Morgunblaðið - 21.01.1996, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.01.1996, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1996 33 + Lára Gunnars- dóttir fæddist 14. sept. 1909 að Bakkagerði í Reyð- arfirði. Hún lést 2. janúar síðastliðinn. Hún var þriðja í röðinni af tíu börn- um Gunnars Bóas- sonar útvegsbónda og fyrri konu hans, Sigríðar Unu Jóns- dóttur. Þar ólst hún upp í stórum systk- inahópi en 12 ára gömul missti hún móður sína. Gunnar giftist aftur Margréti Priðriks- dóttur og átti með henni níu börn. Árið 1929 flutti Lára til Siglufjarðar með mannsefni sínu, Eðvaldi Eiríkssyni, þar giftu þau sig ári síðar og bjuggu allan sinn búskap. Þau eignuðust níu börn og sjö kom- ust til fullorðins ára. Eðvald andaðist 1977. Útför Láru fór fram frá Siglufjarðarkirkju laugardag- inn 6. janúar. MIG LANGAR að minnast tengda- móður minnar með nokkrum orðum og þakka henni fyrir hvað hún var mér og okkur öllum, sem þekktum hana, mikils virði og fyrir það sem við gátum lært af henni. Hún var sú óeigingjarnasta manneskja sem ég hef kynnst. Allt hennar líf sner- ist um velferð og hamingju annarra og þá fyrst og fremst barna hennar og barnabarna, hvað hún gæti gert svo þeim mætti líða sem best. Þau Eðvald byijuðu sinn búskap með tvær hendur tómar á erfiðum tímum. Þeim tókst með ráðvendi og ýtrustu sparsemi að eignast eigið húsnæði og koma sínum stóra barnahópi upp. Eðvald vann alla sína tíð hjá Síldarverksmiðjum rík- isins og Lára drýgði tekjur heimilisins með síldarsöltun á sumrin eftir því sem hún gat. Það má nærri geta að ekki hafi alltaf verið úr miklu að spila i hennar búskapartíð en hún var ákaflega hagsýn kona og tókst ótrúlega vel að gera mikið úr litlu. Snemma eignaðist hún pijónavél og hún nýtti hveija stund sem gafst til að pijóna á börnin og bamabörnin. Allar flíkur sem hún pijónaði eða saumaði voru vandaðar svo af bar og vinsælar eftir því. Eftir að börnin voru uppkomin vann hún um árabil hjá saumastofunni Salínu á Siglufirði. Samband Láru og barna hennar var alla tíð mjög gott, gátu þau leitað til hennar með öll sín vanda- mál og ekkert var svo lítið eða ómerkilegt að Láru þætti ekki taka því að leysa það. Hún fylgdist með þeim öllum og síðar fjölskyldum þeirra eins og henni var unnt og var ávallt reiðubúin að rétta hjálp- arhönd. Hún hafði létta lund og skipti sjaldan skapi og því leið öllum vel í návist hennar. Síðustu árin dvaldi hún á veturna hjá Krist- björgu dóttur sinni í Reykjavík og var það henpi áreiðanlega mikil gleði að fá að taka þátt í uppeldi bama hennar og fylgjast með þeim vaxa úr grasi. Fyrir um það bil einu og hálfu ári flutti Lára á ellideild Sjúkrahúss Sigluíjarðar og þar andaðist hún 2. janúar sl. Starfsfólkinu þar kunn- um við bestu þakkir fyrir góða umönnun. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Kristjana Baldursdóttir. t Þakka hjartanlega auðsýnda samúð og umhyggju í veikindum, við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, ÓLAFS EDVINSSONAR. Sérstakar þakkir til lækna og annars starfsfólks deildar A7, Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Einnig til Ragnheiðar og Björgvins, Selvogsbraut 23, Þorláks- höfn, fyrir veittan stuðning og umhyggju á umliðnum árum. Guð blessi ykkur öll. Monza Edvinsson. _________MINNINGAR LÁRA G UNNARSDÓTTIR SYNING í PERLUNNI Það fremsta í íslenskri DÚða eppni umbúðahönnun og -framleiðslu helgina 20.-21. janúar 1996. Opið kl.13.00-18.00. TILBOÐSDAGAR LOPI OG BAND Værðarvoðir og peysur Opið: virka daga kl. 10-18, laugardaga og sunnudaga kl. 12-16. Sendum í póstkröfu, sími 566 6303 ÁLAFOSS VERKSMIÐJUSALAN Mosfellsbæ Weetabix. Myldu það bara - efþú vilt brjóta upp línurnar Fislétt en samt gróft og hollt fyrir meltinguna. Weetabix - hjartans mál! Létt fyrir mömmu Auömelt fyrir afa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.