Morgunblaðið - 12.07.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1995 19
ERLEIMT
Enn er ár í forsetakosningar í Bandaríkjunum en ekki er ráð nema í tíma sé tekið
Clinton setur
kosninga-
vélinaígang
BANDARÍKJAMENN ganga ekki
að kjörborðinu fyrr en eftir rúmt
ár, en Bandaríkjaforseti er þegar
farinn að smyija kosningavél sína.
í ræðum reynir hann að marka sér
sérstöðu með því að sölsa undir sig
miðju stjórnmálanna og fjármögn-
un er stunduð með því að leggja
snörur fyrir frammámenn í við-
skiptalífi.
Ræður Clintons fyrir og eftir
helgina bera því vitni að forsetinn
er að komast í kosningaham. Á
mánudag reyndi hann að taka
frumkvæðið í máli, sem helstu for-
setaefni repúblikana hafa mikið
reynt að nota sér til framdráttar:
ofbeldi í sjónvarpi.
Bob Dole, forseti öldungadeildar
þingsins, hefur ítrekað hamrað á
því í ræðum sínum að kvikmynda-
framleiðendur í Hollywood og
framleiðendur sjónvarpsefnis verði
að fara að ritskoða sjálfa sig og
draga úr siðleysi, klámi og blóðsút-
hellingum í myndum sínum.
Tölvukubbur gegn ofbeldi
Clinton bætti um betur á ráð-
stefnu um fjölskyldur og fjölmiðla
í Nashville þegar hann lagði til að
ritskoðunarvaldið yrði fært í hend-
ur foreldra með því að setja sér-
stakan tölvukubb, sem nefndur
hefur verið ofbeldiskubburinn, í
sjónvörp. Kubbur þessi myndi gera
foreldrum kleift að stöðva móttöku
þess efnis, sem þeir teldu óæskilegt
að þörn sín sæju.
Ákvæði um það að hver dag-
skrárliður í Bandarísku sjónvarpi
fái sérstaka merkingu eftir efni og
inntaki er í frumvarpi um fjölmiðla,
sem nú liggur fyrir öldungadeild
Bandaríkjaþings.
Þótt kosningakeimur hafi verið
af ræðunni á mánudag má segja
að ávarpi hans i Georgetown-
háskóla í Washington í lok síðustu
viku hafi verið ætlað að kynna
stefnuskrá hans fyrir næstu kosn-
ingar. Þar var miðstéttin nefnd
rúmlega tuttugu sinnum og mikið
lagt upp úr hugmyndinni um að
þjóðin geti mæst á miðri leið, eigi
sér sameiginlegan umræðugrund-
völl.
Clinton sagði í ræðu sinni að
nauðsynlegt væri að stjórnvöld
tækju höndum saman við samtök
borgara og efldu starf sjálfboðaliða
í grasrótinni. Einfl dálkahöfunda
dagblaðsins The New York Times
komst svo að orði á mánudag að
í máli Clintons væri fátt, sem ekki
væri hægt að fella sig við. Ekki
einu sinni talsmenn byssueignar
væru andvígir sjálfboðaliðum.
Forsetinn boðaði einnig endalok
einhliða málflutnings og flokksholl-
ustu og kvaðst sjálfur ekki myndu
láta sér nægja að hafna hugmynd-
um andstæðinga sinna, heldur gera
sér far um að nefna aðra kosti.
Það er hins vegar spurning hvort
málflutningur af þessu tagi dugir
til að snúa við fylgishruni demó-
krata í þingkosningunum á síðasta
ári þegar flokkurinn missti meiri-
hluta í báðum deildum þingsins í
hendur repúblikönum.
Clinton getur gert sér vonir um
að hann sitji einn að miðjunni á
meðan þeir repúblikanar, sem leit-
ast eftir útnefningu flokks síns til
forsetaframboðs, kljást yst á hægri
vængnum.
Sóst eftir kosninga-
framlögum
En forsetinn þarf ekki aðeins að
hafa hugann við hinn almenna kjó-
sanda. Forsetaframboð er stórfyrir-
tæki, sem kostar milljónir dollara.
Clinton hefur að sögn tímaritsins
Business Week nú þegar tekist að
safna 11,5 milljónum dollara á
þessu ári og búist við að hann
muni auðveldlega ná 30 milljón
dollara markinu, sem hann setti sér
á þessu ári.
Sú upphæð dugar til þess að
svara árásum repúblikana og fæla
frá áskorendur úr röðum demó:
krata. Hins vegar þarf meira til. í
viðsk'iptaheiminum eru margir, sem
eru tregir til að styðja forsetann.
Hugmyndir repúblikana um að
lækka skatta, skera niður ríkisút-
gjöld og grisja reglugerðafrum-
skóginn eiga hug þeirra allan.
Samkvæmt Business Week eru
menn þegar farnir að þrýsta á fyrir-
tæki í kosningaherbúðum Clintons.
Viðræður Israela og Sýrlendinga
Auknar vonir um frið
Jerúsalem. Reuter.
SHIMON Peres, utanríkisráðherra
ísraels, þakkaði í gær fornum fjend-
um ísraela, Sýrlendingum, fyrir
það, sem hann kallaði jákvæðar
vísbendingar“ um árangur í friðar-
viðræðum ríkjanna.
Peres flutti sýrlensku stjórninni
kveðju sína og þakkir eftir fund
með Dennis Ross, milligöngumanni
Bandaríkjastjórnar, en hann fór síð-
an til Damaskus til áframhaldandi
viðræðna við samningamenn Sýr-
lendinga. „Það er margt í afstöðu
Sýrlendinga, sem við metum mik-
ils,“ sagði Peres á fundi með frétta-
mönnum en vildi ekki fara nánar í
sakirnar.
Dagblaðið Jerusalem Post sagði
í gær, að margt benti til, að Sýr-
lendingar féllust á, að eitthvert
þriðja ríki mánnaði varðstöðvar í
Gólanhæðum ef Israel flytti her sinn
á brott þaðan.
Af samningaviðræðum ísraela og
Palestínumanna er það að frétta,
að stefnt er að samkomulagi .fyrir
25. þ.m. um enn víðtækari sjálf-
stjórn þeirra síðarnefndu. Munu við-
ræðurnar fara fram á leynilegum
stað í Ítalíu.
Afsakaði ekki heldur baðst afsökunar
MEINLEG villa var í fyrirsögn
fréttar á forsíðu Morgunblaðsins í
gær. I fyrirsögninni sagði að páfi
„afsakaði kvennakúgun“. Hið rétta
er, líkt og fram kom í fréttinni, að
páfi baðst í bréfi afsökunar á
kvennakúgun kirkjunnar fyrr á tím-
um og hvatti til að jafnrétti kynj-
anna yrði aukið. Biðst Morgunblað-
ið velvirðingar á þessari villu.
Reuter
BILL Clinton flutti ræðu á ráðstefnu um fjölskylduna og fjölmiðla í Nashville á mánudag og
mæltist þá til þess að Bandaríkjaþing samþykkti frumvarp um að settir yrðu tölvukubbar í sjónvörp
til þess að stöðva móttöku sjónvarpsefnis.
Dagskipunin er að sýna fram á að
Clinton hafi verið afar vilhallur
fyrirtækjum. Bandarískur efnahag-
ur hafi eflst, verðbólga sé lág, at-
vinna hafi aukist og áhersla lögð
á að auka útflutning. Að auki hafí
hann barist fyrir fríverslunarsátt-
mála Norður-Ameríku (NAFTA),
GATT og komið Mexikó til bjargar
þegar pesóinn féll, þótt slíkt hafi
komið niður á stuðningi leiðtoga
stéttarfélaga við hann.
Ekki allir jafn
bjartsýnir
Bernard Schwartz, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins Loral,
heldur því fram að rök af þessu
tagi hafi snúið ýmsum á band með
Clinton. Hann segir að repúblikan-
ar hafi eftir kosningarnar 1992
sagt að „þessi heppni náungi væri
að hagnast á stefnu, sem Bush
hrinti í framkvæmd. Það getur hins
vegar enginn haldið því fram að
viðvarandi styrk verðbréfamarkað-
arins megi með einum eða öðrum
hætti rekja til Bush.“
Ákveðinn kjarni framkvæmda-
stjóra styður Clinton, en þar eru
ekki allir jafn bjartsýnir um að
þeir geti snúið starfsbræðrum sín-
um og Schwartz. James 0. Edw-
ards, framkvæmdastjóri verktaka-
fyrirtækisins Kaiser International,
segir að flestir viðskiptavinir sínir
séu harðir repúblikanar, sem ekki
muni láta eyri af hendi rakna til
Clintons. Hann hefur tekið að sér
að safna 50 þúsund dollurum fýrir
Clinton og segir að það taki því
ekki einu sinni að nefna slíka söfn-
un við marga í viðskiptalífinu.
Annar stuðningsmaður, Steven
J. Green, forstjóri Astrum Internat-
ional, sem meðal annars á ferða-
töskuframleiðendurna Samsonite
og American Tourister, hyggst
safna peningum fyrir Clinton.
Hann segir að ýmsar hugmyndir
repúblikana kunni að koma fyrir-
tækjum vel, en ekki þjóðinni: „Það
er munur á því að jafna fjárlögin
og beita slíkri hörku að það skap-
ist vandamál í þjóðfélaginu," segir
Green. „Ég er sannur fylgismaður
íhaldssemi í fjármálum, en það að
við gætum lifað í landi, sem ekki
veitir veiku fólki læknisaðstoð, er
ótækt.“
Clinton hefur einnig misst stuðn-
ingsmenn og ýmsir eru hikandi.
Einn, John H. Bryan, forstjóri fyrir-
tækisins Sara Lee, kveðst enn
styðja Clinton, en sá stuðningur
muni ekki fara hátt. Hluthafar í
fyrirtækinu hafi nefnilega þráfald-
lega lagt fram fyrirspurnir um
stuðning sinn við forsetann á árs-
fundum.
Sennilegt er að stjórnendum fyr-
irtækja á bandi Clintons muni
fjölga vaxi honum fiskur um hrygg
í skoðanakönnunum og stöðugleiki
efnahagslífsins helst. En reynslan
hefur sýnt að sá er sigurstrangleg-
astur, sem tekst að safna mestu
fé, og því þarf Clinton að hitta á
réttu samsetninguna í málflutningi
sínum ætli hann að fá peninga-
mennina til að opna buddur sínar.
■w* apr* • / 1
Kjola-
tilboð
Ótrúlegt
úrval
af sumar-
kjólum.
Nú á kr. 1.990
Áður kr. 3.990.
á meðan
birgðir endast.