Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1995 23 AÐSENDAR GREINAR 69% vilja fella niður skylduáskrift að RÚV ÞAÐ ER ljóst að krafa 17.000 manna er orðin að kröfu 69% þjóð- arinnar. Þrátt fyrir þessa stað- reynd eru til menn sem statt og stöðugt trúa því að þeir einir geti með tilskipunum og lagasetningu stjórnað hvað sé á boðstólum fyrir allan almenning. Það er þeirra staðfesta trú að þeir séu að gera öllum gott, með því að hafa vit fyrir almenningi og velja fyrir hann það sem er á boðstólunum hveiju sinni. Lýðræði er það að lýðurinn ræður innan þeirra siðferðismarka sem má setja til að tryggja að hver einstakur maður geti með góðu móti talist vera fijáls. Lög eru sett til að vernda hvern ein- stakling til að hann megi dafna innan þessa lýðræðisramma sem nauðsynlegur er. En þegar lög eru andstæð vilja meirihluta þjóðar- innar og breyting á þeim brýtur ekki gegn hveijum og einum ein- staklingi, þá skal þeim breytt. Lögin eru fyrir fólkið en lög eru ekki fyrir lögin sjálf. Það eru lög í landinu sem kveða á um að allir eigendur viðtækja skuli greiða sjónvarps- og útvarpsgjald. Það er skýr vilji meirihluta þjóðarinnar fyrir því að þessum lögum skuli breytt. skoða nánar annað atriði sem Heimir fjall- ar um þegar hann seg- ir: „Einungis er á það bent, að einkareknir ljósvakamiðlar eru skuldbundnir eigend- um sínum. Útvarp og sjónvarp í almennings- þjónustu eru aftur á móti engum háð nema hlustendum sínum og áhorfendum og þeim lögum, sem þar að lúta.“ Ég fæ ekki séð að þessi skilgreining standist nema með fijálsri áskrift. Hvað hafa hlustendur og áhorfendur að segja þegar þeir geta ekki sagt upp áskriftinni? Ég vil ekki kalla þetta blindu heldur yfirsjón af jafn hæfum manni sem Heimi Steinssyni að sjá ekki hvað felst í þessum orðum hans. Þetta er í raun nákvæmlega það sama og háttvirtur alþingismaður, Tóm- as Ingi Ulrich, sagði á fundi hjá okkur: „Það er fijálst val, þið get- ið valið á hvaða sjónvarpsstöð þið stillið." Einkarekin ljósvakamiðill heldur ekki velli nema hann bjóði góða dagsskrá sem lýtur vilja þeirra sem á hana horfa. Alþingi verður að svara vilja þjóðarinnar Heimir Steinsson útvarpsstjóri svarar grein minni frá því 29. ágúst sl. með annarri þann 5. september. Ég vil nú byija á því að segja að deila okkar í samtökunum Fijálst val er hvorki við Heimi Steinsson, þann mæta mann, né starfsmenn Rúv. Deila okkar er við Alþingismenn og aðra þá aðila sem vilja viðhalda fyrirkomulagi þessu hvað varðar skylduáskriftina, gegn vilja þjóðarinnar. Reyndar vil ég þakka Heimi fyrir hreinskilni sína að viðurkenna að hann hafí áhuga á frelsi og sjálfstæði ljósvak- amiðla. Þar sem okkur greinir á um eru aðferðirnar til þess að ná þessu markmiði fram. Það er því algjörlaga óþarfa skot að talá um blindu þegar menn eru sammála um markmiðið, en greinir svo á um aðferðir. Þetta heitir á máli alþingismanna, skoðanaskipti og þykir bera vott um háttvísi. I fram- haldi af þessu má ég til með að Árni Svavarsson Útvarpsstjóri er sammála Ég er þeirrar skoðunar að einokun Rúv standi í vegi fyrir því að upp komi eðlileg samkeppni um áhorfendur. Heimir orðar þetta svona: „Fijálsir og óháðir fjölmiðl- ar eru eitthvert þýðingarmesta vopnið í höndum borgaranna í lýð- ræðisþjóðfélögum nútímans." Af lestri greinar Heimis sé ég að í raun erum við sammála um margt og skil því ekki þegar hann heldur því fram að það sjóði á mér. í grein minni 29. ágúst sl. sagði ég að menningarhlutverk Rúv væri stórlega ofaukið, ég sagði Meiríhlutinn á að ráða ferð, segir Árni Svavarsson, og nærri sjö af hverjum tíu vilja fella niður skyldu áskrift að RÚV. aldrei að þessir liðir ættu ekki heima þar. Heimir heldur áfram: „Svo er að sjá sem listaflutningur og umfjöllun um^ listir í útvarpi og sjónvarpi séu Árna Svavarssyni fullkomin andstyggð.“ Hér er Heimir að leggja mér skoðun í hug, eða að misskilja, því það má ekki taka gagnrýni mína öðruvísi en að mér fínnst þetta hlutverk Rúv vera ofmetið. Til að mynda sagðist ég alveg tilbúinn að ræða frekar þá fullyrðingu Heimis að íslensk sjónvarpsleikrit væru spjótsoddur í menningarbaráttu landsmanna. íslensk sjónvarps- leikrit fá trúlega einna mesta áhorfun alls efnis sem á annað borð er boðið upp á. Það er í sjálfu sér sérstakur viðburður þegar boð- ið er upp á þetta efni. Staðreyndin er hins vegar sú að þetta efni hefur oft á tíðum verið hálf mis- lukkað. Þessu er öðruvísi farið með útvarpsleikritin sem mörg hver hafa verið flutt í gegnum tíð- ina jafnvel margendurtekin og við góðar undirtektir. Það er einkenni- legt að á meðan á þessum skorti á sjónvarpsleikritum stendur er aðilum innan stofnunarinnar greitt í tvígang fyrir að skrifa sama leik- ritið. Hér tel ég að leikritahöfund- ar og frjálsir upptökuaðilar eigi að leggjast á eitt og framleiða efni sem þeir bjóða svo ljósvakam- iðlunum að kaupa flutningsrétt á. Hér mætti hugsa sér að styrkja- kerfi kæmi að notum til fjármögn- unar, t.d. í formi lána. Hlutverk Rúv er að koma þessu menningar- efni til áhorfenda. Þá komum við aftur að því sem ég sagði að Rúv hefði fyrst og fremst kynningar- hlutverki að gegna. Áskorun til alþingismanna Að lokum þetta: Vilji þjóðarinnar liggur fyrir, ef marka má könnun Gallups sem Rúv lét gera fyrir sig. Tæplega 70% vilja fá niðurfellingu á skylduáskriftinni. Þessu verða ráðamenn að svara með lagfæringu á útvarpslögum. Ég skora á alla þingmenn þjóðarinnar að virða vilja þjóðarinnar. Höfundur er ritari Frjáls vals. SIBS-dagurinn endurvakinn ÞEIR sem komnir eru yfir miðjan aldur muna sjálfsagt eftir SÍBS- deginum í byij- un október, þegar skólabörn gengu í hús og seldu merki og blað dagsins til stuðnings þeim sem berklaveikin - sá ægilegi vágestur - hafði náð tangarhaldi á. Hvíti dauðinn er sem betur fer að velli lagð- ur en aðrir sjúkdómar, engu betri, gerast nú áleitnir við líf okkar og heilsu og bregðast þarf við af sama myndar- skap og gert var gagnvart afleið- ingum berklanna á sínum tíma. Um næstu helgi efnir SÍBS til merkjasölu um land allt eftir langt Styrkjum Reykjalund, segir Þorsteinn Sig- urðsson, og minnir á SÍBS-dagana, 29. og 30. september og 1. október nk. hlé og hyggst með því endurvekja fjáröflunardag samtakanna sem á árum áður skilaði dijúgu fé til upp- byggingar að Reykjalundi. Vinnu- heimilið að Reykjalundi þekkja flestir, en það hóf starfsemi fyrir 50 árum að frumkvæði samtaka berklasjúklinga. Eftir að þörfin á endurhæfingu berklaveikra rénaði var á Reykjalundi tekið til-við hæf- ingu og endurhæfingu annarra sjúklingahópa sem stóðu höllum fæti. Þá þurfti til að koma margs konar nýbreytni í húsnæði og tækjabúnaði til viðbótar því sem fyrir var og ráða þurfti hóp sérfræð- inga í öðrum meinum til að sinna hinum nýju verkefnum. í dag eru á Reykjalundi 174 vist- rými og árið 1994 nutu alls 1274 sjúklingar með ýmsa sjúkdóma og fatlanir hæfingar og endur- hæfingar. Fyrir ötult starf SÍBS og með góð- um stuðningi almenn- ings hefur smám sam- an tekist að efla Rey- kjalund, auka hús- næðið, bæta búnaðinn, þróa starfið og gera það fjölbreyttara og æ umfangsmeira. Það er ekki að ófyrirsynju að Reykjalundur hefur löngum verið helsta stolt þjóðarinnar á sviði endurhæfingar, enda fagleg stjórnun og rekstur stofnunarinnar með ein- stökum ágætum. Enn er þó brýn þörf á aukinni og bættri aðstöðu á Reykjalundi, og til þess þarf peninga sem ekki verða sóttir í ríkissjóð. Nú eins og jafnan fyrr leitar SÍBS til almenn- ings um stuðning svo takast megi að sinna mun fleiri sjúkum og nýta enn betur þá góðu aðstöðu sem þegar er til. Efst á óskalistanum er fullkomin þjálfunarlaug til við- bótar við þá litlu innisundlaug sem fyrir er ásamt rúmgóðum sal til hreyfiþjálfunar. Þeir eru orðnir margir sjúkling- arnir, sem notið hafa endurhæfing- ar á Reykjalundi og þekkja af eigin raun hvers virði dvölin þar er. I framtíðinni munu einnig margir koma þangað til dvalar eftir heilsu- farsleg áföll. Gerum þeim vistina sem árangursríkasta. Kaupum merki SÍBS og stuðlum með því að áframhaldandi uppbyggingu hæf- ingar- og endurhæfingarstöðvar- innar að Reykjalundi. Sjálfboðaliðar munu verða á fjöl- förnum stöðum um land allt SÍBS- dagana 29. og 30. september og 1. október við sölu merkja og eru landsmenn hvattir til þess að bregð- ast vel við eins og jafnan áður. Höfundur er kennari. Þorsteinn Sigurðsson Kví eða ekki kví FYRIR ekki margt löngu læddist torkenni- legur dúett inn fyrir hafnargarðana í Hafn- arfírði. Hér fóru saman traustlegur dráttarbát- ur sem á eftir sér dró það sem við fyrstu sýn virtist vera sögulegar stríðsminjar. Gripur þessi sem sennilega á tilveru sína að þakka heimstyrjöldinni hinni síðari reyndist við nán- ari kynni vera svokölluð flotkví og ku vera sköp- uð af baráttuglöðum Bretum í lok þeirrar styijaldar sem áður var nefnd. Erindi þessa grá- málaða ferlíkis til Hafnarfjarðar er auðsætt og átti sér nokkurn aðdrag- anda þótt bæði meðganga og fæðing hafi tekið mun fljótar af en aðstand- endur allir höfðu getið sér til um. Það er engum blöðum um það að fletta að flotkví sem þessi getur ver- ið mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf í því bæjarfélagi sem hún er staðsett í. Um það verður ekki deilt. Hitt má aftur deila um hvort sú atvinnustarfsemi sem fyrir er þoli nábýli við athafnasemi af þessu tagi, og hvort upp geti komið sú staða að meiru verði fórnað fyrir minna. Ekki liggja fyrir, mér vitandi, neinar óyggjandi upplýsingar um hversu mikil og þá hvernig mengun geti fylgt starfsemi þeirri sem tengist flotkví þessari og því erfitt að vega það og meta hveijum stafar hætta af og hlýtur slíkt mat að verða nokk- uð tilfinningaskotið og huglægt þar til slíkar upplýsingar liggja fyrir. Hér á ég við þá mengun sem hugsanlega gæti stafað af málningarvinnu, sand- blæstri, rústbarningi og fleiru í þeim dúr. Önnur er sú mengun sem ekki verður framhjá litið,í þess orðs fyllstu merkingu, en það er sú mengun sem oftast hefur gegnt nöfnunum útlits- mengun eða sjónmengun. Seint verður bæjarbúum talin trú um að mannvirki þetta geti talist fagurt og örugglega vandfundin þau augu sem glaðst geta yfír sköpulagi og ásýnd gripsins. Því er mikils um veit að vel takist til um hvað stað- setningu varðar. Vegna þess hversu fljótt veður skipuðust í lofti hvað tilurð kvíarinnar snertir er einsýnt að hún verður fyrst um sinn að gista innan hafnargarða. Æskilegasta staðsetn- ingin væri að mínu mati innan við Norðurgarð, en sú staðsetning, skilst mér, mun kalla á dýpk- unarframkvæmdir við Norðurbakka, sem að fróðra manna sögn eru óframkvæmanlegar vegna þess hve lítið má grafa frá stálþili bakk- ans. Einnig hefur því heyrst fleygt að trygg- ingafélög væru ófáanleg til að leggja blessun sína yfir þær vistai'verur sökum ölduhæðar. Þá hafa sjónir fólks beinst að Háabakka sem tengir saman Suðurbakka (Harðbakka) og Óseyrarbryggju. Þar getur af skiljan- legum ástæðum ölduhæð aldrei orðið mikil, en aftur á móti getur öldusog og kvika orðið þar gífurleg í vestan- áttum og hafa skip sem þar hafa legið við slíkar aðstæður slitið af sér festar af sverustu gerð og mátt litlu muna að illa færi. Slík staðsetning myndi óyggjandi valda töluverðri sjónmengun þar sem kvíin myndi verða mjög áberandi og sjást víða að og óneitanlega skera sig illilega úr umhverfinu. Þá er að mínu mati einungis um einn kost eftir að ræða. Við Suðurgarð, við hið svokallaða ker, hvíla einungis og oftast nær, fyrrum stolt fley sem hætt eru að færa björg í bú og bíða hnípin og niðurlægð örlaga sinna. Þeim mætti velja annan samastað og jafnvel fjar- lægja kerið áðurnefnda og skapa svigrúm og aðstöðu fyrir flotkvína. Þar er dýpi nægjanlegt og olíuskip eru að verða harla fátíðir gestir í Hafnarfirði með tilkomu Helguvík- urhafnar. Ekki hef ég aflað mér upplýsinga um ríkjandi vindáttir í Hafnarfjarðarhöfn en einhvern veg- inn segir mér svo hugur um að þar muni aðallega ráða ríkjum sunnan- og austanstæðar áttir. Ætti það að teljast til góðra tíðinda hvað varðar hugsanlega mengun samfara starf- Erum við að fórna meiru fyrír minna, spyr Gylfi Norðdahl, sem hér fjallar um flotkví í Hafnarfirði. semi af þessu tagi, þ.e. ef um þessa staðsetningu verður að ræða. Staðsetning innan núverandi hafnargarða getur aldrei talist góð- ur kostur, og getur aldrei orðið nema tímabundin. Hefjast verður handa hið fyrsta að gera nýjan hafnargarð út í Helga- sker og ætla síðan flotkvínni ásamt óhjákvæmilegu athafnasvæði sem henni fylgir aðstöðu innan þess garðs. Drafnarslippurinn mun þá samtímis leggjast af enda tilveru- réttur hans orðinn harla bágborinn eftir að hinir svokölluðu vertíðarbát- ar tína tölunni hver á fætur öðrum og hverfa í hinn óseðjandi melting- arveg sægreifanna. Á því svæði ætti að geta orðið áframhald á segl- og smábátahöfn- inni sem fyrir er. Þau mannvirki og sú starfsemi sem þar fer fram telj- ast tiltölulega vistvæn á nútíma- mælikvarða. Og víst er það að Flens- borgarhöfn gleður augað. Hófundur er verksljóri og vara- maður í atvinnumálanefnd Al- þýðuflokksins. HUGBÚNAÐUR FYRIR WIND0WS ALHLIÐA TÖLVUKERFI 0 KERFISÞRÓUN HF. Fákateni V - Sími 568 8055 Gylfi Norðdahl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.