Morgunblaðið - 06.12.1995, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Mál og mynd
SUMIR byrja að mála mynd/af því sem þeir sjá út um/ gluggann
heima hjá sér./ Fjöllin, blómin, fiðrildin og fuglana.
BÆKUR
Mv n d I is t - Barnabók
STÓRT OG SMÁTT
Tryggvi Ólafsson. Hf. Uppi - Upp-
eldi. Bröndum, Aschehough
ALLT of lítið hefur verið gert
af því að tengja mál, tákn og
mynd í íslenzkum bókmenntum,
og telst viðburður þegar það er
gert á þann veg að eftir er tekið.
Þetta er afleitt til frásagnar því
að við Islendingar eigum gnægð
listamanna, sem gætu hér lagt
hönd á plóginn og auðgað sviðið,
en einhvern veginn er mönnum
afar ósýnt um að nýta sér lærdóm
þeirra og þekkingu.
Tryggvi Ólafsson málari í Kaup-
mannahöfn, hefur sýnt áhuga á
að sinna þessari þörf, og enn er
hann kominn af stað með nýja
bók, sem er í einu og öllu eigið
frumkvæði og framkvæmd. Þetta
er engin venjuleg barnabók og
heldur ekki nein venjulega mynda-
bók, því hér felst meginveigurinn
í því að hræra upp í hugarflugi
yngstu lesendanna, og allt eins
þeirra sem ekki eru enn læsir.
Þetta er bók til að hafa skemmtun
af og einnig bók með þroskagildi,
því hún víkkar sjóndeildarhringinn
og fær barnið til að bijóta heilann
um eitt svið lífsgátunnar. Læðir
að skammti af almennri lífsheim-
speki, í þessu tilviki tilganginum
með því að mála.
Sjálfir textarnir, sem eru í
knappara iagi, lýsa þessu best,
þannig er allt lesmál á fyrstu opnu
einungis sex línur: „Eins og þú
veist, / mála allir krakkar mynd-
ir/. Að vísu misjafnlega margar./
Sumir mála myndir alla ævi,/ líka
eftir að þeir eru orðnir stórir. /það
eru þeir sem kallaðir eru málarar".
Og á næstu síðu „Þeir mála mynd-
ir af öllu mögulegu,/ í öllum hugs-
anlegum stærðum. / Langar mynd-
ir, mjóar myndir,/ háar myndir og
lágar. / Lika hringlaga og breiðar,
/ allt eftir því hvað hugurinn kýs“
Svona heldur þetta áfram bók-
ina í gegn, og fylgir hveijum texta
heilsíðu myndlýsing, er tekur fyrir
allan textann og setur barnið inn
í hugarheim málarans. Myndirnar
eru mjög litríkar og einkennandi
fyrir Tryggva Ólafsson, svo og allt
handbragðið, og er ekki að efa að
tilgangurinn komist til skila og
bókin eigi eftir að verða mörgum
ungum handleiðsla til þroska og
um leið er þetta öðruvísi barnabók,
eins konar sjónrænt gagn og gam-
an.
Af höfundinum er það helst að
segja, að framlag hans á vettvang-
inum var á mikilli sýningu á barna-
bókum í gegnum tíðina á Fjónska
listasafninu í Óðinsvéum nýlega,
og var mynd eftir hann valin á
boðskort og eða/póstkort sýn-
ingarinnar.
Bókin Stórt og smátt er gefin
út í 1.000 eintökum á íslandi og
jafnmörgum í Danmörku. Keypti
Pædagogisk Bogklub 500 eintök
af bókinni á bókakaupstefnunni í
Forum á dögunum...
Bragi Ásgeirsson
Nýjar bækur
Lífsbarátta
og föðurland
ÁRSTÍÐIRNAR eftir Bjama Th.
Rögnvaldsson eru komnar út.
I kynningu segir: „ Kvæðaflokk-
urinn um „Árstíð-
irnar“ er sá fyrsti
er birtist eftir við-
komandi höfund.
Þar er kveðið um
margt er tengist
lífinu, lífsbarátt-
unni og þakkar-
gjörð tit gjafara
allra góðra hluta.
Einnig um þann
tilfínningahita
sem mætir landsmönnum í framrás
daganna á hverri árstíð á okkar
kæra fósturlandi."
Útgefandi er höfundur. Bókin er
125 síður fjölfölduð hjá Ljósborg.
-----------♦ ♦ ♦
• KOMIN er út barnasagan Nikkó-
hóhínus eftir Terry Jones, mynd-
skreytt af Michael Foreman.
„Nikkóbóbínus og Rósa vinkona
hans eiga heima í Feneyjum. Þau
ákveða að leita að Landi drekanna,
sem verður mikil hættuför og oft
barátta upp á líf og dauða, enda
verður hinn versti óþjóðalýður á vegi
þeirra.“
Páll Hannesson sneri á íslensku.
Bókin ergefin út af Máli ogmenn-
ingu, en prentuð íSvíþjóð. Hún kost-
a r 1.380 kr.
------»-♦-♦------
•BOSNÍSKI kvikmyndaleiksljór-
inn, Emir Kusturica, hefur lýst
því yfir að hann hyggist hætta að
gera kvikmyndir. Astæðan er hörð
deila sem risið hefur vegna nýj-
ustu myndar Kusturicas, sem er
múslimi, en hann er sakaður um
að afsaka gerðir Serba í stríðinu
í gömlu Júgóslavíu. Mynd hans
„Neðanjarðar" hlaut fyrstu verð-
laun á síðustu Cannes-kvikmynda-
hátíðinni en hún fjallar um tíma-
bilið frá árásum nasista á Belgrad
1951 og fram til þess tíma er stríð-
ið í Bosniu hófst, séð með augum
manns sem dvelur í neðanjarðar-
byrgi. í myndinni er hvatt til þess
að Júgóslavía verði að nýju eitt
ríki og var hún fordæmd í heima-
landi Kusturiea, svo og í Frakk-
landi, þar sem leikstjórinn er bú-
settur.
Bjarni Th.
Rögnvaldsson
KAFFI-JARÐSKJÁLFTAR
MYNPLIST
Mokka
HLJÓÐVERK
Finnbogi Pétursson. Opið alla daga
til 8. des. Aðgangur ókeypis
HLJÓÐVERK Finnboga Péturs-
sonar hafa í flestum tilvikum byggst
á nokkrum samverkandi þáttum.
Hinn fyrsti snertir útlitið - hvernig
uppsetning þeirra kemur fyrir sjónir
(sem ræður mestu um að menn eru
tilbúnir til að líta á verkin sem
ákveðna grein myndlistar); annar er
hið óvænta - hvemig þessar einföldu
eða margþættu tengingar af leiðsl-
um, tækjum og tólum virka í raun á
umhverfi sitt og áhorfendur/áheyr-
endur, og loks hljóðið - hina endan-
legu afurð þess flókna ferils, sem
hljóðverkin byggja á. Oftast hafa
allir þessir þættir verið sýnilegir
gestum, sem hafa þá getað fylgst
með virkni þeirra og framvindu,
þannig að í raun hefur mátt tata um
ákveðið ferli og hrynjanda, sem skap-
aði sterka heild.
Svo er ekki að þessu sinni; í Mokka
sjást engin merki verksins á veggjum
kaffihússins. Þetta er í raun í full-
komnu samræmi við það efni sem
Finnbogi er hér að fást
við, en verkið er tileink-
að jarðeðlisfræðingnum
Charles F. Richter
(1900-1985), sem er
þekktastur fyrir skil-
greiningu sína á stærð-
um jarðskálfta, sem enn
í dag eru mældir með
svonefndum Richter-
skala, sem vísindamað-
urinn setti fram 1935.
Þeir sem hafa upplif-
að sæmilega öflugan
jarðskjálfta gleyma því
aldrei, en eitt meginat-
riðið við slíkan skjálfta
er að hann kemur ætíð
á óvart; augnablikið
áður var stund í kyrrð
og ró. Jarðskjálftanum fylgir síðan
ólýsanleg hljóðbylgja jarðarinnar.
sem ber með sér allt í senn, háværan
hvin, brot og toghljóð, skruðninga -
fjölbreytileg hljóðtákn um þau átök
náttúrunnar sem menn skilja enn
ekki til fullnustu.
Þetta verk Finnboga birtist gest-
um Mokka á svipaðan hátt - þeim
að óvörum. Fyrirvaralaust skellur á
þeim hljóðbylgja jarðskálfta, svo ekki
væri óeðlilegt að kaffibollar hristust
í höndum þeirra og augun leituðu
eftir merkjum um þann
skjálfta sem hljóðin
boða; gott ef einhveijir
hafa ekki leitað út-
göngu hið fyrsta.
Ösnortið umhverfi er
hins vegar sú staðfest-
ing, sem sálin þarf til
að róast.
Þessi einfalda út-
færsla á hugmynd lista-
mannsins um verk sem
tengist einu flóknasta
fyrirbæri náttúruvísind-
anna er vel til fundin,
og gæti í raun ekki ver-
ið öðruvísi; jarðskjálfti
í kaffihúsi þarf einnig
að koma á óvart. Til-
einkun sýningarinnar er
einnig eðlilegur þáttur hennar, og
gæti í raun ekki verið önnur, þar sem
nafn Richters er tengt jarðskjálftum
órofa böndum. Það er hins vegar
eifitt að ímynda sér að þessi góð-
mannlegi fræðimaður sé settur í
samhengi við þær náttúruhamfarir,
sem ár hvert kosta hundruð og þús-
undir manna lífið, fyrir utan aðrar
hörmungar og ómælt eignatjón; ef
aðeins allir jarðskjálftar væru jafn
saklausir og þeir á Mokka . . .
Eiríkur Þorláksson
CHARLES F. Ric-
hter (1900-1985).
Undir ógnarstjórn
KVIKMYNPIR
Rcgnboginn
HANDAN RANGOON
„BEYOND RANGOON"
★ ★ ★
Leikstjóri: John Boorman. Handrit:
Alex Lasker og Bill Rubenstein.
Aðalhlutverk: Patricia Arquette, U
Aung Koo, Frances McDormand,
Spalding Grey. Castle Rock Ent-
ertainment. 1995.
MYND breska leikstjórans John
Boormans, Handan Rangoon, er
áhrifamikil og sterk lýsing á
ástandinu i Burma undir einræði
herforingjastjórnarinnar i landinu.
Boorman er einn af mörgum kvik-
myndaleikstjórum sem undanfarin
ár hafa tekið að sér það hlutverk
að greina frá morðum og vald-
níðslu gerræðisstjóma í heiminum.
Þeir hafa gert það sem kalla má
dramatískar heimildamyndir með
því markmiði sérstaklega að vekja
athygli umheimsins á mannrétt-
indabrotum; „Cry Freedom", „The
Killing Fields“ og „Salvador" falla
undir þann hatt. Boorman gengur
í smiðju leikstjóra þessara mynda
til að lýsa ástandinu í Burma en
Handan Rangoon er kannski dýr-
mætari en margar hinna vegna
þess að umheimurinn þekkir sára-
lftið til þeirra skelfilegu atburða
sem átt hafa sér stað eins og skýrt
kemur fram í myndinni. Frétta-
mönnum hefur að mestu leyti ver-
ið bannaður aðgangur að landinu.
Boorman tekst fjarska vel það
ætlunarverk sitt að opna sýn inn
í ástandið í landinu og fá áhorfand-
ann til að gleyma ekki Burma.
Eins og í mörgum þessara mann-
réttindamynda leiðir útlendingur
áhorfandann um hið ljarlæga land
þjáninga og morða í Handan
Rangoon. Patricia Arquette leikur
unga konu frá Bandaríkjunum,
Láru Bowman, á ferðalagi um
Austurlönd árið 1988 er lokast inni
í Burma þegar landið rambar á
barmi borgarastyijaldar. Hún lendir
vegabréfslaus á flótta undan hern-
um ásamt særðum kennara úr
höfuðborginni sem kominn er á
svartan lista stjórnarinnar. Sagan
ku byggja á sönnum atburðum og
Boorman býr til úr henni spennandi
persónulegt drama um leið og hann
lýsir bijálæðinu í Burma; fjölda-
morðum hermanna í höfuðborginni
Rangoon, mótmælum lýðræðis-
sinna, aftökum í sveitaþorpi og
flóttaleiðum andófsmanna til Thai-
lands.
Kennarinn kvartar á einum stað
yfir gæflyndi og hæversku þjóðar
sinnar sem gert hefur hana að
Ljóðalestur
á Café Læk
LJÓÐALESTUR og fleiri uppákomur
verða á Café Læk, Lækjargötu 4, í
kvöld, miðvikudagskvöld.
Meðal annars lesa Sigurður Páls-
son, Þorsteinn frá Hamri, Ingibjörg
Harðardóttir og Sigurður Magnússon
upp úr nýútkomnum bókum sínum.
----------♦ ♦ ♦-----
Nýir geisladiskar
• TRÍÓ Nordica hefur nýlega gefið
út geisladisk með rómantískum
píanótríóum eftir Clöru Chumann,
Franz Berwald og Felix Mend-
elssohn. Japis dreifir disknum á ís-
landi, en honum hefur einnig verið
dreift í Svíþjóð.
í Svenska Dagbladet 8. nóvember
síðastliðinn er dómur um diskinn
með fyrirsögninni: Ungt píanótríó
með frábært „debut“. Þar segir
meðal annars: „Tríó Nordica er
píanótríó sem hefur alla burði til að
slá í gegn. Það hefur hrífandi útgeis-
un sem smitar frá sér jafnvel í gegn-
um hátalarana og það fer ekki fram
hjá neinum hve músíkalskar þær
eru ... Tríóið nálgast Clöru Schum-
ann með miklum kærleik, Felix
Mendelssohn með djúpum tilfinning-
um og Franz Berwald með ögrandi
snilli. Alveg frábær diskur!,,
Tríó Nordica var stofnað árið
1993. Þrátt fyrir ungan aldur hefur
tríóið þegar leikið víðsvegar um
Evrópu og í Bandaríkjunum.
Útgáfutónleikar fyrir geisladisk-
inn verða haldnir í tónleikaröð Borg-
arleikhússins 12. desmber kl. 20.30.
----------» » ♦-----
Nýjar bækur
Úrval ljóða
Hannesar
Péturssonar
ÚT er komið úrval af Ijóðum Hann-
esar Péturssonar. Nefnist það Hjá
fljótinu og hefur að geyma ljóð úr
öllum ljóðabókum
skáldsins.
I ljóðaúrvalinu
Hjá fljótinu birt-
ast mörg þekkt-
ustu ljóð skálds-
ins og er elsta
kvæðið, Bláir eru
dalir þínir, ort
1951, en hin
yngstu eru úr
Eldhyl, sem kom
út 1993. Haukur Hannesson valdi
ljóðin.
„Hannes hefur fyrir löngu skipað
sér á bekk með þjóðskáldum íslend-
inga og Ijóðin sem hér birtast eru
tær og máttugur skáldskapur," segir
í kynningu.
Útgefandi er Iðunn. Bókin Hjá
fljótinu er 112 bls. prentuð í Prentbæ
hf. Verð hennar er 1.980 kr.
auðveldu fórnarlambi morðingja-
stjórnar. í orðum hans felst að
þjóðina skorti baráttuhug til að
velta herforingjunum úr sessi. En
hún á við ofurefli að etja, ekki
aðeins ógnarstjórn sem dritar niður
mótmælendur, heldur algert
áhugaleysi umheimsins á þessum
tíma. Boorman lýsir ástandinu frá
sjónarhóli fólksins á götunni og
það má sín lítils gegn byssukjöftum
hermannanna en bindur allar vonir
sínar við baráttukonuna Aung San
Suu Kyi, sem er eini tengiliður
lýðræðissinna við umheiminn og
hefur hlotið friðarverðlaun Nóbels.
Þau verðlaun og það að þessi mynd
skuli yfirleitt vera gerð sýnir að
augu heimsins eru smámsaman að
opnast fyrir ástandinu í Burma.
Leikurinn í myndinni er með
ágætum og Boorman tekst það
sem hann ætlar sér, að fá okkur
til að leiða hugann að Burma og
fyllast reiði.
Arnaldur Indriðason