Morgunblaðið - 06.12.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.12.1995, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Rekstur ýmissa stofnana tekinn til endurskoðunar Bæjarstjóri boðar áframhald á sölu hlutabréfa á næsta ári Starfshópur á veg- um bæjarstjórnar Fíkniefna- notkun ungi- inga könnuð TEKJUR bæjarsjóðs Akureyrar- bæjar verða um 14,4 milljónum krónum lægri á næsta ári en áætlað hafði verið miðað við endurskoðun fjárhagsáætlunar á þessu ári, en á sama tíma hafa komið fram óskir um aukna starfsemi sem kalla á aukin rekstrargjöld að því er fram kom í máli Jakobs Björnssonar bæjarstjóra á Akureyri við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun bæjar- sjóðs og stofnana hans á fundi bæj- arstjórar í gærkvöld. „Það liggur því í augum uppi, að erfítt er að fá dæmið til að ganga upp án þess að auka álögur á bæj- arbúa, auka tekjur, endurmeta þjón- ustuframboð og greiðslur notenda fyrir þjónustuna og eða ná niður rekstrarkostnaði," sagði Jakob. Gagnger endurskoðun á rekstrarþáttum bæjarins Á næsta ári verður haldið áfram að endurskoða ýmsa rekstrarþætti í bæjarkerfinu og mun fara fram gagnger endurskoðun á rekstri Tónlistarskólans á Akureyri og tón- listarkennslu í bænum, rekstri Strætisvagna Akureyrarbæjar, starfsemi vélasjóðs, gatnagerðar og verklegum framkvæmdum bæjar- ins, einnig á skipulagi og starfsemi tómstundamála og á reglum um 4 ► < ► EIGNAMTOLONIN % - Abyrg þjónusta í áratugi. íf Sími: 588 9090 - Fax 588 9095 Síðumúla 21. Sverrir Krislinsson, löggiltur fasteignasali. Hótel, gistiheimili eða einb. (tví-, þrí-, fjórbýli) óskast. Traustur kaupandi (getur staðgreitt) óskar eftir húseign með 15-30 herbergjum. Svæði: Pingholt, vesturbær, gamli bærinn. Hér er um að ræða traustan, öruggan og ákveðinn kaupanda. Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson. 1,1. Þverás. Vorum að fá í sölu um 170 fm eign á tveimur hæðum m. innb. bfl- skúr. Eignin þarfnast lokafrágangs. Áhv. ca 10,7 m. byggsj. + húsbr. V. 12,5 m. 4959. Einarsnes. Gullfallegt 2ja herb. parhús. íb hefur verið standsett á smekklegan hátt. Óinnr. ris með mikla möguleika. Stór garöur. V. 5,7 m. 4600. Dalbraut — eldri borgarar. 2ja herb. 65 fm falleg og björt íb. á 3. hæð í lyftuhúsi. íb. snýr til austurs og suðurs. Reykjavíkurborg rekur þjón- ustusel í húsinu. Áhv. 3,4 m. byggsj. Laus strax. 4954. Laugarnesvegur - bílsk. 4ra herb. séríbúð í járnklæddu timburhúsi. Um 26 fm bílskúr. V. 6,8 m. 4814. Þönglabakki. Glæsilegt um 330 fm skrifstofu- og þjón ustuhúsnæði á 2. hæð í nýlegu og vönduðu húsi. Gott verð og kjör í boði. 992. Stapahraun - gott verð. Vorum að fá í sölu vandað atvinnuhúsnæði sem er þrjár hæðir, hver hæð 245 fm og bakhús 400 fm. Fernar innkeyrsludyr. Góð lofthæð. Selst saman eða í hlutum. Upþl. gefur Stefán Hrafn. 5281. Funahöfði. Mjög gott um 300 fm atvinnuhúsnæði á götuhæð ásamt 180 fm efrí hæð. Möguleiki á 6 m. lofthæð. Innkeyrsludyr. 5279. fjárhagsaðstoð. Þá verður mótuð stefna um hiutfall sértekna í rekstri þjónustustofnana bæjarins og gjaldskrár endurskoðaðar með tilliti til þeirrar stefnu. Bæjarstjóri vék að Fram- kvæmdasjóði Akureyrarbæjar sem er eigandi hlutabréfa bæjarins í ýmsum fyrirtækjum, en fjárhags- áætlun sjóðsins lá ekki fyrir á fund- inum þar sem unnið er að umtals- verðri eignasölu um þessar mundir, m.a. hlutabréfum í Krossanesi og Skinnaiðnaði. Málin munu skýrast við síðari umræðu um fjárhagsáætlunina og ættu áhrif eignasölunnar að endur- STARFSFÓLK íþróttamannvirkja Akureyrarbæjar fjölmennti á fund bæjarstjórnar Akureyrar í gær vegna tillagna um breytt vakta- fyrirkomulag starfsfólks í íþrótta- húsum og sundlaugum Akureyrar- bæjar, en tillögurnar hafa í för með sér minni yfirvinnu starfsfólks. Mikiar umræður urðu á fundinum um þetta mál. Þórarinn E. Sveinsson, Fram- sóknarflokki, formaður Iþrótta- og tómstundaráðs, sagði að hagdeiid bæjarins og starfsmaður sem ráðinn var til að hagræða í rekstri hefðu unnið að tillögum um breytt vakta- fyrirkomulag og vissulega væri um þær verulegur ágreiningur. Þórar- inn minnti á að mál þetta hefði ekki verið afgreitt. Farið fram með offorsi Þórarinn B. Jónsson, Sjálfstæðis- flokki, sagði að farið hefði verið fram í málinu af miklu offorsi og hinum mannlega þætti gjörsamlega gleymt. Ekki væri ráðiegt að þjösna því í gegn á stuttum tíma, heldur finna aðrar og mýkri leiðir. Gísli Bragi Hjartarson, Alþýðu- speglast í ijárhagsáætlun fyrir næsta ár. „Það er stefna meirihluta bæjar- stjórnar að halda áfram á þeirri braut, að selja hlutabréf Akureyrar- bæjar í atvinnufyrirtækjum og markmiðið að það gerist á árinu 1996. Söluandvirði hlutabréfanna verði fyrst og fremst varið til niður- greiðslu skulda hjá Framkvæmda- sjóði og bæjarsjóði,“ sagði Jakob. Það svigrúm sem skapast verður nýtt til verkefna á sviði atvinnuþró- unarverkefna, menningarmála, íþrótta- og tómstundamála, um- hverfismála og viðhalds eigna. flokki, sagði að allir væru sammála um að gæta þyrfti sparnaðar í rekstri og fara ætti vel með fé skatt- borgaranna. Hann lagði til að unn- ið yrði að því að ná fram hagræð- ingu í rekstri íþróttamannvirkja í samráði við starfsfólkið. Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu- bandalagi, sagði ekki einsdæmi að fyrirkomulag vinnu á ákveðnum sviðum væri skoðað og nefndi að slík skoðun hefði haft hagræðingu í för með sér í leikskólum og við öldrunarþjónustu. Það væri hins vegar afar slæmt ef fólki fyndist að sér vegið eins í tilviki starfsfólks íþróttamannvirkja. Nefndi Sigríður að yfirvinna í öllu bæjarkerfinu væri almennt of mikil. Jakob Björnsson bæjarstjóri sagði að þegar væri verið að skoða hagræðingu í rekstri væri óhjá- kvæmilegt að staldra við stærsta póstinn, laun. Hann skildi vel óró- leika fólks sem væri að hugsa um afkomu sína, en vitanlega næðist árangur aðeins ef sátt ríkti milli aðila. Málið væri enn í vinnslu og engar ákvarðanir teknar áður en rætt yrði við starfsfólk. TILLAGA Sigríðar Stefánsdóttur, Alþýðubandalagi, um skipun starfshóps til að afla upplýsinga um stöðu mála hvað varðar fíkni- efnanotkun unglinga á Akureyri og í landinu var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær. I tillögunni er gert ráð fyrir að starfshópurinn miðli þeim upplýs- ingum sem hann aflar og leggi til- lögur fyrir bæjarstjórn um hugsan- legar aðgerðir til varnar. Tillaga Sigríðar er til komin vegna áskorunar stjórnar Sain- bands íslenskra sveitarfélaga um að taka til sérstakrar umijöllunar sívaxandi fíkniefnanotkun ungl- inga. ------» ♦ »------ Kór Tónlistarskólans Fyrstu tón- leikarnir FYRSTU tónleikar Kórs Tónlistar- skólans á Akureyri verða haldnir í kvöld, miðvikudagskvöldið 6. des- ember kl. 20.30 í Akureyrarkirkju. Á efnisskránni er Gloria eftir Vivaldi og óbókonsert eftir Hándel. Einsöngvarar eru Björg Þórhalls- dóttir mezzósópran og Hildur Tryggvadóttir sópran. Einleikari er Jacqueline F. Simm. Stjórnandi kórsins er Michael Jón Clarke. Kórinn var stofnaður í haust og hefur á að skipa 45 söngvurum. Með kórnum kemur fram kammer- sveit skipuð kennurum og nemend- um við Tónlistarskólann. ------» --------- Bókakaffi í Glerárskóla NEMENDUR unglingadeilda Gler- árskóla koma saman á bókasafni skólans og lesa úr nýútkomnum íslenskum barna- og unglingabók- um í kvöld, miðvikudagskvöldið 6. desember kl. 20.30. Léttar veitingar verða á boðstól- um og gott næði gefst til að skoða nýjar bækur, hluta á unglingana og ræða við þá um bókmenntir. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfír. Starfsfólk íþróttahúsa á fundi bæjarstjórnar Agreiningnr um breyttar vaktir Sunna Borg formaður LA hefur dregið umsókn sína til baka Sökudólgurinn leikhúsráð SUNNA Borg for- maður leikhúsráðs Leikfélags Akureyrar hefur dregið umsókn sína um starf leikhús- stjóra LA til baka og hefur hún þegar til- kynnt leikhúsráði ákvörðun sína. Sunna var ein átta umsækj- enda um stöðuna, eft- ir að hún var auglýst í annað sinn. I yfirlýsingu frá Sunnu Borg segir: „Ástæður fyrir því að ég sótti um stöðu Ieik- hússtjóra á síðasta degi umsóknarfrests- ins voru margvíslegar. Það eru erfiðir tímar framundan hjá leikfélaginu þar sem sitjandi leik- hússtjóri sagði upp samningi sín- um áður en ráðningartími hans var útrunninn. Til að fyrirbyggja röskun sem því getur fylgt taldi ég að sú reynsla sem ég hef öðl- ast hjá leikfélaginu í 16 ár og þar af 8 ár sem formaður, yrði gott veganesti. Einnig styrktu áskor- anir bæjarbúa ákvörð- un mína og það traust sem ég hef fundið að þeir bera til mín og ekki fannst mér það verra að vera innan- bæjarkona. Það að ég dreg umsókn mína til baka núna helgast af því að mér þefur ekki fallið það inoldviðri sem þyrlast hefur upp í kjölfar umsóknarinn- ar. Sökudólgurinn er að mínu áliti fyrst og fremst leikhúsráð en ég steig úr stóli formanns um leið og öllum var ljóst að ég var einn af umsækj- endum. Fréttatilkynningar sem komu frá leikhúsráði og birtust í fjöl- miðium oftsinnis og sem sífellt var hamrað á að ég hafi ekki tjáð ráðinu fyrirætlun mína og að ég hafi veitt upplýsingar um starfið, hefur dregið langan dilk á eftir sér. Þær upplýsingar sem ég veitti tveimur umsækjendum hefðu allt eins getað verið á símsvara svo léttvægar voru þær. Leikhúsheimurinn er viðkvæm- ur, því það tekur ekki langan tíma fyrir sögur að fá vængi. Vængja- slátturinn magnaðist og að lokum var hann farinn að valda mér óþægindum. Þetta mál allt hefur svo gjörsamlega farið úr böndun- um, að ég sækist ekki Iengur eftir stöðu leikhússtjóra en eftir sem áður hef ég alltaf borið hag leik- hússins fyrir brjósti og mun það ekki breytast. Það hefur því miður allt of oft viðgengist að þeir sem telja sig hafa einhver völd einblína einung- is á smámunina en ekki það sem skiptir höfuðmáli. Ég mun ekki blanda mér í ráðningu á nýjum leikhússtjóra, það gerir leikhús- ráð sem hefur haft þetta í sínum höndum frá byrjum," segir Sunna í yfirlýsingu sinni. Sunna Borg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.