Morgunblaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1995 61
FRÉTTIR
Að gefnu tilefni
Hvers vegna FIM
keypti ekki Asmundarsal
MIKLAR rangfærslur hafa komið
fram í blaðagreinum og útvarpsvið-
tölum varðandi þau tækifæri sem
Félag íslenskra myndlistarmanna á
að hafa haft til kaupa á Ásmundar-
sal. Einnig hefur verið gefið í skyn
að félagið hafi átt þess kost að
kaupa allt húsið.
Staðreyndir málsins eru þessar:
Fyrir tveimur árum bauð Arkitekta-
félag íslands Félagi íslenskra
myndlistarmanna að kaupa hlut í
húsinu, nánar tiltekið tæplega hálf-
an salinn, herbergi á annarri hæð
og litla geymslu. Kaup á öllu húsinu
stóðu aldrei til boða.
Félag íslenskra myndlistarmanna
átti á þessum tíma sýningarsal við
Garðastræti og hvíldu á honum
miklar skuldir. í fyrstu var rætt
um að Lífeyrissjóður arkitekta tæki
þennan sýningarsal upp í kaupin á
Ásmundarsal, en þegar til kom vildu
seljendur ekki ganga að þessum
skiptum.
FÍM átti enga peninga í sjóði,
aðeins fyrrgreinda eign með áhví-
landi skuldum. Það var því í raun
langt í frá að félagið hefði bolmagn
til að kaupa Ásmundarsal á þeim
kjörum sem buðust.
Samt sem áður gerði þáverandi
stjórn FÍM tilboð í fyrrgreindan
hluta eignarinnar. Á aðalfundi FÍM
var þetta tilboð í fyrstu samþykkt,
en þegar fyrir lágu upplýsingar um
að fjárhagsstaða félagsins hafði
verið stórlega ofmetin, var tilboðið
aftur borið upp á framhaldsaðal-
fundi og þá fellt, enda flestum ljóst
að kaup á þessum skilmálum hefðu
leitt til gjaldþrots FÍM.
Það hefur hins vegar alltaf legið
ljóst fyrir að stjórn FÍM telur að
nýta eigi Ásmundarsal til sýningar-
halds og annarrar listrænnar starf-
semi og hún fagnar innilega stefnu-
breytingu borgaryfirvalda varðandi
nýtingu hússins.
F.h. stjórnar FÍM,
Guðrún Kristjánsdóttir for-
maður. Kristín Jónsdóttir
gjaldkeri.
FULLTRÚAR kirkjugarða á stofnfundi Kirkjugarðasambands íslands.
Kirkjugarðasamband
Islands stofnað
KIRKJUGARÐASAMBAND Is-
lands hefur verið stofnað og verða
stofnfélagar 20 víðsvegar á landinu.
í stjórn Kirkjugarðambands ís-
lands voru kosnir: Þórsteinn Ragn-
arsson, forstjóri Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma, Bene-
dikt Ólafsson, lögfræðingur frá
Akureyri, og Guðmundur Rafn Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Skipu-
lagsnefndar kirkjugarða, Reykja-
vík. í varastjórn voru kosin: Ástráð-
ur Magnússon, Egilsstöðum, og
Anna María Kristjánsdóttir, Odda-
sókn. Þórsteinn Ragnarsson var
kjörinn formaður stjórnar.
Tónleikar í
Loftkastalanum
JÓLASTEMMNING verður í Húsdýragarðinum um helgina.
Jól 1 Laugardal
TÓNLEIKAR verða haldnir í Loft-
kastalanum á laugardag til stuðn-
ing vímuefnavömum. Fram koma
Q4U með Ellý, Glott, sem skipuð
er forðum Fræbbblum, Tjalz Gizur
OPIÐ hús verður hjá véladeild
Heklu hf. í Reykjavík laugardag-
inn 16. desember og verður þá
sérstök kynning á hinni nýju vöru-
bílalínu frá Scania, 4-línunni.
Bíll verður til sýnis á staðnum
og starfsmenn véladeildarinnar
og Podogs. Yfirskrift tónleikann er:
„Gerum það edrú — með lifandi
tónlist.“
Mótorsmiðjan stendur að tónleik-
unum.
veita allar nánari upplýsingar.
Scania kynnti þessa nýju vörubíla-
línu í október sl. en hún er fram-
leidd í verksmiðjum Scania í Söd-
ertálje í Svíþjóð.
Opið verður milli kl. 12 og 16.
JÓLADAGSKRÁ verður í Hús-
dýragarðinum og Grasagarðinum
frá kl. 13-17 laugardag og sunnu-
dag.
Hestareið verður um Húsdýra-
garðinn og nágrenni hans kl.
13-14 og 15-16 og munu reið-
mennirnir gefa gestum konfekt.
Giljagaur kemur í fjósið kl. 14 og
segir skemmtilega jólasögu ásamt
Grýlu og Leppaiúða.
I Garðskála Grasagarðsins sem
komin er í hátíðarbúning verður
jólastund kl. 16. Jólasaga verður
sögð, jólalög sungin og dansað í
kringum jólatré undir berum
himni.
í kaffihúsi Fjölskyldu- og hús-
dýragarðsins er hægt að ylja sér
og kaupa kakó með ijóma ogjóla-
smákökur á 150 kr. um jólin.
Hefbundin Húsdýragarðsdag-
skrá er báða dagana og er þar
ýmislegt skemmtilegt að sjá. Sela-
gjöf er kl. 11 og 16 og dýrum í
smádýrahúsi er gefið kl. 16.20.
Aðgangseyrir fyrir 0-5 ára og
ellilífeyrisþega er ókeypis, 100
krónur fyrir 6-12 ára og 200
krónur fyrir fullorðna.
Fjölskyldu og húsdýragarðurinn
er opinn frá 10-18 um helgar og
13-17 alla virka daga nema mið-
vikudaga.
Fatasöfnun
fyrir fólk
í gömlu
Júgóslavíu
ÆSKR mun gangast fyrir uppá-
komu fyrir ungt fólk í Reykjavík
sunnudaginn 17. desember. Hátiðin
hefst kl. 12 með fatasöfnun vegna
ástandsins í fyrrum Júgóslavíu.
Fatasöfnunin er samstarfsverkefni
ÆSKR, Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar, Ungs fólks í atvinnuleit o.fl.
Bandalag íslenskra skáta „skaffar"
tjöldin. Fatasöfnunin á að vera
„temprað átak“ því það eru takmörk
fyrir því hvað við getum tekið við
milu magni af fötum. Fötin verða
flokkuð og þeim pakkað jafnóðum
og þau berast.
Skóverslun Steinars Waage verð-
ur með gám fyrir notaða skó á sama
stað. Fatasöfnunin stendur frá kl.
12-20.
-----» ♦ ♦----
Stuð, sveifla
og rómantík
ANDRÉ Bachmann
heldur aukaútgáfu-
tónleika á Feita
dvergnum í kvöld
og annaðkvöld.
Tónleikarnir hefjast
kl. 23.30 bæði
kvöldin.
André kynnir efni af nýútkomn-
um geisladiski sínum, sem heitir
Gleðigjafinn André Bachmann.
Tjalz Gizur
Kynning á Scania
-leikur að lœra!
Vinningstölur 14. des. 1995
5*14.15*20.21 «24*28
Eldri úrslit ó símsvara 568 1511
Hornsófi
með innbyggðu fumi.
Verð kr. 1 ðíMHK)
St.gr. kr. 143.000
Ekta leður d slitflötum og leðurlíki d grind.
Litir: Vínrautt - brúnt - grœnt - svart.