Morgunblaðið - 26.07.1995, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1995 25
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
STJÓRNARFORMAÐUR
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MIKLIR HAGS-
MUNIR í HÚFI
MIKLIR hagsmunir eru í húfi fyrir heimsbyggðina að sam-
komulag náist á lokafundi úthafsveiðiráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í New York, sem hófst í fyrradag. Samkomulag um
bindandi alþjóðasamning um veiðar á úthafinu er ein forsenda
þess að takast megi að byggja upp og vernda það forðabúr, sem
fiskimið á úthöfunum eru.
ísland á að sjálfsögðu mikið undir því að rápstefnan beri góð-
an árangur. Fá ríki eru jafnháð fiskveiðum. Á heildina litið má
segja að ísland geti vel unað við þau samningsdrög, sem liggja
fyrir, enda hafa fulltrúar íslands á ráðstefnunni lýst yfir að þau
styrki stöðu strandríkja varðandi veiðar á svæðunum sem liggja
að fiskveiðilögsögu þeirra.
Sú var tíðin að ísland hefði barizt fyrst og fremst fyrir rétti
strandríkja á ráðstefnu sem þessari. Nú hafa hagsmunir okkar
hins vegar tekið breytingum og við eigum talsvert undir úthafs-
veiðum. Það ber vott um góðan árangur íslenzku sendimannanna
í því tilliti að „íslenzka ákvæðið" um að taka skuli tillit til ríkja,
sem eru mjög háð fiskveiðum, við ákvörðun um aðild að svæðis-
samtökum um fiskveiðistjórn, ér í drögum þeim, sem Nandan
forseti ráðstefnunnar lagði fram.
Aðalágreiningur strandríkja og úthafsveiðiríkja á ráðstefnunni
stendur nú um 21. grein samningsdraganna, sem kveður á um
framkvæmd og eftirlit. Úthafsveiðiríkin hafa einkum sett fyrir
sig ákvæði um að hafi fánaríki skips, sem brýtur af sér, ekki
brugðizt við innan þriggja sólarhringa, sé strandríkinu heimilt
að fara um borð í skipið og færa það til hafnar. íslenzku fulltrú-
arnir hafa lagt áherzlu á lögsögu fánaríkisins yfir skipum sínum.
Forsenda þess, að slík lögsaga sé virk, er hins vegar að skip
sigli ekki undir hentifánum — ekki heldur íslenzk skip.
Bættur réttur strandríkja mun fyrst og fremst tryggja hags-
muni íslands varðandi stjórnun veiða úr fiskistofnum utan við
lögsöguna, til dæmis karfa, síld og rækju. Þetta eru gífurlegir
hagsmunir, ekki sízt að því er varðar síld og karfa. Það yrði ekki
í þágu íslands sem strandríkis að rýmkað yrði um aðgang nýrra
ríkja að svæðisstofnunum, eins og úthafsveiðiríkin fara fram á.
Við teljum okkur til dæmis ekki hafa neitt við Evrópusamband-
ið að ræða um stjórnun á norsk-íslenzka síldarstofninum, heldur
viljum við líta til hagsmuna strandríkjanna fjögurra, sem hafa
nytjað hann. Þegar þessir hagsmunir annars vegar, og hins veg-
ar sá hagur, sem ísland kynni að hafa af því að styrkja stöðu sína
í Smugudeilunni sem úthafsveiðiríki, eru vegnir og metnir, hljóta
strandríkishagsmunirnir að vega þyngra í þessu tilliti.
Jafnvel þótt jákvæð niðurstaða náist á úthafsveiðiráðstefn-
unni, mun hún ekki leysa sjálfkrafa Smugudeiluna, ágreining
um síldarstofninn eða aðrar fiskveiðideilur. Þannig verða senni-
lega ekki nákvæm ákvæði um kvótaskiptingu í væntanlegum
samningi, en stærð kvóta er einmitt aðalágreiningsefnið í bæði
Smugudeilunni og síldardeilunni. Áfram verður mikið komið
undir samningsvilja og framsýni ríkja heims. Úthafsveiðiráð-
stefnan getur hins vegar látið þeim í té reglur — tæki til að
leysa deilurnar — og slíkt er tvímælalaust í þágu íslands, sem
hefur ævinlega byggt baráttu fyrir réttindum sínum á lagalegum
rökum þjóðaréttar.
NÝSKÖPUN
NÁMSMANNA
MIKILVÆGI nýsköpunar verður seint metið til fulls. Nýjar
hugmyndir og frjó hugsun eru nauðsynlegar til að koma
í veg fyrir stöðnun og værukærð.
Árið 1992 var Nýsköpunarsjóður námsmanna stofnaður og
er hann nú starfræktur fjórða sumarið í röð. Markmið hans er
að veita styrki til rannsóknaverkefna, sem nemendur í Háskóla
íslands vinna að yfir sumartímann. Eru verkefni, sem líkleg
þykja til að stuðla að nýsköpun í atvinnulífinu eða tiltekinni fræði-
grein, styrkhæf. Hefur sjóðurinn að þessu sinni 25 milljónir frá
ríkissjóði og Reykjavíkurborg til ráðstöfunar. Nýsköpunarsjóður-
inn, Tækniþróun hf. og Útflutningsráð starfrækja einnig Nýsköp-
unarsmiðju sem hefur það að markmiði að reyna að koma hug-
myndum á framleiðslustig.
í Morgunblaðinu á sunnudag var greint frá starfsemi sjóðsins
og nokkrum verkefnum, sem hann hefur styrkt. Kernur þar fram
að 264 umsóknir um styrki hafa borist í ár. „Það sækja í hann
fleiri og fleiri og menntaðri námsmenn með meiri reynslu og
starfsaldur. Jafnframt því má sjá fleiri afburðaumsóknir," segir
Dagur B. Eggertsson, umsjónarmaður sjóðsins. Hann bætir við
að sjóðurinn veiti fjármagni til nýjunga rannsókna er áður hafi
ekki verið sinnt.
Þetta er merkilegt framtak. Við eigum mikið af ungu og vel-
menntuðu fólki, sem getur með þekkingu sinni og hugmyndum
hleypt nýju lífi í atvinnu- og menntalíf. Með því að styrkja þetta
fólk og gefa því kost á að þróa hugmyndir sínar erum við að
leggja grunn að hagsæld framtíðarinnar.
Andvígur
úreldingarstefnu
EGILL Jónsson segist vilja
gangast fyrir umbótum í
starfsemi Byggðastofn-
unar. Hann telur að stofn-
unin sé of upptekin af peningaum-
sýslu og lánastarfsemi sem sé arfleifð
liðins tíma og vill draga úr því en þess
í stað efla og styrkja ráðgjafar- og
þróunarstarf á vegum stofnunarinnar.
Með þeim hætti fremur geti stofnunin
hlúð að vaxtarbroddum í atvinnulífinu
og veitt einstaklingum og samtökum
þeirra bráðnauðsynlega þjónustu við
að kanna nýjar hugmyndir og stíga
fyrstu skrefin í nýjum rekstri.
„Ég hef að sumu leyti mikla raun
af því hvað starfsemi stofnunarinnar
snýst mikið í kring um lánveitingar
en þó angrar mig öllu meira þessi
lánasýslustarfsemi sem stofnunin hef-
ur með höndum, m.a. sem verktaki
fyrir Þróunarsjóð. Það er mikill hluti
af stofnuninni undir þetta lagður.
Framan af ferli sínum var Byggða-
stofnun rík stofnun, útdeildi miklu
fjármagni og var mikill þátttakandi í
uppbyggingu atvinnulífsins. Síðan dró
úr íjármagninu, tímarnir breyttust og
á -síðustu árum, hefur aðalviðfangs-
efni hennar verið að beijast við þá
miklu erfíðleika sem voru í atvinnulíf-
inu á því erfiða breytingaskeiði sem
yfir það dundi.
,Nú eru hins vegar aðstæðurnar
orðnar aðrar í þjóðfélaginu og at-
vinnurekstrinum. Efnahagsskilyrðin
eru orðin sambærileg við það sem
gerist í nágrannalöndunum og rekst-
arskilyrði í atvinnulífi hér hafa ekki
verið með sama hætti og nú er á öll-
um lýðveldistímanum.
- Ertu að segja það að pólitísk út-
hlutun á íjármagni tilheyri liðnum
tíma og að bankakerfið eigi að sjá
um lánastarfsemi?
Peningaumsýsla í bönkunum
„Mín vegna mætti færa þessa pen-
ingaumsýslu yfir til bankanna. Sá
þáttur sem lýtur að peningaumsýsl-
unni er miklu léttvægari en verið hef-
ur vegna breyttra tíma. Byggðastofn-
un býr við strangar reglur um arðse-
miskröfur og þær eru hliðstæðar við
það sem aðrar lánastofnanir búa við.
Stofnunin hefur goldið fyrir -------
að tapast hafa peningar á Ekki kappsmál
EGILL Jónsson sýnir gjarnan gestum sínum landgræðslusvæðið í
Skógey þar sem undraverður árangur hefur náðst í landgræðslu
4.000 hektara örfoka lands á einum áratug.
Egill Jónsson formaður stjómar Byggða-
stofnunar segir stofnunina of upptekna af
lánastarfsemi. I samtali við Pétur Gunnars-
son ræðir hann um þær breytingar sem hann
vill sjá í starfsemi stofnunarinnar, byggðamál
og sauðflárrækt.
að óbreyttur
fjöldi lifi af
sauðfjárrækt
ýmsu því sem hún eins og
aðrar lánastofnanir hefur
lagt fé til. Eins og við vitum
hafa þeir aðilar sem urðu ___________
fyrir miklu tapi ekki enn
náð að losa sig undan áhrifum þeirra
áfalla, margir hafa misst kjarkinn.
- Hvaða þörf er þá fyrir byggða-
stofnun ef hún metur lánsumsóknir á
sama grundvelli og aðrar peninga-
stofnanir?
„Það sem ég tel að snúi fyrst og
fremst að Byggðastofnun er að
hjálpa til við að rækta garðinn,
treysta grundvöll atvinnuveganna og
hjálpa til við að vísa veginn í átt að
nýjungum með leiðbeiningum og sér-
þekkingu. Að því þarf hún að vinna
í nánu samstarfi við þá aðila sem eru
þátttakendur i atvinnulífinu og for-
svarsmenn sveitarfélaganna í kring-
um landið. Byggðastofnun á fyrst og
fremst að vera þar sem aðrir eru
ekki, stuðla að og hvetja til nýjunga.
Því fylgir gjarnan meiri áhætta. Okk-
ar lífskjör í framtíðinni byggjast auð-
vitað á því að við getum nýtt þessi
breyttu skilyrði í atvinnulífinu, aukið
okkar framleiðslu og gert hana fjöl-
breyttari, ekki síst með því að nýta
betur þær auðlindir sem þetta land
býr yfir, bæði til lands og sjávar.
Byggðastofnun verður um þessar
mundir að semja sig að þessum
breyttu háttum í þjóðfélaginu ef hún
ætlar að hafa áhrif og vera í forsvari
í byggðamálum hér á landi. Stjórn-
völd þurfa að hafa sannfæringu fyrir
því að byggðamálunum sé borgið í
höndum Byggðastofnunar. Annars
hljóta menn að finna sér aðrar leiðir
í byggðamálum.
- Hvaða breytingum vilt þú að
starfsemi Byggðastofnunar taki?
„Á fyrsta fundi okkar í nýju stjórn-
inni tókum við stefnumarkandi
ákvarðanir. Við skiptum stjórninni í
tvo starfshópa. Lengst af hefur stjórn
stofnunarinnar ekki verið nægilega
virk og þræðirnir of mikið í höndum
formanns og framkvæmdastjóra.
Ónýttir möguleikar
Öðrum starfshópnum stýrir Einar
Kr. Guðfinnsson. Þeim hópi er ætlað
að gera tillögur um leiðir til að efla
ráðgjafarstarf stofnunarinnar til
mikilla muna frá því sem
verið hefur, bæði atvinnu-
o g ferðamálaráðgjöf og
einnig viljum við bæta við
ráðgjöf á sviði sölu- og
________ markaðsmála. Kannski er
ekkert jafnþýðingarmikið
fyrir eflingu atvinnulífsins við þær
nýju aðstæður sem við búum við og
markaðsmálin nú þegar viðskipti
ganga miklu beinna milli landa og
fyrirtækja en áður. Ónýttir möguleik-
ar á slíkum viðskiptasamböndum eru
margir.
Þessi starfshópur á innan skamms
að koma með tillögur sem geta lagt
grundvöll að öflugri starfsemi sem
tengist þróun, sölu og viðskiptum
sem allra víðast á þann hátt að fólki
og fyrirtækjum sé veittur stuðningur
til að þróa hugmyndir sínar og hrinda
þeim í framkvæmd.
Hinn starfshópurinn er undir for-
sæti Stefáns Guðmundssonar. Hon-
um er ætlað að fjalla um hvernig
stuðla megi að aukinni fjölbreytni og
fullvinnslu afurða og hvers konar
nýjungum sem stuðlað geta að auk-
inni framleiðslu.
Þetta er auðvitað víðtækt verkefni
og gerist ekki fyrir atbeina Byggða-
stofnunar einnar saman en spurning-
in er hvar og hvernig getum við kom-
ið áhrifum okkar á framfæri. Það
tekur tíma að festa nýjungar í sessi
og vinna nýja markaði. Erlendis sums
staðar fá nýir aðilar í framleiðslu
stuðning í 3-5 ár og aðgang að sér-
fræðiráðgjöf. Ég vil sjá og stuðla að
vinnubrögðum í þeim anda.
- Stundum er sagt að atvinnulífið
sé best á vegi statt þar sem Byggða-
Stjórn stofn-
unarinnar
lengst af ekki
nægilega virk
stofnun skiptir minnstu máli.
„Já, það mætti kannski til sanns
vegar færa. Það hefur náttúrulega
verið vettvangur Byggðastofnunar
að treysta byggð í landinu og þar
af leiðandi þarf hennar ekki við þar
sem lífið gengur auðveldast fyrir sig.
Ef gagn er í Byggðastofnun þá á hún
ekki síður að efla byggðina þár sem
hún er traust fyrir. Hins vegar held
ég að hún ein ráði aldrei við það að
snúa hlutunum við þegar illa horfir.
- Byggðastofnun hefur verið falið
að veita sérstaka aðstoð til sauðfjár-
ræktarsvæða, þar sem ástand er hvað
verst um þessar mundir. Getur hún
þá ekki komið að neinu gagni í því
efni?
„Sá vandi sem sauðfjár-
ræktin býr við er orðinn
miklu víðtækari en svo að
hann snerti sauðfjárrækt-
ina eina. Ef illa fer mun _____
það hafa áhrif á aðrar
greinar í sveitunum líka og þess er
þegar farið að gæta þar og í þéttbýl-
isstöðunum sem nærast á þessari
framleiðslu.
Hætta samningabrölti
Þennan vanda hefur búvörusamn-
ingurinn, sem nú er í gildi, leitt af
sér en ég hef frá fyrstu tíð verið and-
vígur honum og séð hvert úreldingar-
stefna hans mundi leiða. Mér virðast
vinnubrögin við endurskoðun búvöru-
samningsins orka tvímælis og ég er
ósammála mörgum þeim áherslum
sem þar er um rætt. Það sem mestu
máli skiptir og stjórnarsáttmálinn
kveður þó á um er að ekkert bita-
stætt heyrist um þann bráða vanda í
sauðfjárræktinni sem bændur standa
nú frammi fyrir.
Ég tel að ástandið í sauðfjárrækt-
inni sé slíkt að menn eigi að hætta
þessu samningabrölti um endurskoð-
un á samningnum. Það getur enginn
nema Alþingi tekið af skarið í þessu
stóra máli. I þessum samningaviðræð-
um hafa bændum verið gerðir niður-
lægjandi kostir af mönnum sem eru
fastir í úreldningarhugarfari samn-
ingsins sem þeir bjuggu til sjálfir.
Menn hafa m.a. sett það fram í þess-
um viðræðum að bændur fái lífsfram-
færslu fyrir að tína rusl. Slík er niður-
lægingin gagnvart bændum landsins
orðin.
Ég er andvígur þessari úreldingu.
Á síðasta ári og þessu hafa fyrst átt
sér stað markvissar aðgerðir við sölu
á dilkakjöti erlendis. það er lífsnauð-
synlegt að láta á þá þróun reyna og
það hlýtur að taka einhver ár. Ég vil
gefa þeim tilraunum t.d. 3-5 ár og
að sauðfjárræktin fái að lifa eðlilegu
lífi þann tíma.
Stjórn Byggðastofnunar hefur
ákveðið að' stuðla að útflutningi og
aukinni fullvinnslu þannig að ábatinn
komi bændum til góða. Við höfum
ákveðið að styrkja útflutningsslátur-
hús og vinnslustöðvar til að fjárfesta
í hagræðingu og aukinni fullvinnslu
afurðanna með útflutning og mark-
aðssetningu erlendis í huga. Þetta er
m.a. gert fyrir það fjármagn sem
okkur er falið að koma til skila sam-
kvæmt búvörusamningnum.
Markmiðið er að ná fram lægri til-
kostnaði sem verði skilað til bænda í
hærra skilaverði. Það eru nokkur slík
verkefni þegar komin í gang og önnur
eru í undirbúningi.
Úreldingarstefna
Stóra málið er að menn ganga ekki
inn í nýja markaði, það verður að búa
þá til. Með þessum hætti er verið að
leggja grundvöll að markaðsstarfi sem
á rætur í sérstöðu landsins. Þetta er
auðlegð sem býr í landinu okkar. Þess
vegna má ekki tapa því afli sem býr
í fólkinu sem byggir sveitr landsins
sem hlýtur að verða ef úreldingar-
stefnan nær fram að ganga.
Það er mér hins vegar ekkert sér-
stakt kappsmál að óbreyttur fjöldi
fólks í sveitunum lifi um alla framtíð
af sauðfjárrækt en ég vil stuðla að
því, að fólk finni og nýti þá fjölmörgu
möguleika sem eru á öðrum atvinnu-
rekstri í sveitunum. Gangi t.d. eftir
hugmyndir sem komnar eru á góðan
rekspöl um útflutning Eðalíss í Suður-
seit gætu skapast þar 10-20 störf og
þannig unnist upp það sem tapast
hefur á þessum úreldingartímum.
Sambærilegir möguleikar eru fjöl-
margir annars staðar.
Við þurfum að leggja sérstaka
áherslu á að hlúa að slíku. Einnig
verðum við að hafa í huga að ef það
--------- gengur eftir, sem menn
vonast nú til, að ráðist
verði í stækkun álversins
og ef til vill járnblendiverk-
smiðjunnar á næstunni þá
er hætt við nýjum straumi
fólks frá landsbyggðinni til
höfuðborgarsvæðisins. Á slíkum tím-
um er sérstaklega mikilvægt að huga
að mótvægi með því að gefa fólki
og aðilum í atvinnurekstri tíma og
tækifæri til að nýta möguleikana sem
er að finna í byggðarlögunum. Við
verðum að hafa hugfast að við getum
ekki að nýju reist tekjur okkar og
framfærslu á því að flytja til byggð-
ina í landinu.
Kjördæminu að gagni
- Er Byggðastofnun sérstakur vett-
vangur fyrirgreiðslupólitíkusa. Hefur
það þýðingu fyrir Austurlandskjör-
dæmi að þú sért orðinn stjórnarform-
aður þar?
„Ég vona að ég geti komið kjör-
dæminu mínu að gagni hvar sem ég
starfa en ég vil ekki að það gerist á
kostnað annarra. Ég sinni og vil sinna
erindum minna umbjóðenda. Byggða-
stofnun verður ekki misnotuð í þeim
tilgangi en hins vegar styrkir for-
mennskan mig til að vinna að málefn-
um kjördæmisins á öðrum vettvangi.
Þeir alþingismenn sem ótrauðir
beijast fyrir málefnum kjördæma
sinna og hagsmunum fólksins sem þar
býr eru öðrum líklegri til að koma á
nýbreytni og efla starfsemi þýðingar-
mikilla stofnana þar sem áhrifa þeirra
gætir. Það vona ég m.a. að reynist
niðurstaða af starfi nýkjörinnar
stjórnar Byggðastofnunar."
Reuter
Aung San Suu Kyi leggur blóm að grafhýsi föður síns, Aung San, sem var frelsishetja Búrma. Suu Kyi
er laus úr stofufangelsi, en fjöldinn allur af pólitískum andstæðingum herstjórnarinnar í landinu situr
ennþá á bak við lás og slá.
Á BAKVIÐ
FORTJALDIÐ
MYANMAR
Herstjómin í Búrma kallar landið Myanmar
o g hefur ákveðið að á næsta ári verði gert
átak í ferðamannaiðnaði. Ar heimsóknar til
Myanmar skal það heita. Fréttamaður The
Daily Telegraph heimsótti Búrma og reyndi
að skyggnast á bakvið fortjaldið
Búrma
■ Stærð: 678.030 ferkílómetrar.
■ íbúar: 41.279.000
Stv. manntali 1990)
Stjórnarfar: Hervald.
■ Höfuðborg; Rangoon (Yangon).
■ Efnhagur: Landbúnaður er
helsta atvinnugreinin, og starfa
66% vinnandi fólks við hana.
■ Saga: Bretar gerðu Búrma að
nýlendu sinni á 19. öld og heyrði
hún undir stjórn þeirra á Indlandi
til 1937 þegar Burma fékk eigin
stjórn. Það fékk sjálfstæði fra
breska heimsveidinu 1948.
Ne Win, hershöfðingi, réði lögum
og lofum í stjórnmálum frá 1962 til
1988, er hann lét af völdum eftir
miklar mótmælaaðgerðir gegn
stjórnvöldum. Náinn samstarfs-
maður hans, Saw Maung, hers-
höfðingi, tók við stjórnartaumum.
Fyrstu fjölflokkakosningar í 30 ár
fóru fram 1990. Helsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn, sem Aung San
Suu Kyi fylgdi að málum, vann
afgerandi sigur, en herstjórnin virti
kosningaúrslitin að vettugi.
Knight-Ridder Tribune
VELKOMIN til Búrma, öðru
nafni Myanmar, lands
pagóðanna og hrísgijóna-
akranna; landsins sem er
ósnortið af skelfingum neysluhyggj-
unnar sem hefur drekkt svo mörgum
Asíulöndum í mengunarskýi og stór-
borgarsturlun. Herstjórar landsins
hafa ákveðið að næsta ár verði opin-
berlega Ár heimsóknar til Myanmar
og það er sú mynd sem maður sér
í ferðamannabæklingunum.
En á bakvið fortjaldið, segja þeir
gagnrýnu, er annað Búrma, land
fótjárnaðra fanga, nauðungarflutn-
inga og pólitískra fanga.-
Blóð, sviti og tár fólksins í Búrma
fer í að gera landið klárt fyrir flóð-
bylgju af ferðamönnum, fullum að-
dáunar. En megnið af þeim pening-
um sem ferðafólkið mun eyða fer
beina leið í vasa herstjóranna og
félaga þeirra í feitum embættum.
Fótjárn fanga
Á leiðinni til Mandalay, þar sem
flugfiskar Rudyards Kiplings voru
að leik, glamraði í fótjárnum fanga
í vikunni sem leið, þeir óðu í leðju
og sólarhitinn var óbærilegur, þeir
voru að gera við holótta götu sem
átti að heita þjóðvegur.
Hallarsíkin í Mandalay eru óað-
finnanleg. Vatnið tært og steinarnir
nýhlaðnir. En það er ekki langt síð-
an járnaðir fangar voru að handm-
oka botnleðjunni burt og hlekkirnir
skófu skinnið af fótleggjum þeirra.
Nokkur hundruð kílómetra niður
með Irrawaddyfljóti er eitt af undra-
verkum Asíu; pagóðurnar á gresjum
Pagan. Það er ekki langt síðan fimm
þúsund manns eða svo bjuggu inn
á milli musteranna, sem eru um
2000 talsins, og seldu ferðafólki
húsaskjól og minjagripi. Nú hefur
þetta fólk verið flutt yfir á óræktað
land nokkur hundruð kílómetra í
burtu, og var hótað lífláti ef það
færi ekki.
Hreinlegt í Rangoon
í miðborg Rangoon, þar sem mik-
ið er um ferðafólk, er fátt sem bend-
ir til fátæktar. Göturnar frá flug-
vellinum eru breiðar og hreinar og
engir heimilislausir betlarar á gang-
stéttunum. Það er vegna þess að
hersljórarnir létu flytja um 200
þúsund manns nauðungarflutning-
um í fábrotin úthverfi 1988 i kjölfar
uppreisnar lýðræðissinna og bylt-
ingar hersins. 1 nýju hverfunum er
víða ekki enn komið á rafmagn og
vatn og íbúarnir eru fjarri vinnustað
„Vandinn liggur bæði í því hvern-
ig farið er að og hvað er gert,“
sagði stjórnarerindreki með aðsetur
í Rangoon. „Maður getur kannski
rökstutt ákvörðun um að flytja fólk
burtu frá stöðum þar sem eru forn-
minjar, eins og í Pagan, en það er
ekki hægt að skikka það til að fara
með stuttum fyrirvara og hóta lífl-
áti ella.“
Hefð fyrir þrældómi?
Misbeitingin er þó hvað verst á
afskekktum svæðum þar sem útlend-
ingar fá ekki að koma. Þegar brugð-
ist er við þjóðflokkauppreisnum hef-
ur löngum verið litið svo á að
þorpsbúum megi fórna og þeir notað-
ir sem skildir. Syðst í landinu vinna
mörg þúsund manns eiginlega sem
þrælar við skelfilegar aðstæður við
að leggja nýja járnbraut. Þeir sem
hafa flúið þaðan segja að stundum
fái verkafólkið hvorki mat né þau
lúsarlaun sem kveðið er á um þvþ
skuli greidd.
Yfirvöld bera því við að löng hefð
sé fyrir því í landinu að fólk taki
erfiðisvinnu sem þegnskyidu og
slepþi fyrir vikið við skatta.
Ferðamálaráðherrann, Kyaw Ba,
herforingi, brosir þegar hann er
spurður um meint mannréttindabrot.
„Við bjóðum ferðafólki að koma svo
það geti séð að hér ríkir pólitískur
stöðugleiki og að mannréttindi eru
virt,“ segir hann.
„Það er enginn neyddur til erfiðis-
vinnu. Það er gömul hefð í Myanmar
að fólk gefur vinnu sína í þróunar-
verkefni. Hvað fangana varðar, þá
erum við ekki að neyða þá. Þeir njóta
forréttinda. Ef þeir vinna að þessuni
verkefnum er refsing þeirra milduð.“
Sækjast eftir
erlendu fjármagni
Búrma, sem áður var bresk ný-
lenda, var lokað frá umheiminum
eftir byltingu Ne Wins, hershöfð-
ingja, 1962. Nú fara herstjórarnir á
fjörurnar við erlenda fjárfesta og
ferðafólk fær að vera í mánuð. Ekki
er langt síðan ferðamenn gátu einug-
is dvalið í viku.
Ferðafólkið verður ekki vart við
alræði hersins. Öryggislögreglan
lætur lítið fyrir sér fara í helstu
bæjum, og treystir á sveitir upp-
ljóstrara sinna og leyniþjónustu-
manna
Leiðtogi andófsmanna, Aung San
Suu Kyi, var látin laus nú í mánuðin-
um, eftir að hafa verið í stofufang-
elsi í sex ár. Erlendir stjórnarerin-
drekar benda hins vegar á, að aðrir
pólitískir fangar séu ennþá í haldi.
Insein fangelsið, þar sem flestir
dvelja, er einungis fáa kilómetra frá
flugvellinum í Rangoon. Alþjóða-
nefnd rauða krossins hefur yfirgefið
Búrma vegna þess að herstjórarnir
vilja ekki leyfa fulltrúum hennar að
heimsækja fangana. <
„Aung San Suu Kyi er frjáls, en
aðrir landsmenn eru ennþá í stofu-
fangelsi," sagði taugaveiklaður and-
ófsmaður við fréttamann The Daily
Telegraph.
Ferðamálaráðherrann viðurkennir
að ár heimsóknar til Myanmar snú-
ist einungis um peninga. „Okkur
vantar gjaldeyri,“ sagði hann.
„Landið er fátækt.“ Markið var sett
við hálfa milljón ferðamanna.
Hvað er Myanmar?
En vandinn við opinbert ár heim-
sóknar til Myanmar er sá, að fólk á
Vesturlöndum veit fæst hvað My-
anmar yfírleitt er. Árið 1989 aflagði:
herstjórnin nöfn á borð við Búrma,
Rangoon og Irrawaddy, og setti í
staðinn Myanmar, Yangon og Ayey-
arwaddy.
En erlendir fjármálamenn ætla að
næla sér í bita. Stór samningur við
fyrirtæki í London, Sea Containers,
hljóðar upp á 35 milljónir dollara.
Fyrirtækið hefur tekið að sér
skemmtisiglingar á Irrawaddy og
rekstur fljótandi hótels í Rangoon.
Leiðsögumenn munu einungis tala
um menningu og sögu - ekki orð
um stjórnmál.
„Ef Ár heimsóknar til Myanmar
tekst vel verður það sigur fyrir her-
stjórnina," sagði andófsmaður í
Mandalay. „Okkur þætti ánægjulegt
ef ferðamenn kæmu og nytu þess
sem landið hefur upp á að bjóða, en
ekki núna. Peningarnir sem þeir
eyða munu ekki gera annað en að
vökva illgresi."