Morgunblaðið - 15.12.1995, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 15.12.1995, Qupperneq 62
62 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Ljóska (emily?) ma'am.where 15 EMILY? 'l WHATD0Y0U MEAN THERE'5 N0 EMILY? SHE U)AS MY DANCE PARTNER í 'zr~ (7h £f\ WJ^ j J)di[tcéP Stúdio 11-/6 1 i zn - LTtSfc .A A M IT U)A5 AN ENCHANTEP EAR.LY AFTERNOON Emelía? Kennari, hvar Hvað áttu við... að Hún var með Við dönsuðum Það var töfr- er Emelía? það sé engin Emel- sítt hár og og dönsuðum og andi síðdegi. ía? Hún var dansfé- mjúkar hend- dönsuðum — lagi minn! ur. BREF TDL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Köll kornskurð- armannanna Frá Eggerti E. Laxdal: FYRIR nokkru las ég í einu dag- blaðanna, að laun verkafólks væru 270 kr. á tímann, þetta gerir tæpar 50.000 kr. á mánuði. Þetta er sann- kallaður gapastokkur, því enginn getur lifað af þessum launum. Þessu fólki er fórnað, hvað eftir annað í nafni þjóðarheildinnar, meðan aðrir menn mata krókinn á kostnað smælingjanna. Hve lengi á þetta að ganga? Er ekki kominn tími til þess að gera bragarbót hvað þetta fólk snertir, sem auk lágra launa býr við öryggisleysi í atvinnu- málum og lifir í stöðugum ótta við að missa vinnuna ofan á allt ann- að. 400 kr. á tímann er alveg lág- mark fyrir þetta fólk, það gerir um 80.000 kr. á mánuði, knappara má það ekki vera. Lítil íbúð er leigð á 30-40 þús. kr. mánuði, sem ekki er of mikið fyrir húseigendur, því að það er dýrt að byggja og viðháld er umtals- vert á húsnæði og fjármunir í fast- eignum verður að ávaxta eins og allir hljóta að skilja. Síðan kemur matur, fatnaður og annað, sem nauðsynlegt er að hafa í heimilis- haldi auk skatt.a, og þá er ekkert eftir. Það er ekki þetta fólk sem storm- ar á sólarstrendur ár hvert, heldur hinir, sem lifa á vinnu þess. Þeir þurfa ekki að spara til þess að hafa fyrir salti í grautinn, eins og marg- ir aðrir verða að gera. Verkafólk getur ekki kostað börn sín til náms, það er þeim ofviða. Námsbækur fyrir einn nema skipta tugum þúsunda á ári. Auk þess þurfa þeir fæði, fatnað og margt fleira eins og gengur. 400 kr. á tím- ann fyrir verkafólk og ekkert minna, það er takmarkið og óbreytt verðlag, engin verðbólga. Ég ætla í lokin að vitna í heilaga Ritningu, hvað hún hefur um þetta að segja og vona að það fáist birt í kristnu landi, en ritningarstaður- inn er í Jakobsbréfi, 5. kap. og er á þessa leið: „Hlustið á þér auðmenn, grátið og kveinið yfir þeim bágindum, sem yfir yður munu koma. Auður yðar er orðinn fúinn og klæði yður eru orðin möletin, gull yðar og silfur er orðið ryðbrunnið og ryðið á því mun verða yður til vitnis og eta hold yðar eins og eldur. Þér hafið fjársjóðum safnað á síðustu dögum. Launin hrópa þau, sem þér hafið hafíst að verkamönnunum, sem slógu lönd yðar og köll kornskurð- armanna eru komin til eyrna drott- ins hersveitanna." Svo mörg eru þau orð og ekki miklu við að bæta, þetta skilur hvert barn. EGGERT E. LAXDAL, box 174, Hveragerði. Húsaleigubæturnar og Jón Kjartansson Frá Júlíusi Valdimarssyni: HÉR Á dögunum fór ég á aðalfund Leigjendasamtakanna. Þessi sam- tök hafa nú starfað í 17 ár hér á Islandi. Upphafsmaður leigjenda- samtakanna er Jón Kjartansson, núverandi formaður, en hann hefur lengst af gengt því starfi fyrir samtökin. Ég er leigjandi og nýt núna rúm- lega 8 þúsund króna húsaleigubóta á mánuði, sem mig munar sannar- lega um. Mér er það vel ljóst að án Leigjendasamtakanna og þrot- lauss og áralangs starfs Jóns Kjartanssonar hefðu húsaleigu- bætur aldrei komist á. Þetta starf Jóns og þess fólks sem með honum hefur unnið er að mestu sjálfboðal- iðastarf. Hann hefur lítil sem eng- in laun þegið fyrir að koma dag- lega á skrifstofu sína og sinna fjöl- mörgum fyrirspumum og greiða úr mörgum málum fyrir leigjendur. Þúsundir leigjenda fá nú umtals- verða aðstoð við að greiða sína húsaleigu og þar með auðvelda sér lífsframfærið. Með þessum hætti hefur nokkur jöfnuður komist á miðað við þá styrki sem húseigend- ur fá í formi vaxtabóta. Húsaleigu- bætumar vom hins vegar varla komnar í umferð þegar tekið var upp á því að taka af þeim rúm 40% staðgreiðsluskatt. Vaxtabætur til húseigenda njóta hins vegar fullra skattfríðinda eins og reyndar allar fjármagnstekjur. Leigjendasamtökin hafa nú haf- ið baráttu fyrir afnámi þessarar óréttlátu skattlagningar og mis- mununar milli húseigenda og leigj- enda og fara fram á að skattinn- heimtu af húsaleigubótum verði þegar í stað hætt. Einnig fara Leigjendasamtökin fram á að lög um húsaleigubætur skyldi öll sveit- arfélög til þess að inna þær af hendi, en nú er þeim það I sjálfs- vald sett. Sem dæmi um misrétti sem af þessu hlýst þá er ekki um húsaleigubætur að ræða í Kópa- vogi. Á aðalfundi þeim hjá Leigjenda- samtökunum sem ég vísaði til áðan mættu innan við 10 manns. Ég skora á leigjendur að láta í sér heyra og styðja Leigjendasamtökin í því skyni að réttur leigjenda á móts við húseigendur verði tryggð- ur. Við skuldum hugsjónamönnum á borð við Jón Kjartansson og sam- tökum á borð við leigjendasamtök- in stuðning. Ríkisstjórnin státar sig um þessar mundir af því að hækka skattleysismörk um 600 kr. á ári. Það er Leigjendasamtökunum að þakka að leigjendur á borð við mig fá nú meira en 100 þúsund krónur í húsnæðisstyrk á ári. JÚLÍUS VALDIMARSSON, Hverfísgötu 119, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.