Morgunblaðið - 28.10.1995, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SlMI 669 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
„ Morgunblaðið/RAX
BJORGUNARMENN leituðu fram eftir degi að litlu stúlkunni sem saknað var en hún fannst látin á fimmta tímanum í gær. Eyðileggingin á Flateyri er gríðarleg líkt og sjá má
á þessari mynd sem tekin var við endamörk flóðsins skammt frá kirkjunni, en þangað barst margvíslegt brak með straumnum um langan veg. Þar á meðal er risið á
húsi Guðjóns Guðmundssonar, sem áður var Unnarstígur 1. Fjöldi húsa er með öllu horfinn.
Leitarstarfi á Flateyri lauk síðdegis í gær þegar 20. fórnarlamb snjóflóðsins fannst
Mikið starf bíður við
hreinsun o g björgun
Eyðileggingin á Flateyri er gríðarleg og eignatjón
er talið nema á milli 200 og 300 milljónum króna
HVARVETNA getur að iíta persónulega
muni Flateyringa sem dreifst hafa um
snjóflóðasvæðið.
LEITARSTARFI á Flateyri lauk síðdegis í
gær, þegar björgunarsveitamenn fundu Re-
bekku Rut Haraldsdóttur, eins árs. Hún var
látin. Þar með var ljóst að tuttugu manns höfðu
farist í snjóflóðinu, sem skall yfir þorpið á
fimmtudagsnótt, þegar flestir íbúanna voru í
fastasvefni.
21 íbúi komst úr flóðinu af eigin rammleik
eða með aðstoð nágranna áður en eiginlegt
björgunarstarf hófst, en fjórum var bjargað úr
rústum húsanna. Enginn þeirra er alvarlega
slasaður.
Örmagna leitarmenn héldu heim á leið
Á annað hundrað björgunarsveitarmenn leit-
uðu litlu stúlkunnar í gær og höfðu hunda sér
til aðstoðar. Eftir að leitinni lauk fóru leitar-
menn, sem komið höfðu víðsvegar að af land-
inu, að tygja sig til heimferðar, örmagna eftir
að hafa lagt hart að sér við leitina.
Eftir er mikið starf við að hreinsa rústir
húsa, bjarga munum fólks og forða eignum frá
frekara tjóni. Forráðamenn sveitarfélagsins
segja að það sé ekki tímabært að ræða framtíð-
ina í byggðarlaginu svo fljótt eftir þetta mikla
og óvænta áfall.
Eyðileggingin á Flateyri er gríðarleg, fjöldi
húsa er með öllu horfinn og önnur meira og
minna skemmd. Talið er að eignatjón nemi á
milli 200-300 milljónum króna. Þá er miðað
við að tjónabætur Viðlagatryggingar íslands
vegna snjóflóðsins í Súðavík námu rúmum 180
milljónum króna, með kostnaði við hreinsun.
Forseta íslands og ríkisstjórn hafa borist fjöl-
margar samúðarkveðjur víðs vegar að úr
heiminum vegna atburðanna á Flateyri, m.a.
frá sænsku og norsku konungshjónunum, Jó-
hannesi Páli II páfa, forsætisráðherrum Dan-
merkur og Eistlands, lögmanni Færeyja, ríkis-
stjórn Argentínu og framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins.
■ Snjóflóðið og afleiðingar þess/
2,4,6,8,9,12,13,14,15,16 og miðopna.
Litla
stúlkan
fannst látin
LITLA stúlkan, Rebekka Rut
Haraldsdóttir, sem leitað var
Iengst þeirra er urðu fyrir snjó-
flóðinu á Flateyri, fannst látin
á fimmta tímanum í gærdag.
Rebekka Rut var eins árs
gömul. Foreldrar hennar, Svan-
hildur Hlöðversdóttir og Har-
aldur Eggertsson, fórust einnig
í snjóflóðinu og eldri systkini
hennar, Haraldur Jón, 4 ára og
Astrós Birna, 3 ára.
Fjölskyldan var til heimilis
að Hjallavegi 10.