Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 19
VIÐSKIPTI
PH-snyrtivörur hyggja á útflutning á íslensku húðkremi til Evrópu
Samningar liggja fyrir
við belgíska aðila
PH-SNYRTIVÖRUR hafa gert
samning við belgíska aðila um út-
flutning á lífrænum snyrtivörum,
sem fyrirtækið framleiðir, til Belgíu
og hugsanlega fleiri Evrópulanda.
Fyrsta sendingin, sem er nokkurs
konar tilraunasending, verður send
utan í upphafi næsta árs og hefur
belgíska fyrirtækið lýst yfir vilja til
að kaupa allt að 50.000 pakkningar,
ef fyrsta sendingin gefur góða raun.
PH-snyrtivörur er í eigu hjónanna
Ástu Kristínar Sýrusdóttur og André
Raes. Þau settu þetta fyrirtæki á
stofn á Akureyri seint á síðasta ári
og er fyrirtækið því tæplega ársgam-
alt. Framleiðsluafurðirnar eru ýmiss
konar húðkrem, sem blönduð eru
íslenskum jurtum. Grunnkremið er
hins vegar unnið í Belgíu, en fram-
leiðandi þess hefur jafnframt haft
milligöngu um innflutning
PH-snyrtivara til Belgíu.
Að sögn Ástu á enn eftir að leysa
vandamál með umbúðir utan um
þennan útflutning. „Við höfum fram
til þessa notast við einfaldar
glerkrukkur utan um framleiðsluna.
Hér er hins vegar um mjög við-
kvæma afurð að ræða og því er
nauðsynlegt að umbúðirnar séu
þannig úr garði gerðar að loft kom-
ist aldrei að kreminu, ekki heldur
við notkun þess. Við höfum þegar
fundið hefðbundnar umbúðir en eina
vandamálið er í hversu miklu magni
við þurfum að kaupa þær. Við erum
því nú að leyta leiða til þess að fjár-
magna þessi kaup.“
Minni
hækkanir á
pappírsverði
Brilssel. Reuter.
VERÐ á pappír og tijákvoðu, sem
hefur snarhækkað á tveimur árum,
nær hámarki í náinni framtíð að
sögn belgíska bankans Banque
Bruxelles Lambert (BBL).
„Mikilla verðhækkana er ekki að
vænta í náinni framtíð,“ segir BBL
í skýrslu um pappírsgeirann.
Mikil uppsveifla varð í greininni
1994 og á fyrri árshelmingi 1995
eftir langvarandi samdrátt, sem náði
botni 1993.
Batinn olli „raunverulegri verð-
sprengingu," sagði BBL. „Verð
tijákvoðu virðist hafa náð hámarki
og hæsta verð á sumum tegundum
pappírs virðist á næsta leiti,“ sagði
í skýrslunni.
„En staðan á næsta ári fer að
miklu leyti eftir efnahagsástandinu
í heild,“ segir í skýrslunni.
„Þessi atvinnugrein er fjár-
magnsfrek og sveiflukennd. Þegar
komið er á fót nýjum vörueiningum
veldur það miklum hreyfingum á
verði, framleiðslukostnaði og nýt-
ingu afkastagetu," segir í skýrsl-
unni.
Lífræn afurð
Ásta segir að þessi krem séu ein-
stök á markaðnum þar sem þau séu
alveg lífræn. Hún segir að hugmynd-
in.að þessari framleiðslu hafi kvikn-
að á síðasta ári, en maður hennar
hefur lengi verið mikill áhugamaður
um jurtir. „Við settum okkur í sam-
band við fjölmarga aðila erlendis,
því ætlunin var frá upphafi að vera
með 100% lífræna framleiðslu. Það
gekk hins vegar mjög erfiðlega að
fá grunnkrem sem uppfyllti þau skil-
yrði. Belgíska fyrirtækið sýndi þessu
hins vegar mikinn áhuga og hóf
framleiðslu á slíku kremi í tilrauna-
skyni.“
Ásta segir að þau hjónin hafi
notið aðstoðar Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar og Akureyrar Apóteks
við að koma fyrirtækinu á laggirn-
ar. Hún segir sölu á húðkremunum
hafa tekið góðan kipp strax í upp-
hafi, enda hafi þá verið stutt í jóla-
ÁSTA Kristín Sýrusdóttir Morgunblaðið/Þorkell
vertíðina. Síðan hafi útsölustöðum landið. Hún áætlar að nú seljist að
farið jafnt og þétt fjölgandi og séu jafnaði u.þ.b. 2.500-3.000 krukkur
þeir nú 35 talsins víðs vegar um af kremi á mánuði.
Láttu ekki
flutninginn valda
þér óþarfa kostnaði
og óþœgindum.
Auðveld leið tíl að greiða reikninginn.
♦
BÚÐIN
MIKK LINE
útigallar, húfur,
hárbönd, lúffur
og vettlingar.
H - BÚÐIN
á yfirbyggðu Garðatorgi,
s. 565-6550.
»
i
5
Mikilvægt er aö tilkynna flutning
tímanlega og fá flutningsálestur.
Flutningsálestur á réttum tíma
tryggir að hver notandi greiðir
aðeins sinn hlut. Ef þú ert að flytja
hafðu þá samband við flutn-
ingsálestur í síma 560 4630 og
tryggðu að þú borgir ekki rafmagnið
fyrir pann sem flytur inn!
Það er ekki aðeins þaegilegt að
greiða rafmagnsreikninga með
sjálfvirkum, mánaðarlegum
millifærslum. Með boðgreiðslum
Visa og Eurocard og beingreiðslum
af banka- og sparisjóösreikningum
sparar þú þér einnig peninga.
Hver boðgreiðsla veitir þér 19 kr.
*
greiðsluafslátt og hver beingreiðsla
37 kr. greiðsluafslátt. Auk þess
færð þú 623 kr. aukaafslátt í
byrjun.
Vilt þú vita meira? Hringdu í
afgreiðslusíma okkar 560 4610,
560 4620 eða 560 4630.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 108 REYKJAVÍK
SÍMI 560 4600 FAX 581 4485