Morgunblaðið - 12.07.1995, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1995 35
I
Stjörnubíó
1 Forsýning á
riddaramynd
STJÖRNUBÍÓ og Sambíóin forsýna
í kvöld bandarísku kvikmyndina
Fremstur riddara, eða First Knight,
með Sean Connery, Richard Gere
og Julia Ormond í aðalhlutverkum.
Myndin var frumsýnd í Bretlandi og
| Bandaríkjunum 7. júlí.
Fremstur riddara fjallar um
ástríður, hefnd, hatur, svik og
grimmileg örlög. Leikstjóri er Jerry
Zucker (Ghost). William Nicholson
(Shadowlands) samdi handrit. Um
klippingu sá Walter Murch (Apoc-
alypse Now, The Godfather) og tón-
listin er eftir Jerry Goldsmith (Alien,
Poltergeist, Total Recall, og Basic
Instinct).
Stundarfjórðungi fyrir forsýning-
: arnar í kvöld mæta riddararnir úr
I Fremstur riddara en myndin verður
sýnd kl. 21 í Bíóhöllinni við Álfa-
bakka og kl. 23.15 í Stjörnubíói við
Laugaveg.
SEAN Connery leikur aðal-
hlutverkið í Fremstur
riddara.
Hj ólr eiðakeppni
í Hafnarfirði
I HJ ÓLREIÐ AKEPPNI Æskulýðs-
og tómstundaráðs Hafnarfjarðar
fer fram fimmtudaginn 13. júlí á
Víðistaðatúni.
Keppnin er fyrir krakka á aldrin-
um 7 til 14 ára og felst keppnin í
því að hjóla ákveðna vegalengd á
sem bestum tíma, einnig verða
þrautir sem keppendum gefst kost-
ur á að spreyta sig á.
Síðustu ár hefur ÆTH haldið
hjólreiðakeppni fyrir krakka sem
eru þátttakendur á íþrótta- og
leikjanámskeiðum. Nú er keppnin
opin öllum krökkum á aldrinum
7-14 ára.
Þátttakendur eiga að mæta um
kl. 13.00 fimmtudaginn 13. júlí á
Víðistaðatún. Keppnin hefst síðan
kl. 13.30 og verður keppt í þremur
aldurshópum, 7 og 8 ára, 9 og 10
ára og 11 til 14 ára.
I
I
■ BOTNLEÐJUTÓNLEIKAR
verða haldnir í kvöld á 22. Botn-
leðja lenti í fyrsta sæti á síðustu
Músíktilraunum og hyggst gefa út
plötu í haust. Tvær aðrar hljóm-
sveitir, Dallas og Stolía koma
fram, en sú síðarnefnda hreppti
annað sætið í sömu tilraunum. Tón-
leikarnir hefjast kl. 23.00 og er
aðgangseyrir enginn.
Ný safn-
plata frá
Skífunni
| SKÍFAN hf. hefur gefið út safn-
plötuna Heyrðu 7 sem hefur að
geyma 18 lög - íslensk og útlend.
Fjögur laganna eru með íslensk-
um flytjendum. Fyrst ber að nefna
lagið I Don’t Believe You með
hljómsveitinni Cigarette með söng-
konuna Heiðrúnu Önnu Björns-
dóttur í fararbroddi. Bubbleflies á
hér einnig nýtt lag, I Bet You, sem
er fyrsta lag sveitarinnar á vegum
j Skífunnar. Aggi Slæ & Tamlasveit-
' in leggur til gamalkunnugt erlent
lag með nýjum texta Egils Ólafs-
sonar, Korriró. Loks á salsabandið
Salsa Picante lagið Æ, ó, aum-
ingja ég, sem er velþekkt frá fyrri
árum.
Útlendu lögin á Heyrðu 7 eru:
Be My Lover (La Bouche), Love &
t Devotion (Real McCoy), Back for
Good (Take That), Scatman’s
World (Scatman John), Catch Me
| (Papermoon), Key To My Life (Bo
yzone), Fake Plastic Tress (Radio-
head), Save It Till The Morning
After (Shut Up And Dance),
Dreamer (Livin’ Joy), In The Sum-
mertime (Shaggy), Lenny (Super-
grass), Night In White Satin
(Sandra), A Whiter Shade Of Pale
(Annie Lennox) og Streets Of
London, Sinead O’Connor.
------»-■»-♦----
Vinir Dóra í
Kringlukránni
HUÓMSVEITIN Vinir Dóra leikur
í Kringlukránni í kvöld, miðvikudag,
og hefst spilamennskan klukkan 22.
Þetta eru aðrir tónleikar Dóra
hérlendis síðan Halldór Bragason
kom frá Bandaríkjunum. Með hon-
um í kvöld leika m.a. Jón Ólafsson
og Ásgeir Óskarsson.
------♦ ♦ »
■ DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti Neyslukönnunar Gallup
1995, þar sem í boði var ferð til
Parísar fyrir tvo. Eingöngu var
dregið úr innsendum spurningalist-
um. Vinningurinn kom á miða nr.
1942, samkvæmt fréttatilkynningu
frá ÍM Gallup, og er vinningsnúmer-
ið birt hér án ábyrðar.
FRÉTTIR
Yfirlýsing frá Siglingamálastofnun vegna smíði víkingaskíps
Ábyrgð fylgir útgáfu
haffærisskírteinis
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Siglingamálastofnun
ríkisins:
„Vegna frétta í fjölmiðlum undan-
farna daga varðandi víkingaskip sem
er í smíðum í Reykjavík og afskipti
Siglingamálastofnunar ríkisins af
þvi máli óskar stofnunin eftir því
að koma eftirfarandi upplýsingum á
framfæri.
Fyrir rúmu ári var haldinn fundur
hjá Siglingamálastofnun þar sem
Gunnar Marel Eggertsson skipa-
smíðameistari kynnti fyrirætlun sína
um að smíða víkingaskip sem yrði
eftirlíking af Gaukstaðaskipinu.
Skipið átti að nota til að sigla með
skólabörn um sundin utan við
Reykjavík og til útsýnisferða á
innanverðum Faxaflóa með allt að
50 manns um borð, þ.e. áhöfn og
farþegar samtals. Á þessum fundi
var öllum ljóst að rætt var um að
smíða skip til siglinga með farþega.
Nú er það svo að ákveðin lög og
reglur hafa verið sett til öryggis
sjófarendum um gerð og búnað
skipa, hvort sem þau eru til farþega-
flutninga eða annarra nota. Hlutverk
Siglingamálastofnunar ríkisins er
meðal annars að annast eftirlit með
að farið sé eftir þessum fyrirmælum
og er skylt að senda inn teikningar
og önnur nauðsynleg gögn vegna
eftirlitsins áður en smíði skips er
hafin.
Á þessum fundi, sem Gunnar
Marel óskaði eftir til að undirbúa
smíðina, var öllum ljóst að skipið
gæti ekki að öllu leyti uppfyllt nú-
gildandi reglur og fór hann því fram
á að vikið yrði frá reglunum á þeim
forsendum að haffærisskírteini yrði
gefið út til mjög takmarkaðra sigl-
inga. Af hálfu Siglingamálastofnun-
ar var lýst yfir fullum vilja til að
leggja mat á að hve miklu leyti
væri hægt að víkja frá reglunum
miðað við nefndar forsendur og var
ákveðið að Gunnar Marel legði sem
fyrst fram teikningar og sínar hug-
myndir um hvernig hann hyggðist
styrkja skipið til að uppfylla lág-
markskröfur, miðað við fyrirhugaða
notkun. Af beggja hálfu var mikiil
áhugi á að góð samvinna tækist um
að leysa þetta áhugaverða verkefni
með hliðsjón af núgildandi reglum
og með tiiliti til öryggis áhafnar og
farþega.
I september sl. fréttist síðan að
hafin væri vinna við smíðar skips-
ins, en þá höfu engin gögn borist
og var Gunnari Marel skrifað bréf
þann 13. september 1994 og minnt-
ur á niðurstöður fundarins í fyrra-
vor. Þegar hann síðar lagði fram
upplýsingar um hvernig hann
hyggðist styrkja skipið, en þá var
smíðin vel á veg komin, reyndust
þær ekki nægilegar að mati stofnun-
arinnar. Eftir að skipst hafði verið
á skoðunum um málið setti stofnun-
in fram í bréfi, þann 2. mars 1995,
lágmarkskröfur um styrkingar í bol
skipsins til þess að það gæti fengið
umrætt haffærisskírteini. Þessar
kröfur taldi hann sig ekki geta upp-
fyllt og kærði afgreiðslu stofnunar-
innar með bréfi til samgönguráð-
herra þann 28. apríl sl.
í viðtali við Gunnar Marel í Morg-
unblaðinu þann 8. júlí sl. segir hann
að þegar lánardrottnar hafi frétt af
tregðu Siglingamálastofnunar til að
gefa út haffærisskírteini hafí þeir
dregið að sér hendur og því hafi
smíði skipsins tafist um rúma tvo
mánuði. Það sem hann kallar tregðu
stofnunarinnar var honum kunnugt
um strax í upphafi, á okkar fyrsta
fundi, áður en smíði skipsins hófst,
eins og áður hefur komið fram.
í sambandi við afgreiðslu þessa
máls hefur Siglingamálastofnun afl-
að sér upplýsinga hjá siglingamála-
stofnunum í Danmörku og Noregi.
Þar eru gerðar strangar kröfur um
skip og báta til farþegaflutninga,
en vitað er um örfá dæmi um að
gefíð hafi verið leyfi til að nota eftir-
líkingar af víkingaskipum til siglinga
með ferðamenn á afmörkuðum
svæðum með ströngum skilyrðum.
Eru það t.d. norsku skipin Kvitserk
og Gaia, sem nefnd hafa verið í frétt-
um.
Samkvæmt upplýsingum norsku
stofnunarinnar eru forsendur þessa
takmarkaða leyfis sem Kvitserk hef-
ur að skipið sé smíðað með botn-
stokkum og böndum sem talin séu
jafngilda kröfum í Norðurlandaregl-
unum um smíði tréskipa, en það eru
sömu reglur og gilda hjá okkur og
hafa verið notaðar til viðmiðunar í
þessu máli. Um Gaiu höfum við ekki
upplýsingar á hvaða forsendum
henni var veittþað takmarkaða leyfi
sem hún hefur í Noregi. Þegar Gaiu
hafði verið siglt til íslands frá Nor-
egi árið 1991 var ákveðið að hún
fengi að sigla undir íslenskum fána
til að kynna ferðir víkinga á fyrri
öldum. Þetta var gert í sambandi
við hátíðarhöld vestan hafs í tilefni
þess að 500 ár voru liðin frá ferð
Kólumbusar til Ameríku. Skipið fékk
útgefið takmarkað haffærisskírteini
sem gilti fyrir tímabilið 21. júní til
30. september 1991 til að sigla frá
Reykjavík til Washington DC. Annað
takmarkað haffærisskírteini var gef-
ið út og gilti fyrir siglingu frá
Reykjavík til Rio de Janero á tímabil-
inu 15. nóvember 1991 til 1. júní
1992. Bæði skírteinin voru háð því
skilyrði að skipinu fylgdi ávallt vél-
knúið skip.
Afstaða Siglingamálastofnunar í
þessu máli ræðst að sjálfsögðu af
því hlutverki sem henni er ætlað að
gegna, þ.e. að sjá til þess að farið
sé eftir þeim lögum og reglum sem
gilda um smíði og búnað skipa.
Haffærisskírteini er yfirlýsing um
að viðkomandi skip uppfylli ákveðn-
ar lágmarkskröfur um öryggi, yfir-
lýsing sem sjófarendur eiga að geta
treyst. Útgáfu haffærisskírteinis
fylgir því mikil ábyrgð, ekki síst
þegar um er að ræða skírteini fyrir
skip sem ætlað er að flytja fólk á
öllum aldri, sem jafnvel hefur aldrei
á sjó komið.
Þótt víkingaskipið verði búið öll-
um nauðsynlegum öryggisbúnaði
verður skipið sjálft alltaf aðalör-
yggistækið.”
Reykjavík 11. júlí 1995.
Benedikt E. Guðmundsson,
siglingamálastjóri.