Morgunblaðið - 19.09.1995, Side 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
j'MP ** SAGTAÐfBGUf&tNl J 5£ JAPH WÓPOGS&MptgJ Atz/ Húe> ETN t
rn *
Jjyj (° V) n h. rf o°0o)\ o ° *)
ll i i5
Grettir
Tommi og Jenni
BREF
TEL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylgavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Borgar stj órinn
talar einfald-
lega út í bláinn
Frá Páli Erni Líndal:
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík
hefur sýnt af sér dæmafáa sjálfs-
hreykni og rökleysu í málflutningi
sínum af ýmsu tilefni að undan-
fömu. Frammi fyrir myndavélum
sjónvarpsstöðvanna minnir þessi
fýrrum forystukona Kvennalistans
einna helst á kokhrausta og tann-
hvassa tengdamömmu, sem ríkir
yfir heimilisfólki sínu í Ráðhúsinu
og keyrir það áfram með góðu eða
illu enda í nokkuð styrkri stöðu til
þess arna.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var
ötul við að taka undir með óánægju-
kómm þjóðfélagsins í stjórnarand-
stöðu sinni í borgarstjórn og á Al-
þingi forðum daga. Hún gat gert
sér fiest að hneykslunarefni og hef-
ur vafalaust náð eyrum margra út
á það. En það eru breyttir tímar.
Nú er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
orðin leiðtogi í höfuðborg landsins
og á að sýna hvað í henni býr og
hvemig hún ætlar að láta hug-
myndafræðina, sem hún þykist hafa
verið að berjast fyrir undanfarinn
áratug verða að veruleika. Litlar
hafa efndimar orðið. Þegar eftir
þeim er gengið þykir henni henta
að bera við erfiðri stöðu borgar-
sjóðsins. Siðustu dæmi sanna, að
borgarstjórinn hefur ekkert nýtt
fram að færa eins og deilan um
hækkun fargjalda SVR ber vott um.
En mörg er samt matarholan hjá
borgarsjóðnum. Það er ekki tóma-
hljóð í kassanum, þegar ráðin er
hver silkihúfan ofan á aðra í emb-
ættismannakerfi Ráðhússins, þegar
farið er út í verklegar framkvæmd-
ir, sem borgarstjóranum eru þókn-
anlegar eða þegar skipulagsnefndin
þeysir í lystireisu um Bretlandseyj-
ar, sem kostar milljónir króna.
Borgarstjórinn lét sig ekki muna
um að reiða fram tvær milljónir
króna til styrktar einni söngleiks-
uppfærslu sumarsins, sem helst
verður í minnum höfð fyrir klúryrði
og annan dónaskap. Og ekki skort-
ir peninga, þegar borgarstjórinn
ætlar að bregða sér bæjarleið og
halda í heimsókn til Peking með
maka sinn og sex manna föruneyti
úr borgarkerfinu eins og nú stendur
til. Hvað kostar það?
Borgarstjórinn taldi sig þess
umkominn að senda forseta Islands
tóninn í fréttaviðtölum eftir nýaf-
staðna Kínaför forseta. Eftir borg-
arstjóranum er haft að hún muni
nú ekki liggja á skoðunum sínum
við Kínveija þó að forseti Íslands
hafí gert það. Ja, miklir menn erum
við, Hrólfur minn. Þessi smekkleysa
verður í minnum höfð og er til
marks um sérstæðan valdahroka
húsfreyjunnar { Ráðhúsinu, sem
hróðug lýsir því í hveiju tímaritsvið-
talinu af öðru, að hún sé í mikilli
„valdastöðu“ og njóti þess að hafa
áhrif. Allt er þetta svo gegnsætt
og pínlegt að maður undrast að
vera staddur á ofanverðri öld lýð-
ræðis og upplýstrar umræðu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hef-
ur til þessa notið þess að fjölmiðlar
hafa farið um borgarmálin með
silkihönskum í borgarstjóratíð
hennar. Vinstrisinnar á Ríkisút-
varpinu og hjá dagblöðunum áttu
ekki lítinn þátt í því að koma henni
til valda með því að misnota að-
stöðu sína. Úr þeirri átt er því ekki
að vænta ýkja hlutlægrar gagnrýni
á störf borgarstjómar og meirihluta
R-listans meðan Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir situr í Ráðhúsinu. Þar
hefur þagmælsku verið heitið. Má
furðu gegna, hvað borgarstjórinn
hefur getað óáreittur talað út í
hött við fjölmiðlunga sína um borg-
armálefnin.
Dæmi: Aðhald I fjármálum var
eitt helsta stefnumið R-listans.
Fjárhagsáætlun yfirstandandi árs
er hins vegar löngu brostin. Það
var tekið 700 milljón króna lán nú
á miðju sumri og skuldasúpan vex.
En hvaða skýringar gaf borgar-
stjórinn á ástæðum þessarar láns-
fjárþarfar? Jú. Hún sagði „einfald-
lega“ mikið sparast með þessu því
að lánið kæmi í staðinn fyrir yfir-
drátt í Landsbankanum, sem væri
dýrara lánsform! Og þetta er tekið
gott og gilt í fjölmiðlaflórunni ís-
lensku. Framúreyðslan og kolvit-
laus áætlunargerð er ekki nefnd á
nafn.
Og hver hefur svo sem spurt
hvað dvelji úrræðin í atvinnumálun-
um, sem borgarstjórinn var búinn
að lofa í kosningabaráttunni? At-
vinnuleysi hefur aldrei verið meira
í Reykjavík en einmitt nú, þegar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er búin
að vera á sínum „valdastóli“ í rúmt
ár.
Og síðasta tilvitnun í borgarstjór-
ann er eftirtektarverð. Hún þiggur
samkvæmt frétt Morgunblaðsins
sömu laun og forsætisráðherrann
fær á hveijum tíma. Eftir að Kjara-
dómur ákvað hækkanir á kaupi
ráðherra var eftir því innt af hálfu
blaðamanns, hvort borgarstjórinn
ætlaði að taka sömu hækkun á sín
laun. Því álitaefni skaut Ingibjörg
Sólrún til Davíðs Oddssonar, sem
„oddvita" síns í þessu máli. Hún
bíður þess að sjá, hvað hann ætlar
að gera. Öðru vísi mér áður brá.
Hvar er nú komið röggsemi og
vandlætingu borgarstjórans? í ein-
hveiju sýndarmennskukastinu fyrir
nokkrum mánuðum lækkaði þessi
sami borgarstjóri laun sín einhliða
um 5%. Þá þurfti hún ekki að leita
aðstoðar Davíðs Oddssonar frekar
en hún þarf þess nú. Það er óþarfí
fyrir borgarstjórann að skýla sér á
bak við forsætisráðherrann. Hún
getur ákveðið þetta sjálf enda er
hún „kona, sem hefur völd“, svo
vitnað sé í hana sjálfa.
PÁLLÖRN LÍNDAL,
Laugamesvegi 62.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.