Morgunblaðið - 28.10.1995, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Samráð
haft við
stjórnar-
andstöðu
FORYSTUMENN stjórnarand-
stöðunnar voru kallaðir inn á
fund ríkisstjórnarinnar til að fara
yfir stöðu mála á Flateyri og þær
aðgerðir sem grípa þarf til á allra
næstu dögum. A fundinum voru
einnig forstjóri Landhelgisgæslu
og framkvæmdastjóri Almanna-
varna.
Fyrir hönd sljómarandstöð-
unnar mættu á fundinn Margrét
Frímannsdóttir, formaður Al-
þýðubandalagsins, Guðmundur
Arni Stefánsson, varaformaður
Alþýðuflokksins, Jóhanna Sig-
urðardóttir, formaður Þjóðvaka,
og Guðný Guðbjörnsdóttir, þing-
maður Kvennalistans. Guðjón
Petersen, framkvæmdastjóri Al-
mannavarna, sat einnig fundinn.
„Eg tel, út frá þeirri þekkingu
sem maður hefur á þessum at-
burðum, að menn hafi staðið sig
afar vel, bæði hvernig tekið var
á þessu af hálfu Almannavarna )
og eins rikissljómarinnar,“ sagði
Margrét Frímannsdóttir.
„A fundinum vorum við fyrst
og fremst að fara yfir stöðuna
eins og hún er í dag. Það var
rætt um að við myndum hafa
samráð áfram um hvernig staðið
verður að málum í framtíðinni,
sem skiptir verulegu máli.“
Margrét sagðist vilja fyrir
hönd stjórnarandstöðunnar koma
á framfæri þakklæti allra sem
staðið hefðu að björgunarstörf-
um og samúðarkveðjur til allra
þeirra sem ættu um sárt að binda.
Eitt flóð
gleymdist
í UPPTALNINGU í Morgunblaðinu
í gær yfir snjóflóð, sem fallið hafa
í og við Flateyri, var ekki talið með
flóð, sem féll 26. október árið 1934,
réttu 61 ári fyrr en flóðið á fimmtu-
dag. í þessu flóði fórust þrír menn.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Arni Sæberg
RÍKISSTJÓRNIN á fundi með fulltrúum stjórnarandstöðunnar og framkvæmdastjóra Landhelgisgæslunnar.
Reynslan fra Súða-
vík skípti miklu
JÓHANNES Reykdal, talsmaður
Almannavama ríkisins, segir að
björgunaraðgerðir á Flateyri hafí
gengið vel fyrir sig. Stjórnendur
björgunarstarfsins fyrir vestan og
í Reykjavík og björgunarsveitar-
menn hafí búið að reynslu frá Súða-
víkurslysinu. Þá hafi skipt miklu
máli að fjarskipti og rafmagnsmál
voru í góðu lagi.
„Það er okkar mat að björgunar-
aðgerðir hafi gengið eins vel og við
mátti búast. Það hjálpaðist margt
að, veðrið gekk niður og við gátum
notað þyrlur. Hundar og læknar
komust strax á staðinn og það held
ég að hafi skipt sköpum í þessari
leit. Fjarskipti og aðrar tengingar
við svæðið hafa verið í mjög góðu
lagi. Það var hægt að halda raf-
magni á staðnum, en þessir tveir
þættir ollu okkur erfíðleikum í
Súðavík. Jarðgöngin hjálpuðu einn-
ig mikið. Vegna þeirra var hægt
að koma björgunarliði miklu fyrr
frá ísaijarðarsvæðinu til Flateyrar
en annars hefði verið.
Það hefur ekkert komið upp sem
hægt er að segja að við hefðum
viljað gera öðruvísi. Björgunarað-
gerðir verða hins vegar skoðaðar í
heild síðar.“
Þyrlumar börðust
á móti vindinum
Jóhannes sagði að forgangsröðun
aðgerða hefði breyst þegar ljóst var
að hægt væri að nota þyrlurnar.
„Það var náttúrlega alveg á mörk-
unum að þyrlurnar gætu athafnað
sig. Það sést best á því að það tók
þyrlumar einn klukkutíma og 45
mínútur að komast frá Rifi að Flat-
eyri, en ekki nema 45 mínútur alla
leið frá Flateyri til Keflavíkur. Þetta
segir sína sögu um veðrið."
Einn af þeim sem lést í snjóflóð-
inu yfirgaf hús sitt þar sem það
var á hættusvæði samkvæmt
hættumati. Jóhannes var spurður
hvort það hættumat sem gefið væri
út fæli í sér falskt öryggi.
„Þetta hefur verið rætt og það
hefur komið fram það sjónarmið
að hættumatið sé byggt á söguleg-
um forsendum; þeim þekktu snjó-
flóðum sem hafa failið. Okkur vant-
ar samt miklu meiri heimildir um
snjóflóð til að byggja á. Við byggj-
um á svo stuttri snjóflóðasögu. Það
eina sem er öruggt er að þessi svo-
kölluðu rauðu svæði eru hættu-
svæði, en það hefur enginn sagt
með óyggjandi hætti að þau svæði
sem liggja þar fyrir utan séu ör-
ugg-“
Umtalsvert tjón þegar fé fennti á Norðurlandi
Æmar að finnast undir
fjögurra metra snjósköflum
Akureyri. Morgunblaðið.
„TJÓNIÐ er mikið en hremmingin
meiri,“ sagði Þröstur Jóhannesson,
bóndi á Gilsbakka, sem ásamt sveit-
ungum sínum var að leita að fé
sínu í snjósköflum skammt frá
bænum. Hann er með 75 ær, 38
þeirra höfðu fundist dauðar síðdeg-
is í gær og voru 5 enn ófundnar.
Ærnar voru að finnast undir allt
að fjögurra metra snjósköflum. *
Fjöldi'ljár á norðanverðu landinu
drapst í áhlaupinu sem gekk yfir
um miðja vikuna. Bændur nutu
aðstoðar björgunarsveitarmanna
við að grafa féð úr fönn, en al-
mennt voru þeir ekki farnir að taka
fé á hús þegar óveðrið skall á.
Ljóst er að tjón bænda er umtals-
vert að sögn Jóhannesar Ríkharðs-
sonar, ráðunautar hjá Búnaðarsam-
bandi Skagfirðinga, en í gær var
þó ekki að fullu vitað hversu margt
fé hafði farist í óveðrinu.
Geysilegur skaði
Um 300 fjár var á Ytri-Húsa-
bakka í Seyluhreppi en síðdegis í
gær var álitið að einungis um þriðj-
ungur þess hefði bjargast úr óveðr-
inu. „Þetta er alveg geysilegur
skaði,“ sagði Jóhannes. Hann sagði
Morgunblaðið/Kristján
FJÖLDI manns leitaði fjár sem fennt hafði á norðanverðu landinu
í áhlaupinu um miðja viku. Þeir Ingi Bjarkason, Akureyri, Ævar
Kristinsson, Miklagarði, Ármann Ólafsson, Litla-Garði, Þorvaldur
Hallsson, Ysta-Gerði, Þorsteinn Björnsson, Akureyri, Magni Kjart-
ansson, Árgerði, og Þröstur Jóhannesson, Gilsbakka, voru enn
að leita fimm kinda Þrastar síðdegis í gær, en þegar höfðu fund-
ist 38 dauðar ær í eigu hans.
að víða um Skagafjörð hefðu kindur
farist, en langmest væri tjónið á
Ytri-Húsabakka. „Bændur um allan
fjörð eru að leita og grafa fé sitt
upp úr fönn,“ sagði hann. Einnig
var í gær verið að leita kálfa sem
týnst höfðu í norðanáhlaupinu í
Skagafirði.
Mikið verk að moka
kindurnar upp
Vitað er að fjöldi kinda fórst í
Eyjafirði, en félagar í björgunar-
sveitinni Dalbjörgu í Eyjafjarðar-
sveit aðstoðuðu bændur við að
grafa upp fé í gær og þá lögðu
félagar í slökkviliðinu einnig sitt
af mörkum. Á Gilsbakka var síð-
degis búið að finna 38 dauðar kind-
ur en enn vantaði 5. Einnig var í
gær verið að leita að nokkrum
kindum á bænum Samkomugerði,
en þar höfðu 20 ær fundist dauð-
ar. -Mikið verk var að moka kind-
urnar upp, en þær hafði hrakið
undan veðri og leitað í skurði þar
sem þær fennti á kaf.
Bjargráðasjóður bætir þeim
bændum sem urðu fyrir tjóni í ham-
förunum tjónið, en þeir hafa 5%
eigin ábyrgð.
Bændur í
erfiðleikum
með fénað
Hvammstanga. Morgunblaðið.
MIKIÐ norðaustan og síðan norðan-
veður hefur gengið yfir Húnaþing
í vikunni. Talsverður snjór kom í
héraðið, færð spilltist nokkuð og
fénaður hefur hrakist og sums stað-
ar fennt. Á fímmtudag hafði póstur
t.d. ekki borist í héraðið frá því um
helgi.
Talsvert er um að bændur eigi í
erfiðleikum vegna búfénaðar, sem
óvíða var kominn í hús. Mikil bleyta
var í snjókomunni og klessist snjór-
inn því mjög í féð og torveldar því
að bera sig um. Björgunarsveitin
Káraborg hefur a.m.k. aðstoðað
einn bónda við fénað.
Slátrun tafðist
Slátrun sauðfjár er ekki lokið að
fullu á Hvammstanga. Guðmundur
Gíslason, sláturhússtjóri hjá kaup-
félaginu, sagði starfsfólk hafa
mætt nokkuð vel á miðvikudags-
morgni, en ekki náðist að flytja í
hús nema 150 fjár, en fyrir voru í
húsi um 700 fjár. Alls vinna í slátur-
húsinu um 100 manns. Margt
starfsfólk úr sveitinni hefði orðið
að gista á Hvammstanga, því ekki
hafí verið nokkurt ferðaveður.
Rafmagn hefur haldist í vestari
sýslunni, en fréttaritara hefur ekki
tekist að fá nánari upplýsingar um
hvort bilanir séu á svæðinu.
Að lokum má geta, að fréttarit-
ara þykir skammur tími síðan snjór-
inn fór úr garði han's, en hann var
fram í júníbyijun. Nú er kominn
þar mannhæðarhár skafl.
♦ ♦ ♦-----
A-Húnavatnssýsla
Miklir
fjárskaðar
Blönduósi. Morgunblaðið.
LJÓST ER að töluverðir fjárskaðar
hafa orðið í Austur-Húnavatnssýslu
í veðuráhlaupinu sem gekk yfir
landið sl. miðvikudag. Ekki er gott
að átta sig á fjölda kinda sem drep-
ist hafa en vitað er að allt að þijá-
tíu kindur á bæ hafi drepist á nokkr-
um bæjum. Skaðar virðast hafa
orðið um alla sýslu en þó virðist
við fyrstu sýn, tjón vera mest í lág-
sveitum í vesturhluta sýslunar.
Bændur hafa unnið að því hörð-
um höndum síðastliðna tvo daga
að grafa fé úr fönn og hefur tekist
að bjarga mörgum kindum. Þær
kindur sem hafa drepist hafa flest-
ar hrakist undan veðrinu og lent í
skurðum og ófærum hverskonar.
Dæmi er um að fé hafi leitað niður
í fjöru undan veðri og orðið haföld-
unni að bráð en geysilegt brim hef-
ur verið. Eitthvað er um að hross
hafi drepist í veðuráhlaupinu en um
fjölda er lítið vitað.
Öll kurl eru langt í frá komin til
grafar og óttast menn að fjöldi
kinda skipti hundruðum sem farist
hafa í áhlaupinu.
♦ ♦ ♦-----
Tófan nagaði
snoppur ánna
Innri Múla/Bardaströnd. Morgunblaðið.
BÆNDUR á Barðaströnd vantar
fé eftir óveðrið sem gekk hér yfir,
en leitað Var í gær og fyrradag.
Bóndinn á Krossi fann þijár ær í
gær og voru þær fastar í skafli, svo
aðeins hausamir stóðu upp úr. Tófa
hafði nagað á þeim snoppuna og
varð að aflífa eina.
Bændur óttast að margt fé hafi
fennt í óveðrinu, allt upp í nokkra
tugi. Tófan er hættuleg, því hún
vílar ekki fyrir sér að koma alveg
að bæjum í leit að æti. Lítið snjó-
flóð varð í hlíðinni rétt hjá Krossi
og segir Ámi Sigurvinsson bóndi
að hann óttist að fé hafi lent í flóð-
inu.