Morgunblaðið - 19.09.1995, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍM 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG WUgCENTRUM.lS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Innflutningnr á
unnuni kjötvörum
Sjö vilja
flytja inn
61 tonn
SJÖ AÐILAR skiluðu inn tilboðum
til innflutnings á samtals 61 tonni
af unnum kjötvörum. Ráðgjafa-
nefndin, sem fjallar um innflutning
á búvörum, kemur saman til fundar
í dag og tekur afstöðu til tilboðanna.
Heimilt er að flytja inn 26 tonn
af unnum kjötvörum á lágum tollum,
m.a. nautakjöt, soðið kalkúnakjöt,
svínakjöt, soðna hamborgarahryggi
og dilkakjöt. Upphaflega óskuðu
c~tolf aðilar eftir að flytja inn um 150
tonn af kjöti. Þetta voru Lyst hf.,
Gunnar Kvaran hf., Hagkaup, Nóa-
tún, SS, Karl K. Karlsson, Bein
dreifing hf., íslenskt franskt hf.,
Rolf Johansen, Dreifing hf., Stjarn-
an hf. og Kjötumboðið hf.
Þar sem sótt var um miklu meira
magn en heimilt er að flytja inn,
ákváðu stjórnvöld að óska eftir til-
boðum frá þessum aðilum í innflutn-
inginn. Sjö aðilar skiluðu inn tilboð-
um. Ekki fengust upplýsingar í gær
hvaða aðilar þetta eru né hvers
eðlis tilboðin eru.
Ráðgjafanefndin, sem fjallar um
innflutning á búvörum, en í henni
sitja fulltrúar frá viðskiptaráðu-
neyti, fjármálaráðuneyti og landbún-
aðarráðuneyti, kemur saman til
fundar í dag og tekur afstöðu til
tilboða. Tilboðin eru mismunandi
hvað varðar magn, verð og tegundir.
Samkvæmi á
verkstæðinu
LÖGREGLAN stöðvaði óleyfi-
legt samkomuhald í iðnaðar-
.húsnæði við Súðarvog aðfara-
nótt sunnudags. Þar hefur lög-
reglan áður þurft að leysa upp
samkvæmi.
Þegar lögreglan kom á vett-
vang, um kl. 2.40 um nóttina
var seldur aðgangur að dans-
leik, sem haldinn var innan um
jámarusl í húsnæði, sem notað
er til viðgerða í björtu. Ekki var
selt áfengi á staðnum, en ein-
hveijir gestanna voru undir
áhrifum. Þeir voru flestir á
aldrinum 16-20 ára og vísaði
lögreglan þeim frá.
Súðvíkingar óska eftir að Ofanflóðasjóður kaupi hús í gömlu Súðavík
Áætlaður kostnaður við
kaupin um 700 milljónir
ísafirði. Morgunbiaðið.
HREPPSNEFND Súðavíkurhrepps ákvað á fundi
sínum í gærdag að óska eftir því við Ofanflóða-
sjóð og Almannavarnaráð ríkisins að farið verði
út í kaup á húseignum í núverandi byggð í Súða-
vík í stað þess að byggja varnarmannvirki á sama
stað. Við ákvarðanatökuna lá frammi skýrsla
Hnits hf. í Reykjavík um kostnað vegna bygging-
ar varnarmannvirkja annars vegar og uppkaup
húseigna hins vegar. Einnig lá frammi greinar-
gerð þeirra lögfræðinga sem hreppurinn réð til
að gera áætlun um kaup á húseignum.
Að sögn Jóns Gauta Jónssonar, sveitarstjóra í
Súðavík, var það sammála álit hreppsnefndar-
manna að mæla með því við Ofanflóðasjóð að
húseignir í núverandi byggð verði keyptar upp
þar sem varnir þykja ekki fýsilegur kostur vegna
kostnaðar og ýmissa annarra atriða. „Kostnaður
við varnirnar er áætlaður frá 694 milljónum króna
upp í 751 milljón, en kostnaður vegna uppkaupa
húsa er áætlaður 700 milljónir króna. Þær varnir
sem lagt er til að byggðar verði samkvæmt skýrsl-
unni eru ófullnægjandi vegna þess að í þeim er
gert ráð fyrir að snjóflóði sé hleypt í gegnum
þorpið á tveimur stöðum. Húsakaupin með vörn-
um fyrir Frosta hf. og framlagi Ofanflóðasjóðs
vegna gatnagerðarframkvæmda í nýrri byggð eru
um 700 milljónir. Því er það miklu hagkvæmari
kostur,“ sagði Jón Gauti í samtali við blaðið í
gærkvöldi.
Hagstæðara að kaupa húsin
Á fundi hreppsnefndarinnar var samþykkt eft-
irfarandi ályktun til Almannavarnaráðs ríkisins:
„Hreppsnefnd Súðavíkurhrepps samþykkir að
fara þess á leit við Almannavarnir ríkisins og
félagsmálaráðherra, fyrir hönd Ofanflóðasjóðs,
að húseignir í Súðavík, aðrar en húseignir Frosta
hf., verði keyptar upp þannig að flytja megi íbúða-
byggð alla á nýjan stað. Þess er einnig farið á
leit við ofangreinda aðila að byggður verði varnar-
garður vegna húseigna Frosta hf.“
í aðalrökstuðningi með greinargerðinni segir
meðal annars að af samanburði á ofannefndum
gögnum megi ráða að munur á kostnaði við kaup
á húsum og hlutavörnum, sem þar er gerð tillaga
um, sé óverulegur og í flestum tilfellum sé hann
hagstæðari kaupum á húsum sem lausn frekar
en vörnum. „Ég á von á því að tillaga okkar
verði samþykkt og ég geri mér mjög bjartar von-
ir um að svar geti legið fyrií frá Ofanflóðasjóði
fyrir næstu mánaðarmót. I framhaldi af því hell-
um við okkur af krafti í samningagerð við fólk
um uppkaup á húsum. Það er það sem allir eru
að bíða eftir. Þó svo að sú stund komi mun síðar
en menn vonuðu, þá er hún engu að síður gleði-
stund,“ sagði Jón Gauti Jónsson, sveitarstjóri í
Súðavík.
■
Morgunblaðið/Eggert Akerlie
Flugvél kemur
undanjökli
m Fimm lífeyrissjóðir sameinast í einn
Veruleg hagræðing
fylgir sameiningunni
NÆSTSTÆRSTI lífeyrissjóður á
íslandi verður til þegar gengið
-*verður frá sameiningu fimm líf-
eyrissjóða 16. október næstkom-
andi. Hér er um að ræða lífeyris-
sjóði verkalýðsfélaganna Dags-
brúnar og Framsóknar, Iðju, Hlífar
og Framtíðarinnar í Hafnarfírði,
Sóknar og Félags starfsfólks í veit-
ingahúsum. •
Heildarskuldbindingar hins nýja
Tifeyrissjóðs verða tæpir 23 millj-
arðar króna og verður aðeins einn
lífeyrissjóður, 'Lífeyrissjóður
verslunarmanna, stærri.
Að sögn Halldórs Björnssonar,
varaformanns Dagsbrúnar, hefur
þessi sameining verulegt hagræði
fyrir sjóðina í för með sér m.a.
vegna minni rekstrarkostnaðar.
Gert sé ráð fyrir því að skrifstofu-
hald þeirra verði sameinað frá 1.
janúar næstkomandi. Hann segir
að sjóðirnir hafi verið gerðir upp
og sé staða þeirra mjög áþekk.
Sameiningin muni því ekki leiða
til neinnar skerðingar á lífeyris-
réttindum. Halldór segir að þegar
hafi verið gengið frá ráðningu
framkvæmdastjóra hins nýja sjóðs
og muni Karl Benediktsson, núver-
andi framkvæmdastjóri lífeyris-
sjóðs Dagsbrúnar og Framsóknar,
gegna þeirri stöðu.
■ Nýi sjóðurinn.../14
FÉLAGAR í Hjálparsveit skáta
gengu fram á flugvélarflak í jaðri
Gígjökuls, sem gengur norður úr
Eyjafjallajökli, um síðustu helgi.
Flakið er af bandarískri björgun-
arvél af gerðinni Grumman Alb-
atross. Hún fórst í maí árið 1952.
í flugvélinni voru fimm menn.
Einn fórst þegar vélin brotlenti á
jöklinum, en hinir fjórir urðu úti
ájöklinum.
Björgunarvélin var á leið frá
Keflavíkurflugvelli austur á land
til að aðstoða bilaða flugvél. Hún
komst aldrei alla leið. Leitað var
að flugvélinni við erfiðar aðstæð-
ur og munaði litlu að sú leit kost-
aði fleiri mannslíf því að björgun-
arsveit frá varnarliðinu Ienti í
miklum hrakningum á jöklinum.
íslenskir björgunarmenn komu
þeim til hjálpar. Flugvélin fannst
eftir þriggja daga leit og hjá henni
eitt lík. Arið 1964 fannst eitt lík
til viðbótar neðarlega í Gígjökli og
árið 1966 fundust líkamsleifar
þeirra þriggja sem enn voru
ófundnir á svipuðum slóðuin. í kjöl-
far þessarar miklu leitar var Flug-
björgunarsveit Islands stofnuð.
Flak flugvélarinnar er illa farið
enda hefur það borist með jöklin-
uimÞað er núna líklega eina 800
ffletra neðan við þann stað sem
vélin brotlenti. Áformað er að
hreinsa brakið af jöklinúm. Fyrir
þremur árum fóru félagar úr
Flugbjörgunarsveitinni upp á jök-
ulinn og hreinsuðu brak úr vélinni
sem þá hafði komið í ljós.