Morgunblaðið - 15.06.1995, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1995 41
SKÓLALOK
MIIMIMIIMGAR
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Utskriftarnemendur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Slit Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki
Sauðárkróki - Jón Fr. Hjartarson,
skólameistari Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra minnti í
skólaslitaræðu sinni, þá nemend-
ur skólans sem nú hverfa til frek-
ara náms og annarra starfa, á þau
sannindi að gefa gaum að gildum
hins daglega lífs og áhættum, án
þess að vilji þeirra og hugrekki
til að leggja góðum málum lið,
biði við það hnekki. Einnig að
sjálfbirgingsháttur og steigurlæti
væri lélegt veganesti þeim sem
legði út á braut frekari þckking-
aröflunar eða mannlegra sam-
skipta.
Skólaslit Fjölbrautaskólans
fóru nú í fyrsta sinn fram.í hinu
nýja og glæsilega bóknámshúsi
skólans að viðstöddum fjölda
gesta. í skólaslitaræðu sinni gerði
skólameistari grein fyrir starfi
skólans á liðnum vetri og kom þar
fram hversu mjög aðbúnaður
allra þeirra sem við stofnunina
starfa hefur breyst til batnaðar
með tilkomu hins nýja húss, sem
er þó ekki enn fullbúið eða að
fullu tekið í notkun. Enn er ófrá-
gengið tölvuver skólans ásamt
fyrirlestrasal og kennslustofu,
sem er á neðri hæð í norðurenda
hússins.
Þá kom einnig fram í ræðu
skólameistara að verkfall kenn-
ara gerði starfið á vetrinum mjög
erfitt, og einnig varð það til þess
að allmargir nemendur hurfu frá
námi og komu ekki aftur að verk-
falli loknu.
Útibú á Siglufirði
og Blönduósi
í tengslum við skólann voru
starfrækt útibú á Siglufirði og
Blönduósi, þar sem kennsla fór
fram í almennu bóknámi á fyrsta
ári, en einnig var sjúkraliðabraut
á Siglufirði. Fjöldi nemenda hlaut
viðurkenningu fyrir frábæran
námsárangur og einnig fyrir góð
störf í þágu skólans og nemenda-
félagsins, en síðan þakkaði skóla-
meistari þeim kennurum sem nú
láta af störfum ágætt samstarf
og þakkaði sérstaklega Þórdísi
Magnúsdóttur dönskukennara
sem hefur starfað við skólann frá
upphafi, en er nú á förum frá
Sauðárkróki.
Aðrir kennarar sem hverfa nú
frá skóianum eru á leið til frek-
ara náms.
Að þessu sinni brautskráðust
41 af stúdentsprófsbrautum, tveir
af atvinnulífsbraut og einn af iðn-
námsbraut.
Við skólaslitin söng kór skólans
undir stjórn Hilmars Sverrissonar
tónmenntakennara en einnig
sungu þau Gísli Magnason nýstúd-
ent og Svana Berglind Karlsdóttir
einsöng og tvísöng við undirleik
Heiðdísar Lilju Magnúsdóttur, en
þær Svana og Heiðdís eru báðar
fyrrverandi stúdentar frá skólan-
um.
Fyrir hönd nýstúdenta flutti
Stefán Kemp skólanum kveðjuorð
og Júlíus Guðni Antonsson flutti
kveðju tíu ára stúdenta, árnaði
skólanum velfarnaðar og afhenti
peningagjöf í hljóðfærasjóð skól-
ans.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
LEOPOLDI'NA BJARNADÓTTIR,
Þrastargötu 3,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 16. júní kl. 1 5.00.
Sigríður Ella Magnúsdóttir, Símon Vaughan,
Bjarni P. Magnússon, Steingerður Hilmarsdóttir,
HallgrímurÞ. Magnússon, Sigurlaug Jónsdóttir,
Sigrún K. Magnúsdóttir, Tryggvi Felixson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og jarðarfarar
GUÐMUNDAR KRISTJÁNSSONAR
vélstjóra,
Borgarbraut 8,
Grundarfirði.
Jón Kristjánsson,
Elinborg Kristjánsdóttir, Trausti Jónsson,
Rúrik Kristjánsson, Ragnheiður Reynis,
Arnór Kristjánsson, Auður Jónasdóttir,
Jónína Kristjánsdóttir, Jón Eibergsson,
Kristín Kristjánsdóttir, Oddur Magnússon.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ELÍNBORGAR TÓMASDÓTTUR
frá Seljalandi,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
á hjúkrunardeild A-3, Hrafnistu í Reykja-
vík.
Sigríður Sigurjónsdóttir, Björn Önundarson,
Dýrfinna Sigurjónsdóttir, Sigurður Jónsson,
Ingibjörg Sigurjónsdóttir,
Jörgen Sigurjónsson, Anna Ingólfsdóttir,
Jón Oddur Sigurjónsson, Helga Snorradóttir,
Sigrún Ingimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Fyrstu nemendurnir útskrifast úr
fjarnámi Fósturskóla Islands
„Þetta hefur verið gott
fyrir sjálfstraustið“
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
LILJA STEFÁNSDÓTTIR,
Granaskjóli 3,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 16. júní kl. 13.30.
Guðmundur Gíslason,
Steinunn Jónsdóttir,
Guðmundur Kjalar Jónsson, Særún Sigurgeirsdóttir,
Guðmundur Ingvar Jónsson
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, systir, amma og lang-
amma,
RUT ÞÓRÐARDÓTTIR,
Vífilsgötu 1,
Reykjavík,
sem lést i Borgarspítalanum laugardag-
inn 10. júní, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
16. júní kl. 10.30.
Óli Valdimarsson,
Alda Óladóttir Bredehorst, Manfred Bredehorst,
Erna K. Óladóttir,
Atli Þór Ólason, Guðrún Guðmundsdóttir,
ElfarÓlason, Bjarney Bergsdóttir,
Eygló Rut Óladóttir,
systur, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra mörgu,
sem heiðruðu minningu bróður míns,
GUNNARS A. HUSEBY,
og sýndu mér vináttu og samúð.
Sérstakar þakkir til sr. Braga Friðriks-
sonar, Knattspyrnufélags Reykjavíkur,
íþróttasambands Islands og Iþrótta-
þandalags Reykjavíkur.
Guð blessi ykkur öll.
Britha Huseby.
GUÐFINNA Magnúsdóttir frá Bol-
ungarvík er ein þrjátíu kvenna sem
nýlega útskrifuðust frá Fósturskóla
íslands, eftir fjögurra ára lj'arnám.
Þetta er fyrsti hópurinn sem útskrif-
ast sem leikskólakennarar úr námi
stunduðu að mestu í heimabyggð
hvers og eins. Guðfinna segir vinnu-
öryggi hafi ýtt henni út í að hefja
nám eftir 26 ára hlé, en hún hefur
unnið á leikskólanum í Bolungarvík
undanfarin ár.
Hún segir að námið hafi verið
skemmtilegt, en jafnframt strembið.
„Þetta hefur verið gott fyrir sjálfs-
traustið," segir hún.
Hópur 36 kvenna hóf námið fyrir
fjórum árum og að sögn Elsu Jóns-
dóttur hjá Fósturskóla Islands, er
námið þannig uppbyggt að nemendur
koma til Reykjavíkur þrisvar á ári, í
ágúst, janúar og maí/júní í 3-4 vikur
í senn, alls í tíu vikur á ári. Þær vik-
ur sem nemendur eru í Reykjavík eru
helst notaðar til að kenna listgreinar
en heima vinna nemendur að ýmsum
öðnim verkefnum.
Elsa segir að markmiðið með
ijarnáminu hafi verið að veita fólki
á landsbyggðinni tækifæri til að
mennta sig og að sama skapi reyna
að bæta úr skorti á leikskólakennur-
um.
Guðfinna tekur undir þetta og
segir að þessi möguleiki á fjarnámi
skipti miklu máli fyrir landsbyggð-
ina. Námið skili sér jafnóðum, og
nýtist þannig í heima-
byggð hvers og eins.
Nemendur þessa
fyrsta útskriftarár-
gangs komu víðsvegar
að af landinu, stór hóp-
ur var að norðan, en
einungis ein af Aust-
flörðum og einnig var
Guðfinna ein af Vest-
fjörðum. „Það var oft
erfitt að vera ein í fjórð-
ungnum," segir hún.
„Það er oft gott að að
tala við einhvern sem
er á sama róli.“
Á eftir að sakna
námsins
Guðfinna segist eiga
eftir að sakna þess að hitta ekki
bekkinn eins og undanfarin fjögur
ár, þó svo að oft hefði verið stremb-
ið að komast í burtu í fjórar vikur
í senn.
Einnig segir hún að það sé stórt
stökk að hefja nám eftir rúmlega
tveggja áratuga hlé auk þess að
íjarnáminu fylgdi talsvert álag á fjöl-
skylduna. „Þetta byggist allt á sam-
vinnu og því að færa fórnir. Maður
þarf að eiga góða íjölskyldu sem
þolir að maður sé á flakki,“ segir
hún.
Guðfinna er gift og á fjögur börn.
Þtjú þeirra eru vaxin úr grasi, en
yngsta dóttirin var sex ára þegar
• Kristinn
Guðfinna
Magnúsdóttir.
Guðfinna hóf fjar-
námið. „Þetta hefur
bitnað mest á henni,“
segir hún. Tvisvar varð
Guðfinna til dæmis að
taka dótturina með til
Reykjavíkur í janúar-
önninni, taka hana úr
skólanum fyrir vestan
og koma henni í skóla
í Reykjavík.
Þurfti að standa við
stóru orðin
Ástæðu þess að hún
skellti sér í nám segir
hún vera að hún hafi
alltaf sagt að hún gæti
ekki farið í frekara nám
því hún gæti ekki flutt
fjölskylduna suður. Þegar hún frétti
af ijarnáminu þurfti hún að standa
við stóru orðin, hún hafi ekki haft
neina afsökun lengur.
„I fyrstu ætlaði ég bara að prófa
og hugsaði sem svo að ég gæti allt-
af hætt,“ segir hún. „En okkur var
gert ljóst strax í upphafi að við yrð-
um að standa okkur því þetta væri
fyrsti árgangurinn í ijarnáminu. Því
yrðum við að sýna gott fordæmi."
Til gamans má geta þess að eldri
dóttir Guðfmnu útskrifaðsit úr Fóst-
urskólanum árið 1993 og starfar nú
sem leikskólastjóri í Bolungarvík,
þannig að þær mæðgur vinna nú
saman.