Morgunblaðið - 06.12.1995, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
Ströng EMU-skil-
yrði valda vanda
Brussel, Róm. Reuter.
EVRÖPSKIR sérfræðingar í efna-
hagsmálum hafa sívaxandi áhyggjur
af þeim mikla kostnaði, sem fylgir
því fyrir aðildarríki Evrópusam-
bandsins að aðlaga sig að skilmálum
Maastricht-sáttmálans vegna hins
peningalega samruna Evrópuríkja
(EMU). Hvergi koma hin erfiðu áhrif
þessarar aðlögunar betur í ljós en í
Frakklandi.
Sérfræðingar segja hinn félags-
lega óróleika í Frakkiandi síðustu
daga sýna fram á einn helsta galla
Maastricht-samkomulagsins, nefni-
lega að ríkisstjórnir geti ekki mildað
áhrif harðra aðhaldsaðgerða í ríkis-
fjármálum.
Markmið peningastefnunnar er að
sem minnst röskun verði á innbyrðis
gengi evrópskra gjaldmiðla og í rík-
isflármálunum verða ríkin að upp-
fylla ströng skilyrði um verðbólgu,
fjárlagahalla og skuldir. Benda hag-
fræðingar á að á tímum efnahags-
legrar niðursveiflu sé engin leið til
að draga úr áhrifum þessara aðgerða
á atvinnustig og félagslegt ástand.
„Þegar búið er að afnema þann
kost að lækka gengið veldur þetta
gífurlegri spennu,“ segir Robin
Marshall, yfirhagfræðingur Chase
Manhattan Bank í London. „Frakk-
land er það ríki þar sem þetta kemur
skýrast fram.“
Talsmenn EMU á borð við Jacques
Santer, forseta framkvæmdastjórn-
arinnar, halda því hins vegar fram
að vandamál Frakka eigi ekki rætur
sínar að rekja til tilrauna þeirra til
að verða aðilar að sameiginlega
gjaldmiðlinum.
Áhyggjur af framtíðinni
Franska ríkisstjómin, sem nýlega
samþykkti harkalegan niðurskurð í
félagslega kerfinu, vegna EMU-skil-
yrðanna, stendur nú frammi fyrir því
að þurfa að hækka vexti til að við-
halda gengi frankans. Slíkt hefði
slæm áhrif á efnahagslífið, sem nú
þegar á í miklum erfíðleikum og
myndi líklega auka atvinnuleysi.
Þetta veldur mönnum áhyggjum
varðandi framtíðina. Eftir að peninga-
legur samruni hefur átt sér stað yrði
ákvarðanataka í efnahagsmálum
mjög miðstýrð. Einungis yrði fylgt
einni peningastefnu á EMU-svæðinu,
eitt gengi yrði til staðar og líklega
munu gilda strangar reglur um opin-
bera eyðslu. Leggja Þjóðveijar mikla
áherslu á hið síðastnefnda.
Ríkisstjórnir einstakra ríkja hefðu
því litla sem enga möguleika til að
jafna sveiflur í efnahagslífinu.
„Evrópusambandsríki, ekki síst
Frakkland, hafa miklu minna svig-
rúm en áður til að lækka gengi
gjaldmiðla sinna til að ýta undir hag-
vöxt en það sem mikilvægara er, þau
hafa einnig minna svigrúm til opin-
berrar eyðslu," segja efnahagssér-
fræðingar hjá Chemieal Bank í ný-
legri skýrslu.
Árangur skilar sér seint
Nær allir eru sammála um að
Evrópuríki verði að skera niður vel-
ferðarkerfi sín og ríkisútgjöld. Vand-
inn er hins vegar sá að slíkar aðgerð-
ir eru mjög óvinsælat' og valda stór-
um hópum í þjóðfélaginu vandræð-
um. Árangurinn fer hins vegar ekki
að skila sér fyrr en nokkrum árum
síðar.
Alþjóðlegir Ijárfestar eru að mati
sérfræðinga enn í vafa um að frönsku
stjórninni muni takast það ætlunar-
verk sitt að koma ríkisútgjöldum í
rétt horf. Vandinn er hins vegar sá
að án Frakka er nær útilokað að af
hinum peningalega samruna verði.
Reuter
Qiller biður um stuðning
TANSU UiHer, forsætisráðherra
Tyrklands, er nú I Þýzkalandi til
að afla fylgis við samninginn um
tollabandalag við Evrópusam-
bandið, sem á að taka gildi um
áramót ef Evrópuþingið sam-
þykkir hann. Líklegt er að þing-.
ið greiði atkvæði um samninginn
um miðjan mánuðinn. Hér situr
Giller með Helmut Kohl, kanzl-
ara Þýzkalands, fyrir fund þeirra
í Bonn í gær.
EÞ á móti „mynt-
Schengen“
• EVRÓPUÞINGIÐ hefur álykt-
að um Efnahags- og myntbanda-
lag Evrópu (EMU) og krafizt
þess að leiðtogar aðildarríkja
ESB ákveði nafn á nýjan Evrópu-
gjaldmiðil á fundi sínum í Madríd
síðar í mánuðinum. EÞ vill að
gildistöku EMU verði ekki seink-
að og að þess verði gætt að hald-
ið verði við þau skilyrði, sem
sett eru fyrir þátttöku. Þingið
hafnar engu að síður „Schengen-
samningi um peningamálin", þar
sem bara sum aðildarríki ESB
verði með. Þingið hvetur til þess
að hinir nýju seðlar og mynt
verði hönnuð með það fyrir aug-
um að blindir og sjónskertir geti
auðveldlega notað nýja Evrópu-
gjaldmiðilinn.
• BRETLAND stendur áfram í
vegi fyrir því að sáttmáli ESB-
ríkja um evrópsku lögreglusam-
vinnustofnunina Europol verði
samþykktur. Þetta stendur stofn-
uninni mjög fyrir þrifum í störf-
um hennar. Það, sem einkum fer
fyrir bijóstið á Bretum, eru
ákvæði um að Evrópudómstóll-
inn hafi lögsögu yfir stofnun-
inni. Búizt er við að leiðtogar
ESB reyni að leysa málið sín á
milli á fundi sinum í Madríd 15.
desember.
ERLEIMT
GRÆNLENDINGAR hafa
ákveðið að veita Nelson Mand-
ela, forseta Suður-Afríku sér-
stök j ólasveinaverðlaun,
vegna starfs hans í þágu
barna. Útnefna Grænlending-
ar Mandela Alþjóðlegan jóla-
svein ársins.
„Það er mér mikill heiður,
sem fulltrúi hins raunverulega
Mandela
jólasveinn
ársins
jólasveins sem við vitum að
býr á Grænlandsjökli, að af-
henda þessi verðlaun á suður-
hveli jarðar,“ sagði Lars Emil
Johansen, formaður græn-
lensku landsstjórnarinnar er
hann afhjúpaði höggmynd í
fullri stærð af Mandela í rauð-
um og hvítum jólasveinabún-
ingi. Fór athöfnin fram í Pret-
óríu og var myndin tekin við
það tækifæri.
Fundur andstæðinga
Saddams í Amman?
Líkur eru á að andstæðingar Saddams
íraksforseta komi saman til fundar í
Jórdaníu. Jóhanna Kristjónsdóttir fjallar
um fjendur forsetans o g sinnaskipti
Husseins Jórdaníukonungs,
FUNDUR íraska þjóðarráðsins
(ÍÞR) í Animan í Jórdaníu í þessum
mánuði eða hinum næsta þykir sæta
tíðindum. Þessi samtök hafa aðsetur
í London og beijast gegn núverandi
valdhöfum í írak en það hefur gætt
nokkurrar sundurþykkju milli hópa
innan þeirra eins og raunar flestra
þeirra samtaka sem vilja koma Sadd-
am Hussein, forseta landsins, frá
völdum.
Hér í Kaíró er staðhæft að Hus-
sein Jórdaníukonungur hafi rætt við
fulltrúa ÍÞR í London fyrir stuttu.
Það hefur ekki verið staðfest en
fulltrúi þeirra sagði þó að viðræður
„háttsettra jórdanskra manna“ og
fulltrúa ÍÞR hefðu farið fram en
neitaði að segja hvort þar hefði
kóngur sjálfur verið á ferð.
Sinnaskipti Husseins Jórdaníu-
konungs gagnvart írak hafa verið
mönnum áleitið umhugsunarefni og
yfirlýsingar hans í vikuritinu Time
í haust þess efnis að tímabært væri
að breytingar yrðu á stjórn íraks
vöktu verulega athygli þá. Síðan var
um sinn dregið úr orðum konungs
og ýmsir létu í veðri vaka að orð
konungs hefðu verið ranglega túlk-
uð.
En fari svo að konungur leyfi ÍÞR
að halda fund í Amman eins og flest
sólarmerki benda til er það vitanlega
mjög afgerandi skref sem þar með
er stigið. Sagt var að í fyrstu hefði
fundurinn átt að vera síðla nóvem-
ber en var frestað. Ef af honum
verður munu sitja hann 100-120
stjórnarandstæðingar Saddams og
trúlega fulltrúar allra hópanna sem
gegn honum betjast.
Flótti Husseins Kamals
Flestum virðist sem sinnaskipti
konungs hafi orðið fyrir alvöru sýni-
leg þegar tengdasynir Saddams
flýðu yfir til Jórdaníu 8. ágúst ásamt
eiginkonum sínum, sem eru dætur
Saddams, og nokkrum barnabörn-
um. Þær móttökur sem fólkið fékk
hjá .Jórdaníukonungi vöktu mikla
athygli. Einkum þegar haft er í huga
að annar tengdasonanna, Hussein
Kamal, var óumdeilanlega með
ámóta blóði drifnar hendur og
Sundurþykkju gætir milli
hópa sem vilja koma Saddam
Hussein frá völdum. Andstæð-
ingar hans vilja þó engin sam-
skipti eiga við Hussein Kamal.
tengdafaðir hans og hafði m.a. sýnt.
mikla hörku eftir innrásina í Kúveit,
en þar skipaði Saddam hann hæst-
ráðanda. Stjórnarandstöðuhóparnir
hafa ekki viljað eiga nein samskipti
við Kamal og íraska þjóðarráðið tek-
ur svo djúpt í árinni að segja að
hann sé meðal þeirra fimm sem það
telji að hafi framið alvarlegustu
stríðsglæpina.
Kamal og fjölskylda býr í Amman
og þótt fréttir hafi birst um það í
haust að hann væri að íhuga að
snúa aftur til íraks því Saddam hefði
lofað að fyrirgefa og gleyma ef fjöl-
skyldurnar kæmu aftur, hefur aug-
ljóslega ekkert orðið af því.
En þó afstaða Husseins Jórdaníu-
konungs í bræðramálinu þyki furðu-
leg og njóti ijarri stuðnings þorra
manna þar í landi er fleira sem
bæði Jórdönum og grönnum þeirra
finnst hið undarlegasta og má þar
ekki síst nefna hina miklu ákefð
konungs að halda til streitu að frið-
urinn við ísrael verði „hlýr“ en ekki
kaldur friður eins og er milli ísraela
og Egypta. Margir hafa uppi getgát-
ur um að Jórdaníukonungur sé und-
ir miklum þrýstingi frá Bandaríkja-
mönnum að skera á tengslin við ír-
aka - altjent við valdahópinn þar
og muni fá það vel og ríkulega laun-
að.
Jórdanir hafa einnig sýnt verulega
hörku upp á síðkastið gagnvart írök-
um sem hafa flúið í búntum til Jórd-
aníu frá því stríðinu lauk. Talið er |
að um 50 þús. írakar séu án leyfis
og lögmætra pappíra í Jórdaníu og
staðhæft er að mörgum hafi verið
skipað að hypja sig hið bráðasta.
Vegsemd Raad Bin Zeid hefur
aukist
Þó jórdanska stjórnin hafi hægt
og rólega reynt að sýna að Kamal
tengdasonur sé ekki í neinum háveg-
um hafður er enn eitt sem menn !
hrista spytjandi hausinn yfir: Það I
er aukin vegsemd Raad Bin Zeid, j
prins. Hann er sonur hálfbróður
Faisals I, fyrrv. konungs íraks. Raad
prins hefur verið búsettur í Jórdaníu
síðan konungnum var steypt af stóli
í írak 1958. Hann nýtur virðingar
fyrir heiðarleika og góðar gáfur.
Tvívegis á síðasta mánuði hefur
honum verið falin forsjá ríkisins þeg-
ar Hussein konungur og Hassan
krónprins hafa verið utanlands. Mo-
hammed, annar bróðir Husseins, í
hefur venjulega verið sá sem þá j
hefur farið með stjórnina.
„Sumir álíta að með þessu sé ver-
ið að sýna mönnum fram á að Raad
prins væri til að mynda ljómandi vel
hæfur til að taka við stjórninni í
írak. Og víst er talið að Hussein
konungur mundi kjósa að Raad prins
gegndi stærra hlutverki í málefnunt
Iraks en Sharif Aii, sem býr í Lond- '
on og gerir kröfu til írösku krúnunn-
ar en er fjarskyidari," sagði viku- i
blaðið Middle East Times sem er j
gefið út hér í Kaíró og mér hefur
virst hið vandaðasta blað.