Morgunblaðið - 28.10.1995, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Höfn-Þríhyrningur hf.
Sölu 50 millj-
óna kr. hluta-
fjár nær lokið
STÆRSTUR hluti nýrra hluta-
bréfa í Höfn-Þríhyrningi hf. á
Suðurlandi að fjárhæð 50 millj-
ónir hefur verið seldur til nokk-
urra nýrra hluthafa og nemur
heildarhlutaféð nú alls 90 millj-
ónum.
Hluthafarnir hafa þegar komið
sér saman um nýja stjórn og var
það eitt fyrsta verk hennar að
ráða Gest Hjaltason, sem verið
hefur framkvæmdastjóri IKEA, í
starf framkvæmdastjóra frá og
með næstu áramótum.
Höfn-Þríhyrningur rekur þrjú
sláturhús og tvær verslanir á
Selfossi, Hellu og í Þykkvabæ.
Þar að auki er starfrækt kjöt-
vinnsla á Selfossi. Fyrirtækið hef-
ur hins vegar átt við erfiða fjár-
hagsstöðu að etja undanfarin ár
og hafði Hof sf., eignarhaldsfélag
Hagkaups, forystu um að auka
hlutaféð um 50 milljónir til að
treysta reksturinn.
Bjarni V. Magnússon, stjórnar-
formaður fyrirtækisins, sagði í
samtali við Morgunblaðið að verið
væri að skoða málin í heild í fyrir-
tækinu og reiknað með því að
gerðar yrðu áætlanir um. breyt-
ingar á rekstrinum á næstunni.
Hof og Bónus
meðal hluthafa
Hann kvaðst hins vegar ekki
geta upplýst hveijir væru helstu
hluthafar fyrirtækisins, þar sem
verið væri að ganga endanlega
hlutafjársölunni.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins keypti Hof sjálft
bréf fyrir 9 milljónir og Bónus
fyrir 5 milljónir. Ennig munu
Sjóvá-Almennar, hlutafélagið
Arðsemi hf. og fleiri aðilar kaupa
hluti í félaginu. Eldri hluthafar
eru um 150 talsins.
I stjórn Hafnar-Þríhymings
sitja auk Bjarna þeir Sigfús Ingi-
mundarson, frá Hofi sf., varafor-
maður, Tryggvi Jónsson, Jöggiltur
endurskoðandi, Helgi ívarsson,
bóndi á Hóli í Árnessýslu og
Fannar Jónasson, viðskiptafræð-
ingur og endurskoðandi á Hellu.
Vöruskiptajöfnuðurinn hagstæður um 12,9 milljarða króna
Minna
VORUSKIPTINA
VIÐ ÚTLÖND K
Verðmæti vöruút- og innflutnings
jan.- sept. 1994 og 1995
(fob virði í milljónum króna)
1994
jan.-sept.
,
%
1995 breyting á
jan.-sept. föstu gengi*
Útflutningur alls (fob) 81.658,8 85.560,3 4,8
Sjávarafurðir 63.929,5 63.232,2 -1,1
Ál 7.923,3 8.960,0 13,1
Kísiljárn 1.742,4 2.300,4 32,0
Skip og flugvélar 907,2 2.289,5 -
Annað 7.156,4 8.778,2 22,7
Innflutningur alls (fob) 65.259,1 72.718,9 11,4
Sérstakar fjárfestingarvörur 2.095,7 1.896,8
Skip 1.951,0 1.126,5
Flugvélar 105,3 728,5
Landsvirkjun 39,4 41,8
77/ stóriðju 3.676,9 4.541,9 23,5
íslenska álfélagið 3.174,5 3.972,1 25,1
íslenska járnblendifélagið 502,4 569,8 13,4
Almennur innflutningur 59.486,5 66.208,2 11,4
Olia 4.670,9 5.403,5 15,7
Matvörur og drykkjarvörur 6.910,6 7.580,4 9,7
Fólksbílar 2.617,4 3.400,1 29,9
Aðrar neysluvörur 14.198,5 14.852,3 4,6
Annað 31.089,1 35.043,9 12,7
Vöruskiptajöfnuður 16.399,7 12.841,4
Án viðskipta íslenska álfélagsins Án viðskipta íslenska álfélagsins, 11.650,9 7.853,5
íslenska járnblendifélagsins og sérstakrar fjárfestingarvöru 11.599,4 5.730,2
' Míðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog: á þann mælikvarða var meðalverð eriends gjaldeyris óbreytt
í janúar-september 1995 frá sama tima árið áður. He(Md. HAGSTOFAISLANDS
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir lítið framundan í byggingaiðnaði án stóriðjuframkvæmda
ÞÓRÐUR Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar, telur að ef ekki komi
til neinna framkvæmda vegna stór-
iðju þá verði ekki miklar breytingar
í umhverfi byggingaiðnaðarins á
næstu árum. Gildi þá einu hvort ein-
hveijar breytingar verði gerðar á
stefnu stjórnvalda í fjárfestingu.
Þetta kom fram í erindi hans á Mann-
virkjaþingi, sem haldið var á Grand
Hótel í gær.
í erindi sínu sagði Þórður jafn-
framt að þrátt fýrir það að gert
væri ráð fyrir vaxandi fjárfestingu á
næsta ári mætti byggingariðnaður-
inn búast við minni umsvifum á
Aukinríkis-
umsvif óráðleg
næsta ári vegna samdráttar í opin-
berum framkvæmdum og minni fjár-
festinga í íbúðarhúsnæði.
Þórður sagði það ekki vera æski-
legt að hið opinbera færi að auka
framkvæmdir sínar í ljósi þess hvern-
ig horfi í byggingariðnaði. „Ástæðan
er einfaldlega sú að eins og nú horfir
í þjóðarbúskapnum og opinberum
fjármálum er ekki svigrúm fyrir
auknar framkvæmdir á vegum hins
opinbera. Það er einkum tvennt sem
mælir á móti slíku. Annars vegar
myndi það stefna afgangi af við-
skiptajöfnuði í tvísýnu og hins vegar
myndi það líklega halda raunvöxtum
tiltölulega háum sem hefði óhagstæð
áhrif á fjárfestingu atvinnuveganna
og húsbyggjenda," sagði Þórður.
Hann benti hins vegar á þann
möguleika að hið opinbera gæti dreg-
ið úr neyslu- og tilfærslugjöldum og
þannig skapað svigrúm til aukinna
framkvæmda.
Þá taldi hann skynsamlegt fyrir
hið opinbera að draga úr opinberum
framkvæmdum ef til stóriðjufram-
kvæmda kæmi hér á landi, til þess
að draga úr þensluáhrifum vegna
þeirra.
verðmæti
• *
sjavar- g
afurða
FLUTTAR voru út vörur fyrir
85.6 milljarða króna en inn fyrir
72.7 milljarða fob. fyrstu níu mán-
uði ársins. Afgangur var því á
vöruviðskiptunum við útlönd sem
nam 12,9 milljörðum en á sama
tíma í fyrra voru þau hagstæð um
16,4 milljarða, skv. tilkynningu
Hagstofunnar.
Fyrstu níu mánuði þessa árs var
verðmæti vöruútflutningsins 5%
meira á föstu gengi en á sama
tíma árið áður. Sjávarafurðir voru
74% alls útflutningsins og var
verðmæti þeirra 1% minna en á
sama tíma árið áður. Þá var verð-
mæti útflutts áls 13% meira en á
sl. ári og verðmæti kísiljárns tæp-
lega þriðjungi meira.
Verðmæti fólksbíla 30% meira
Verðmæti vöruinnflutningsins
fyrstu níu mánuðina var 11%
meira á föstu gengi en á sama
tíma árið áður. Innflutningur sér-
stakrar ijarfestingarvöru (skip,
flugvélar, Landsvirkjun), innflutn-
ingur til stóriðju og olíuinnflutn-
ingur er jafnan mjög breytilegur
frá einu tímabili til annars. Að
þessum liðum frátöldum reynist
annar vöruinnflutningur hafa orð-
ið 11% meiri á föstu gengi en á
sama tíma árið áður. Þar af jókst
innflutningur á matvöru og
drykkjarvöru um 10%, fólksbíla-
innflutningur jókst um 30%, inn-
flutningur annarrar neysluvöru
var 5% meiri en á sama tíma árið
áður en innflutningur annarrar
vöru jókst um 13%.
í september sl. voru fluttar út
vörur fyrir 10,0 milljarða kr. og
inn fyrir 7,0 milljarða fob. Vöru-
skiptin í september voru því hag-
stæð um 3,0 milljarða kr. en í
september 1994 voru þau hagstæð
um 3,1 miljarð kr. á föstu gengi.
í dag fagna Tékkar
þj óðhátíðardegi
Tékkneska lýðveldisins
Sendiherra Tékkneska lýöveldislns á Islandi meö aösetur
í Noregi, Tomás Pstross, vill nota tækifæriö og óska
öllum tékkneskum samlöndum sem búa á íslandi, til
hamingju meö daginn.
Tékkneska sendiráöiö í Osló vill treysta enn frekar
tengslin viö fólk af tékkneskum uppruna sem býr
á íslandi. Þeim sem hafa áhuga á þessum máh er
vinsamlegast bent á að hafa samband viö ræöis-
mann Tékkneska lýöveldisins á íslandi, Jón Ólafsson,
Sævarhöföa 4. Sími: B87 3000. Pax: 568 0645.
Velvyslanee Öeské republiky v Nórsku a na Islandu Tomáð
Pstross má öest poprát u prílezitosti státního svátku Öeské
republiky 28. fjjna vse nejlepsí öeským krajanúm zijícím
na Islandu. Soucasné tímto dává na védomí, ze Öeské
velvyslanectví se sídlem v Oslo je pripraveno navázat uzéí
vztahy s krajany a osobami ceského púvodu zyícími na
Islandu. V prípadé zájmu se obrafte na pana Jóna Ólafssona,
honorárního konzula Öeské republiky na Islandu, adresa:
Jón Ólafsson, Sævarhöfða 4.
Tel: 587 3000. Fax: 568 0645.
Vextir halda áfram að lækka
20 ára spari-
skírteini í 5,58%
ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa og
spariskírteina lækkaði verulega í
gær. Til dæmis seldust 20 ára spari-
skírteini fyrir 100 milljónir króna
og var ávöxtunarkrafan 5,58%, 17
punktum lægri en í útboði Lánasýsl-
unnar fyrir 2 dögum síðan. Ávöxt-
unarkrafa 10 ára bréfanna lækkaði
einnig umtalsvert, fór niður í 5,62%
en í útboðinu á miðvikudag var
krafan 5,79%. Viðskipti á Verðbréfa-
þinginu námu alls tæplega 1.200
milljónum króna í lok dags og hefur
ekki verið svo mikil hreyfmg á mark-
aðnum frá því fyrir alþingiskosning-
arnar í vor, að sögn Davíðs Bjöms-
sonar, forstöðumanns hjá Lands-
bréfum.
Ávöxtunarkrafa húsbréfa lækkaði
um 8-12 punkta hjá flestum verð-
bréfafyrirtækjanna og var 5,65% hjá
Skandia og Kaupþingi en 5,74% hjá
VÍB og Handsali. Flestum þeim sem
Morgunblaðið ræddi við bar saman
um að allt benti til þess að vextir
myndu halda áfram að lækka á
næstunni. Bjarni Ármannsson, for-
stöðumaður hjá Kaupþingi, kvaðst
þannig eiga von á því að ávöxtunar-
krafa húsbréfa myndi iækka enn
frekar fram að næsta útboði spari-
skírteina í þar næstu viku.
Seðlabankinn virðist hafa notað
tækifærið og losað sig við mikið af
ríkisverðbréfum undanfarna tvo
daga, enda hafa skilyrðin til sölu á
bréfum verið afar hagstæð. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefur bankinn selt bréf fyrir um 900
milljónir króna undanfarna tvo daga.
Að sögn Árna Odds Þórðarsonar,
forstöðumanns hjá Skandia, virðist
sem fjárfestar hafi verið að þreifa
fyrir sér á fimmtudag í kjölfar út-
boðs Lánasýslunnar og það sem
hafi hleypt hrinunni af stað, öðrú
fremur hafi verið sú staðreynd að
lítið framboð er á langtímabréfum á
markaðnum nú. Þá sé það greinilegt
á öllu að markaðurinn telji umtals-
verða vaxtalækkun vera framundan.
Sú staðreynd að ávöxtunarkúrfan á
verðtryggðum " spariskírteinum sé
orðin neikvæð beri þess glöggt vitni.
Ásgeir Þórðarson, forstöðumaður
verðbréfamiðlunar VÍB, segir hins
vegar að þar á bæ séu menn ekki
alveg sannfærðir um að vextir muni
halda áfram að lækka og að lækkun-
in muni reynast varanleg. Hann seg-
ir að þar muni menn því fara sér í
engu óðslega á næstunni.
i
€
%
€