Morgunblaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1995 53
Sambands
JíancfiÁýöÍK)
ora
stofumaður. Síðan vann hann hjá
svila sínum Jóni Aðalsteini Jóns-
syni í Sportvali 1981-1983, en
þegar Jón seldi Sportval réðst hann
góðu heilli til Sparisjóðs Reykjavík-
ur og nágrennis.
Þrítugur að aldri kynntist Ragn-
ar eiginkonu sinni Bergljótu
Sveinsdóttur, verslunarkonu. Voru
þau hjón einkar samhent alla ævi.
Þau reistu vinalegt hús að Soga-
vegi 86, en bygging þess tók all-
langan tíma, því að þau hjón vildu
ekki steypa sér í of miklar skuldir.
Ragnar varð sér því úti um auka-
vinnu sem hann gat stundað á
kvöldin að aflokinni skrifstofuvinn-
unni í Sælgætisgerðinni Víkingi.
Þessi aukavinna var leikmuna-
varsla í Þjóðleikhúsinu. Hana
stundaði hann á árunum 1951-
1964, eða þrettán ár, öll kvöld
nema þá tvo sumarmánuði á ári
sem Þjóðleikhúsið var lokað.
Oft hafði Ragnar orð á því við
mig hve þessi vinna hans með leik-
húslistafólkinu hefði verið sér
mikilvæg og ánægjulegt veganesti
í lífinu. Þar hefðu allar stundir
verið ánægjustundir vegna sam-
verunnar og þeirra kynna sem
hann hlaut af listafólkinu öllu. En
kröfurnar tii hans hafi verið mikl-
ar. Aliir leikmunir urðu að vera á
sínum rétta stað og réttri stundu,
alltaf og ævinlega.
MIIMNINGAR
Það var mér og okkur öllum í
sparisjóðnum mikið lán að fá að
njóta starfskrafta Ragnars þessi 8
ár sem hann vann þar. Raunar
tveimur árum lengur en hefð-
bundnar starfsaldursreglur leyfðu.
Trúmennska hans og kostgæfni í
öllum verkum hans var frábær, en
það sem lengst varir þó í minning-
unni um Ragnar var þessi einlæga
glaðværð hans og ljúfmennska.
Bros hans og gleði voru svo
smitandi að hvar sem Ragnar kom
var fólk óðar farið að brosa. Brún-
irnar lyftust og lundin léttist. Hann
var sannkallaður gleðigjafi.
Eftir starfslok hans kom hann
nánast reglubundið í heimsóknir í
sparisjóðinn og ferðaðist með
„strákunum“ í skipulagsdeildinni í
öll útibúin og allir tóku honum
fagnandi.
En nú kemur þessi öðlingur okk-
ar allra ekki oftar í heimsókn, en
minningin um þennan einstaklega
góða dreng mun ylja okkur öllum
um hjartarætumar.
Við öli í Sparisjóði Reykjavíkur
og nágrennis söknum góðs vinar
og frábærs starfsfélaga. Við vott-
um eftirlifandi eiginkonu hans
Bergljótu Sveinsdóttur innilega
samúð okkar og óskum henni og
öllum aðstandendum huggunar á
erfíðum sorgartímum.
Baldvin Tryggvason.
í dag er til moldar borinn Ragn-
ar F. Guðmundsson, skrifstofu-
stjóri. Genginn er góður drengur
sem skilur eftir skarð fyrir skildi.
Ungur að árum kynntist ég Ragn-
ari Guðmundssyni. Hann hóf störf
hjá Sælgætisgerðinni Víkingi á
unglingsárum sínum og starfaði
þar yfír 40 ár. í heimsóknum til
afa míns og alnafna hitti ég fyrir
glaðlyndan mann sem tók mér af
einstökum hlýhug. Minnist ég þess
að við krakkamir ræddum marg-
sinnis hve Ragnar væri okkur góð-
ur enda var bamgæska hans mik-
il. Allt hans viðmót bar vott um
þann hlýhug sem hann bar til afa
míns og þá vináttu sem hann sýndi
samferðafólki sínu.
Fyrstu árin starfaði Ragnar við
almenn störf í verksmiðjunni en
hóf fljótlega skrifstofustörf. Alls
staðar ávann hann sér tryggð og
trúnaðartraust samverkafólks síns
enda var viðmót hans fágað og
látlaust. Veit ég af frásögnum afa
míns og ömmu að þeim þótti vænt
um Ragnar Guðmundsson. Sterk
vináttubönd vora milli þeirra enda
reyndist hann þeim betur en orð
fá lýst.
Ragnari vora falin margvísleg
trúnaðarstörf sem hann vann af
mikilli kostgæfni. Vönduð vinnu-
brögð hans voru okkur samferðar-
fólkinu til fyrirmyndar. Hann var
fjármálastjóri fyrirtækisins og
gætti hagsmuna þess eins og hans
eigin væri. Tryggð hans við fyrir-
tækið og fjölskyldu mína var sem
bjargfastur klettur.
Eftir að ég hóf störf hjá verk-
smiðjunni um sumarið 1973 höfðu
orðið talsverðar breytingar á
rekstrinum. Ragnar hafði yfir-
burðaþekkingu á störfum sínum
og naut virðingar allra sem hann
þekktu. Það var ómetanleg stoð.
Erfíð veikindi á æskuárum og
baráttan sem hann hafði að baki
höfðu mótað manninn. Erill dags-
ins og margvíslegir erfiðleikar í
rekstrinum viku fyrir því æðra-
leysi sem einkenndi líf hans. Lífs-
gleði og óbilandi trú á framtíðina
einkenndu þennan góða dreng.
Ragnar var einkar glaðlyndur
maður og mannblendinn. Hann
var hrókur alls fagnaðar í leik og
starfí og hafði einstakt lag á því
að heilla samstarfsfólk sitt með
skemmtilegum frásögnum og lát-
bragði sem honum einum var gef-
ið. Fjölskylda Jóns Kjartanssonar
afa míns átti miklu láni að fagna
að eiga samleið með Ragnari Guð-
mundssyni. Fyrir hönd þeirra
þakka ég þann trúnað og það
traust sem hann sýndi okkur. Eig-
inkonu hans og fjölskyldu bið ég
Guðs blessunar.
Jón Kjartansson.
KENWOOD
KENWOOD
kemur sér vel!
SAFAPRESSA
kr. 4.390.- stgr.
HÁRBLÁSARI 1600 W
kr. 2.875.- stgr.
KENWOOD
KAFFIVÉL 10 BOLLA
kr. 3.739.- stgr.
KENWOOD
MATVINNSLUVEL, 500 W
kr. 1 0.900.- stgr.
KENWOOD
.að sjálfsögðu!
HRAÐSUÐUKANNA 1,7 L
kr. 3.279.- stgr.
KENWOOD
ÐKHMW
HIKLUHÚSINU • LAUCAVEGI 173 • 105 tEVKJAVÍK • SlMI 569 5500