Morgunblaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1995 63
BREF TIL BLAÐSMMS
Okrað á hollum
drykk
Frá Hannesi Hólmsteini
Gissurarsyni:
ÁFENGIÐ hefur aldrei gert nein-
um manni mein að fyrra bragði,
eins og Tómas Guðmundsson sagði
eitt sinn. En einu er við það að
bæta. Athyglisverður þáttur (Sixty
Minutes) var sýndur á Stöð tvö
sunnudaginn 10. desember. Þar
kom fram, að sífellt sterkari gögn
eru að verða til um það, að hófleg
rauðvínsdrykkja (2-4 glös á dag)
sé holl. Meðal annars var rætt við
danskan vísindamann, sem hafði
rannsakað áhrif breyttra drykkju-
hátta Dana á heilsufar þeirra. Eft-
ir að Danir gengu í Evrópusam-
bandið, lækkaði verð á rauðvíni
um 30%, og við það jókst drykkja
þess á kostnað annarra drykkja.
Um leið batnaði heilsa Dana.
Bandarískir læknar, sem hafa
rannsakað málið, segja, að hófleg
rauðvínsdrykkja minnki ekki að-
eins líkurnar á hjartasjúkdómum,
heldur einnig á krabbameini.
Hjarta- og æðasjúkdómar eru
sem kunnugt er algengustu dánar-
orsakir íslendinga. Ætla landlækn-
ir, forstjóri Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins, þingmenn og
aðrir ráðamenn þjóðarinnar að
hafa það á samviskunni áfram, að
þessum holla drykk, sem er auk
þess mikill gleðigjafi, sé haldið frá
fólki með okurverði? Og hvers
vegna leyfa þeir sífelldar auglýs-
ingar um það, að mjólk sé holl, en
banna allar auglýsingar um rauð-
vín, þótt sennilega sé rauðvín miklu
hollara fyrir fullorðið fólk en mjólk?
Hvernig væri að lækka verð á
rauðvíni og hækka þess í stað verð
á brenndum drykkjum, sem að
sögn vísindamannanna í fyrrnefnd-
um þætti eru jafnóhollir og rauð-
vínið er hollt? Hvers eigum við að
gjalda, sem umhugað er um heilsu
okkar?
HANNES HÓLMSTEINN
GISSURARSON,
Hringbraut 24, Reykjavík.
Góð reynsla af Medis-
ana Turbo-buxum
Frá Helgu Gísladóttur:
MIG undirritaða langar að skjóta
inn nokkrum orðum varðandi rit-
deilur þær sem að Þuríður Ottesen
hefur átt í við Rafn Líndal vegna
buxna sem hjálpa konum með app-
elsínuhúð. Eg harma mjög nei-
kvæða meðferð Rafns á jafn við-
kvæmu máli. Við konur sem þekkj-
um vandamálið af eigin raun höf-
um leitað leiða til að losna við
það, og ef Medisana Turbo buxurn-
ar geta hjálpað sé ég ekki ástæðu
til að reyna að gera lítið úr því.
Mig langar til að segja frá
reynslu minni af umræddum bux-
um. Ég vinn fullan vinnudag við
afgreiðslustörf, og er álag á fætur
mjög mikið. Ég hef safnað vökva
og appelsínuhúð á læri og rass og
var vandamálið orðið slíkt að ég
var alvarlega farin að hugsa um
að ég yrði að minnka við mig vinnu,
janfvel niður í hálfan dag, þar sem
verkir voru að verða óbærilegir.
Fyrir þremur mánuðum keypti ég
mér svo Medisana Turbo buxur,
og byijaði að vera í þeim í vinn-
unni. Sú breyting sem orðið hefur
á líðan minni og útliti er mikil.
Vökvasöfnun er ekki fyrir hendi
og hefur appelsínuhúðin minnkað
svo um munar. Þreytuverkir sem
háðu mér við vinnu eru horfnir og
allar vangaveltur um styttri vinnu-
dag komnar á hilluna. Vil ég því
beina orðum mínum til Rafns Lín-
dals þegar ég segi: Það er útilokað
að sýna fram á það með tilvitnun-
um og skrifum að buxurnar séu
gagnslausar. Reynsla mín sýnir að
buxurnar eru eingöngu til góðs og
geta í mörgum tilfellum hjálpað
mikið.
HELGA GÍSLADÓTTIR,
Funafold 31, Reykjavík.
Hvers vegna, Helga
Ingólfsdóttir?
Frá Finni Karlssyni:,
ÉG ÞJÁIST af psoriasis í hársverði
og andliti en hef nýlega kynnst
kremi dr. Guttorms Hernes sem
hefur skilað mér mjög góðum ár-
angri í baráttunni við vágestinn.
Það kom mér því á óvart þegar
ég las í bréfum Ragnars Þjóðólfs-
sonar til Morgunblaðsins að Psor-
iasissamtökin hefðu snúist öndverð
gegn sölu og innflutningi kremsins
hér á landi. Ragnar fer fram á að
Helga Ingólfsdóttir svari í nafni
samtakanna ákveðnum spurning-
um sem ég tel okkur notendur eiga
rétt á að fá svarað. Helga hefur
enn ekki svarað og vil ég hvetja
hana til að gera það hið fyrsta.
Ég vil einnig hvetja Ragnar til
að skýra betur í hveiju aðgerðir
Helgu voru fólgnar, enda skilst
mér að þær hafi leitt til þess að
kremið er ekki lengur fáanlegt í
apótekum sem er bagalegt fyrir
okkur sem notum það.
FINNUR KARLSSON,
Bláhömrum 11, Reykjavík.
Siggi hrekkjusvín
Frá Sigrúnu Jónsdóttur:
ÉG HAFÐI gaman af að lesa barna-
bókina Siggi hrekkjusvín, sem er
nýkomin á markaðinn. Hún er skrif-
uð fyrir læs skólabörn og ömmur
eins og mig, sem kann alla gömlu
leikina sem voru svo skemmtilegir
og þarna eru komnir á prent. Þeim
er fléttað saman við söguna um
hann Sigga, sem stefnir í að verða
vandræðaunglingur, en fólkið í
hverfinu sér hættuna og tekur í
taumana áður en það er orðið um
seinan. Þannig geta áhrif og skiln-
ingur hjá góðu fólki leitt unglingana
á rétta leið.
Góð bók, vönduð bók, fallega
myndskreytt af ungri listakonu,
Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur. Höf-
undurinn er Oddný Thorsteinsson.
Fjölvi gefur út.
SIGRÚN JÓNSDÓTTIR,
kirkjulistakona,
Skólavörðustíg 12, Reykjavík.
með útgáfut'
á föstud
Auglýsing
Tímaritið
Hjónabands- og félagamiðlun.
Hin sanna hamingja skapast þegar sönn ást
tekst milli manns og konu. Að finna þá ham-
ingju er ekki létt, en auglýsing í tímaritinu getur
verið góð hjálp í leitinni eftir rétta lífsförunautn-
um, einmitt fyrir þig.
Eftir Ijósmynd getur maður oftast dæmt um
hvort manni falli við persónuna!
Með auglýsingunni þarf að senda mynd og
upplýsingar um menntun, sjálfslýsingu, lundar-
far, áhugamál, aldur, augnlit, líkamsstærð,
Ifkamsþyngd og háralit. Einnig hvaða eiginleika
viðkomandi óskar eftir, hvers konar lundarfar
og annað sem þeim finnst skipta máli.
Einstæðar mæður og feður með börn (barn), er
æskilegt að senda fjölskyldumynd tii að
maðurinn/konan getir dæmt um hvort þeim falli
við börnin (barnið). Það verður oftast fljótt Ijóst
hvort persónunum fellur hvorri við aðra þegar
þær talast við í síma.
Einstaklingar, sem sækja eftir félaga eða vini,
skulu skrifa sjálfslýsingu og um áhugamál sín,
lundarfar og aldur og senda með nýlega Ijós-
mynd af sér. Persónurnar þurfa gjarnan að skri-
fa um hvernig félaga þær óska eftir, t.d. rólynd-
um, örlyndum, hressum, glaðværum, vel
lesnum, með almenna menntun, með háskóla-
menntun eða með sérstök áhugamál.
Þú getur einnig eignast símafélaga sem þú
getur talað við þegar þú þarft að tala við ein-
hvern.
Þú færð dulmálslykil eða getur gefið upp
símanúmerið þitt.
Fyrir ellilífeyrisþega, þegar barnabörnin eru
búsett úti á landi, erlendis eða þeir eiga engin,
en þrá að umgangast börn (barn), eru hugsaðar
sérstakar síður; þá þurfa þeir bara að senda
nýlega Ijósmynd og nokkrar línur um sig.
Ellilífeyrisþegar, sem óska þá eftir að fá barna-
fjölskyldur í heimsókn, fá dulmálslykil eða gefa
upp símanúmer sitt.
Þú getur líka eignast félaga til mismunandi
áhugamála, svo sem ferðalaga, veiði — eða
hvers sem er! Þeir, sem hafa sömu áhugamál,
hafa mikið að tala um.
Þeir, sem hafa góðlegt útlit eða eru glaðværir
og félagslyndir, geta vænst þess að fá mörg
svarbréf. Þú þarft einnig að skrifa um hvort þú
ert ábyrgur í fjármálum og hvort þú ert
þroskuð/aður.
Auglýsing verður með dulmálslykil eða þú
getur gefið upp símanúmer þitt, en því getur
fylgt mikið ónæði.
Konur, sem hafa sambúð í huga, fá alltaf dul-
málslykil.
Skýring á sjálfslýsingu:
Hvort þú ert rólynd/ur, sjálfstæð/ur, nærgætin/n,
undirgefin/n, með hlýtt viðmót, og/eða blíð-
lynd/ur, staðfastur/staðföst, venjuleg/ur.
í skýringu á lundarfari komi fram:
Hvort þú ert glaðvær, hress, hvort þú hafir kímni-
gáfu, sért þolinmóð/ur, umburðarlynd/ur,
tillitssöm/samur, hvort þú sért skapmikil/l eða
hafir venjulegt lundarfar.
Verð:
Símafélagi Kr. 12.00 — 50 orð.
Auglýsing passamynda 4,5x5,6 cm 9 cm há
kr. 2.000.
— passamynd í lit 4,5x5,6 cm 9 cm há kr. 6.000.
Auglýsing fjölskyldumynda 6x6,7 cm 14 cm há
kr. 3.500.
— fjölskyldumynd í lit 6x6,6 cm 14 cm há
kr. 9.500.
Orð með passastærð ca 50 orð, fjölskyldumyndir
ca 100 orð, síðan eru 300 kr. á hvsrn dálk cm, sem
kemur á öll orð fram yfir það.
Allur ágóði af sölunni fer til líknarmála.
Þetta er 100% heiðarlegt fyrirtæki.
Þeir sem kaupa tímaritið með auglýsingunni fá
tímaritið á 400 kr. annars 500 kr. og fá fría heim-
sendingu.
Sendið einnig með heimilisfang, símanúmer og
kennitölu.
Auglýsingin sendist í pósthólf 225,
270 Mosfellsbæ.
Björgvin Ómar Ólafsson, kt. 170352-1557.