þessu fyrr eða síðar.
Mig langar því að minn-
ast með nokkrum orð-
um á Jóa, frænda minn,
en það var hann vana-
lega nefndur meðal
þeirra sem þekktu
hann. Samverustundir
okkar Jóa voru ekki
margar, en alltaf var
gaman að hitta frænda
þegar hann kom til
Reykjavíkur. Jói var bæði glaðlegur
og þróttmikill strákur í æsku og
hveijum hefði þá dottið í hug að
hann ætti eftir að glíma við erfið
veikindi og kveðja síðan svo ungur
þennan heim. En eitt er víst að í
veikindum sínum stóð Jói sig eins
að hafa fengið að njóta mannkosta
hans einmitt þegar ég mest þurfti
við.
Minnugur orða Jesú, er hann
sagði: Hvað sem þér gjörið einum
þessara minna minnstu bræðra, það
hafið þér gjört mér,“ bið ég Guð
að varðveita góðan dreng í örmum
sínum. Megi frelsarinn Jesú fylla
sorg ástvina návist sinni og styrkja
þau öll á sorgargöngunni.
Bjarni Karlsson.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Hávamál)
Megi góður Guð hugga Hermann,
Pálínu og aðra ástvini sem nú syrgja
þig-
Kristín Kristófersdóttir.
í dag kveð ég vin minn og jafn-
aldra, Jóhannes Hermannsson.
Leiðir okkar lágu saman í gegnum
Grunnskóla Tálknafjarðar og sem
leið lá í Stýrimannaskólann í Vest-
mannaeyjum.
Jói var góður félagi, jafnt í starfi
sem leik og oft var glatt á hjalla
þar sem við vorum á ferð. Ég og
íjölskylda mín eigum góðar minn-
ingar, sem Jói er óaðskiljanlegur
hluti af. Við þökkum Jóa fýrir sam-
veruna og vinskapinn, megi góður
Guð varðveita hann og minningu
hans um alla eilífð.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin bjðrt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði’ er frá.
(V. Briem)
Tryggvi Ársælsson,
Eyrún og börn.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR,
Austurbyggð 17,
Akureyri,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 13. júní sl.
Þór Þórisson, Sigríður Jónsdóttir,
Sigrún Þórisdóttir, Björn Halldórsson.
t
Móðir okkar,
ÞÓRA GÍSLADÓTTIR,
Hringbraut 58,
Keflavik,
lést 12. þessa mánaðar.
Rafnar Olsen,
Rakel Olsen,
Stella Olsen,
Jónína Olsen.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs sambýlismanns míns og bróður
okkar,
STEFÁNS GI'SLASONAR,
Úthlíð 7,
Reykjavík.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þuríður Guðmundsdóttir
og systkini hins látna.
Lokað
Skrifstofur okkar verða lokaðar, frá hádegi, í dag
vegna útfarar JÓHÖNNU SMITH.
Lögmannsstofan, Skólavörðustíg 12, Rvík.
Endurskoðunarstofan, Skólavörðustíg 12, Rvík.
SIGURÐURM.
SÓLMUNDARSON
GUNNAR
HUSEBY
+ Gunnar Alexander Huseby
fæddist í Reykjavík 4. nóv-
ember 1923. Hann lést á Land-
spítalanum 28. mai síðastliðinn
og fór útför hans fram frá
Neskirkju 7. júní.
NÚNA kveð ég góðan vin minn,
sem alltaf var gott að leita til og
er ég mjög þakklát fyrir það. Ég
man alltaf þegar ég heyrði þig tala
fyrst á AA-fundi, þvílík var orkan
og útgeislunin, enda vissir þú hvað
þú sagðir. Þú hafðir reynsluna og
þekkinguna og vildir miðla henni
til annarra, enda búinn að hjálpa
mörgum.
Eftir að kynni tókust með okkur
komstu stundum i heimsókn til okk-
ar Elí og var gaman að tala við
þig. Þú hafðir frá mörgu að segja,
bæði í gamni og alvöru, en ef ég
talaði um afrek þín í íþróttum vild-
ir þú lítið úr þeim gera. Sagðir
gjarnan að allt sem þú tækir þér
fyrir hendur gerðir þú almennilega
og húmorinn var aldrei langt und-
an. „Jú, jú,“ sagðir þú, „ég vann
af því ég vildi vinna. Ég vann líka
Bakkus og ég vann við að grafa
skurði og gerði það líka vel. Það
er mál málanna að gera sitt besta.“
Ég var oft að hugsa til þín og
alltaf á leiðinni að bjóða þér heim
á nýja staðinn, en nú er það of seint.
Elsku Gunnar, ég kveð þig með
söknuði. Þú fórst alltof fljótt. Þú
varst heljarmenni að burðum, en
hafðir blítt hjarta og góða lund, sem
ég kynntist mjög vel. Þú varst ekki
allra, en ég var heppin að eiga þig
að vini.
Ég votta systur þinni samúð
mína. Ég veit hún var þér mjög kær.
Guð gefi mér æðruleysi,
til þess að sætta mig við það,
sem ég fæ ekki breytt,
kjark til þess að breyta þvi,
sem ég get breytt, og
vit til þess að greina þar á milli.
Farðu í friði, friður guðs þig
blessi.
Þín vinkona:
Margrét Erla.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og sonur,
GUÐMUNDUR KJERÚLF,
Hólavallagötu 13,
lést þann 10. júní sl.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju
föstudaginn 16. júní kl. 15.00.
Ingibjörg Hejgadóttir,
Guðmundur Ingi Kjerúlf, íris Hrönn Sigurjónsdóttir,
Andrés H. G. Kjerúlf.
t
Þann 7. júní andaðist í Landspítalanum
HARALDURHELGASON,
x HátúnilO,
Reykjavík.
Útför hans fer fram frá Áskirkju föstu-
daginn 16. júní kl. 13.30.
Aðstandendur.
t
Faðir okkar og tengdafaðir,
EYJÓLFUR GÍSLASON
frá Bessastöðum
í Vestmannaeyjum,
sem andaðist á Hrafnistu, Reykjavík,
miðvikudaginn 7. júní, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
15. júní kl. 15.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Erlendur Eyjólfsson, Helga Aberg,
Gísli Eyjólfsson, Hildur Káradóttir,
Guðjón Ármann Eyjólfsson, Anika J. Ragnarsdóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og jarðarfarar elsku-
legrar móður okkar,
ÞÓRDÍSAR GUÐJÓNSDÓTTUR
frá Svanhóli,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks A-deildar
Sjúkrahúss Vestmannaeyja fyrir góða
umönnun og hlýhug.
Fyrir hönd vandamanna.
börn hinnar látnu.