Morgunblaðið - 28.10.1995, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 25
ERLEIMT
Heilsuleysi Borís Jeltsíns Rússlandsforseta er talið geta haft afdrifaríkar afleiðingar
Reuter
EDÚARD Netsjajev, heilbrigðisráðherra Rússlands, ræddi við fréttamenn í húsa-
kynnum dúmunnar eða neðri deildar þingsins í gær. Sagði hann, að líðan Jelstíns
væri nokkuð góð og blóðþrýstingurinn kominn í samt lag.
Ottast aukna ólgu
í stj ónimálunum
Mun líklega styrkja kommúnista sem er spáð
meirihluta í kosningunum í desember
Moskvu. Reuter.
MIKIL óvissa ríkir um pólitíska
framtíð Borís Jeltsíns, forseta
Rússlands, jafnvel þótt hann
nái sér fljótlega eftir annað
hjartaáfallið á fjórum mánuð-
um. Það er ekki aðeins, að
líkur á, að hann bjóði sig fram eða verði endur-
kjörinn í forsetakosningunum á næsta ári hafí
minnkað, heldur kyndir heilsuleysi hans enn
frekar undir ólgunni í rússneskum stjórnmálum
nú rétt fyrir þingkosningamar í desember.
Víktor Iljúshín, einn nánasti samstarfsmaður
Jeltsíns, segir veikindi hans miklu minni nú en
í júlí sl. og talsmaður forsetans, Sergei
Medvedev, sagði, að hann hefði aldrei misst
meðvitund. Hann hefði „kjarnorkuhnappinn" sér
við hlið og ekki væri um að ræða, að annar
tæki við störfum hans. Sagði hann, að Jeltsín
yrði undir lækniseftirlit út nóvember og færi
hugsarilega á heilsuhæli utan Moskvu eins og
eftir áfallið í júlí.
Það má kannski segja sem svo, að fréttir af
andláti Jeltsíns séu stórlega ýktar eins og sum-
ir þingmenn á breska þinginu komust að þegar
þeir höfðu minnst hans fyrir misskilning með
nokkrum vel völdum orðum en veikindin hljóta
samt að vekja upp vangaveltur um eftirmánn
hans eða kannski öllu heldur, að það er ekki
um neinn augljósan arftaka að ræða. Sam-
kvæmt stjómarskránni er Víktor Tsjemomyrdín
forsætisráðherra staðgengill forseta þegar svo
ber undir en hann er sjálfur á kafi í baráttunni
fyrir þingkosningamar 17. desember.
Stjórnarandstaðan sterk
Kommúnistar og þjóðernissinnar virðast
helst eiga upp á pallborðið hjá rússneskum
kjósendum um þessar mundir og við þær að-
stæður má Jeltsín ekki við því, að hann sé
talinn vera úr leik. Hvorugur þeirra Tsjerno-
myrdíns virðist þó fær um að ráða við stjórnar-
andstöðuna. Að vísu bendir margt til, að meiri
stöðugleiki sé að komast á í efnahagslífinu en
það er lítil huggun þeim 40 milljónum manna,
sem eru opinberlega undir fátæktarmörkum.
Fólk hefur litla trú á tilraunum stjórnarinnar
til að kveða niður vaxandi glæpi, utanríkismál-
in eru erfið og hætta er á, að átökin í Tsjetsjníju
gjósi upp aftur.
Erkifjendur Jeltsíns eru kommúnistar og
leiðtogi þeirra, Gennadí Zjúganov. Samkvæmt
skoðanakönnunum munu kommúnistar vinna
meirihluta í dúmunni, neðri deildinni, en mið-
flokkur Tsjernomyrdíns, Rússneska föðurland-
ið, sem Jeltsín styður, keppir um þriðja sætið
á eftir kommúnistum og Rússneska kvenna-
flokknum. Mestu máli skiptir þó forsetaemb-
ættið, sem er mjög valdamikið samkvæmt
stjórnarskránni frá 1993.
Keppinautar Jeltsíns
Bjóði Jeltsín sig fram í forsetakosningunum
í júní á næsta ári getur hann alls ekki verið
viss um sigur og sérstaklega ekki ef kommún-
istar og bandamenn þeirra koma sér saman
um einn frambjóðanda og þá líklega Zjúg-
anov. Annar skæður keppinautur gæti verið
uppgjafahershöfðinginn Alexander Lebed, vin-
sæll maður með mikið persónufylgi. Að sögn
rússneskra fjölmiðla getur hann verið viss um
10 milljónir atkvæða út á andlitið eitt. Þá má
einnig nefna hagfræðinginn Grígoríj Javl-
ínskíj, leiðtoga Jabloko-flokksins, en trúlega
myndi hann mælast best fyrir á Vesturlöndum
sem arftaki Jeltsíns.
Margir telja hættu á, að til einhvers konar
uppgjörs eða átaka komi í rússneskum stjórn-
málum fyrir forsetakosningarnar á næsta
sumri. Valdaránstilraunin gegn Míkhaíl Gorb-
atsjov, forseta Sovétríkjanna, 1991 og mót-
spyrna þingsiris 1993 eru mönnum enn í fersku
minni. Lýðræðið er enn mjög veikburða og það
vantar tilfínnanlega ákveðið kerfi varðandi
valdaskipti. Þess vegna skiptir heilsufar forset-
ans _svo miklu máli.
„Áhugi okkar á heilsufari forseta stafar ein-
faldlega af því, að við búum í Rússlandi," seg-
ir Sergei Dorenko, fréttaskýrandi á sjálfstæðu
sjónvarpsstöðinni NTV. „Hér er svo margt
undir honum komið og þess vegna verðum við
að afla okkur allra þeirra upplýsinga, sem
unnt er að komast yfir.“
Myndir af tenniskappa
Þótt ekki hvíli sama leyndin yfir heilsufari
Jeltsíns og sovétleiðtoganna áður þá liggja
upplýsingar um það samt ekki á lausu og þing-
menn, sem hafa krafist reglulegra skýrslna
um ásigkomulag þjóðhöfðingjans, verða eins
og aðrir að láta sér nægja einstaka yfirlýsingu
og myndir af Jeltsín í tennis. Hjartaáfallið nú
í vikunni kom einmitt í kjölfar yfírlýsingar um
góða heilsu forsetans, sem hann fylgdi síðan
eftir með því að skora á Jacques Chirac, for-
seta Frakklands, í tenniskeppni.
Jeltsín var hinn brattasti á fundinum með
Bill Clinton, forseta Bandaríkjanna, í New
York en hann aflýsti fundi með rússneskum
fréttamönnum að honum loknum og engum
blaðamanni var boðið að taka á móti honum
við komuna til Moskvu. Síðan hefur hann ekki
sést opinberlega.
o k k u r a ð :
Þátttaka í fitubrennslunámskeiði hjá Ræktinni er
fjárfesting í framtíðinni.
...og þegar þú setur árangurinn í samhengi við verðið
kemstu að því að verðið á kílóinu er hvergi hagstæðara.
• gera þér lífið léttara
• rífa upp sjálfstraust þitt
• fræða þig um líkamsstarfsemína.
Á fitubrennslunámskeiðum Ræktarinnar er lögð áhersla á faglega þáttinn.
Rafn Líndal. læknir og leiðbeinandi í líkamsrækt stýrir námskeiðunum, þar sem lögð er
áhersla á samspil hreyfingar og mataræðis. Allir ræktendur eru vegnir og metnir og fylgst
náið með framvindu mála út námskeiðið.
likamsrækt, mataræði og matseld
• snarminnka líkur þínar á hjjarta- og
æðasjúkdómum og öflum þeim kvillum
sem hreyf ingarleysí, rangt mataræði og
of mikil fita hefur í för með sér.
• verðlauna þig með 5 kolsvörtum Ijósatímum
• leysa þig út með ítarlegri heílsuhandbók
eftir leiðbeinanda þinn, Rafn Líndal lækni.
...og svo að:
• sjá þig í jólafötunum
• sjá svipinn á makanum þínum
• samgleðjast þér og sjá þig aftur sem fyrst.
Þátttakendur á
fitubrennslunámskeiðinu fá
fimm fría Ijósatíma í bekkjum
sem margir telja þá
fullkomnustu í heimi.
RÆKTIN
TÆ.lASAtU.-ÞOLFIMI -LIÓSA.tKKIR
FROSTASKJÓLI
SÍMI 551-2815
Námskeiðið hefst 1. nóvember
Skráðu þig sem fyrst,
takmarkaður fjöldi
opið laugardaga kl. 10-17
sunnudaga kl. 13-17
virka daga kl. 10-22
Ef þú kveöur 8 kíló á
námskeiöinu, eöa sem
samsvarar kartöfluhrúgunni,
fœröu frítt mánaöarkort í
heiöursskyni.
... o g ú 11 i t i ð e r g o 11