Morgunblaðið - 06.12.1995, Side 56
MTM
alltaf á
Miövikudögum
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Samkomulag milli útgefenda
og bóksala brostið
Bóksalar taka
ákvörðun um
aðgerðir í dag
STJÓRN Félags íslenskra bókaút-
gefenda ákvað á fundi sínum í gær
að hafna beiðni Félags íslenskra
bóka- og ritfangaverslana um dreif-
ingarbann á bækur til verslana Bón-
us og Kaupfélags Árnesinga, sem
hafa veitt meira en 15% afslátt á
bækur. Teitur Gústafsson, formaður
Félags íslenskra bóka- og ritfanga-
verslana, segir þetta hálfgerðan
heigulshátt hjá bókaútgefendum og
aðgerða megi vænta frá bóksölum
á næstu dögum.
I svarbréfi bókaútgefenda við er-
indi bóksala kemur m.a. fram að á
stjórnarfundi félagsins í gær hafi
ekki náðst samstaða um nýjar að-
gerðir af háifu útgefenda og fram
hafi komið þau sjónarmið að af-
greiðslubann á þessu stigi yrði aldrei
annað en táknræn aðgerð, og málin
væru í raun ekki lengur í höndum
bókaútgefenda, m.a. vegna þess að
miklum bókabirgðum hefði verið
safnað í verslunum og stórmörkuðum
og myndu þeir aðilar fara sinu fram
hvort sem sett yrði á þá afgreiðslu-
bann af hálfu útgefenda eða ekki.
Ekki von á samningum
í framtíðinni
Teitur Gústafsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að bóksalar myndu
funda um málið í dag þar sem
ákvarðanir um aðgerðir yrðu vænt-
anlega teknar. Hann sagði ýmislegt
vera í gangi til að svara samnings-
broti bókaútgefenda, en að svo
komnu máli vildi hann ekki nefna
hveijar þær aðgerðir gætu orðið.
„Þetta er algjörlega óþolandi að
samningsaðili okkar standi ekki við
samninginn og þær yfírlýsingar sem
hann gaf,“ sagði Teitur, og sagðist
hann ekki fá séð að samningur verði
gerðir milli þessara aðila í framtíðinni.
Morgunblaðið/Alfons
Reykjavíkurflugvöllur
Brautir
þarf að end-
urbvg-gja
FLUGRÁÐ hefur lagt til við sam-
gönguráðherra að við endurbætur
flugbrauta Reykjavíkurflugvallar
verði farin sú leið að byggja braut-
irnar upp á nýtt. Kostnaður er áætl-
aður 1,2 milljarðar kr.
Lengi hefur legið fyrir að flug-
brautir Reykjavíkurflugvallar eru
lélegar og þarfnast mikilla endur-
bóta ef áfram á að reka innanlands-
flugið þaðan. Kom þetta skýrt fram
í úttekt sem Almenna verkfræðistof-
an hefur gert fyrir Flugmálastjórn.
■ Endurbygging flugbrauta/28
Víða tjón
VÍÐA varð tjón í úrfellinu sem
gengið hefur yfir landið undan-
farna daga. Vegir hafa farið í
sundur og lokast vegna vatna-
vaxta og skriðufalla. Þá hefur
vatn flætt inn í kjallara húsa, eins
og í Ólafsvík þar sem þessi mynd
er tekin, en hún sýnir Heiðar
Magnússon ausa vatni úr húsi
sínu.
■ Miklar vegaskemmdir/11
Kínversk-
ur skurð-
læknir til
Islands
ZÁNG Shaocheng, prófessor í
taugaskurðlækningum, kemur
til Islands nk. sunnudag, en
ásamt Halldóri Jónssyni, yfír-
lækni á bæklunardeild Land-
spítala, mun hann gera aðgerð
á Halldóru Thoroddsen, sem
slasaðist í bílslysi 1989.
Áformað hafði verið að Dr.
Shaocheng kæmi til íslands í
sumar, en yfirvöld hersjúkra-
hússins í Sjanghæ, þar sem
hann starfar bönnuðu það.
Þegar Vigdís Finnbogadótt-
ir, forseti Islands, var í Kína
fyrr á þessu ári tók hún þetta
mál upp við forseta Kína. í
kjölfarið gaf hann fyrirmæli
um að dr. Shaocheng mætti
fara til íslands til að gera að-
gerð á Halldóru, að sögn Auð-
ar Guðjónsdóttur, móður
hennar.
Félagsfundur í Einingu hafnaði tillögu launanefndar með 170 atkvæðum gegn 140
Verkalýðsfélag Grinda-
víkur féll frá uppsögn
FÉLAGSFUNDUR í Verkalýðsfélagi Grindavík-
ur samþykkti í gærkvöldi með þorra atkvæða
að draga uppsögn á kjarasamningi félagsins til
baka. Á fimm félagsfundum í Einingu á Akur-
eyri var tillögu launanefndar hins vegar hafnað
með 170 atkvæðum gegn 140. Tveir sátu hjá.
Félagið stendur því við fyrri ákvörðun um upp-
sögn samninga.
Benóný Benediktsson, formaður Verkalýðsfé-
lags Grindavíkur, sagði að þrátt fyrir þessa
niðurstöðu hefði verið mjög almenn óánægja
með niðurstöðu launanefndar og þá launaþróun
sem hefði orðið eftir að febrúarsamningarnir
voru gerðir. Fundarmenn hefðu engu að síður
talið að ekki væri annað fært í stöðunni en að
sætta sig við niðurstöðu launanefndar.
Hann sagði að það hefði haft áhrif á niður-
stöðuna að lögfræðingar ASÍ hefðu lýst því
yfir á fundi á mánudag að verulegar líkur
væru á að Félagsdómur dæmdi uppsagnirnar
ólöglegar.
Björn Snæbjömsson, formaður Einingar,
sagði greinilegt að fólk sætti sig ekki við niður-
stöðu launanefndar. Hann sagði að almenn reiði
væri í fólki út í launastefnuna, sem rekin væri
í landinu. „Það er klárt að fólk er í bardaga-
hug. Það sættir sig ekki við ölmusu eins og launa-
nefndin hefur rétt að fólki.“
Baldur sendir gagntilboð
Á fundi í verkalýðsfélaginu Baldri var sam-
þykkt einróma að halda fast í fyrri ákvörðun
um uppsögn samninga. Pétur Sigurðsson, for-
maður Baldurs, sagði að fundarmenn hefðu ver-
ið sammála um að tilboð vinnuveitenda hefði
verið of lágt.
Á fundinum var ákveðið að senda Vinnuveit-
endafélagi Vestfjarða gagntilboð. „Launanefnd-
in sendi okkur þetta í tillöguformi og við tökum
það þannig að það megi svara tillögunni. Það
var samþykkt að fela þremur aðilum úr stjórn-
inni að semja tilboðið og senda það fyrir föstu-
dag.“
Þessi niðurstaða félagsfundar Baldurs þýðir
að Félagsdómur kemur tii með að úrskurða hvort
uppsögn félagsins er lögleg. Málið verður tekið
fyrir nk. mánudag og vænta má úrskurðar á
miðvikudag.
Á fundi í stjórn og trúnaðarmannaráði Hlífar
í Hafnarfirði í gærkvöldi var samþykkt að leggja
tillögu fyrir félagsfund þar sem mælt er með
því að uppsögn samninga verði ekki dregin til
baka. Sama niðurstaða varð á fundi í stjórn og
trúnaðarmannaráði Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja.
■ Hörð gagnrýni/4
Mat tryggingafélaga á áhrifum af breyttum skaðabótalögum á bílatryggingar
Iðgjöld myndu
hækka um 30%
SIGMAR Ármannsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
tryggingafélaga, segir að sam-
kvæmt könnun SIT og vátrygginga-
félaganna á áhrifum tillagna um
breytingu á skaðabótalögum leiði
tillögumar til þess að bætur hækki
um 1.200 milljónir á ári. Hann segir
að verði tillögurnar lögfestar muni
þær ieiða til 30% hækkunar iðgjalda
ökutækjatrygginga.
Allsheijarnefnd Alþingis fól Gesti
Jónssyni hæstaréttarlögmanni og
Gunnlaugi Claessen hæstaréttar-
dómara að endurskoða lögin og er
tiliögur þeirra lágu fyrir í haust létu
vátryggingarfélögin og SÍT gera
athugun á fjárhagslegum áhrifum
tillagnanna. Sigmar sagði að könn-
unin næði til allra tjóna sem bætt
hefðu verið frá því að lögin tóku
gildi, alls 244 tjón. Tjónabætur hefðu
verið reiknaðar eftir reiknireglum
sem settar væru fram í tillögum
tvímenninganna, en í þeim er lagt
til að margföldunarstuðull laganna
verði hækkaður.
Hann sagði að niðurstaðan væri
að heildarbótagreiðslur myndu
hækka um 50%. Uppgjör á tjónum,
sem nú væru í vinnslu bentu til að
hækkunin væri jafnvel enn meiri.
Iðgjöld í lögboðnum ökutækja-
tryggingum eru nú rúmlega 4 millj-
arðar á ári. Um 60% fara í að greiða
slysabætur vegna slysa á fólki eða
um 2,4 milljarðar. Miðað við útreikn-
inga tryggingafélaganna myndu til-
lögur Gests og Gunnlaugs hafa í för
með sér 1,2 milljarða króna hækkun
bóta. Það þýðir um 30% hækkun
iðgjalda eða um 10.000 króna hækk-
un iðgjalda á hvetja bifreið í landinu.
Vikuritið Vísbending hefur gert
lauslegt mat á fjárhagslegum áhrif-
um tilagnanna. Þar er komist að
þeirri niðurstöðu að þær muni leiða
til 15-25% hækkunar á iðgjöldum
og til 0,4-0,5% hækkunar á
framfærsluvísitölu.