Morgunblaðið - 13.12.1995, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Sverrir
FRA afhendingu fyrstu eintaka Islandssögu a-ö. Frú Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, og Einar Laxness, höfundur ritsins,
ræða saman.
Islandssaga í
uppflettiriti
Nýjar hljómplötur
• ÚT er kominn geisladiskur þar
sem Herdís Þorvaldsdóttir leik-
kona les eftirlætisljóðin sín eftir
mörg íslensk skáld.
Geisladiskurinn nefnist Óska-
Ijóðin mín.Ljóð-
in eru eftir eldri
og yngri skáld
inrilend og er-
lend. Herdís seg-
ir um Ijóðin
„Óskaljóðin mín
eru safn ljóða
sem hafa orðið
mér iíkt og góðir
vinir í gegnum
tíðina og ég hef
haft ánægju af að lesa og túlka.“
Rut Guðmundsdóttir leikur undir
á flautu. Hljóðupptökur gerði
Anna Melsted. Magnús Kjartans-
son sá um tónlistarupptöku. Frá-
gangur og stafræn yfirfærsla eru
verk Sveins Valdimarssonar. Út-
gefandi er Skífan.
• ÚT ER kominn geisladiskur
með gítarleikaranum Kristni
Árnasyni. Á diskinum eru verk
eftir Agustin Barrios og Franc-
isco Tárrega. Agustin Barrios var
frá Paraguay og
var af indjána-
ættum.
Kristinn
Árnason hóf
klassískt gít-
amám 10 ára
gamall. Eftir
burtfararpróf
stundaði hanri
framhaldsnám
meðal annars í
Bretlandi, Bandaríkjunum og á
Spáni. Árið 1987 var hann valinn
úr hópi hundruða umsækjenda til
að taka þátt í síðasta námskeiði
sem gítarsnillingurinn Andrés
Segovia hélt. Kristinn hefur komið
fram á tónleikum hérlendis og
erlendis. Hann lék meðal annars
í Wigmore Hall í London á síðasta
ári.
Útgefandi disksins erArsis
Classics íHollandi, en honum er
dreift afJapis hérlendis ogEMI
erlendis.
fÍltrgttsiMatoife
-kjarni málsins!
ÍSLANDSSAGA A-Ö eftir Einar
Laxness kom út hjá Vöku-Helga-
felli í fyrradag. Forseta íslands, frú
Vigdísi Finnbogadóttur, var afhent
fyrsta eintak verksins við athöfn í
Þjóðarbókhlöðunni. Einnig var
menntamálaráðherra, Bimi Bjarna-
syni, afhent eintak af verkinu. í
þessu þriggja binda uppflettiriti er
fjallað um sögu lands og þjóðar
eftir flettiorðum í alfræðistíl. Ritið
er samtals um 700 síður í allstóru
broti. Uppflettikaflar eru um 600
talsins. Grunnur verksins er ís-
landssaga sem Einar Laxness gaf
út á vegum Menningarsjóðs fyrir
allmörgum árum en efnið hefur
verið aukið og endurskoðað, auk
þess sem fjölda mynda og korta
hefur verið bætt við. Að sögn Ólafs
Ragnarssonar, framkvæmdastjóra
Vöku-Helgafells, hefur undirbún-
ingur að útgáfu íslandssögu a-ö á
geisladiski verið hafinn og er von-
ast til að hún verði að veruleika
eftir eitt ár.
Einar sagði í samtali við blaða-
mann að hann hafí í raun unnið
að verkinu síðastliðna þijá áratugi
ef allt er talið. Hann sagðist vera
ánægður með útkomuna. „Þetta rit
á að nýtast bæði almenningi, skóla-
fólki á öllum stigum og áhugasöm-
um um sögulegan fróðleik. I því
má fínna rækilega umfjöllun um
tiltekin atriði sögunnar í knöppum
stíl, í því er einnig að finna ítarlega
heimildaskrá þar sem fólk getur
leitað sér upplýsinga um frekara
lesefni."
Aðspurður sagði Einar að 19.
öldin væri sér sérstaklega hugstætt
tímabil í íslenskri sögu. „Sjálfstæð-
isbaráttan er skemmtilegt viðfangs-
efni og hún fær dijúgan skerf í rit-
inu.“
Ritstjórn, útlitshönnun og um-
brot fóru fram hjá Vöku-Helgafelli.
Ritstjóm íslandssögunnar önnuðust
Kristinn Arnarson og Pétur Már
Ólafsson, myndritstjórn Valgerður
Benediktsdóttir og útlitshönnun
Valgerður G. Halldórsdóttir. Ritið
var fíhnuunnið í Prentmyndastof-
unni en prentað í Portúgal. íslands-
saga a-ö kostar 14.900 krónur.
Herdís
Þorvaldsdóttir.
Kristinn
Ámason
Nýjar bækur
Stjórnmála- og
fyrirtækjasaga
ÚT er komin bókin
Satt að segja sem er
saga Jóharins G. Berg-
þórssonar, bæjarfull-
trúa og forstjóra í
Hafnarfirði.
í kynningu _ segir
meðal annars: „í bók-
inni er rakin stjórn-
málasaga jafnt sem
fyrirtækjasaga Jó-
hanns en fyrirtæki ' í
hans eigu voru fyrir
fáum árum ein þau
stærstu og umsvifa-
mestu hér á landi. Jó-
hann íjallar opinskátt
um gjaldþrot þeirra,
uppgjörið við íslands-
banka þar sem hann samdi um
greiðslu 17,5 milljóna króna vegna
132 miiljóna króna skuldar, átökin
í kringum Arnárflug, um Kolkrabb-
ann og Smokkfiskinn og um deil-
urnar við Ólaf Ragnar Grímsson,
þáverandi fjármálaráð-
herra, sem lét innsigla
fyrirtæki Jóhanns
vegna söluskattsskuld-
ar.“
Ennfremur segir:
„Uppgangur fyrir-
tækja Jóhanns var
hraður og mikill en fall-
ið sömuleiðis hátt þeg-
ar að endalokunum
kom.
Jóhann dregur fram
í dagsljósið upplýs-
ingar sem aldrei hafa
áður komið fyrir al-
menningssjónir varð-
andi stjórnmálin í
Hafnarfírði og átökin
innan Sjálfstæðisflokksins í bæn-
um.“
Páll Pálsson rithöfundur skráði
bókina en útgefandi er Framtíðar-
sýn. Bókin er 300 síður og kostar
3.400 kr.
JóhannG.
Bergþórsson
Nýjar bækur
Vetur og vor-
bláar nætur
ÚT er kominn annar
hluti Sögunnar af
Daníel eftir Guðjón
Sveinsson. Bókin
nefnist Vetur og vor-
bláar nætur.
í þessari bók held-
ur sagan af Daníel
áfram þar sem frá
var horfíð í Undir
bláu augliti eilífðar-
innar. Heimsókn á
heimaslóðir kemur
róti á huga drengsins
og honum finnst
hann hvergi eiga
heima, þrátt fyrir
gott atlæti hjá ömmu og frænda
í Syðrivík.
„Sagan er jafn-
framt samfélagslýs-
ing lítils þorps sem
er að stíga fyrstu
skrefin inn í nútíðina.
Leiftrandi frásagnar-
gleði og tilfmninga-
næmi einkenna frá-
sögnina og persón-
urnar spretta ljóslif-
andi fram á síðunum.
Sagan af Daníel læt-
ur engan ósnortinn,"
segir í kynningu.
Útgefandi er Mána-
bergsútgáfan. Bókin
er 293 síður, prentuð
í Héraðsprenti á Egilsstöðum.
Hún kostar 2.799 kr.
Guðjón Sveinsson
Hljómsveitarstjóri:
Einleikari:
Einsöngvarar:
Kynmr:
Kórar:
FjölskyIdutónleikar í Háskólabíói
laugardaginn 16. des. kl 14.30
Bernharður Wilkinson
Ástríður A. Sigurðardóttir
Árný Ingvarsdóttir, Guðrún Árný
Karlsdóttir, María Marteinsdóttir og
Rúrik Fannar Jónsson
Lovísa Árnadóttir
Gradualekór Langholtskirkju,
stjórnandi Jón Stefánsson
Kór Öldutúnsskóla,
stjórnandi Egill Friðleifsson
Skólakór Garðabæjar,
stjórnandi Guöfinna Dóra Ólafsdóttir
Skólakór Kársness,
stjórnandi Þórunn Björnsdóttir
Hátíðarforleikur
Píanókonsert nr. 1, 3. þáttur
Árstiðirnar, Haustið
Hljóðu Jólaklukkurnar
Ýmis jólalög
Dmitri Shostakovich:
Ludwig v.Beethoven:
Glazunov:
W&C Noona:
Miðasaia á
skrifstofu
hijómsveitarinnar
og við innganginn
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ISLANDS
Háskólabíói við Hagatorg. slmi 562 2255
Myndirfyrir
og eftir börn
BÓKMENNTIR
Sög u r
ALÞJÓÐLEG BARNA
BIBLÍA.
Myndskreytt af bömum um víða
veröld. Þýðing: Auðunn Blöndal.
Word Publising 1995.230 síður.
ÞETTA er faglega unnin bók, -
líkleg til þess að vekja athygli, löng-
un hjá barni til að eignast. Umgjörð-
HUGBUNAÐUR
FYRIR
WIND0WS
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 -Sími 568 8055
in eins og kallar á þig í skærum lit-
um, listilegum myndum, og aldrei
fyrr hefí eg séð bók líkjast tösku, -
MEÐ HANDFANGI. Já, þeir kunna
sitt fag sölumennimir. Enda við
hæfí að spara í fáu, því innihaldið
er hvorki meira né minna en ágrip
sögunnar um Guð og mann. í fám,
hnitmiðuðum orðum, við hæfí bama,
á söguna að rekja frá upphafi fyrstu
Mósebókar til Opinberunar Jóhann-
esar. Það er því af nógu að taka,
höfundi eða höfundum vandi á hönd-
um, hvað skal sagt og hveiju sleppt.
Oft hefír þetta verið reynt, misvel
tekizt til, stundum skelft, - stundum
glatt, enda að vonum, því að úrdrátt-
ur, hverrar bókar sem er, er ekki
bókin sjálf, heldur mynd þess er
velur. Rauði þráðurinn í slíkri bók á
að vera, að mínu mati, kærleikur
Guðs til okkar manna, hvar sem er
á hnettinum, - við hvött til að elska
og vera verðug elsku. En sá sem
vill tjá þá mynd af Guði, þarf að
gæta sín að káma hana ekki með
alt öðmm litum. Vissulega er reynt
að fylgja þessari reglu í bókinni, en
því miður takturinn ekki hreinn. Eg
fann setningar í bókinni, sem ekki
svara spurnum barns, heldur vekja
aðrar óhugnanlegar: „Jesús er sterk-
ari en sjálf náttúruöflin.“ Hví ske
þá hamfarir? Þegar Nóaflóðinu lauk,
þá setti Guð regnbogann sem friðar-
tákn, - gaf fyrirheit um að flóð yrðu
ekki meir. Hvað um flóðbylgjumar
sem æða á land og granda öllu er
fyrir verður? Guð elskar okkur menn.
Hví lætur hann þá fólk deyja fyrir
sverði eða hungri? Guð læknar, vek-
ur upp frá dauðum. Hví læknar hann
ekki alla, afhveiju vekur hann ekki
upp pabba eða mömmu?
Svona spyija börn, spurnir þeirra
eru beittar, og sá sem tekur að sér
að svara gæti sín að fæla þau ekki
frá kærleikans Guði.
Þar sem sagt er frá síðustu kvöld-
máltíð Krists, er gefíð í skyn, að
kærleiksboðið hafí verið gefið við
borðhaldið. Slíkt er aldeilis ekki rétt.
Það setti að mér hroll, er eg las
söguna um krossfestinguna, eg
hreinlega starði á setninguna: „Þetta
allt lét Guð gerast, til þess að allir
gætu frelsast!" En snúum þá að því
aftur, er mig gladdi. Ávarp í upphafi
bókar og bókarlok eru vel valin orð.
Þýðing Auðuns er lipur og á góðu
máli, auðséð að hann vill börnum
vel, vandar því sitt verk. Þess ber
líka að geta, að stafagerð er glögg,
ungum börnum við hæfi.
Og þá eru það myndimar. Þær
eru eftir börn víða um heim, og
gaman að sjá, hvernig óþjálfuð hönd
tjáir þá mynd, er í huga barnsins
birtist við lestur eða að hlusta á frá-
sögn bókarinnar. Sagan um Guð og
mann í hugarheimi barna, - án orða.
Vissulega athygli vert, og mætti það
verða okkur, hinum eldri, oftar til
umhugsunar. Skrautleg bók.
Sig.Haukur
I
>
>
)
i
>
i
I
1