Morgunblaðið - 28.11.1995, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Yiðræður bæjarins og ríkisvaldsins um verkefni reynslusveitarfélagsins Akureyrar
Akureyrarbær reki
Heilsugæslustöðina
SAMNINGAVIÐRÆÐUR Akur-
eyrarbæjar við ríkisvaldið um verk-
efni reynslusveitarfélagsins Akur-
eyrar standa yfir en samkvæmt lög-
um skulu verkefnin standa yfír í
fjögur ár, eða frá 1. janúar 1996.
Akureyrarbær lagði upp með 8 verk-
efni en þau eru á sviði menningar-
mála, félagslegra húsnæðismála,
heilbrigðismála, þjónustu við aldr-
aða, þjónustu við fatlaða, um breytt
vinnubrögð hjá skipulagsdeild og
byggingaeftirliti og málefni at-
vinnulausra. Til viðbótar er sérstakt
heimaverkefni og snýr að bættri
skilvirkni innan bæjarkerfísins og
bættri þjónustu við bæjarbúa.
„Þessar viðræður við ríkisvaldið
standa mjög misjafnlega en stefnt
er að því að ná endum saman fyrir
áramót, þó svo að það taki einhvern
tíma til viðbótar að koma öllum at-
riðum í eðlilegan farveg,“ segir
Þórgnýr Dýrfjörð, starfsmaður
framkvæmdanefndar um reynslu-
sveitarfélagið Akureyri.
Hann segir að varðandi þjónustu
við aldraða sé komin upp nýr flötur
og snúi að því að Akureyrarbær
yfirtaki rekstur Heilsugæslustöðv-
arinnar. „Þetta kæmi ekki til með
að breyta upphaflegum markmiðum
varðandi þjónustu við aldraða en
myndi vikka þau talsvert út og er
leið til að koma til móts við sem
flest sjónarmið. Það myndi jafn-
framt þýða að verkefnið færi ekki
af stað fyrr en um mitt næsta ár.“
Gert var ráð fyrir því að færa fé
frá þeim stofnunum sem eru reknar
fyrir aldaraða á Akureyri og yfir í
svokallaða opna þjónustu og er fyr-
ir þá sem eru heima hjá sér. Jafn-
framt var ráðgert að færa heima-
hjúkrun Heilsugæslustöðvarinnar
undir sambærilega starfsemi á veg-
um bæjarins. „Vegna tæknilegra
vandamála við að færa heimahjúkr-
unina frá Heilsugæslustöðinni eru
nú að hefjast viðræður við heilbrigð-
isráðuneytið um að bærinn yfirtaki
allan rekstur Heilsugæslustöðvar-
innar.“
Við þá breytingu hefði bærinn í
hendi sér að skipta þeim ijármunum
sem í þennan málaflokk fara á milli
stofnanaþjónustunnar og opnu þjón-
ustunnar en margt gamalt fólk vill
búa sem lengst við öryggi heima
hjá sér.
Bærinn yfirtaki rekstur
svæðisskrifstofu
í málefnum fatlaðra er gert ráð
fyrir að Akureyrarbær yfírtaki þá
þjónustu sem Svæðisskrifstofa um
málefni fatlaðra Norðurlandi eystra
hefur veitt og þá þann hluta sem
snýr að Eyjafjarðarsvæðinu. „Menn
sjá mikla kosti við að færa þessa
þjónustu undir bæinn en viðræðurn-
ar hingað til hafa strandað á fjár-
máiahlið samningsins. Hins vegar
er að rofa til í þeim efnum og ef
ríkið treystir sér til að standa við
þann fjármálaléga grunn sem það
hefur boðið upp á ættu samningar
að nást. Þetta gefur okkur mikla
möguleika á að samtvinna þá félags-
legu þjónustu sem Akureyrarbær
veitir nú þegar. Það mun taka allt
næsta ár að flétta þetta allt saman,
enda mikil vinna eftir í samráði við
starfsmenn svæðisskrifstofunnar.“
Þórgnýr segir að menn séu nokk-
uð ánægðir með félagslega hús-
næðiskerfið eins og það er. Það
standa engar slíkar íbúðir auðar í
bænum og íbúðir sem á að byggja
á næsta ári eru þegar fráteknar.
Þjónusta Veðdeildar
flytjist norður
„Þær breytingar sem óskað hefur
verið eftir snúast um að bærinn fái
rammalán sem hann ræður hvernig
hann ráðstafar. Markmiðið með
þessu er að ná niður kostnaði og
byggja sem ódýrast. Þessu ætti að
fylgja einföldun á samskiptum Hús-
næðisskrifstofunnar og Húsnæðis-
stofnunar og jafnvel að með því
spöruðust einhveijir íjármunir um
leið og þjónustan yrði skilvirkari.
Einnig höfum við lagt til að Hús-
næðisstofnun semji við Landsbank-
ann á Akureyri um að þjónusta
Veðdeildar flytjist hingað. Þetta at-
riði snýr ekki beint að reynslusveit-
arfélagaverkefninu en væri til að
styrkja þann farveg sem við erum
að reyna að fara í.“
Lagt er til að öll fjárveiting til
menningarmála á Akureyri komi í
einum pakka og bærinn sjái síðan
um að skiptaþeim Ijármunum. Inni-
falið í þeim hugmyndum er að ríkið
geri áætlun um uppbyggingu í
menningarmálum næstu fjögur árin.
„Ríkið hefur lagt um 30 milljónir
króna á ári til þessa málaflokks en
nú viljum við fá inn til viðbótar
stofnframlög vegna Amtsbóka-
safnsins og gera áætlun um hvernig
við getum uppfyllt lagaskyldu safns-
ins. Jafnframt viljum við fá svigrúm
til aukinnar starfsemi en þessi atr-
iði eru enn á viðræðustigi,“ segir
Þórgnýr.
Þá er lagt til að atvinnuleysis-
tryggingasjóður, Akureyrarbær og
menntamálaráðuneytið fari í sam-
vinnu um að varðveita og skrá minj-
ar í Gásakaupstað í Glæsibæjár-
hreppi. Markmiðið er þríþætt, í
fyrsta lagi að varðveita þessar minj-
ar, í öðru Iagi að gera svæðið að-
gengilegt fyrir ferðamenn og skóla
og í þriðja lagi að þetta verði verk-
efni fyrír atvinnulausa. Einnig að
komið verði á fót stöðu minjavarðar
fyrir Eyjafjarðarsvæðið, með aðset-
ur á Akureyri, sem yrði þá fulltrúi
Þjóðminjasafns og þjóðminjaráðs.
Loks eru uppi hugmyndir um að
koma upp iðnminjasafni í bænum,
í tengslum við ákvörðun Þjóðminja-
safnins um að koma upp tækni-
minjasafni.
Sjálfstæði byggingafulltrúa
verði aukið
Gert er ráð fyrir að auka sjálf-
stæði byggingafulltrúa, þannig að
hann hafi leyfi til að afgreiða allar
byggingaleyfisumsóknir, sem þurfi
þá ekki lengur að fara fyrir bygg-
inganefnd. Sætti umsækjandi sig
ekki við úrskurð byggingafulltrúa
getur hann áfrýjað málinu til bygg-
inganefndar, sem þá kynnir sér
málið og kveður upp úrskurð.
„Með þessu er verið að einfalda
ferilinn og gera hann fljótvirkari án
þess að völd bygginganefndar séu
skert. Þetta tengist jafnframt end-
urskipulagningu hjá embætti bygg-
ingafulltrúa. Umhverfisráðuneytið
hefur fyrir sitt leyti samþykkt þessa
breytingu og nú er það hið pólitíska
vald í bænum sem þarf að leggja
blessun sína yfir hana.
Varðandi skipulagsdeild er unnið
að því að gera hana sjálfstæðari og
fækka þeim skrefum sem þarf að
taka í samráði við Skipulag ríkisins.
Ekki er um verkefnaflutning að
ræða heldur einföldun á starfsemi
deildarinnar. U mhverfisráðuneytið
hefur enn ekki samþykkt þessa til-
lögu en hyggst nota tækifærið til
að taka á þessu þegar nýtt frum-
varp til bygginga- og skipulagslaga
verður lagt fram. „Við viljum endi-
lega fá að prófa það frumvarp því
þar er kveðið á um nokkrar af þeim
breytingum sem við leggjum til en
við höfum ekki enn fengið svar við
þeirri málaleitan."
Á meðal tillagna um bætta þjón-
ustu við bæjarbúa er að komið Verði
á fót upplýsingamiðstöð Akureyrar-
bæjar og eins að bærinn fari á ver-
aldarvef alnetsins. Þar geti bæj-
arbúar nálgast fundagerðir og aðrar
hagnýtar upplýsingar og jafnframt
lagt fram hugmyndir og tillögur um
bætta þjónustu við notendur. „Það
er mjög brýnt að koma á fót upplýs-
ingamiðstöð, þar sem fólk getur
fengið svör við spurningum sínum
og þurfi ekki lengur að hlaupa eftir
upplýsingum á milli deilda um allan
bæ,“ sagði Þórgnýr.
,1111
Lindab
■ iit
: þaKrennur
■ • , o °.°o
:
♦
Allir fylgihlutir :
Þakrennukerfið frá okkur er heildar- *
lausn. Níðsterkt og falleg hönnun. m
Þakrennukerfi sem endist og end- :
ist. Verðið kemur skemmtilega á m
óvart. Gott litaúrval.
Umboðsmenn um land allt. ■
TÆKUIDEILO ÚJSfh ,/í/ING
Smiðshöfða 9 • 132 Reykjavík m
Sími 587 5699 • Fax 567 4699 «l
Þak- og veggklæðning í
mörgum útfærslum, t.d.: bárað,
kantað, þaksteinamynstur ofl.
Plastisol yfirborðsvörn klæðn-
ingarinnar gefur margfalda
endingu.
Fjölbreytt litaúrval.
Umboðsmenn um land allt.
Lindab
ÞAKSTÁL
TÆKÍJIDEILÐ ÚJi
Smiðshöfða 9 • 132 Reykjavík
Sími 587 5699 • Fax 567 4699
*# «i' a ■ * i f 1111 ■ i ft*
Morgunblaðið/Kristján
Týri og skautasvellið
ÞAÐ HEFUR verið heilmikið fjör
á skautasvelli Skautafélags Akur-
eyrar á Krókeyri síðustu daga og
þangað hafa fjölmargir krakkar
lagt leið sína. Ekki eru þeir allir
háir í loftinu, sem stunda þessa
vinsælu vetraríþrótt á Akureyri.
En greinilegt er að það eru ekki
bara börnin sem hafa áhuga á að
renna sér á spegilsléttu svellinu,
hann Týri mændi löngunaraugum
yfir grindverkið og langaði mikið
að fara eina salihunu um svellið,
en Guðmundur húsbóndi hanS
hélt aftur af þessum áhugasama
skautahundi.
Gallerí AllraHanda í Hekluhúsinu
ÞAU sýna í sal Gallerís AllraHanda, Kristjana F. Arndal og
Hólmfriður Bjartmarsdóttir í neðri röð og Hörður Jörundsson,
Aðalsteinn Vestmann og Örn Ingi Gíslason í þeirri efri.
Verk 5 listamanna
FIMM listamenn sýna nú verk sín í
sal Gallerís AllraHanda í Hekluhús-
inu á Gleráreyrum, þau Aðalsteinn
Vestmann, Hólmfríður Bjartmars-
dóttir, Hörður Jörundsson, Kristjana
F. Arndal og Öm Jngi Gíslason. Á
sýningunni eru um 50 verk, mynd-
vefnaður eftir Hólmfríði, en aðrir eru
með olíumálverk eða vatnslitamyndir
og síðan sýnir Kristjana einnig
nokkra steina sem hún hefur málað
á myndir.
Fimmta sýningin í salnum
Salur Gallerís AliraHanda var
opnaður í Hekluhúsinu í mars síð-
astliðnum, en þau hjónin Þórey
Eyþórsdóttir og Kristján Baldurs-
son eiga og reka hann en auk hans
eru þau með fjölbreyttan rekstur í
húsinu. Fyrsta sýningin í salnum
var í marsmánuði, þá sýndi Val-
gerður Hauksdóttir, síðan kom Að-
alsteinn Vestmann og sýndi verk
sín um páskana. Um vorið voru
tvær norskar myndlistarkonur á
ferðinni með textílverk sem vöktu
verðskuldaða athygli. Eftir sum-
arfrí var opnað að nýju með sýningu
Gunnars Rafns skurðlæknis á Húsa-
vík, þannig að sýning fimmmenn-
inganna nú er sú fimmta í salnum
frá því hann var opnaður.
„Það hefur alltaf verið góð aðsókn
að sýningum hér,“ sagði Kristján, en
yfír eitt þúsund manns sáu síðustu
sýningu í salnum, verk Gunnars
Rafns. „Fólk veit af þessum sal hér
og það skiptir ekki máli þó við séum
ekki í miðbænum, fólk kemur," sagði
Þórey.
Áhrif tímans
„Eg er undir áhrifum frá tíman-
um, þetta eru allt myndir svona á
tímabilinu frá seinni slætti og fram
á veturinn, mest haust- og vetrar-
myndir," sagði Kristjana F. Arndal,
en hún var fyrst listamanna á Akur-
eyri til að hljóta starfslaun lista-
manns í bænum. Það var árið 1990
og síðan sýndi hún í Safnaðarheim-
ilinu ári síðar. Frá þeim tíma hefur
verið hljótt um Kristjönu. „Ég er í
gamla góða tímanum, mér þykir allt
í lagi þó líði 3-4 ár milli sýninga,
maður þarf ekki endilega að sýna á
hverju ári,“ sagði hún.
Sýningin stendur til 11. desember
næstkomandi, en salurinn er opinn
daglega frá kl. 15-18.