Morgunblaðið - 15.12.1995, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLUN
5,8% meiri
auglýsinga-
tekjur blaða
vestanhafs
Reston, Virgfiníu. Reuter.
TEKJUR bandarískra blaða
munu nema væntanlega 48
milljörðum dollara í árslok
1996 og búizt er við að auglýs-
ingatekjur aukist um 5,8 í 6,2%
1997 að sögn samtaka banda-
rískra blaða, NAA (Newspaper
Association of America).
Þrátt fyrir hægan efnahags-
bata og 40-50% methækkun á
verði dagblaðapappírs jukust
auglýsingatekjur á fýrstu níu
mánuðum ársins um 5,1% í
25.37 milljarða dollara miðað
við sama tíma í fyrra.
NAA telur að horfur séu
góðar í greininni og að búast
megi við að verð á dagblaða-
pappír muni lækka 1996 og
1997. Verð sumra blaða hefur
verið hækkað vegna hækkunar
pappírsverðsins á árinu.
I fyrra var 22,8% af heild-
arútgjöldum til auglýsinga í
Bandaríkjunum varið til aug-
lýsinga í dagblöðum, en 20,8%
komu í hlut sjónvarps, 19,91%
var varið til auglýsinga í pósti,
7% í útvarpi og 5,3% í tímarit-
um að sögn NAA.
Nigel Wade
ritstjóri
Chicago
Sun-Times
Chicago. Reuter.
NIGEL WADE, ritstjóri er-
lendra frétta The Daily Te-
legraph í London, hefur verið
skipaður aðalritstjóri Chicago
Sun-Times.
Wade er 49 ára gamall Ástr-
alíumaður og hefur verið
fréttaritari blaðs síns í Was-
hington. Hann var fréttaritari
í Peking 1976-1980 og í
Moskvu í fjögur ár.
Norski alnetsfræðingurinn Odd de Presno er staddur hér á landi meðal annars til að kynna
nýútkomna bók, Netheima, sem fjallar um tölvusamskipti. Hann sagði
A ————————— — ——
Arna Matthíassyni að alnetið væri að breytast úr villta vestrinu í nútímalega stórborg.
I netheimum
ODD DE Presno er Norðmað-
ur á sextugsaldri. Hann hóf
vinnu við tölvur 1967 þegar
hann stofnaði hugbúnaðarfyrirtæki
sem hann stjómaði í fimm ár, en
þá tók hann við öðru norsku hug-
búnaðarfyrirtæki, CDC, sem hann
rak í sjö ár. Hann segist þegar
hafa áttað sig á möguleikum net-
tengingar þegar hann kynntist
pakkanetum og sá sæng sína upp
reidda. Upp frá því hefur hann
starfað við nettengingar, rekið
BBS-tölvubanka, skrifað um alnetið
og möguleika þess, rekið netheims-
fyrirtæki og tekið þátt í uppbygg-
ingu alþjóðanets ungmenna, Kid-
link, sem fór af stað fyrir fimm
árum og hefur tengt saman 42.000
börn á aldrinum 10—15 ára í 74
löndum. Auk þessa hefur hann ver-
ið afkastamikill blaðamaður, fyrir-
lesari og ráðgjafi, skrifað grúa
greina í blöð og tímarit, um stjórn-
unar- og tæknimál, aukinheldur
sem hann hefur gefið út tólf bæk-
ur. Bókin Netheimar er að miklu
leyti byggð á bók hans The Online
World, sem fáanleg er á alnetinu í
deiliútgáfu, en íslenska útgáfan er
þýdd, staðfærð og endursamin að
nokkru af þeim Láru Stefánsdóttur
og Lars H. Andersen.
Alnetið snýst um fólk
Hinn gríðarlegi vöxtur alnetsins
er ekki síst vegna veraldarvefsins,
sem byggist á því að sérstök forrit,
sem sumir kalla rápforrit, lesa skrár
með upplýsingum um útlit og mynd-
efni, geta tekið við hreyfimyndum
og hljóðum og flutt fyrir notand-
ann, ef tölvan hans ræður við það,
og meira að segja hafa þrívídd-
arrápforrit litið dagsins ljós á síð-
ustu mánuðum. Mörgum er líka
hætt að rugla saman alnetinu og
veraldarvefnum, en ef til vill mætti
skýra þetta með því að segja að
alnetið sé vegakerfið, en veraldar-
OÐD de Presno spjallar við börn í Grandaskóla, en þau hafa náð góðum árangri í Kidlink-verkefninu,
1 Hii ****?
| , < t j i dll ||||l|i j | W\
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ODD, Lára Stefánsdóttir og Lars H. Andersen afhenda mennta-
málaráðherra, Birni Bjarnasyni, eintak af bókinni Netheimar.
um munu hlutföllin verða álíka. Ég
tel líka að alnetið eigi eftir að
styrkja lítil mál- og menningarsam-
félög. Til að mynda eru álíka marg-
ir Bandaríkjamenn norskumælandi
og Norðmenn, og mér virðast þeir
áhugasamari um norska menningu
og tungu en íbúar Noregs, sem eru
hallir undir Hollywood-mál. Álíka
áhugi hefur sameinað fyrrum port-
úgalskar nýlendur, til að mynda í
Brasilíu, Leeward-eyjum, Angóla,
Grænhöfðaeyjum, sem bera hag
portúgalskrar menningar og tungu
fyrir btjósti. Ég tel allar líkur á því
að þessi þróun eigi eftir að, draga
úr áhrifum Hollywood og Disney-
lands og treysta þjóðlega menningu
þegar fram líður.“
Alnetið er stjórnlaust og
óstöðvandi
STEINAR WAAGE
Hlýleg jólagjöf
Umfjöllun um alnetið hefur yfir-
leitt byggst á óttalegum sögum af
því að þar sé allt vaðandi í klámi
og viðurstyggð og í kjölfarið hafa
heyrst raddir um það að komá þurfi
beisli" á netið og vefinn. Allar slíkar
vangaveltur segir Odd að byggist
á vanþekkingu, því alnetið sé þann-
ig úr garði gert að það sé ógjörning-
ur að stöðva það eða stýra því.
„Alnetið er byggt þannig upp að
halda megi áfram samskiptum þó
kjarnorkusprengjum á borgir þær
sem tölvuboðin fari um. Mín tölva
hlutar það sem ég vil koma áleiðis
í litla pakka og sendir af stað. Þeir
fara ekki allir sömu leiðina, geta
reyndar farið um ólíkar heimsálfur,
án þess að ég hafi hugmynd um
hvaða leið varð fyrir valinu. Ef ein-
hveijir pakkar lenda í hremmingum
vegna stríðsátaka eða íhlutunar
stjórnvalda, sendir tölvan þá bara
aftur og þá aðra leið. Það er ekki
hægt að stöðva alnetið og verður
ekki hægt og það er ekki hægt að
koma á það böndum frekar en sím-
ann eða póstþjónustuna,“ segir Odd
og er skemmt að einhver láti sér
detta annað eins í hug. „Það eina
sem hægt er að gera er að kenna
börnum að umgangast netið, eins
og þeim er kennt að umgangast
daglegt líf.“
Islensk heimasíða Netheima er
http://www.ismennt.is/n/netheim-
ar. Finna má enska útgáfu bókar-
innar á slóðinni http://login.eu-
net.no/'presno/index.html. Upp-
lýsingar um Kidlink eru í gop-
her://gopher.kidlink.org, en einnig
má finna upplýsingar á heimasíðu
Láru Stefánsdóttur, http://www.is-
mennt.is/'lara.
Töskurnar
komnar
Nýir litir • Mikið úrval
Frábœrt verð
frá kr. 2.900-3.900
vefurinn hluti af flutningakerfinu,
því líka er að finna á alnetinu tölvu-
póst, gopher, ftp, wais, usenet o.fl.
Að mati Odds hætti fólki einmitt
til að sjá ekki skóginn fyrir tiján-
um; alnetið sé ekki veraldarvefurinn
með sínum grúa skrautlegra upp-
lýsingalinda, heldur snúist það frek-
ar um ráðstefnurnar á netinu,
26.000 talsins, þar sem fólk komi
saman til að ræða um allt á milli
himins og jarðar, „alnetið byggist
fyrst og fremst á samskiptum ein-
staklinga og þeir eru eins ólíkir og
þeir eru margir.“
í upphafi var alnetið nánast eins
og þorp þar sem allir þekktu alla,
en það hefur tekið stórstígum breyt-
ingum, „frá því að vera eins og
villta vestrið í nútímalega stór-
borg,“ segir Odd, með samfélags-
þjónustu, bókasöfn, ráðgjöf, ráð-
húsi, borgarstjórn aðstoð o.fl., en
þann heim sem er að myndast kalla
menn cyberspace upp á ensku, en
netheima á íslensku. Þessi þróun
er mjög merkileg að mati Odds, og
hann leggur einnig áherslu á að í
netheimum séu að myndast mál-
samfélög ólíkra tungumála, í stað
enskunnar sem hefur verið ráðandi
tungumál á alnetinu. „Á ferð minni
um Suður-Ameríku fyrir skemmstu
kynntist ég því að þar eru menn
mjög áhugasamir um að byggja upp
alnetssamband á sínu móðurmáli,
og ég er reyndar þeirrar skoðunar
að enskuáhrifin séu stórlega ofmet-
in, því menn hafa einfaldlega ekki
gert sér grein fyrir því hve önnur
málsamfélög á alnetinu eru þegar
orðin sterk vegna þess að þeir skilja
ekki tungumálið. Það vita til að
mynda fáir að allir helstu bankar
Brasilíu eru komnir á alnetið, en
endalaust er hægt að lesa um
bandaríska banka. Enskumælandi
fólk er ekki nema 15% prósent íbúa
heimsins, 15% prósent tala rómönsk
mál og 40% lesa kínverskt letur.
Við teljum ósjálfrátt að enska sé
móðurmál alnetsins, en með tíman-
snyrti- og gjafavöruverslun,
Miðbæ - Háaleitisbraut 58-60,
sími 581 3525.
SKOVERSLUN
DOMUS MEDICA - KRINGLUNNI
Tegund: CAMEL BOOTS 118 10
Litir: Svart, brúnt. Verð: 14.995,-.
Stærðir: 39-48