Morgunblaðið - 06.12.1995, Page 15

Morgunblaðið - 06.12.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995 15 LAINIDIÐ Mikið um dýrð- ir í Jóla- landinu Hveragerði - Þó að veðurguð- irnir hafi sett örlítið strik í reikninginn við opnun Jóla- lands í Hveragerði aftraði veðrið ekki því að mikill mann- fjöldi lagði leið sína þangað sl. föstudagskvöld. Mikil bílaröð myndaðist upp Kambana og þar mátti sjá bílljósaraðirnar eins langt og augað eygði. Hinir fjölmörgu gestir Jóla- landsins þetta kvöld voru sann- arlega ekki sviknir af því sem þar bar fyrir augu. Jólasöngv- ar hljómuðu bæði frá Kirkju- kór Hveragerðis og Skóla- hljómsveit Grunnskólans. Jóla- sveinar, Grýla og fleiri kynja- verur heilluðu jafnt unga sem aldna og síðast en ekki síst skemmti Bubbi Morthens við- stöddum. í Hveragerði hafa íbúarnir tekið vel við sér í sambandi við jólaskreytingar og hefur aldrei áður verið lagt jafn mikið í skreytingar í bæjarfélaginu og nú. Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir Börn frá Flateyri í Jólalandinu JÓLASVEINNINN fór á laugardag vestur á Flateyri og sótti þangað stóran hóp barna og fylgdarmanna og flutti þau í flug- vél Flugleiða suður á vit ævintýra í Jólalandinu í Hveragerði. Þegar þangað kom tók við mikil dagskrá og var greinilegt á viðbrögðum barnanna að þau skemmtu sér konunglega. Vegna þess hve mikið var að gera hjá hópnum var hægara sagt en gert að ná þeim öllum saman á mynd, en hluti hópsins tyllti sér þó niður til að spjalla við jólasveininn og þá var myndin tekin. Saga Selfoss - 2. bindi komið út UM ÞESSAR mundir er að koma út á vegum Selfosskaupstaðar 2. bindi af Sögu Selfoss, sem fjallar í meginatriðum um tímabilið 1930-1960, þótt ýmislegt vilji þar skarast og sums staðar verði þessi tímaskil harla óljós, segir í frétt frá bæjarskrifstofu Selfoss. Skráð hefur Guðmundur Kristinsson og í ritnefnd eru Jón R. Hjálmarsson, Páll Lýðsson og Þór Vigfússon. Bókin skiptist í 23 meginkafla. Þar er fyrst yfirlit yfir sögu Mjólk- urbús Flóamanna, Kaupfélags Ár- nesinga og Verslunar S.Ó. Ólafs- son & Co. Á umræddu tímabili voru þessi fyrirtæki burðarásar atvinnulífsins í hinu unga kaupt- úni. Olfusárbrú og bílaöld Sagt er frá upphafi bílaaldar og Ölfusárbrú þegar hún brast og ný var byggð. Þá er kafli um landbún- að, búskap bæjarbúa, heimasölu nýmjólkur og loðdýrarækt. Sagt er frá skipulagi og landakaupum og birt nöfn allra íbúðarhúsa árið 1946. Kaflar eru um vatnsveitu, rafveitu, slökkvilið, farskóla og fastan skóla á Selfossi, sýslumenn og upphaf löggæslu. Síðan er kafli um sveitarstjórn. Sagt er frá pólitískum flokkadrátt- um og hvernig völdin í hreppsmál- um færðust í hendur Selfossbúa. Þar er sagt frá fyrstu iæknum og stofnun Selfosslæknishéraðs og sjúkrahúss. Sagt er frá 21 iðnaðarmanni sem settist að á Selfossi fyrir 1950 og 5 kaupmönnum, svo og frá íþróttum og afreksmönnum. Þá er kafli um samkomuhús og veiting- ar, um veitingarekstur Brynjólfs Gíslasonar og Kristínar Árnadóttur í Tryggvaskála, kvikmyndasýning- um Georgs Magnússonar í Georgs- bíói og Eiríks Bjarnasonar í Tryggvaskála og byggingu og rekstri Selfossbíós. Gerð ér grein fyrir þeim félögum sem stofnuð höfðu verið fyrir 1950 og eftir- minnilegum mannfundum, lýðveld- ishátíð 1944 og heimsókn Ásgeirs forseta 1955. Þá er ítarleg frásögn frá stofnun Selfosshrepps, sem olli miklum deilum á sínum tíma. Loks er langur kafli um dvöl breskra og bandarískra hermanna við Ölfusárbrú á stríðsárunum með ljósmyndum frá komu þeirra. Bókin er 387 blaðsíður og prýdd 365 ljósmyndum og uppdráttum og með skrám yfir heimildir, ljós- myndir og nöfn 1.220 manna sem við sögu koma. Bókin er unnin í Prentsmiðju Suðurlands hf. á Selfossi og bund- in hjá G. Ben. - Eddu hf. í Reykja- vík. Fimm býli í eyði á árinu Kaldalóni - ÞAÐ gerðist hér í ísa- fjarðardjúpi í síðustu viku nóvem- ber 1995, að 320 fjár voru send til slátrunar vestur á Þingeyri, frá Botni í Mjóafirði í Reykjafjarðar- hreppi hinum forna, sem nú hefur sameinast Súðavíkurhreppi. Er. þetta í fyrsta sinn sem svo mörgu fé er slátrað á þessum árstíma. Bóndinn þar, Torfi Jónsson, hef- ur búið í Botni í nokkur ár og búnast þar ágætlega. Hann lét sig ekki muna um að skreppa út í Snæfjallahrepp á síðastliðnu sumri til að bera þar á túnin og heyja þar í sumar og flytja inn í Mjóafjörð. í Botni í Mjóafirði eru nýlega byggð íjárhús fyrir um 400 fjár og feiknaleg hlaða þar við þau, byggð af Ágústi Gíslasyni, bygg- ingameistara, sem stóð fyrir stór- kostlegustu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í ísafjarðardjúpi á einu ári, að mestu gerð og af hendi leyst af miklum ágætum. Á þessu herrans ári 1995 er þetta fimmta býlið sem fer í eyði í Djúpinu, sem er ólýsanlegt áfall fyrir byggðina í heild. En nú er bændum stillt upp við vegg og sagt: „Þú færð þetta ef þú hættir búskap í fimm ár, annars getur þú lapið dauðann úr öðuskel, eða dáið drottni þínum úti á helkulda tilverunnar, án nokkurrar mis- kunnar.“ Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson KIRKJAN á Reykhólum. Reykhólakirkia fegruð Miðhúsum - Unnið hefur verið að því að undanförnu að fegra Reyk- hólakirkju. Nú er búið að mála kirkjuna og lakkbera kirkjubekki og skipta um áklæði á sætum en hönnuður sætanna, Jón Ólafsson arkitekt, teiknaði þau og sá um breytingu á áklæði þeirra nú. Sr. Bragi Benediktsson prófastur sá um alla yfirstjórn og flutninga en Páll Jónsson, Reykhólum, vann alla verkhliðina með mestu prýði. Ákveðið er að flóðlýsa kirkjuna og mun kirkjan auka á fegurð Reyk- hóla þegar vetrarmyrkrið eykst en kirkjan er hin mesta staðarprýði. AKUREYRI í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá því að Akureyrarskrifstofa Morgunblaðsins var sett á laggirnar í Hafnarstræti 85 er ætlunin að vera með sérstaka útgáfu fimmtudaginn 14. desember nk. sem helguð er Akureyri. í þessu blaði verður meðal annars fjallað um hvaða breytingar hafa orðið á Akureyri á síðustu 10 árum, rætt verður við fjölda Akureyringa og púlsinn tekinn á atvinnumálum, pólitík, menningar- og menntamálu'm og íþróttum. Einnig verður mannlífið á Akureyri skoðað. Upplýsingar um auglýsingabirtingar í þessa útgáfu veita sölufulltrúar Morgunblaðsins, Dóra Guðný Sigurðardóttir og Rakel Sveinsdóttir, í síma 569 1171 eða með símbréfi 569 1110 til 7. desember, en dagana 7. og 8. desember verða þær staddar á Akureyri til frekari aðstoðar auglýsendum þar. ptoffgtwMtiMfe -kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.