Morgunblaðið - 28.10.1995, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MESSUR
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 45
. um og var verulega í essinu sínu
þegar sem flestir voru. Heyrðist þá
dillandi hlátur.
Á þessum tíma voru ferðalög
meira fyrirtæki en nú er, margra
tíma ferð var úr Reykjavík og stóðu
gestir því lengur við og gistu gjam-
an. Við verkstjórn var Rúna snill-
ingur, stýrði bæði úti og inni. Kapp-
kostað var að vinna verkin svo henni
líkaði, sælan mest að fá frá henni
hrósyrði, að ég tali ekki um að fá
að sitja Gamla Bleik, einkagæðing
Rúnu.
Glæsileg var hún er hún snaraði
sér á bak og reið úr hlaði, en vegna
anna gáfust henni ekki oft stundir
til útreiða sem hún hafði þó yndi
af. Þrátt fyrir hressileikann efa ég
ekki að Rúna átti sínar erfiðu stund-
ir og ég man hana setjast við orgel-
ið, leika og syngja sér til hugar-
hægðar er stund gafst milli stríða.
Hún hafði fallega söngrödd og söng
af innlifun og sá til þess að börnin
lærðu á hljóðfæri.
Börn Rúnu urðu snemma að taka
til hendinni og saman stóðu þau sem
einn maður við að efla búið. Fljót-
lega var hafist var handa um endur-
byggingu alls húsakosts. Fyrst var
byggt yfir búsmalann og að því
loknu yfir mannfólkið, var það gert
með þeim höfðingsbrag að ekki hef
ég séð önnur glæsilegri heimili til
sveita.
Að Grund kom 1951 öðlingsmað-
I urinn Þorgeir Þorsteinsson frá Mið-
fossum í Andakíl. Hann reyndist
Rúnu ætíð síðan tryggur lífsföru-
nautur og saman eignuðust þau
dótturina Áslaugu. Frá þeim degi
er Geiri kom að Grund til þessa
dags hefir hann alla daga unnið
búinu sem mest hann mátti og ver-
ið öllum heimamönnum ómetanleg
i stoð og lifir Rúnu nú í hárri elli.
( Er börnin stálpuðust fóru þau af
bæ til náms og starfa, fluttust þá
að heiman öll nema Davíð sem varð
eftir, móður sinni stoð og stytta.
Tók hann við búsforráðum með
Rúnu frá 1961. Eftir því sem árin
liðu og heilsu Rúnu hnignaði færð-
ust búsforráð æ meir á hendur
Davíðs og hans ágætu konu Jó-
hönnu Guðjónsdóttur sem kunni þá
list að deila kjörum á þann veg að
úr varð farsælt sambýli. Verður
þeim báðum seint fullþökkuð um-
hyggja og hjálpsemi í erfiðleikum
langvarandi veikinda. Ungur að
árum varð Davíð hreppstjóri í
Skorradal eða aðeins 22 ára og var
þá yngsti maður sem skipaður hafði
verið í þá stöðu, síðar einnig odd-
viti. Sitja þau hjón jörðina með
rausn svo sem ætíð hefur verið.
Samhentari fjölskylda en þau
Grundarbörn er vandfundin, árum
og jafnvel áratugum saman fóru
þau heim flestar helgar ef þau gátu
starfa sinna vegna og lögðu lið við
búskapinn. Sýnir það best sam-
heldni þeirra, svo og hvern hug þau
báru til móður sinnar. Ekki lágu
tengdabörnin heldur á liði sínu.
Barnabörnin hafa öll verið á Grund
meira og minna frá æsku og fram
á fullorðinsár og djúpar eru þær
rætur sem draga þau til föðurtúna.
Öll unnu þau ömmu sinni sem heit-
ast má.
Miklir kærleikar voru með föður
mínum heitnum, Óskari Gíslasyni
gullsmið, og Guðrúnu en skyldleiki
þeirra var af öðrum og þriðja. Enga
áttu foreldrar mínir synina, en segja
má að synir Rúnu hafí að nokkru
leyti komið föður mínum í sona stað,
hafði hann á þeim mikið dálæti svo
sem börnum hennar öllum og veit
ég að það var gagnkvæmt. Full-
orðnir voru synir Rúnu allir í nánu
vinfengi við föður rninn og reynd-
ust honum ómetanlegir. Ótalin eru
þau spor sem Bjarni átti til foreldra
minna þeim og mér til liðsinnis.
Meðan kaupstaðarferðir til
Reykjavíkur voru enn mikið fýrir-
tæki brást ekki að Rúna frænka
kæmi við á mínu æskuheimili í
bæjarferðum sínum og var þá kátt
í ranni, mikið hlegið enda stóð
gusturinn af Rúnu sem endranær
og fréttir fengust af stórum frænd-
garði í Borgarfjarðardölum.
Ég kveð Guðrúnu frænku mína
með djúpu þakklæti fyrir að hafa
átt hana að. Hún var skörungur og
mannvinur og gleymist ekki þeim
sem fengu að vera við hana sam-
vistum. Hinsta hvíla Guðrúnar verð-
ur á Hvanneyri hjá manni sínum.
Börnum hennar og öðrum ástvinum
samhryggjumst við móðir mín og
þökkum þeim öllum ævilanga
tryggð og vináttu.
Genginn er sveitarhöfðingi, megi
Guðrún Davíðsdóttir hvíla í friði.
Edda Óskarsdóttir.
• Fleiri minningargreinar um
Guðrúnu Davíðsdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
SlttCI auglýsingor
Nýuppgerður Massey
Fergusson
35 ultepower, árg. '78 með pow-
erstýri og ámoksturstækjum.
Upplýsingar í síma 553 5196.
I.O.O.F. 7 = 17710287 = KKV
KRISTIÐ SAMFÉI.AO
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag
kl. 14.00.
Jón Levi prédikar.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
<§) ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Sunnudagsferð 28. okt.
kl. 13.00
Selfjall-Heiðmörk
Vetri heilsað með skemmtilegri
göngu. Ekið í Lækjarbotna og
gengið yfir Selfjall í skógarreit
Ferðafélagsins. Verð 800 kr. frítt
f. börn m. fullorðnum. Brottför
frá BSI austanmegin. Allir eru
velkomnir í Ferðafélagsferðir.
Gerist félagar og eignist árbók-
ina 1995 „A Hekluslóðum" eftir
Árna Hjartarson, jarðfræðing.
Tilvalin gjafabók.
Ferðafélag Islands.
Vetrarkaffi verður i Skíðaskálan-
um sunnud. 29. október kl.
15.00. Allir velkomnir.
Stjórnin
LIFSSÝN
Samtök til sjálfsþekkingar
Laugardagur 28. októ-
ber: Opið hús
Kl. 9.30: „Táknmál drauma".
Kl. 11: Leshópur um heimspeki.
Gunnar Dal heldur fyrirlestur og
aðstoðar við val á bókum. Fyrir-
lesturinn er öllum opinn.
Hvftasunnukirkjan
Fíladelfía
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur: Ath.: Brauðs-
brotning færist fram á næsta
sunnudag. Almenn samkoma kl.
16.30.
Miðvikudagur: Lofgjörð, bæn
og biblíulestur kl. 20.00.
Föstudagur: Krakkaklúbbur kl.
17.30. Skrefið kl. 19.00. Ungl-
ingamót hefst í Kirkjubæjarkoti
kl. 20.30.
Guðspjall dagsins:
Siðbótardagurinn
Brúðkanpsklæðin.
(Matt. 22.)
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11.00. Guðsþjónusta kl.
14.00. Kaffi eftir messu. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.00. Foreldrar
hvattir til þátttöku með börnun-
um. Guðsþjónusta kl. 14.00. Sið-
bótardagurinn. Ræðuefni: Hvað
má friðurinn kosta? Prestur sr.
Ingólfur Guðmundsson. Organ-
isti Guðni Þ. Guðmundsson.
Barnakór kirkjunnar syngur undir
stjórn Erlu Þórólfsdóttur.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00.
Prestur sr. Jakob Á. Hjálmars-
son. Dómkórinn syngur. Organ-
leikari Marteinn H. Friðriksson.
Barnastarf í sfanaðarheimilinu kl.
11.00 og í Vesturbæjarskóla kl.
13.00. Barnaguðsþjónusta kl.
14.00. Prestur sr. Jakob Á.
Hjálmarsson. Messudagur ferm-
ingarbarna.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10.00. Prestur Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Ein-
söngur Sigrún Jónsdóttir. Organ-
isti Kjartan Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11.00. Mesa kl. 14.00.
Prestur sr. Kjartan örn Sigur-
björnsson. Organisti Árni Arin-
bjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu-
erindi kl. 10.00. Trú milli vonar
og ótta. Sr. Sigurður Pálsson.
Barnasamkoma og messa kl.
11.00. Sigurbjörn Þorkelsson,
framkvæmdastj. Gideonfélags-
ins prédikar. Ensk messa kl. 14.
Sr. Toshiki Toma prédikar. Kaffi-
veitingar á eftir. Hallgrímshátíð
kl. 17. Kammerkór Hallgríms-
kirkju syngur. Organisti Hörður
Áskelsson. Sr. Ragnar Fjalar Lár-
usson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl.
10.00. Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Kl. 11.00.
Barnaguðsþjónusta. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir. Messa kl.
14.00. Organisti Pavel Manasek.
Sr. Tómas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Messa kl.
11.00. Prestur sr. Flóki Kristins-
son. Gradualekór Langholts-
kirkju syngur. Organisti Jón Stef-
ánsson. Barnastarf á sama tíma.
Kaffisopi eftir messu. Tónleikar
Gradualekórs kl. 16.00.
LAUGARNESKIRKJA: Siðbótar-
dagurinn. Guðsþjónusta kl.
11.00 í umsjá sr. Ingólfs Guð-
mundssonar. Ræðuefni: Hvað
má friðurinn kosta? Barnastarf á
sama tíma. Félagar úr Laugar-
neskirkju syngur. Kór Mennta-
skólans á Akureyri syngur undir
stjórn Ragnheiðar Olafsdóttur.
Organisti Gunnar Gunnarsson.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11.00. Munið kirkjubílinn. Guðs-
þjónusta kl. 14.00. Sr. Halldór
Reynisson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11.00. Fermd verður
Sólveig Árnadóttir, Sævargörð-
um 4. Organisti Vera Gulasciova.
Sr. Solveig Lára Guðmundsdótt-
ir. Barnastarf á sama tíma í um-
sjá Elínborgar Sturludóttur.
Fundur með foreldrum ferming-
arbarna eftir messu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.00. Guðsþjónusta
kl. 14. Minnst afmælis Samein-
uðu þjóðanna og beðið fyrir friði.
Einar Clausen syngur stólvers.
María Cederborg leikur á flautu.
Organleikari Sigrún Steingríms-
dóttir. Fermingarbörn og foreldr-
ar þeirra velkomin í guðsþjón-
ustuna. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.00. Guðs-
þjónusta á sama tíma. Organisti
Daníel Jónasson. Samkoma
Ungs fólks með hlutverk kl. 20.
Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11.00 með þátt-
töku sunnudagaskólabarna.
Barnakór Hjallaskóla kemur í
heimsókn. Kórstjóri Guðrún
Magnúsdóttir. Organisti Smári
Ólason. Gunnar Sigurjonsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11.00. Prestar
sr. Guðmundur Kári Ágústsson
og Hreinn Hjartarson. Organisti
Lenka Mátéová. Barnaguðsþjón-
usta á sama tíma í umsjá Ragn-
ars Schram. Safnaðarferð til
Keflavíkur. Farið verður frá kirkj-
unni kl. 12.30. Prestar og söng-
fólk Fella- og Hólakirkju tekur
þátt í guðsþjónustu í Keflavíkur-
kirkju kl. 14. Prestarnir
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.00 í kirkjunni
og 12.30 í Rimaskóla. Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Organisti Ágúst
Ármann Þorláksson. Fundur með
foreldrum fermingarbarna úr
Rimaskóla eftir guðsþjónustuna.
Guðsþjónusta kl. 20.30 á vegum
Félags guðfræðinema við Há-
skóla íslands. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11.00. Dr. Sigurjón Árni Eyj-
ólfsson héraðsprestur þjónar.
Barnaguðsþjónusta kl. 13.00 í
umsjá sr. Bryndísar Möllu. Org-
anisti Oddný J. Þorsteinsdóttir.
Kristján Einar Þorvarðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf
í safnaðarheimilinu Borgum kl.
11.00. Guðsþjónusta kl. 11.00.
Altarisganga. Organisti Örn
Falkner. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.00. Guðsþjónusta kl.
14.00. Altarisganga. Dr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson prédikar. Organ-
isti Kjartan Sigurjónsson. Sókn-
arprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Fundur í
Bræðrafélaginu kl. 11.30 í dag,
laugardag. Guðsþjónusta sunnu-
dag kl. 14. Organisti Pavel Smid.
Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14. Aðra rúmhelga
daga messur kl. 8 og kl. 18.
KFUM og KFUK, v/Holtaveg:
Samkoma sunnudag kl. 17.
Ræðumaður: Guðmundur Karl
Brynjarsson. Barnasamverur á
sama tíma. Veitingar að lokinni
samkomu.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11 á sunnudögum.
JÓSEPSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
er messa kl. 18.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Dagur
Heimilasambandsins. Helgunar-
samkoma kl. 11. Hjálpræðissam-
koma kl. 20. Thurid og Knut
Gamst stjórna og tala. Heimila-
sambandssystur mæta í Garða-
stræti 40 kl. 17.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Mosfellskirkju í
tilefni 30 ára vígsluafmælis kirkj-
unnar og 100 ára ártíðar Stefáns
Þorlákssonar. Prédikun sr. Bragi
Friðriksson, prófastur. Trompett-
leikur: Lárus Sveinsson. Kirkju-
kór Lágafellssóknar. Organisti:
Guðmundur Sigurðsson. Kirkju-
kaffi verður í safnaðarheimilinu
að lokinni guðsþjónustu og þar
mun Jón Guðmundsson, bóndi á
Reykjum, flytja nokkur orð í minn-
ingu Stefáns Þorlákssonar. Rútu-
ferð frá safnaðarheimilinu kl.
13.30. Barnastarf í safnaðar-
heimilinu kl. 11. Bíll frá Mosfells-
leið fer venjulegan hring. Jón
Þorsteinsson.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11.
Starf Gídeonfélaganna kynnt.
Hugvekja: Kári Geirlaugsson.
Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barna-
messa kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Sigurður Helgi Guðmunds-
son.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Fyrsta fræðsluerindi Friðriks
Hilmarssonar um kristniboð í
Strandbergi, laugardag kl. 11.
Léttur hádegisverður. Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14. Taizé-söngvar sungnir.
Organisti Helgi Bragason. Ungir
hljóðfæraleikarar leika. Strand-
berg opið eftir guðsþjónustuna.
Þórhildur Ólafs og Gunnþór Inga-
son.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði:
Barnasamkoma kl. 11. Organisti
Kristjana Ásgeirsdóttir. Sr. Einar
Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga
kl. 8. Allir velkomnir.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 13.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Guðsþjónusta sunnudag kl. 11.
Fermingarbörn og foreldrar hvött
til að mæta. Kirkjukórinn syngur
undir stjórn Steinars Guðmunds-
sonar. Sunnudagaskóli kl. 11.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkju-
skóli í dag, laugardag, í Stóru-
Vogaskóla kl. 11. Bjarni Þór
Bjarnason.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Þema: Siðbótar-
dagurinn. Foreldrar eru hvattir
til að sækja kirkju með börnum
sínum. Munið skólabílinn. Messa
kl. 14. Fella- og Hólakirkjusöfn-
uður kemur í heimsókn ásamt
prestunum sr. Hreini Hjartarsyni
og sr. Guðmundi Karli Ágústs-
syni, sem þjóna ásamt prestum
Keflavíkurkirkju. Tvísöngur: Ing-
unn Sigurðardóttir og Margrét
Hreggviðsdóttir. Kaffiveitingar í
Kirkjulundi eftir messu. Kórar
kirknanna syngja við messuna.
Prestarnir.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVALSNESKIRKJA: Messa kl.
14. Arngrímur Jónsson.
SELFOSSKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Messa sunnudag kl.
14. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa
kl. 14. Úlfar Guðmundsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Úlfar Guð-
mundsson.
ÞORLÁKSKIRKJA: Messa kl. 14.
Svavar Stefánsson.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA,
Hvolsvelli: Kirkjuskóli laugardag
kl. 11. Sigurður Jónsson.
ODDASÓKN: Sunnudagaskóli í
grunnskólanum á Hellu sunnu-
dag kl. 11. Sigurður Jónsson.
KELDNAKIRKJA, Rangárvöllum:
Messa sunnudag kl. 14. Aðal-
safnaðarfundur að henni lokinni.
Sigurður Jónsson.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Sunnudagaskólinn haldinn
að þessu sinni á dvalarheimili
aldraðra, Hraunbúðum kl. 11.
Almenn guðsþjónusta kl. 14.
I I l-krakkar koma fram og að-
stoða svo við barnasamveruna
meðan á prédikun stendur.
Messukaffi.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.15. Messa
kl. 14. Sr. Þorbjörn Hlynur Árna-
son.
FRÍK.I RKjUSÖFNUÐURINN
í REYKJAVÍK
í dag, laugardag, kl. 11.30.
fundur í Bræðrafélaginu.
Sr. Bragi Skúlason ræðir um
Uppgjörið við karlmennskuna.
Sunnudagkl. 14: Guðsþjónusta
Þriðjudag kl.16: Kátir krakkar,
bamastarf fyrir krakka 8-12 ára.
Fimmtudag kl. 20:
Kvenfélagsfundur.
. m;