Morgunblaðið - 28.10.1995, Síða 34

Morgunblaðið - 28.10.1995, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ GREINARGERÐ Tjónaskuld vátrygg- ingafélaga í öku- tækj atryggingum VÁTRYGGING á tjóni sem ökutæki valda er lögboðin hér á landi sem annars staðar, einnig slysatrygging ökumanns samkvæmt umferðarlög- um frá 1987. Iðgjöld til vátrygginga- félaga vegna lögboðinna ökutækja- trygginga námu um 4 milljörðum kr. á árinu 1994 og tjónabætur ásamt rekstrarkostnaði við þessa grein námu svipaðri upphæð. Þetta eru háar fjárhæðir og að undanförnu hefur mikið og ítarlega verið fjallað um þessar vátryggingar og öku- tækjatryggingar almennt frá ýmsum hliðum. M.a. hefur sjónum verið beint að iðgjöldunum og horft tii þess að tjónaskuld félaganna nam um 11 milljörðum króna í árslok 1994 og bent er á að hún hafi hækkað mjög mikið á seinustu árum. Þær raddir heyrast að hér sé ofílagt, unnt sé 'að lækka iðgjöld í þessari vátrygg- ingagrein, vátryggingafélögin þurfí ekki á svo digrum sjóði að halda til að bæta áfallin óuppgerð tjón. Hér verður reynt að varpa nokkru ljósi á þetta mál og skýra ýmsa þætti sem að baki áætlunum tjónaskuldar vá- tryggingafélaga eru, greint frá að- ferðum sem Vátryggingaeftirlitið beitir .við mat á tjónaskuldinni ’ og birtar verða nokkrar niðurstöður at- hugana sem fyrir liggja hjá eftirlitinu í þessu efni. Vægi tjónaskuldarinnar í vátryggingarekstri Tjónaskuldin, sem samsvarar mati vátryggingafélags á skuldbindingum sínum vegna tjóna sem ber að bæta samkvæmt þeim vátryggingasamn- ingum sem gerðir hafa verið, er ásamt iðgjaldaskuldinni jafnan lang- stærsti efnahagsliðurinn skuldameg- in í ársreikningi, jafnvel um 2/3 eða meira af niðurstöðutölu efnahágs- reiknings. Það skiptir meginmáli í rekstri sérhvers vátryggingafélags að mat þetta endurspegli með öryggi á hverjum tíma skuldbindingar þess og að í því felist nægilegt álag á hverjum tíma til að mæta þeirri óvissu sem í matinu felst eðli málsins ^samkvæmt. í vátryggingum almennt getur liðið nokkur tími frá tjónsat- burði þar til unnt er að meta afleið- ingar tjóns og bæta það og í lögboðn- um ökutækjatryggingum og ábyrgðartryggingum yfírleitt getur það átt sér stað að áratugur eða meira líði áður en öll tjón tiltekins tjónaárs eru að fullu uppgerð, eink- um þegar slysatjón eiga í hlut. Flest tjón eru þó gerð upp á fyrstu 3-4 árum eftir tjónsatburð. Það er for- senda starfsleyfis vátryggingafélags og bundið í lög um vátryggingastarf- semi (sbr. lög nr. 60/1994) að vá- tryggingaskuldin (iðgjalda- og tjóna- skuld samanlagt) skuli metin á full- nægjandi hátt og að næg sérþekking sé fyrir hendi hjá hverju félagi til að meta þennan lið. Vægi tjónaskuldarinnar er slíkt að ekki er unnt að meta hvort upp- fyllt séu sett skilyrði um íjárhags- styrk og gjaldþol vátryggingafélaga nema að jafnframt sé lagt mat á styrk vátryggingaskuldarinnar. Van- mat hennar í efnahagsreikningi þýð- ir í reynd ofmat eigin fjár og gjald- þols félagsins. Jafnvel þótt það nemi aðeins örfáum prósentum af tjóna- skuld í heild getur það skipt sköpum fyrir félagið enda hefur slíkt van- mat, bæði hér á landi og annars stað- ar, ósjaldan leitt til þess að eftirlits- stjórnvöld hafa orðið að grípa í taum- ana og gera kröfur um ráðstafanir, jafnvel að ráðstafa vátrygginga- stofninum til annars félags eða koma á slitum félags. Reynist álag vera fólgið í tjóna- skuldinni umfram það sem hinar minnstu líkur eru á að þurfí til greiðslu tjónbóta og kalla mætti V átryggingaeftirlitið telur ekki unnt að mæla með því að áhættusjóð- ur vátryggingafélaga í lögboðnum ökutækjum sé borgaður út í formi iðgjaldaafsláttar. í greinargerð Erlends Lárussonar forstöðu- manns er það hins vegar ekki útilokað að svig- rúm geti verið til aðlög- unar og breytinga á ið- gjöldum og jafnvel til lækkunar. hreint álag, er á hinn bóginn fjár- hagsstyrkur félags meiri en fram kemur í efnahagsreikningi og raun- verulegt gjaldþol og eigið fé meira. Lækkun iðgjalda á þeim forsendum að slíkt álag sé fyrir hendi hjá vá- tryggingafélagi jafngildir því að greiða eigi niður tjónakostnað kom- andi vátryggingatímabils af eigin fé. Spumingin um það hvort fólgið sé hreint álag í tjónaskuldinni í áður- greindri merkingu og hvort það er of hátt er því spurning um það hvort eigið fé vátryggingafélags sé í raun meira en fram kemur í reikningum þess og meira en góðu hófí gegnir. Það er reyndar aldrei vitað með neinni vissu á þeirri stundu sem mat tjónaskuldarinnar er lagt fram hvort í því felist hreint álag eða sveifluálag sem mætir væntanlegum ófyrirséð- um tjónagreiðslum í framtíðinni. Á hverjum tíma er ávallt það mikið óuppgert af tjónum hjá vátrygginga- félagi að gera verður ráð fyrir tölu- verðri óvissu um endanlegt mat þeirra. Ofan á mat tilkynntra tjóna þarf álag fyrir ótilkynntum tjónum sem ávallt verður að reikna með. Þá geta ýmis utanaðkomandi áhrif vald- ið ófyrirséðum breytingum á bóta- grundvelli tjóna sem þegar hafa átt sér stað og bótaskyld eru. Rangt mat á áhættu framtíðarinnar þannig að krafíst er of lágra iðgjalda getur einnig valdið búsifjum í vátrygginga- rekstri eins og dæmin sanna. Al- mennt er þó út frá reynslu og töl- fræðilegum og líkindafræðilegum lögmálum unnt að áætla væntanleg- an tjónakostnað, ella væri ekki unnt að reka vátryggingastarfsemi. Vand- inn er að meta frávikin frá meðaltals- reynslunni og þá kemur m.a. til sög- unnar hið margumtalaða álag á tjónaskuldina sem lagt er á til að mæta sveiflum og til öryggis og ekki er vitað fyrirfram hvort nota þarf til tjónagreiðslna eða hvort um ígildi eigin fjár sé að ræða. Hlutverk Vátryggingaeftirlitsins Það er eitt af meginverkefnum Vátryggingaeftirlits hér sem annars staðar að íylgjast með fjárhag vá- tryggingafélaga með það fyrir aug- um að tryggt verði að þau geti stað- ið við skuldbindingar sínar. Hlutverk eftirlitsins er einnig að fylgjast með iðgjaldagrundvelli vátrygginga eins og segir í 55. gr. laga um vátrygg- ingastarfsemi: „með það fyrir augum að iðgjöld sem í boði eru hér á landi séu sanngjörn í garð vátrygginga- taka og í samræmi við þá áhættu sem í vátryggingum felst og eðlileg- an rekstrarkostnað". Eftirlit með vátryggingaskuldinni og mati hennar hefur því frá upphafí verið og er mjög mikilvægur þáttur í starfí Vá- tryggingaeftirlitsins. Árlega er aflað ítarlegra gagna m.a. um tjónaskuld- ina og hjá Vátryggingaeftirlitinu er að finna gögn frá yfír tuttugu ára tímabili sem gefa glögga mynd af tjónaskuld félaganna á hveijum tíma í helstu greinaflokkum vátrygginga og hvernig mat hennar hefur verið ár frá ári samanborið við greiðslur tjóna síðar. Má draga í efa að hlið- stæð gögn og jafnítarleg séu til hjá opinberum eftirlitsaðilum með vá- tryggingastarfseminni annars stað- ar. Athuganir eftirlitsins hafa á um- liðnum árum oft haft í för með sér athugasemdir þannig að gripið hefur verið til ráðstafana með einum eða öðrum hætti vegna þess að tjóna- skuldin hefur verið talin of lágt met- in hjá vátryggingafélagi. Þá hafa útreikningar hjá eftirlitinu oftar en einu sinni leitt til þess að álag sem hlutaðeigandi félag hefur talið hreint álag og talið með við mat á gjald- þoli hefur ekki verið viðurkennt sem slíkt. Það hefur hins vegar aldrei komið fyrir að Vátryggingaeftirlitið hafi gert kröfu um lækkun iðgjalda vegna þess að það hafí talið að of mikið hafí verið lagt til hliðar vegna tjónaskuldarinnar, þ.e. að eiginfjár- staða vátryggingafélags hafi verið slík að rétt væri að leggja til að ið- gjöldin yrðu lækkuð. Eftirlitið hefur aftur á móti mælt gegn hækkun ið- gjalda í tilteknum vátryggingagrein- um þegar slíkt hefur ekki verið talið réttlætanlegt með tilliti til afkomu og fjárhagsstöðu hlutaðeigandi fé- laga. Á árum áður var ákvörðun ið- gjalda í lögboðnum ökutækjatrygg- ingum í höndum stjórnvalda og var Vátryggingaeftirlitið umsagnaraðili til ráðherra um breytingar á iðgjöld- um á ári hveiju frá 1974. Með til- komu laga nr. 60/1994 var fyrirfram eftirlit með iðgjöldum og skilmálum iðgjalda fellt niður líkt og gert er ráð fyrir samkvæmt vátryggingaákvæð- um samningsins um Evrópskt efna- hagssvæði. Hins vegar er nú í lögg- jöf lögð meiri áhersla á mikilvægi vátryggingaskuldarinnar en áður og m.a. settar sérstakar reglur um eign- ir sem eiga að mæta henni. Mat tjónaskuldarinnar Hér verður greint frá nokkrum niðurstöðum athugana og mati á tjónaskuld í iögboðnum ökutækja- tryggingum á tveimur tímabilum, 1975-1984 og 1985-1994. í árs- skýrslu eftirlitsins nr. 12 fyrir árið 1985 sem kom út í maí 1986 var lagt mat á styrk tjónaskuldarinnar í árslok 1984 (bótasjóðs eins og tjóna- skuldin var þá nefnd), tjónaskuldin reiknuð út með hliðsjón af þróun tjónagreiðslna árin áður og m.a. hreint álag tjónaskuldarinnar metið í helstu greinaflokkum vátrygginga, þ á m. í lögboðnum ökutækjatrygg- ingum. Var sem sé spáð um fram- vindu tjónagreiðslna eftir 1984 vegna áfallinna tjóna á árunum 1975-1984. í árslok 1994 voru nán- ast öll tjón þessara tjónaára uppgerð og því unnt að kanna eftir á raun- verulegan styrk tjónaskuldarinnar í árslok 1984. Samanburðurinn varpar einnig Ijósi á notagildi ýmissa að- ferða sem beitt er til að reikna út tjónaskuldina. I framhaldi af því verður spurt hvaða lærdóm unnt sé að draga af niðurstöðum athugana varðandi styrk tjónaskuldar félag- anna í lok seinna tímabilsins þ.e. 31.12.1994 og loks á þeim grund- velli metin afkoma greinarinnar út frá iðgjöldum og tjónakostnaði. Hér verður ekki tekið tillit til íjármuna- tekna eða kostnaðar vegna endur- tryggingá en allar fjárhæðir eru færðar til verðlags 1.1.1995 sam- kvæmt visitölu neyslu. Grunnmat tjónaskuldarinnar fer þannig fram hjá félögunum að tjóna- mappa er búin til fyrir hvert einstakt tilkynnt tjón. Þar er safnað saman öllum upplýsingum sem borist hafa um tjónið en það er mjög breytilegt á hveijum tíma. Stundum er mat á bótaskyldu félagsins reist á einu sím- tali þar sem tjón er tjlkynnt og mjög takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um afleiðingar tjóns. I sumum tilvik- um liggur fyrir mat á örorku og bótakrafa eða önnur gögn sem veita mun öruggari vitneskju um væntan- legar bótafjárhæðir. Tjónadeildir fé- laganna standa frammi fyrir því í hvert sinn sem ársuppgjör fer fram og endranær að meta út frá fyrir- liggjandi upplýsingum þær bætur sem ekki er búið að greiða, að meta hve mikið er ótilkynnt á hveijum tíma og leggja á áætlanirnar fyrir óvissu um endanlegar bótafjárhæðir. Ör- yggisálagi er bætt við eftir efnum og ástæðum og eftir því hver afkom- an er hveiju sinni. Það er góð regla í þessari starfsemi í góðæri að leggja í forðabúr til að mæta slæmu ár- ferði, áföllum og ófyrirséðum breyt- ingum svo sem á bótagrundvelli og bótafjárhæðum í framtíðinni. Vátryggingaeftirlit verður að styðjast við almennt mat á styrk tjónaskuldarinnar. Ýmsum tölfræði- legum aðferðum er beitt sem geta gefíð vísbendingar um styrk tjóna- skuldarinnar á hvetjum tíma en nið- urstöður þeirra geta verið mjög mis- munandi eins og fram kemur hér á eftir án þess að unnt sé að segja ákveðið að einhveijar þeirra séu rangar. Engin algild reiknilíkön eru til í þessu efni sem styðjast má við. Unnt er að leggja fram spár um framvinduna sem ekki er unnt að sannreyna fyrr en eftir á. Það er sá veruleiki sem búið er við í vátrygg- ingarekstri. Greint er frá niðurstöðum saman- lagt hjá fímm af sex félögum sem reka lögboðnar ökutækjatryggingar nú á markaðnum, þ.e. Ábyrgð hf., Sjóvá-AImennum tryggingum hf., Tryggingu hf., Tryggingamiðstöð- inni hf. og Vátryggingafélagi íslands hf. en þessir aðilar hafa starfað allt tímabilið 1975-1994, þó ekki öll í núverandi mynd. Gögn félaga sem hafa verið sameinuð eru lögð saman fram að sameiningu. Sjötta félagið á markaðnum, Vátryggingafélagið Skandia hf., hóf þessa starfsemi fyrst 1991 og er ekki tekið með hér en tjónaskuldin þar nam rúmlega 2% tjónaskuldar í heild í árslok 1994. Tekið skal fram að mat fer fram fyrir hvert félag fyrir sig og niður- Stöður eru síðan lagðar saman. Tímabilið 1975-1984 Við mat á styrk tjónaskuldarinnar í árslok 1984, og frá er greint í árs- skýrslu eftirlitsins nr. 12 eins og áður segir, var gengið út frá tjóna- greiðslum ár frá ári vegna tjónaár- anna 1975-1984. Hér verða ekki raktar forsendur útreikninganna sem gerðir voru á grundvelli fyrirliggj- andi gagna í árslok 1984 en ein- göngu getið niðurstaðna, þ.e. svör eru gefin við eftirfarandi spurning- um: Var hreint álag fólgið í tjóna- skuldinni í árslok 1984? Ef svo er hversu hátt var það og var það e.t.v. of hátt? Niðurstöður er að fínna í eftirfarandi töflu þar sem allar tölur eru færðar til verðlags 1.1.1995: Sjá töflu 1 I töflu 1 kemur fram að Vátrygg- ingaeftirlitið mat tjónaskuldina 1.115 millj. kr. á grundvelli gagna sem fyrir lágu í árslok 1984, þ.e. að 600 millj. kr. álag væri innifalið í áætlun félaganna sem litlar líkur væri á að þyrfti til bótagreiðslna eða 35% tjónaskuldarinnar. Nú er unnt að sjá að álagið var í reynd 545 millj. kr. eða 32% tjónaskuldarinnar því að alls hafa verið greidd tjón að fjárhæð 1.135 millj. kr. frá árslokum 1984 til loka 1994 vegna tjóna er urðu á árunum 1975-1984 og áætlað er að enn séu 35 millj. kr. ógreiddar vegna þessara ára. Vátryggingaeft- irlitið ofmat því hreina álagið lítillega en segja má að útreikningarnir hafí gefið nokkuð rétta mynd af styrk tjónaskuldarinnar. Minnt er á að hér er m.a. ekki tekið tillit til ávöxtunar- TAFLA 1 Tjónaskuld vátryggingafélaga og reiknuð ijónaskuld í árslok 1984. Tjónareynsla til 1.1. 1995. Millj. kr. % Grunnáætlun tjónaskuldar, reiknuð í árslok 1984: 890 52 Reiknað sveifluálag: 225 13 Reiknuð tjónaskuld 31.12.1984: 1.115 65 Tjónaskuld vátryggingafélaga 31.12.1984: 1.715 100 Alag reiknað í árslok 1984: +600 +35 Reiknuð tjónaskuld 31.12.1984: 1.115 65 Greidd tjón 1985-1994: -1.135 -66 Reiknuð tjónaskuld 31.12.1994: -35 -2 Hreint álag miðað við reiknaða tjónaskuld: -55 -5 Hreint álag í reynd: +545 +32

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.