Morgunblaðið - 21.01.1996, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C
17. TBL. 84. ÁRG.
SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Arafat spáð stórsigri í fyrstu kosningum Palestínumanna
„Grimdvölliir lagður að
stofnun Palestínuríkis“
Jerúsalem. Reuter.
PALESTÍNUMENN gengu að
kjörborði í gær, laugardag, til að
kjósa forseta og 88 manna löggjaf-
arráð sjálfstjórnarsvæðis þeirra
samkvæmt friðarsamningunum
við ísraela. Yasser Arafat, leiðtogi
Frelsissamtaka Palestínumanna
(PLO), er talinn öruggur um að
verða fyrsti þjóðkjörni leiðtogi
Palestínumanna í kosningunum.
Arafat brosti breitt þegar hann
greiddi atkvæði í Gaza-borg og
sagði kosningarnar marka tíma-
mót í sögu Palestínumanna. „Nú
er grundvöllurinn lagður að stofn-
un Palestínuríkis,“ sagði hann.
Um það leyti sem kjörstaðirnir
voru opnaðir gengu þúsundir Pal-
estínumanna um götur Jenín á
Vesturbakkanum þar sem ísra-
elskir hermenn drápu þijá liðs-
menn Hamas, hreyfingar her-
skárra múslima, á föstudag. „Við
sprengjum Tel Aviv í loft upp,“
sönglaði fólkið í sífellu.
Mikil kjörsókn
Rúm milljón Palestínumanna er
á kjörskrá og kosningarnar fara
fram fjórum mánuðum eftir síð-
asta friðarsamning PLO og ísra-
ela, sem kvað á um brottflutning
ísraelskra hermanna frá mörgum
byggðum á Vesturbakkanum eftir
28 ára hernám. Formaður palest-
ínsku kjörstjórnarinnar sagði að
kjörsóknin hefði verið mjög mikil
um morguninn.
„Guði sé lof,“ sagði 75 ára Pal-
estínumaður í Hebron eftir að hafa
kosið í fyrsta sinn á ævinni. „Þetta
er dagurinn sem við höfum beðið
eftir,“ sagði skólastjóri í Ramallah
á Vesturbakkanum. „Þetta er upp-
haf stofnunar Palestínuríkis, með
höfuðborg í Jerúsalem.“
Kosningarnar eru mikilvægur
liður í friðarsamningi PLO og ísra-
ela frá 1993, sem veitti tveimur
milljónum Palestínumanna tak-
markaða sjálfstjórn á Vesturbakk-
anum og Gaza-svæðinu. 676
manns eru í framboði til löggjafar-
ráðsins og talið er að margir af
stuðningsmönnum Arafats nái
kjöri. Búist er við að Arafat beri
auðveldlega sigurorð af eina and-
Reuter
ÍSRAELSKIR lögreglumenn
voru með mikinn öryggisvið-
búnað í Austur-Jerúsalem í
gær vegna hættu á að hægri-
sinnaðir gyðingar reyndu að
hindra kosningarnar þar. A
efri myndinni eru lögreglu-
menn á verði við kjörstað í
Austur-Jerúsalem, en á mynd-
inni til vinstri er Yasser Ara-
fat, leiðtogi Frelsissamtaka
Palestinumanna, (PLO) að
greiða atkvæði í Gaza-borg.
stæðingi sínum í forsetakosning-
unum, Samiha Khalil, lítt þekktri
72 ára konu sem hefur lagst gegn
friðarsamningunum.
Spenna í Austur-Jerúsalem
Þúsundir ísraelskra lögreglu-
manna voru við kjörstaði og í
hverfum gyðinga í Austur-Jerúsal-
em til að koma í veg fyrir að þeir
reyndu að hindra kosningarnar.
Erlendir eftirlitsmenn í Austur-
Jerúsalem voru ekki ánægðir með
kjörsóknina þar fyrstu klukku-
stundirnar. „Eg hef aðallega séð
ísraelska lögreglumenn og eftir-
litsmenn en fáa kjósendur,“ sagði
Carl Lidbom, sem fer fyrir eftirlits-
nefnd á vegum Evrópusambands-
ins. „Ég efast um að þeir mæti á
kjörstað við þessar aðstæður."
Jimmy Carter, fyrrverandi for-
seti Bandaríkjanna, deildi við ísra-
elskan lögreglufulltrúa um hvort
lögreglan væri að taka myndir af
kjósendum og sagði að það mætti
ekki. „Hafðu engar áhyggjur,“
sagði lögreglufulltrúinn og bætti
við að aðeins yrðu teknar myndir
af friðarspillum. „En ég hef
áhyggjur," svaraði Carter.
Ferjuslys í
Indónesíu
Ottast að
150 hafi
farist
Jakarta. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 54
manns fórust og meira en 100
var saknað í gær eftir að ferja
sökk í Aceh, vestasta héraði
Indónesíu. 39 manns var
bjargað.
Fetjan, sem var smíðuð í
Japan, er talin hafa siglt á
sker og sokkið á leið til Sab-
ang frá Banda Aceh, höfuð-
stað héraðsins. Sabang, sem
er 29 km norðan við Banda
Aceh, er á eyjunni We og
þangað fara margir erlendir
ferðamenn vegna fagurra
stranda og kóralrifja.
Stormur var og stórsjór
þegar feijan sökk og óveðrið
torveldaði björgunarstarfið.
20 skip tóku þátt í leitinni.
Tsjetsjen-
ar nást
Eregli. Reuter.
TYRKNESKA lögreglan
handtók í gær fimm menn,
sem tóku þátt í gíslatökunni
í Svartahafsferjunni Avrasíu
og reyndu að sleppa með því
að þykjast vera farþegar í
feijunni.
Tveir mannanna eru
Tsjetsjenar og einn frá Abk-
hazíu-héraði í Georgíu. Fjórir
félagar þeirra gáfust upp á
föstudag án þess að til blóðs-
úthellinga kæmi. Þeir höfðu
haldið um 200 manns í gísl-
ingu í feijunni til að mótmæla
árásum Rússa á tsjetsjensku
uppreisnarmennina í þorpinu
Pervomaískoje í Dagestan.
Tyrkneskir lögfræðingar
segja að mennirnir eigi líklega
yfir höfði sér allt að níu ára
fangelsisdóm. Nokkrir frétta-
skýrendur telja að þeir fái
mildari dóm þar sem þeir gáf-
ust upp og vegna þess að
margir Tyrkir hafa samúð
með málstað trúbræðra sinna,
Tsjetsjena.
Andvara
laus
almenn-
ingur
ALLTAF EITT-
HVAÐLAGSTTIL
vnjsnpnfflVDrautíF ??
Á SUNNUDEGI ^ ^