Morgunblaðið - 19.09.1995, Blaðsíða 42
" 42 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1995
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Rosenthal _ þegnr \>ú vcU,r gi°f
Glæsilegar gjafavörur
Matar- og kaffistell í sérflokki
Verð við nllrn hæfi Laugavegi 52, sími 562 4244.
Næði -► orka -» jafnvægi
Hvernig eykur þú orku þína
Lærirað vinna úr neikvæðum tilfinningum
og nota jákvæöa hugsun *StreitulQSun
Helgarnámskeið á Snæfellsnesi
•22. sept.-24. sept. • 29. sept.-1. okt. •°rfcu*^U9sun l
Gisting, fullt fæði og námskeiö: 17.400 kr.
Leiöbeinandi: Bryndís Júlíusdóttir, kinesiolog.
FERÐAÞJÓNUSTA BÆNDA
símar 562 3640, 562 3643, fax 562 3644.
ÍT] Stjórntækniskóli íslands
1 UötAoK'il/La Q
Höfðabakka 9.
Sími 567 1466
MARKAÐSFRÆÐI
Stjórntækniskóli íslands
gefur þér kost á beinskeyttu 250 stunda námi í
markaðsfræðum. Náminú er ætlaó að koma til
móts við sívaxandi kröfur atvinnulífsins um
hæfari starfskrafta. Námið er ætlað fólki með
góða almenna menntun, starfsreynslu í viðskip-
talífinu eða þeim sem vilja bæta við sig þekkingu
og fá innsýn í heim markaðsfræðanna.
Markmið
námsins er meðal annars að þátttakendur tileinki
r markaðshugsun (íslensku viðskipta- og
ifnalífi og nái þannig betri árangri.
Námið
er í formi fyrirlestra og verkefnavinnu og tekin er
próf í einstökum greinum.
Kennarar
eru allir háskólamenntaðir og eiga að baki góða
/nslu við kennslu og í viðskiptalífinu.
iðsfræöi.
Sölustjórnun og
sölutækni.
Vöruþróun.
Vörustjómun.
Stjórnun og sjálfstyrking.
Auglýsingar.
Tölvunotkun í
áætlanagerö.
Viöskiptasiöferöi.
Ekkí hika lengur
: ;■ í 'j * £ :■“.: Jíií ..ví ■•■.; fe; VVísVVrVví:
Starfsmenntun. Fjárfesting til framtíðar.
Sími 567 1466. Opið til kl. 22.00.
blabib
- kjarni málsins!
ÞESSAR glaðlegn stúlkur héldu tombólu og basar
nýverið og söfnuðu 1.768 krónum sem þær gáfu
í Hjálparsjóð Rauða kross íslands. Stúlkurnar
heita Guðrún Arna Jóhannsdóttir og Ragnhildur
Hafsteinsdóttir.
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu hlutaveltu á dög-
unum til styrktar Rauða krossi íslands í söfnun-
inni „Konur og börn í neyð“. Þær söfnuðu 2.949
krónum. Stúlkurnar eru f.v. í aftari röð: Selma
Ósk Höskuldsdóttir, Steinunn B. Hrólfsdóttir og
Sonja B. Sigurðardóttir og í fremri röð f.v. Sunna
Lind Höskuldsdóttir og Erla Gerður Viðarsdóttir.
ÞESSI duglegu börn héldu hlutaveltu á dögunum
og söfnuðu 1.689 krónum til styrktar söfnuninni
hjá Rauða krossi íslands, Konur og börn í neyð.
Börnin heita Soffía Dóra Jóhannsdóttir, Sigurjón
Jóhannsson og Stefán Árni Jónsson.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Kvennaskóla-
nemendur
takið eftir!
RÍKEY Ingimundardótt-
ir myndlistarkona vili
koma því á framfæri til
nemenda úr Kvennaskól-
anum, sem hún kenndi í
fyrra, að þeir eiga ennþá
talsvert af dóti hjá henni,
t.d. mjög fallegar grím-
ur. Þeir geta sótt það í
Súðarvog 36 á fimmtu-
dögum frá kl. 9-12.
Hálsmen
tapaðist
GULLHÁLSMEN með
gotnesku letri og merkt
með stöfunum V.G.
týndist annaðhvort við
sundlaugina í Breiðholti
eða í Hafnarfirði, líklega
síðustu helgina í júlí.
BBIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
EFTIR útspilið eru tíu slag-
ir tilbúnir til töku í þremur
gröndum, en þetta er tví-
menningur, svo hver yfir-
slagur er gulli betri.
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ G
▼ KG2
♦ 107654
♦ K654
Suður
♦ ÁK73
¥ ÁD84
♦ Á82
♦ Á2
Vestur Norður Austur Suður
- Pass Pass 2 grönd
Pass Pass 3 grönd Pass Pass
Útspil: spaðasexa, fjórða
hæsta.
Blindur eignast fyrsta
slaginn á spaðagosa, og nú
er það spuming: Hvemig á
suður að reyna við ellefta
slaginn?
Hann spilar auðvitað
tfgli, því þar fæst ellefti
slagurinn fyrirhafnarlítið ef
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 581-2119.
Fundarlaun.
Gæludýr
Kettlingur
fannst
SVARTUR hálfloðinn
kettlingur ca íjögurra
mánaða fannst við
Framnesveg á fimmtu-
dagskvöld. Hann er
meiddur á fæti. Uppl.
gefnar í síma 551-3959.
Kettlingur í
óskilum
LÍTILL, móbröndóttur
kettlingur, aðeins nokk-
urra vikna, elti mig frá
Freyjugötu að Bjarnar-
stíg sl. fímmtudag. Eig-
andi getur vitjað hans í
síma 562-6526.
liturinn brotnar 3-2. Hið
sama er upp á teningnum
ef austur á mannspil stakt,
en það er heldur ósennilegt
í ljósi þess að vestur virðist
eiga langlit í spaða. Hitt er
mun líklegra að vestur sé
stuttur í tígli. Er eitthvað
til ráða ef vestur á einspil
f tígli?
Norður
♦ G
V KG2
♦ 107654
4 K654
Vestur Austur
♦ D108642 ♦ 95
V 653 11 V 1097
♦ G ♦ KD93
* D107 Suður ♦ G983
■ * ÁK73
V ÁD84
♦ Á82
♦ Á2 •
Spilið kom upp í al-
heimstvímenningnum síðast-
liðið vor. Fyrir tíu slagi voru
gefin 44 stig af 100, en 89
fengust fyrir að vinna fimm
grönd. Galdurinn liggur í
tígulíferðinni, að spila út
tíunni í öðrum slag! Þannig
ræður sagnhafi við níuna
blanka í vestur, auk þess sem
austur gæti freistast til að
leggja á með tvö mannspil
og níuna: KG93, DG93 eða
KD93.
Víkveiji skrifar...
KVIKMYNDIN um Jón Leifs
hefur að vonum vakið mikla
athygli enda hefur verið vandað til
hennar með sérstökum hætti. Eitt
af því, sem vekja mun athygli
þeirra, sem sjá kvikmyndina er leik-
ur Ruthar Olafsdóttur, sem leikur
Annie, fyrstu eiginkonu Jóns Leifs.
Svo vill til, að þessi glæsilega
leikkona er dótturdóttir annars
frumkvöðuls íslenzks tónlistarlífs,
dr. Victors Urbancic. Þeir sem
komnir eru yfír miðjan aldur muna
áreiðanlega eftir þessum Austur-
ríkismanni, sem fluttist hingað til
lands eins og nokkrir aðrir gyðing-
ar, sem áttu drjúgan þátt í að hefja
tónlistarlíf á Islandi til vegs og
lyftu þar Grettistaki ásamt ís-
lenzkum frumkvöðlum á borð við
Pál ísólfsson, Jón Leifs og Ragnar
í Smára.
xxx
A
AUNDANFÖRNUM vikum
hafa birzt hér í Morgunblaðinu
athyglisverðar greinar um baráttu
bandarískra stjórnvalda gegn tób-
aksreykingum og áróðri hinna al-
þjóðlegu tóbaksfyrirtækja. í fyrra-
dag var skýrt frá baráttu banda-
rísks lögmanns, sem eyddi mestum
hluta ævinnar í baráttu á vegum
tóbaksfyrirtækjanna en hefur nú
snúið við blaðinu, þar sem hann
er að deyja úr krabbameini vegna
sígarettureykinga.
Er ekki kominn tími til, að ís-
lenzk stjómvöld snúi við blaðinu,
hætti að nota sölu á þessu fíkni-
efni til þess að raka saman fé í
ríkissjóð en hefji í þess stað ein-
beittar og ákveðnar aðgerðir til að
koma vitinu fyrir fólk svo að það
hætti reykingum og þá ekki sízt
unga fólkið, sem allt bendir til að
séu helztu reykingamennirnir nú
til dags?
XXX
VÍKVERJI tekur undir með
talsmönnum Verðbréfamark-
aðar íslandsbanka hf., sem hafa
gert athugasemdir við auglýsingar,
þar sem birtar eru tölur um ávöxt-
un ákveðinna sjóða yfir þriggja
mánaða tímabil. Slík auglýsing
birtist fyrir skömmu frá Kaupþingi
hf. Það er út af fyrir sig rétt hjá
talsmanni Kaupþings, sem fram
kom hér í blaðinu sl. laugardag,
að ávöxtun langt aftur í tímann
segir ekki endilega alla söguna um
möguleika á ávöxtun í framtíðinni.
Það hlýtur hins vegar að gefa betri
vísbendingu um ávöxtunarmögu-
leika að horfa tólf mánuði aftur í
tímann en þrjá mánuði.
Fjármálafyrirtækin hljóta að
leggja áherzlu á trúverðugan mál-
flutning í auglýsingum sínum, því
að fá fyrirtæki þurfa jafnmikið á
trausti að halda og einmitt þau.
xxx
MORGUNBLAÐIÐ hefur átt í
erfíðri baráttu við suma aug-
lýsendur, sem virðast hafa meiri
áhuga á að birta auglýsingatexta
á ensku en á íslenzku. T.d. birtist
auglýsing hér í blaðinu á laugar-
dag, þar sem m.a. sagði: „Nú er
allt Sixties". Hvað skyldi þetta
þýða?
Aðalatriði málsins er þó, að birt-
ing auglýsinga á erlendu tungu-
máli er lagabrot. í samkeppnislög-
unum er beinlínis bannað að birta
auglýsingar á öðru tungumáli en
íslenzku.