Morgunblaðið - 28.10.1995, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 49
__________BREF TIL BLAÐSINS_____
Vegna greinar um hnefaleika
Þröstur vann sjö
í röö og mótið
Frá Karli Gunnarssyni og Bene-
dikt Pálmasyni:
OKKUR óar við þeirri tilhneigingu
ráðamanna að vilja banna helst allt
sem þeim líkar ekki. Svo og óar
okkur við því hve almenningur er
gjam á að styðja eða jafnvel heimta
að frelsi sitt sé skert, engum til
gagns. Okkur kemur til hugar þing-
maðurinn bandaríski sem vildi að
hornaboltakylfur yrðu bannaðar í
umdæmi síhu. Aðspurður um málið
sagði hann að utanaðkomandi gætu
ekki skilið vandann. Bar hann því
við að kylfur þessar væru notaðar
með óhugnanlegri tíðni til glæpa-
verka! Hvað kemur næst? Framvís-
un pípulagningamannsskírteinis til
kaupa á málmpípum? Fólk hlær
kannski þegar við líkjum þessu við
sögu Orwells, 1984. Fólki er gjarnt
að hlæja að eða kalla vitleysu það
sem fellur ekki að þröngri heimssýn
þess.
í grein í Morgunblaðinu 21. októ-
ber 1995 var fjallað um ástæður
fyrir banni við hnefaleikum á ís-
landi og óskum lækna um bann við
þeim í Bretlandi. Ein rökin fyrir
banninu hér á landi voru atvik sem
átti sér stað á skemmtun árið 1956
ef við skiljum greinina rétt. Sagði
greinin frá ólátum á skemmtistað
þar sem lögreglan reyndi að stilla
til friðar. Vildi ekki betur til en að
ótilgreindur íjöldi lögreglumanna
Að gefa
af sjálf-
umsér
Frá Auðuni Braga Sveinssyni:
HVAÐ er maðurinn að fara, gæti
fólk hugsað sem les þessa yfirskrift:
að gefa af sjálfum sér. Til skýringar
set ég hér vísu eina, sem ég setti
saman, og ætlaðist til að að nokkrir
félagar mínir pijónuðu aftan við, en
vísan sem heild hjá mér er á þessa leið:
Mesta yndi mannsins er
meyjan þokkaríka,
gefi hún af sjálfri sér
sálina helst líka.
Annar bætti þessu við fyrrihlut-
ann:
Ef hún heiða hugsun ber
og hjartagæsku líka.
Vissulega vel botnað. En hvað
segir þetta?
Vissulega lifum við á tímum þæg-
inda og tækni. Hlutir eru framleiddir
af ýmsum toga. Fólk kaupir að sjálf-
sögðu hluti handa sjálfu sér, en það
kaupir einnig ýmsa hluti til gjafa.
Þægilegt er að nota þessa hluti, til
Frá Jóni Maríassyni:
FRÚ Vigdís Finnbogadóttir hefir til-
kynnt að hún verði ekki í framboði
við forsetakjör að vori. Hún hefir
gegnt embættinu í 16 ár samfellt —
og með mikilli prýði allan tímann.
Þar með hefir hún sannað, að kona
er hæf til forsetakjörs engu síður en
karlmaður. Hins vegar var ætlunin
ekki í upphafi, að æviráðning gilti.
Kæmi hugsanlega til mála, að heim-
ila endurráðningu til fjögurra ára
einu sinni aðeins. Einnig þarf að
tryggja vald forseta til að synja um
eða fresta undirritun laga frá Al-
þingi, ef sannfæring hans býður svo.
Að öðrum kosti er embætti forseta
marklítið, nánast hégómi einn.
Til allrar hamingju eigum við aðra
konu ekki síðri til að leysa frú Vig-
dísi af hólmi. Sú er frú Bryndís
Schram. Hún er glæsileg í útliti, fasi
hlaut varanlegt örkuml af hendi
þekktra hnefaleikamanna sem þar
komu við sögu. Við vitum ekki nóg
um málsatvik til að leggja dóm á
atburði þessa. Þó hljótum við að
vilja að svona atvik ættu sér ekki
stað í þjóðfélagi okkar. Ennfremur
hlýtur hver eðlilega vitiborinn mað-
ur að sjá að það þarf ekki hnefa-
leikakunnáttu til þess að stórslasa
fólk ef viljinn er fyrir hendi. Okkur
sýnist að með banni við kennslu í
hnefaleik sé verið að gera þessa
„hættulegu" þekkingu útlæga. Hér
er verið að banna ólympíuíþrótt vel
til þess fallna að.efla líkama manns.
Sömuleiðis er verið að banna eina
af fáum vestrænum bardagalistum.
Svo viljum við benda á að af sumum
eru hnefaleikar taldir mun hentugri
til sjálfsvarnar en austurlenskar
sjálfsvarnaríþróttir og bardagaað-
ferðir. Hnefaleikar eiga að gagnast
manni betur en austurlensku að-
ferðimar og hægt er að ná gagnleg-
um árangri á styttri tíma.
En lítum nú til Bretlands. Þar
vilja menn leggja bann við hnefa-
leikum vegna óhugnanlegra slysa
sem orðið hafa þar í landi á mótum
og keppnum. Hveijum er verið að
gera greiða með þessu? Hnefaleika-
kapparnir mega fullvel vita hvað
bíður þeirra þegar í hringinn er
komið. Það fylgir því alltaf áhætta
að láta beija sig. Þessvegna reynum
við flest að forðast slagsmál. Hnefa-
að sýna vinum og vandamönnum
þakkar- og vinsemdarvott. Það getur
jafnvel sparað viðkomandi að heim-
sækja og þrýsta hönd þess, sem
þökkin beinist að.
Já, mikill er máttur hlutanna. Um
gjörvallan heim vex veldi þeirra.
Danir nota orðið tingsliggörelse um
það fyrirbrigði að hlutkenna eða láta
hlutina koma í staðinn fyrir mannleg-
ar tilfinningar. Og orsök þess, að
slíkt fer vaxandi, á fyrst og fremst
rætur sínar að rekja til hugsunarleys-
is og leti. í stað þess að hafa persónu-
elgt tilfinningasamband við einstakl-
ing, er gripið til þess ráðs að senda
honum pakka, vafínn í fagrar um-
búðir. Víst er fallega gert að senda
hluti milli manna, en aldrei koma
þeir í stað heimsókna, símtala, bréfa
eða annarra persónulegra samskipta.
Og þá er ég kominn að kjarna
málsins, ef mér leyfist að nota það
orðasamband. Hversu óendanlega
meira virði er heimsókn, segjum til
einangraðs manns, en pakki sem
berst í pósti. Er ekki stutt símtal
verðmætara, ef svo má að orði kom-
ast, en matarsending, svo að dæmi
sé tekið.
Heimur sá er fátæklur af um-
hyggju og alúð, sem lætur hlutina
sitja í fyrirrúmi, en gleymir að gefa
af sjálfum sér. Langt mál mætti hér
um nota, en nú skal staðar numið —
að sinni.
og framkomu, vel menntuð og gáfuð
— með áhuga á sviði lista og menn-
ingarmála. Hún er á góðum aldri,
geislar af gleði og frískleika. Sem
ráðherrafrú Jóns Baldvins Hannib-
alssonar hefir hún staðið fyrir veisl-
um, ferðast mikið og kynnst stór-
mennum víða um heim. Hún kann
sig og sómir sér vel alls staðar. Með
persónuleika sínum mun hún auka
veg og virðingu íslensku þjóðarinnar,
hvar sem leið hennar liggur. Hún
þekktir til stjómmála og er nægilega
hlutlæg til að geta gengt forsetaemb-
ættinu. Kappsfullir flokksleiðtogar
eiga ekkert erindi þangað.
Ekki veit ég hug Bryndísar til
framboðs, en ég hvet landsmenn til
að muna hana. Sá er megintilgang-
urinn með þessari stuttu blaðagrein.
JÓN MÁRÍASSON,
pósthólf 11160,131 Reykjavík.
leikakapparnir hafa hinsvegar valið
hlutskipti sitt og vita hvaða áhættu
þeir taka. Ætlun þeirra er ekki að
láta beija sig en þeir vita að annar
gengur úr hringnum sigurvegari.
Þeir vita líka að báðir þátttakend-
urnir eiga eftir að þola þung högg
áður en yfir lýkur. Það siðferði sem
segir okkur að nauðsynlegt sé að
banna hnefaleika ætti líka að segja
okkur að banna knattspyrnu.
Hnefaleikar eru að mestu hættuleg-
ir þátttakendum keppninnar en
mannfall meðal áhorfenda á fót-
boltaleikjum í Evrópu hefur oft ver-
ið óhugnalegt. En myndi bann við
hnefaleikum stöðva iðkun þeirra?
Voru Bandaríkin áfengislaus á
bannárunum? Nei, iðkunin myndi
færast úr sviðsljósinu, en í skúma-
skotum myndi hún örugglega halda
áfram. Hnefaleikar hafa náð fót-
festu í Bretlandi og einhveijir vilja
ekki verða af sinni uppáhalds
skemmtun. Ólöglegu bardagamir
yrðu lítt mannúðlegri en þeir lög-
giltu.
Grein þessi er einnig birt á Ver-
aldarvefnum:
„http://www.rhi.hi.is/
benedip/frelsi. html“
og þar er hægt að senda tölvupóst
til höfundanna.
KARL GUNNARSSON,
Kársnesbraut 21D, Kópavogi,
BENEDIKT PALMASON,
Tjarnamýri 25, Seltjarnames.
Sophia
Hansen og
telpumar
hennar
Frá Hrafnhildi Guðmundsdóttur:
ÞAU mannréttindabrot, sem þær
hafa mátt þola síðastlilðin fimm ár,
eru þyngri en tárum taki.
íslenzkur almenningur hefur eitt-
hvað reynt að hjálpa móðurinni með
fjármálin, en það sem furðu vekur
er hvernig íslenzk stjórnvöld hafa
sinnt þessu máli.
Löglegur dómstóll dæmir þessari
móður og litlu telpunum samveru-
rétt, sem miskunnarlaust er brot-
inn, án þess að heyrst hafi orð for-
sætisráðherra eða dómsmálaráð-
herra, sem á að hafa yfirumsjón
með vogarskálum réttlætis gagn-
vart þegnum landsins hafi gert op-
inbera athugasemd við tyrknesk
stjórnvöld vegna þessara mannrétt-
indabrota eða kynnt brotin út í
Evrópu til að þrýsta á að íslenzkir
þegnar njóti þess réttlætis sem þeim
ber samkvæmt dómi.
Jón B. Hannibalsson, fyrrverandi
utanríkisráðherra, rétti móðurinni
hjálparhönd, en nú heyrist á loka-
spretti málsins, og móðirin algjör-
lega fjárvana og gott betur en það
og spurning hvort hún kemst til að
hlýða á lokaniðurstöðu hæstaréttar
Tyrklands í máli hennar og barn-
anna, að núverandi utanríkisráð-
herra Halldór Ásgrímsson hafi ekki
lyft sem svarar litla fingri til að
aðstoða móður og börn í þessum
erfiðleikum.
Ég skora á Sophíu þegar lokanið-
urstaða er fengin, og hún hefur
heilsu til, að upplýsa okkur um
þessa þrautagöngu sína og draga
ekkert undan.
Máttarstólpar stjórnmálanna
sem við veljum okkur til halds og
trausts í hinum ýmsu málum, þurfa
vonandi ekki að bera kinnroða fyrir
framgöngu sína í máli þessara
barna sem eru fædd og uppalin hér
sín fyrstu æviár og sannarlega ís-
lenzkir ríkisborgarar sem hafa þurft
á hjálp ráðamanna að halda.
HRAFNHILDUR
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Markarflöt 37, Garðabæ.
SKAK
Félagshcimili 1R,
Faxafcni 12
HAUSTMÓT TAFL-
FÉLAGS REYKJAVÍKUR
Þröstur Þórhallsson sigraði með
yfirburðum á Haustmóti Taflfé-
lags Reykjavíkur sem lauk á mið-
vikudagskvöldið.
ÞRÖSTUR hlaut níu og hálfan
vinning af ellefu mögulegum,
tveimur vinningum fyrir ofan
Sævar Bjarnason
sem varð annar. í
síðustu umferðinni
gerði Þröstur jafn-
tefli við Arnar E.
Gunnarsson. Þröst-
ur fór hægt af stað
en vann síðan sjö
skákir í röð. Hann
hækkar talsvert á
stigum, en er þó enn
talsvert frá 2.500
stiga markinu sem
hann þarf að ná til
að verða útnefndur
stórmeistari.
Lokaröð efstu
manna í flokkunum
fimm varð þessi:
A flokkur:
1. Þröstur Þórhallsson 9 ‘A v.
2, Sævar Bjamason 7 '/z v.
3—4. Magnús Öm Úlfarsson og
Hrafn Loftsson 7 v.
5. Jón Garðar Viðarsson 6 'A v.
6—7. Sigurður Daði Sigfússon og
Sigurbjörn Bjömsson 6 v.
8. Jón Viktor Gunnarsson 5‘A v.
B flokkur:
1. Ólafur B. Þórsson 8 v.
2— 3. Bergsteinn Einarsson og Páll
A. Þórarinsson 7 v. af 10
4. Heimir Ásgeirsson 6'A v.
5. Einar K. Einarsson 6 v.
C flokkur:
1. Jóhann H. Ragnarsson 8 v.
2. Davíð Ólafur Ingimarsson 7 v.
3— 5. Sverrir Sigurðsson, Sverrir
Norðfjörð og Árni H. Kristjánsson
6'A v.
D flokkur:
1. Jón Einar Karlsson 8 v. af 9
2—4. Óttar Norðfjörð, Flóki Ingvars-
son og Guðmundur Sv. Jónsson 6 v.
D flokkur (opinn):
1. Ingi Þór Einarsson 8'A v.
2—3. Þórir Benediktsson, Sigurður
Páll Steindórsson 8 v.
4— 5. Baldur H. Möller og Stefán
Kristjánsson 7‘A v.
6—7. Haukur Halldórsson og Ingi
Ágústsson 7 v.
Hannes í toppbaráttunni
Hannes Hlífar Stefánsson,
stórmeistari, er í toppbaráttunni
á öflugu opnu skákmóti á eyjunni
Krít í Miðjarðarhafi. Hannes er í
sjötta sæti með fimm og hálfan
vinning af átta mögulegum.
ásamt stórmeisturunum Tony
Miles, Englandi, Kotronias,
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélagið Muninn
Sandgerði
MIÐVIKUDAGINN 25. október lauk
þriggja kvölda hausttvímenningi fé-
lagsins og eru hér úrslit síðasta kvöld-
ið.
Miðlungur er 156
Karl G. Karlsson - Karl Einarsson 209
Eyþór Jónsson - Garðar Garðarsson 189
Svala Pálsdóttir - Vignir Sigursveinsson 188
Lokastaðan er þá þessi.
Miðlungur er 468
KarlG.Karlsson-KarlEinarsson 570
EyþórJónsson-GarðarGarðarsson 563
Svala Pálsdóttir - Vignir Sigursveinsson 526
MagnúsMagnússon-SiguijónJónsson 520
Kristján Kristjánsson - Kjartan Sævarsson 516
Miðvikudaginn 1. nóvember hefst 3
kvölda sveitakeppni (Monrad). Spilað
verður 1x32 spil á kvöldi og verður
dregið í fyrstu umferðina á staðnum.
Spilarar em hvattir til að skrá sig sem
fyrst hjá mótanefnd, en 8 sveitir eru
búnar að skrá sig nú þegar. Svo viljum
við enn og aftur minna menn á Stór-
mót Samvinnuferða-Landsýn og Mun-
Grikklandi og fleirum. Efstir eru
þeir Atalik, Tyrklandi, Nenashev,
Úsbekistan, Skembris, Grikklandi
og Guliev, Azerbadsjan með sex
vinninga. í síðustu umferðinni
teflir Hannes við Kotronias.
Eftir að hafa unnið Guliev í
fjórðu umferð, tapaði Hannes fyr-
ir Miladinovic, Serbíu, gerði jafn-
tefli við skákkonuna Arakhamiu
frá Georgíu, vann ísraelskan al-
þjóðameistara og gerði síðan jafn-
tefli við Tony Miles í áttundu
umferð. Um helgina hefst annað
opið mót á Krít og
þar teflir Hannes
einnig.
Fjöltefli Helgi
Áss hjá TR
Taflfélag Reykja-
víkur heldur skák-
æfingar fyrir böm
og unglinga á hverj-
um laugardegi
klukkan 14. Æfing-
arnar eru opnar öll-
um 14 ára og yngri.
Mikill áhugi er á
þessum æfingum og
þangað koma bæði
sterkustu skákmenn
landsins í þessum
aldursflokki og eins
þeir sem skemmra eru komnir.
Aðgangur er ókeypis. í dag, laug-
ardaginn, 28. október, mætir
Helgi Áss Grétarsson, yngsti stór-
meistari íslendinga, á æfinguna
og teflir ú'öltefli gegn þátttakend-
um.
Teflt verður í félagsheimili
Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni
12. Taflfélagið útvegar áhöld svo
þátttakendur þurfa ekki að hafa
neitt með sér til að taka þátt.
Allir 14 ára og yngri eru velkomn-
ir. Mikilvægt er að þátttakendur
mæti tímanlega.
Fjölteflið er í boði BYKO
Húsavíkurmótið hófst í gær
í tilefni af 70 ára afmæli Tafl-
félags Húsavíkur og áttræðisaf-
mæli Hjálmars Theódórssonar,
skákmeistara, er haldið atskák-
mót á Húsavík dagana 27.-29.
október. Sérstaklega hefur verið
boðið til leiks ungum skákmönn-
um. Þar á meðal er sigursveitin
á Ólympíumóti 16 ára og yngri á
Kanaríeyjum í vor. Við þá etja
kappi ungir og efnilegir skák-
menn víðs vegar að af landinu,
bæði drengir og stúlkur. Mótið
hófst í gærkvöldi og lýkur á
morgun, sunnudaginn 29. októ-
ber kl. 16. í verðlaun eru eignar-
bikarar. Styrktaraðilar eru Húsa-
víkurbær, Landsbanki íslands,
Kaupfélag Þingeyingn og Mjólk-
ursamlag KÞ.
ins sem haldið verður í íþróttahúsinu
í Sandgerði laugardaginn 11. nóvem-
ber kl. 11 stundvíslega. Nú þegar er
búið að skrá 50 pör. Skráning er hjá
Garðari s. 421-3632. Magnús s.
423-7759. BSÍ s. 587-9360.
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Kópavogi
Spilaður var tvímenningur föstud.
20.10. 20 pör mættu og var spilað í
2 riðlum úrslit í A-riðli:
Jósef Sigurðsson-Júlíuslngibeigsson 144
Ásthildur Sigurgislad. - Láras Arnórsson 125
Karl Adolfsson - Eggert Einarsson 121
Eysteinn Einarsson - Sigurleifur Guðjónsson 121
B-riðill:
ÞorsteinnSveipsson-EggertKristinsson 117
Sveinn Sæmundsson - Þórhallur Ámason 116
HelgaÁmundad. - Hermann Finnbogason 115
Spilaður var tvimenningur þriðju-
daginn 24. október. 24 pör mættu og
var spilað í 2 riðlum.
Úrslit í A-riðli (10 pör):
JónStefánsson-ÞorsteinnLaufdal 144
SæmundurBjömsson-BöðvarGuðmundsson 132
BergsveinnBreiðfjörð-StígurHerlufsen 114
B-riðill (14 pör):
Jónína Halldórsd. - Hannes Ingibergsson 198
Eysteinn Einarsson - Sigurleifur Guðjónsson 177
MargrétBjömson-KristinnMagnússon 176
AUÐUNN BRAGISVEINSSON,
Hjarðarhaga 28, Reykjavík.
Stórkostlegnr valkost-
ur í forsetakjöri
Þröstur
Þórhallsson
Margeir Pétursson.