Morgunblaðið - 06.12.1995, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995 41
FRÉTTIR
Sambandsstjórn ASA
Omaklegar árásir á
fulitrúa í launanefnd
GUÐNÝ Guðmundsdóttir og
Marja Entrich. Myndin er tek-
in í tilefni níræðisafmælis
Marju Entrich fyrr á þessu ári.
10 ára af-
mæli Grænu
línunnar
VERSLUNIN Græna línan,
Laugavegi 46, verður 10 ára
fimmtudaginn 7. desember.
Verslunin Græna línan var
opnuð að Týsgötu 3 þennan dag
fyrir 10 árum. Flutti sig að Berg-
staðastræti 1 um tíma en hefur
verið staðsett að Laugavegi 46
síðan 1990. Aðalstarfsemi fyrir-
tækisins felst í húðráðgjöf, heilsu
og bætiefnaráðgjöf þar sem
kenningar Maiju Entrich, Birgis
Ledins og fl. eru hafðar að leiðar-
ljósi. Grunnhugmyndir Grænu
línunnar eru þekking, fræðsla
og traust. Árangur starfseminn-
ar hefur verið fólgin í sléttari
og jafnari húð, að eyða bjúg í
andliti og að gera andlitið
stinnara, auk almennrar meðvit-
undar um eigin líðan.
SAMBANDSSTJÓRN Alþýðusam-
bands Austurlands segir í ályktun
sem samþykkt var um helgina að
árásir einstakra verkalýðsfélaga á
fulltrúa ASÍ í launanefnd séu með
öllu ómaklegar og telur að sú niður-
staða sem fékkst í launanefnd sýni
ótvírætt styrk verkalýðshreyfingar-
innar.
I ályktuninni segir að þrátt fyrir
samkomulagið í launanefnd og yfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar sé aug-
ljóst að markmið kjarasamninganna
um launajöfnun hafi ekki gengið
upp.
ASÍ félögin hafa knúið fram
lagfæringar með samstöðu
„Með samstöðu sinni hafa ASÍ
félögin knúið fram lagfæringar,
bæði af hálfu ríkisstjórnar og at-
vinnurekenda. Þó deildar meiningar
séu um hvort launanefndin hefði
átt að segja upp kjarasamningum
eða ekki, er ljóst að launanefndar-
fulltrúar ASÍ unnu í fullu umboði
og samræmi við ákvarðanir sam-
bandsstjórnarfundar ASI og funda
formanna lands- og svæðasam-
banda. Árásir á þá eru því með öllu
ómaklegar, og einungis til að skapa
sundrungu í hreyfingunni," segir i
ályktuninni.
„Það er augljóst að hefði verka-
lýðshreyfingin ekki brugðist hart
við, hefðu bæði ríkisstjórn og at-
vinnurekendur haldið fast við þá
stefnu sína að engar lagfæringar
þyrfti af þeirra hálfu til að samning-
urinn stæði... Það er ótvírætt for-
gangsverkefni hreyfingarinnar á
næstu árum að skapa launafólki
sambærileg lífskjör við það sem
best gerist í nágrannalöndum okk-
ar. Það er því mikilsvert að forystu-
mennirnir sói ekki dýrmætum tíma
í innbyrðis deilur um keisarans
skegg,“ segir þar einnig.
Morgunblaðið/Þorkell
Barnadeild
Borgarspít-
alans fær
sjónvarp
ÚTGÁFUFÉLAGIÐ Bendill
hefur fært barnadeild
Borgarspítalans sjónvarps-
tæki, myndbandstæki og
leikjatölvur að gjöf í tilefni
af útgáfu Jólabókar barnanna
og er myndin tekin við það
tækifæri. Talin frá vinstri:
Steinunn Garðarsdóttir, að-
stoðardeildarstjóri, Auður
Agnarsdóttir, deildarstjóri
og, frá útgáfufélaginu Bendli,
Salvar Björnsson og Magnús
Einarsson.
Tölvukennsla
á myndbandi
ÚT ER komið nýtt ís-
lenskt kennslumynd-
band sem nefnist Að
læra á tölvu og eru þar
kennd undirstöðuatr-
iðin við notkun tölva.
Myndbandið er ætl-
að þeim sem lítið hafa
komið nálægt tölvum
en vilja öðlast nauð-
synlega grundvall-
arþekkingu. Fjallað er
um uppbyggingu tölv-
unnar og hvernig hlut-
ar hennar vinna,
hvernig forrit eru búin
til og hvernig tölva
geymir upplýsingar og
vinnur úr þeim. Útskýrð eru hug-
tök eins og innra og ytra minni,
bæti og baud og fjallað um helstu
jaðar- og hjálpartæki, svo sem
KÁPA myndbands-
ins Að læra á tölvu.
prentara, gagnadiska,
myndskanna og síma-
mótöld.
Myndbandið sýnir
notkun Windows-stý-
rikerfisins og algeng-
ustu hugbúnaðarkerf-
anna, svo sem rit-
vinnslu, töflureikna,
gagnasafnskerfa og
bókhaldsforrita. Þá er
fjallað um tengingu
við Alnetið (Internet-
ið).
Loks er kennt hvað
hafa beri í huga þegar
tölvur eru keyptar,
útskýrt hvernig, setja
á upp tölvu í fyrsta skipti og gang-
setja og farið yfir ýmis öryggisatr-
iði og hvað helst beri að varast,
til dæmis tölvuvírusa.
Myndbandið Að læra á tölvu er
70 mínútur að lengd og er gefið
út af Hagavík hf. Karl Jóhannsson
hafði umsjón með verkinu, Nýja
bíó hf. sá um myndatöku og Rauði
dregillinn hf. um klippingu. Máni
Svavarsson samdi tónlist og Jón
H. Marinósson sá um grafík.
Myndbándið kostar 2.480 krónur.
Hagavík hf. hefur áður gefið
út kennsiumyndbönd undir sam-
heitinu Myndbandaskólinn, þar
sem kennd er notkun ýmissa tölvu-
forrita, svo sem Windows 3.1,
Word, og Excel. í fréttatilkynningu
frá Hagavík segir að kannanir á
Norðurlöndum hafi sýnt fram á
að tölvunám með hjálp myndbanda
skili allt að 70% meiri árangri en
hefðbundin tölvukennsla.
Afmælis- Aðventukvöld
fundur ITC Nýrrar dögunar
ITC samtökin á íslandi eiga 20
ára afmæli í desember. Af því til-
efni efna samtökin til hátíðafundar
með jólaívafi þann 7. desember nk.
í Kiwanishúsinu, Engjateigi 11.
Fyrir 20 árum var stofnuð ís-
lensk deild sem í voru aðeins
konur og kölluðu þær samtökin
Málfreyjur. Síðan á árinu 1985,
þegar jafnréttislögin tóku gildi,
hafa bæði konur og karlar starfað
með samtökunum og þá var tekið
upp enska nafnið sem stendur
fyrir Þjálfun í mannlegum sam-
skiptum.
Hér á landi starfa nú 17 deildir
víðsvegar um land þar sem aðilar
frá þjálfun í að tjá sig málefnalega
og af öryggi. Einnig er þjálfun í
fundarsköpum og mörgu fleira
sem nýtist öllum í mannlegum
samskiptum.
Fundurinn á fimmtudaginn er
öllum opinn en hann hefst kl. 20.
Erla Guðmunsdóttir _sem var fyrsti
landsforseti ITC á íslandi verður
heiðursgestur kvöldsins. Núver-
andi og fyrrverandi ITC félagar
eru hvattir til að líta inn.
AÐVENTUKVÖLD Nýrrar dög-
unar verður í safnaðarheimili
Breiðholtskirkju fimmtudaginn 7.
desember.
Þar syngur Hrafnhildur Björns-
dóttir söngkona nokkur lög við
undirleik, Edda Þórarinsdóttir leik-
kona sér um upplestur og sr. Gísli
Jónsson flytur jólahugleiðingu.
Heitt kakó og kökur verða á boð-
stólum.
I janúar er dagskrá Nýrrar dög-
unar eftirfarandi: 11. janúar: Trú
og sorg. Fyrirlesari sr. Sigfinnur
Þorleifsson. 18. janúar: Opið hús
í Gerðubergi. Allar samverur Nýrr-
ar dögunar fara fram í Gerðubergi
og hefjast kl. 20.
J ólatí skusýning
Skaparans
JÓLATÍSKUSÝNING Skaparans
verður haldin í kvöld, miðvikudag-
inn 6. desember, á Sólon íslandus
og hefst hún kl. 21.30.
Páll Óskar syngur nokkrar ball-
öður og La Divina heillar gesti
með nærveru sinni.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Kirkjubæ,
lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 4. desember.
María Gunnarsdóttir, Runólfur Alfreðsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Elsku dóttir okkar og systir,
MARÍA SIGRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR,
sem lést á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn aðfaranótt 20. nóv-
ember, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
7. desember kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á málefni til styrkt-
ar börnum.
Guðný Jóhannsdóttir, Stefán G. Sveinsson,
Sveinn S. Stefánsson, Stefán G. Stefánsson.
TELEVISIOW
teléviseubcuu«ob1
.
. •
RAÐAUGÍ YSINGAR
S JÁLFST ÆÐISFLOKKURINN
FÉ LAGSSTARF
Jólafundur - Hvöt
Jólafundur Hvatar veröur haldinn sunnudaginn 10. desember í Átt-
hagasal Hótels Sögu kl. 20.00. Fjölbreytt dagskrá.
Allir hjartanlega velkomnir.
Stjórnin.
Aðalfundur
Aðalfundur
Félags sjálfstæðismanna
í Austurbæ og Norðurmýri
veröur haldinn i Valhöll, Háaleitisbraut 1, í
dag, miövikudaginn 6. desember, kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins veröur Árni Sigfússon,
borgarfulltrúi.
Stjórnin.
Félags sjálfstæðismanna í Selja-
og Skógahverfi ___
verður haldinn í
Álfabakka 14a í
kvöld, miðvikudags-
kvöldið 6. desem-
ber, kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Gestir fundarins
verða Pétur Blön-
dal, alþingismaður
og Gunnar Jóhann Birgisson, borgarfulltrúi.
Stjórnin.