Morgunblaðið - 12.07.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.07.1995, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ JÓN FRANKLÍN + Jón Halldór Franklín Frank- línsson var fæddur 16. apríl 1914 á Ytri- Veðrará í Onundar- firði. Hann lést á sjúkradeild Hrafn- istu 3. júlí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru þau Guðmund- ur Franklín Guð- mundsson búfræð- ingur, f. 17. feb. 4 1887 á Mýrum í Dýrafirði, d. 13. nóv. 1918 og Jóna Guðrún Jónsdóttir ljósmóðir, f. 7. ágúst 1892 á Ytri-Veðrará, d. 24. okt. 1930. Systkini Jóns voru Guðmundur Hagalín, f. 28. apríl 1915, d. 15. ágúst sama ár, og Guðrún Ingi- bjðrg, f. 28. sept. 1916, d. 7. des sama ár. Hálfsystkini Jóns sam- mæðra voru: Guðmundur Franklín, f. 1921, d. 1990, Guð- rún Ingibjörg, f. 1922, Gróa Margrét Hildur, f. 1923, Harald- ur f. 1924, d. 1988. Oddur Guð- mundur, f. 1926, Stefán, f. 1927 og Ólafur, f. 1930, d. 1994. ~ ' Þeirra faðir var Jón Guðmund- ur Guðmundsson frá Görðum í Önundarfirði, f.,1892, d. 1971. Jón var tvíkvæntur, fyrri kona hans var Anna Lísa Bemdtsson, f. 24. maí 1920 í Gautaborg. Þeirra börn em Guðrún Ingibjörg hjúkrunarfræðing- ur, f. 6. jan. 1948, gift Ágústi Fjeld- sted hæstarréttar- lögmanni, sem nú er látinn, og Guð- mundur Franklín húsasmiðameistari, f. 19. nóv. 1949, kvæntur Kolbrúnu Gestsdóttur, þroskaþjálfa, þeirra böm era Þorbjörg Anna, f. 1977, Pálmi Franklín, f. 1977 og Jón Franklín, f. 1988. Seinni kona Jóns var Guðmundía G. Bergmann, fædd 25. maí 1925 í Keflavík, d. 8. okt. 1988. Þeirra böm em: Sigrún, kennari f. 7. júní 1955, var gift Úlfari Guð- mundssyni, flugumferðarstjóra, þeirra böm em Haukur Armín, f. 1979, Valur Adolf, f. 1981 og Öm Bergmann, f. 1989, og Rósamunda þroskaþjálfi, f. 31. maí 1957, gift Þórami Hólm Andréssyni tölvunarfræðingi, þeirra böm era Sindri, f. 1982, Andri Franklín, f. 1983, Gígja Rós, f. 1986 og Harpa Marín, f. 1995. Útför Jóns Franklíns fer fram frá Bústaðarkirlqu í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. TENGDAFAÐIR minn, Jón Frankl- ín útgerðarmaður, er látinn. Stór- huga athafnamaður er fallinn í val- inn. Ég minnist hans sem sterks persónuleika, manns sem gafst aldrei upp og var alla tíð með hug- -\ann við ævistarfið, sjómennsku og útgerð. Vestfirðir og Vestfirðingar skip- uðu ávallt stóran sess í huga Jóns en þar var hann fæddur og alinn upp á Ytri-Veðrará í Önundarfirði. Guðmundur Franklín faðir Jóns fór til náms í Hólaskóla og að því loknu tii Noregs að afla sér frekari mennt- unar en veiktist svo af berklum og dó áður en sonur hans hafði náð fjögurra ára aldri. Jóna Guðrún móðir hans útskrifaðist 1913 sem ljósmóðir úr Ljósmæðraskólanum í Reykjavík, fyr9ta árganginum sem þar útskrifaðist. Hún giftist síðar Jóni Guðmundi Guðmundssyni og átti með honum sjö börn en þá var hún einnig smituð af berklum. Jón ólst upp hjá afa sínum og ömmu, Jóni Guðmundssyni og Guðrúnu Ingibjörgu Jónsdóttur á Ytri-Veðr- ará ásamt tveimur systrum sínum, Gróu og Guðrúnu, hin systkinin voru sett í fóstur. Segja má að sjómennskan hafi t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR JÓNA MAGNÚSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju fimmtudaginn 13. júlí kl. 13.30. Hildur Hansen, Þórir Stefánsson, Þóranna Hansen, Aðalsteinn Grímsson, Hildur Aðalsteinsdóttir, Ólafur Baldursson, Þórhildur Þórisdóttir, Ingvar P. Jóhannsson, Aðalsteinn og Andri Þór Ólafssynir, Katrin Sif og Þórir Ingvarsbörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRNI BJÖRNSSON tónskáld, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 14. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Samtök um byggingu tónlistarhúss. Helga Þorsteinsdóttir, Katrín Árnadóttir, Reynald Jónsson, Björg Árnadóttir, Andrevy Cauthery, Árni Jón Eggertsson, Hulda Ólafsdóttir, Halli Cauthery, Gunnar Atli Cauthery. t Hjartkær bróðir okkar, STEFÁN VALUR STEFÁNSSON, Austurbrún 2, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 13. júlí kl. 13.30. Björn Stefánsson Ólafur Stefánsson og fjölskyldur. hafist hjá Jóni þegar hann var tólf ára gamall, þar sem hann fór á Prufunni, lítilli skektu, að húkka rauðmaga. Þrettán ára fékk hann oft fleiri hundruð rauðmaga yfir fjöruna. Rauðmaginn var svo reykt- ur og seldur og reyndist góð búbót. Fimmtán ára kaupir Jón fjögurra rúma bát og lætur setja í hann vél. Næst kemur Mundi, íjögurra lesta fiskibátur en síðan kaupir hann hlut í Svani, fjórtán lesta bát fyrir aleiguna sem var 2.000 krónur sem hann fékk fyrir jarðarpart sem hann hlaut í arf og eina kind sem hét Nótt og alltaf var tvílembd. Reyndar vildi amma hans að hann menntaði sig fyrir þessa peninga en hann hafði sitt fram með stuðn- ingi afa síns. Afi og amma Jóns voru honum mjög kær og létu allt eftir stráknum. Þetta var aðeins upphafið að sjómennsku og útgerð- arferli Jóns sem hófst með fiskveið- um þar sem hann var fyrst háseti en síðar útgerðarmaður. Hann var m.a. frumkvöðull að tilraunaveiðum við Grænland og líkaði honum það vel við Grænlendinga að hann hugð- ist gerast innflytjandi og hefja þar rekstur en fékk ekki til þess tilskil- in leyfi. Lengst af ferilsins var Jón í fraktflutningum ýmiss konar um allt land og átti hann 32 skip og báta um lengri eða skemmri tíma. Umsvifín jukust þegar hann tók við Jarlinum, 499 lesta skipi sem hlaut nafnið Suðri, hann átti hann í fimm ár. Síðan kaupir hann Vestra, 700 lesta skip en það sökk út af Akra- nesi. Hann keypti danska skipið Tomas Bjarko sem hafði strandað en náðst út, ýmsar sögur gengu um ástand skipsins en Jón var viss í sinni sök, keypti skipið á átján milljónir, lét gera við það, rak það í nokkur ár undir nafninu Norðri og seldi svo þ.a. hann átti áttatíu milljóna króna afgang eftir að hafa borgað áhvílandi skuldir. Jón var stórhuga og keypti fleiri skip, Austra, 850 lesta skip, og ísborg- ina, 2.600 lesta skip, sem hlaut nafnið Suðri. Þegar reksturinn fór að ganga erfiðlega, kom best í ljós þraut- seigja Jóns og dugnaður, auðséð var að hann ætlaði ekki að láta deigan síga. Síðustu starfsárin starfaði Jón sem vaktmaður um borð í skipum en jafnvel eftir að FLUGLEIÐIR HÍTEL LÖFTLEIDIH hann hafði lent í alvarlegu bílslysi árið 1988 var hann enn að leggja drög að því að kaupa nýtt skip, skoða teikningar af frökturum og reikna út kaupverð þeirra. Þegar ég kom inn á heimili Jóns og Gýgju var mér mjög vel tekið. Jón hafði góðan húmor, var „hú- morist" eins og hann hefði sjálfur orðað það. Ég tók eftir því hann talaði aldrei illa um menn og skipti um umræðuefni ef talið var farið að fara inn á þannig brautir að hans mati, hins vegar hrósaði hann fólki gjarnan ef honum fannst það eiga það skilið. Hann gat verið fljót- ur upp ef því var að skipta en jafn fljótur að sættast við menn og var ekki að erfa eitt né neitt. Ekki gerði hann mannamun og umgekkst á sama hátt ráðherra og róna. í gegn- um tíðina hefur Jón átt fjölbreyttan vina- og kunningjahóp, menn sem hann tók gjarnan með sér heim í mat eða kaffi, Gýgja tók vel á móti þeim öllum, þó að fyrirvarinn hafi oft ekki verið mikill. Jón átti auðvelt með að ræða við fólk sem hann hitti á förnum vegi, braut hann gjarnan ísinn með því að spyija hvaðan það væri og hverra manna. Oftar en ekki þekkti hann einhvern forföður viðmælanda síns og gat þá oft sagt þeim smellnar sögur af viðkomandi. Jón var ávallt mjög bóngóður og vildi allt fyrir alla gera, veit ég að margir hafa notið góðs af greiðasemi hans í gegn um tíðina þó að hann hafi ekki verið að nefna það. Jón hafði mikla ánægju af barnabörnum sín- um og fagnaði þeim alltaf innilega þegar þau komu í heimsókn. Barna- börnin voru sameiginlegt áhugamál Jóns og Gýgju og skipuðu þau stór- an sess í huga þeirra. Fyrir fjórum árum fór Jón í hjartaaðgerð en eftir þá aðgerð lagðist hann inn á sjúkradeild Hrafnistu, þar sem hann dvaldi síð- ustu árin. Var þetta mikil breyting á lífi manns sem hafði verið mikið á ferðinni og sífellt í viðskiptahug- leiðingum. Við fráfall Jóns Franklíns situr eftir tómarúm í tilverunni og er hans sárt saknað. Að leiðarlokum bið ég honum blessunar og þakka honum góða samfylgd. Þórarinn H. Andrésson. Nú er afi Jón dáinn og farinn til ömmu Gýgju. Við eigum margar góðar minningar með afa, sérstak- lega þó hvað hann var gjafmildur, t.d. eitt sinn þegar við fórum í bæinn með honum kom til hans róni og bað hann um að gefa sér pening, en þar sem afi hafði enga peninga á sér tók hann upp ávísana- heftið og skrifaði ávísun upp á 1.500 kr. Þetta fannst okkur rosa- lega flott. Alltaf var jafn gaman að heimsækja ömmu og afa í Keldu- landið. Afi eldaði oft hafragraut með slátri handa okkur og með honum fengum við seytt rúgbrauð með þykku lagi af smjöri. Svo laum- aði hann að okkur súkkulaðibitum. Ef hann átti þá ekki til gaf hann okkur sykurmola þegar mamma sá ekki til. Hann var alltaf að stinga að okkur smáaurum. Einu sinni sendi hann okkur bræðurna út í búð fyrir sig og varð afgangur eftir að við höfðum versl- að, við töldum enga þörf á að skila honum því hann myndi hvort sem er gefa okkur hann og við keyptum okkur nammi með góðri samvisku. Við sögðum honum frá því þegar við komum heim og hann brosti bara. Afi talaði aldrei illa um nokk- urn mann og var alltaf að hrósa okkur. En núna er afi á himnum, þar taka örugglega á móti honum ótal ættingjar og vinir sem á undan eru farnir ásamt dýrunum í sveit- inni sem hann sagði okkur svo oft frá, þeim Koli, Stjörnu og Hetti. Við biðjum Guð að geyma afa við hlið ömmu Gýgju ogþökkum honum fyrir allt. Sindri og Andri. Afi minn, ég þakka þér fyrir að hafa alltaf verið svo góður við mig og talað svo fallega við mig. Það var alltaf gaman að heimsækja þig og ég fékk alltaf súkkulaðibita eða kex hjá þér. Ég vona að þér líði vel núna og þið amma og afi séuð saman uppi hjá Guði. Þín Gígja Rós. Afi „í bátnum" eins og við systk- inin kölluðum hann er nú látinn. Hann fékk þetta viðurnefni hjá okkur systkinunum því hann var sjómaður nær alla sína ævi. Sjó- mennskan var hans líf og eftir að hann hætti að geta stundað sjóinn vegna aldurs gat hann ómögulega slitið sig frá sjónum og bátunum og gerðist vaktmaður á skipum er lágu í höfn. Við systkinin munum vel eftir heimsóknum okkar til afa á kvöldin er hann vaktaði skipin. Þetta voru spennandi ferðir fyrir okkur að koma um borð í stóru og drungalegu skipin sem hann vakt- aði, en er við komum tók hann okkur ávallt opnum örmum og bauð okkur upp á kökur og gos. Afi var oft með nammi í poka sem hann geymdi í vasanum sínum er hann kom í heimsókn, þá lét hann ávallt heyrast skijáfið í pokanum svo við yrðum forvitin og eftir stutta stund leit hann á okkur og brosti og tók upp fullan poka af nammi. Við systkinin litum ávallt upp til hans enda afi fullur af fróðleik um sjóinn og alla bátana. Það voru ófáar heimsóknir okkar með honum niður á höfn til að skoða bátana þar sem hann sýndi okkur öll stóru skipin. En nú er hann ekki lengur með okkur en við kveðjum hann með söknuði og þökkum honum um leið fyrir þá visku sem hann gaf okkur. Pálmi, Þorbjörg og Jón, barnabörn. t Elskulegur sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi, SVANLAUGUR J. JÓNSSON, Grænugötu 6, Akureyri, er lést 9. júlí sl., verður jarðsunginn frá Glerárkirkju fimmtudaginn 13. júlí kl. 13.30. Hrefna Svanlaugsdóttir, Hrefna Svanlaugsdóttir, Guðmundur Stefánsson, Garðar Svanlaugsson, Tordis V. Albinus, Halla Svanlaugsdóttir, Njáll Kristjánsson, Margrét Svanlaugsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Ómar Svanlaugsson, Kristín Geirsdóttir, systkini og barnabörn hins látna. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlót og útför móður minnar, LILJU A. HALLGRÍMSDÓTTUR, Freyjugötu 38. Fyrir hönd aðstandenda, Svala Þ. Steingrímsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.